Fćrsluflokkur: Spil og leikir
25.3.2015 | 09:30
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins hefst kl. 17:15
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verđur haldiđ í Víkinni Víkingsheimilinu miđvikudaginn 25. mars. Tefldar verđa 6. umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann og hefst mótiđ kl. 17.15. Allir krakkar eru velkomnir og ţátttaka er ókeypis. Keppt verđur ţrem flokkum: Flokki fćddra 1999-2005, flokki fćddra 2006-7 og flokki fćddra 2008 og yngri (ţrjú mót).
Allir fá páskaegg fyrir framistöđu sína og ţátttaka í mótinu er ókeypis. Barna og unglingaćfingar Víkingaklúbbsins verđa vikulega á miđvikudögum fram á sumar.
ATH: Nauđsynlegt er ađ skrá sig (nafn og fćđingarár) til ađ tryggja ţátttöku.
Skráning á mótiđ fer fram á Skák.is (guli kassinn efst)
Heimilisfang hér:
Knattspyrnufélagiđ Víkingur
Trađarlandi 1, 108 Reykjavík
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2015 | 08:36
Stefán og Bárđur sigra á öđru móti Páskaeggjasyrpunnar
Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur hélt áfram síđastliđinn sunnudag er annađ mótiđ af ţremur var haldiđ. Sem fyrr öttu ungir skákmenn kappi í tveimur flokkum og tefldu sex umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma. Yngri flokkur samanstóđ af börnum fćdd áriđ 2006 eđa síđar, en í eldri flokki tefldu ţeir sem eru fćddir 1999-2005.
Í yngri flokki fylgdi Stefán Orri Davíđsson eftir góđri frammistöđu sinni á nýafstöđnu Reykjavíkurskákmóti međ ţví ađ leggja alla sex andstćđinga sína ađ velli. Stefán Orri stóđ ţví uppi sem öruggur sigurvegari. Í 2.sćti varđ Guđni Viđar Friđriksson međ 5 vinninga, en hann tapađi einungis fyrir sigurvegaranum Stefáni Orra. Guđni Viđar varđ einnig í 2.sćti í fyrsta móti Páskaeggjasyrpunnar. Um 3.sćtiđ var hart barist ţví hvorki fleiri né fćrri en 6 skákmenn voru jafnir međ 4 vinninga. Eftir stigaútreikning reyndist Adam Omarsson hlutskarpastur. Af ţessum sex skákmönnum međ 4 vinninga voru tvćr stúlkur og ţví ţurfti ađ grípa til stigaútreiknings til ţess ađ fá úr ţví skoriđ hvor ţeirra hlyti stúlknaverđlaunin. Freyja Birkisdóttir var ţar sjónarmun á undan Elsu Kristínu Arnaldardóttur.
Í eldri flokki var spennan mikil allt fram í síđustu umferđ. Ţorsteinn Magnússon fór mikinn í upphafi og hafđi 4,5 vinning eftir 5 umferđir. Hann lagđi ađ velli Róbert Luu og gerđi jafntefli viđ Björn Hólm Birkisson eftir ađ hafa stađiđ til vinnings lengi vel. Í 5.umferđinni mćttust tvíburabrćđurnir Björn Hólm og Bárđur Örn Birkissynir í ćsispennandi skák ţar sem taugar keppenda sem og áhorfenda voru ţandar. Endatafliđ reyndist afar fjörlegt og erfitt fyrir áhorfendur ađ spá hvor myndi hafa betur. Ţá varđ Bárđi Erni fótaskortur sem Björn Hólm nýttir sér til ţess ađ ná vinningsstöđu. Sá galli var á gjöf Bárđar ađ mikill tími fór í ađ finna vinningsleiđina hjá Birni Hólm. Svo fór ađ Björn Hólm féll á tíma viđ ađ reyna ađ máta stakan kóng bróđur síns og niđurstađan ţví spennuţrungiđ jafntefli. Ţví var ljóst ađ síđasta umferđin yrđi ćsispennandi. Ţá mćttust Ţorsteinn og Bárđur Örn á efsta borđi. Ţá skák vann Bárđur Örn snaggaralega og tryggđi hann sér ţar međ sigur í mótinu međ 5,5 vinning. Björn Hólm vann sína skák og lauk tafli međ 5 vinninga. Sama vinningafjölda náđi Óskar Víkingur Davíđsson. Björn Hólm hlaut 2.sćtiđ eftir stigaútreikning og Óskar Víkingur endađi í 3.sćti. Stúlknaverđlaunin í eldri flokki komu í hlut Kötlu Torfadóttur en hún vann fjórar skákir. Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir kom fast á hćla Kötlu međ 3,5 vinning.
Ađ venju var dregin út happadrćttisvinningur ađ móti loknu. Líkt og í fyrsta mótinu var vinningurinn glćsileg DGT skákklukka. Upp úr pottinum kom nafn Ásgeirs Braga Baldurssonar, sá hinn sami og vann happadrćttisvinninginn í fyrstu Páskaeggjasyrpunni -ótrúlegt en satt! Ásgeir Bragi var hins vegar ekki á stađnum ţegar kom ađ útdrćtti og ţví ţurfti ađ draga aftur. Sá sem hlaut happadrćttisvinninginn ađ ţessu sinni var hinn ungi en snjalli skákmađur Róbert Luu.
Taflfélag Reykjavíkur ţakkar öllum keppendum og áhorfendum fyrir skemmtilegt mót og hlakkar til ađ taka á móti öllum aftur nćsta sunnudag er ţriđja og síđasta mót Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og TR verđur haldiđ. Ţá verđa jafnframt afhent páskaegg til ţeirra sem teflt hafa í ađ minnsta kosti tveimur mótum Páskaeggjasyrpunnar. Hlökkum til ađ sjá ykkur nćsta sunnudag!
24.3.2015 | 21:20
Björgvin sterkastur í Stangarhyl í dag
Ţađ var vel mćtt í Stangarhylnum í dag eins og ţađ er oftast nćr. 29 skákljón mćttu til leiks. Björgvin Víglundsson var sterkastur í dag eins og hann er oftast. Björgvin fékk 8 vinninga af 10 mögulegum.
Fast á hćla honum komu fjórir skákmenn allir međ 7 vinninga. Ţađ voru ţeir Össur Kristinsson, Ari Stefánsson, Viđar Jónsson og Kristinn Bjarnason. Össur og Ari voru hćstir á stigum af ţessum fjórum. Viđar og Kristinn voru ţeir einu sem náđu ađ vinna Björgvin í dag. Stefán Ţormar var svo einn í sjötta sćti međ 6.5 vinninga.
Allir hinir urđu ađ sćtta sig viđ örlítiđ fćrri vinninga í ţetta sinn.
Sjá nánari úrslit í töflu og myndum frá ESE
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2015 | 13:37
Skákmót öđlinga hefst á morgun
1. umferđ miđvikudag 25. mars kl. 19.30
2. umferđ miđvikudag 8. apríl kl. 19.30
3. umferđ miđvikudag 15. apríl kl. 19.30
4. umferđ miđvikudag 22. apríl kl. 19.30
5. umferđ miđvikudag 29. apríl kl. 19.30
6. umferđ miđvikudag 6. maí kl. 19.30
7. umferđ miđvikudag 13. maí kl. 19.30
Skráning fer fram hér.
Hér er hćgt ađ fylgjast međ skráningu.
23.3.2015 | 22:37
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram um páskana, 27. mars 5. apríl nk. Teflt er húsnćđi Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verđa níu umferđir eftir svissneska kerfinu. Mótiđ verđur jafnframt Íslandsmót kvenna.
Einnig verđur teflt í opnum flokki sem verđur opinn fyrir skákmenn međ 1600 skákstig eđa minna. Keppendur međ minna en 1600 skákstig geta valiđ á milli flokka.
Í áskorendaflokki verđa tefldar níu umferđir en í opnum flokki verđa tefldar sjö umferđir. Opnum flokki lýkur á föstudeginum langa.
Verđlaun í áskorendaflokki eru sem hér segir:
- 75.000 kr.
- 45.000 kr.
- 30.000 kr.
Verđlaun í opnum flokki:
- Ţrjár skákbćkur hjá bóksölu Sigurbjörns
- Tvćr skákbćkur hjá bóksölu Sigurbjörns
- Skákbók hjá bóksölu Sigurbjörns.
Auk ţess verđi sérstök stigaverđlaun fyrir ţá sem hafa minna en 1200 stig í opnum flokki.
Verđlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verđlaunasćtum í áskorendaflokki. Tvö efstu sćtin gefa keppnisrétt í landsliđsflokki ađ ári. Séu menn jafnir rćđur stigaútreikningur (nánar í mótsreglum hér ađ neđan). Í opnum flokki gildir stigaútreikningur um verđlaunsćti.
Skráning
Ţátttökugjöld eru 5.000 kr. Unglingar 15 ára og yngri (1999 og síđar) og F3-félagar fá 50% afslátt.
Í opnum flokki (sem eingöngu fyrir opinn fyrir ţá sem hafa 1600 skákstig eđa minna) eru ţátttökugjöld fyrir alla kr. 2.000.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Ţátttökugjöld greiđist inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir mót.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Tímamörk
Áskorendaflokkur: 90 mínútur + 30 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viđbótartími eftir hvern leik.
Opinn flokkur: 60 mínútur auk 30 sekúnda viđbótartími eftir hvern leik.
Dagskrá:
- umferđ, Föstudagurinn, 27. mars, kl. 18
- umferđ, Laugardagurinn, 28. mars, kl. 10
- umferđ, Laugardaginn, 28. mars, kl. 16
- umferđ, ţriđjudaginn 31. mars, kl. 18
- umferđ, miđvikudaginn, 1. apríl, kl. 18
- umferđ, föstudagurinn (langi), 3. apríl, kl. 10
- umferđ, föstudagurinn (langi), 3. apríl, kl. 16
- umferđ, laugardagurinn, 4. apríl, kl. 14
- umferđ, sunnudagurinn, 5. apríl, kl. 14
Opinn flokkur klárast föstudaginn 3. apríl.
Nánari mótreglur
Ef tveir eđa fleiri eru jafnir í sćti mun stigaútreikningur ráđa ferđ.
Nánar um útreikninginn:
- Samanlagđir vinningar allra andstćđinga lagđir saman nema ţess stigalćgsta
- Samanlagđir vinningar allra andstćđinga lagđir saman.
- Samanlagđir vinningar allra andstćđinga lagđir saman nema tveggja stigalćgstu
- Innbyrđis úrslit ţeirra sem eru jafnir
- Sonneborn-Berger
- Hlutkesti
Jafnteflisreglur
Takmarkanir eru settar á jafnteflisbođ. Hún gengur út á ţađ ađ ekki er heimilt ađ bjóđa jafntefli fyrr en báđir keppendur hafa leikiđ 30 leiki. Á ţví má gera undantekningar sé ţráteflt en ţá verđur ađ stöđva klukku, kalla á skákstjóra og koma međ jafntefliskröfu.
Yfirseta
Hćgt er ađ taka tvćr yfirsetur í umferđum 1-6 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska ţarf eftir yfirsetunni međ góđum fyrirvara og fylla út eyđublađ ţess efnis hjá skákstjóra.
23.3.2015 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Erwin L'ami lagđi Mamedyarov og er efstur
Hollendingurinn Erwin L'ami er efstur ţegar sjö umferđir hafa veriđ tefldar á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu en í uppgjöri efstu manna í gćr vann hann Aserann Mamedyarov í ađeins 21 leik. Ţrjár umferđir eru eftir af mótinu og línur teknar ađ skýrast hvađ varđar baráttuna um efsta sćtiđ en illa gekk hjá okkur mönnum á efstu borđum. Hannes Hlífar Stefánsson var ekki vel međ á nótunum í hvössu afbrigđi Caro-Kann varnar í skákinni viđ Perúmanninn Granda Zuniga og tapađi međ hvítu í ađeins 18 leikjum. Afbrigđiđ er ţađ sama og Kasparov tefldi í lokaskák einvígisins viđ ofurtölvu IBM Dimmblá voriđ 1997 og tapađi sem frćgt varđ í ađeins 19 leikjum.
Jón Viktor Gunnarsson hafđi fyrir umferđina hlotiđ 5 vinninga af sex mögulegum í viđureignum viđ hvern stórmeistarann á fćtur öđrum. Hann missti niđur afar vćnlega stöđu gegn Kanadamanninum Eric Hansen í áttundu umferđ og tapađi. Fyrir áttundu umferđ sem fram fer í dag er stađa efstu manna ţessi:
1. Erwin L'ami (Holland) 6˝ v.( af 7) 2.-5. Pavel Eljanov ( Úkraína ) Daniel Naroditsky (Bandaríkin), Granda Zuniga (Perú) og Eric Hansen (Kanada) 6 v.
Henrik Danielsen er sem stendur efstur íslensku skákmannanna og er međ međ 5˝ vinning ásamt 12 öđrum skákmönnum. Međ 5 vinninga eru Jón Viktor Gunnarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Héđinn Steingrímsson og Dagur Arngrímsson. Ţeir geta allir náđ háu sćti međ góđum endaspretti.
Mamedyarov sem vann fimm fyrstu skákir sínar á mótinu einsetti sér greinilega ađ flćkja tafliđ gegn Hollendingum L'ami og lagđi ýmsar gildrur fyrir hann í miđtaflinu. Ţađ kom svo flatt uppá menn ţegar hann féll á eigin bragđi:
Reykjavíkurskákmótiđ 7. umferđ
Erwin L´ami Shakriyar Mamedyarov
Enskur leikur
1. d4 d6 2. c4 e5 3. Rc3 exd4 4. Dxd4 Rc6 5. Dd2 g6 6. b3 Bg7 7. Bb2 Rf6 8. g3 O-O 9. Bg2 He8 10. Rf3 Bf5 11. Rh4 Bd7 12. O-O Dc8 13. Hfe1 Bh3 14. Bh1 Dg4 15. Rg2 Dd4 16. Had1 Re4 17. Dxd4 Bxd4 18. Hxd4 Rxd4 19. Rf4 Rg5 20. Rxh3 Rxh3 21. Kf1
Í ţessari stöđu lagđi Mamedyarov niđur vopnin og fannst mönnum ţađ sérkennilegt ţegar slíkur baráttujaxl á í hlut. Ţó hann sé skiptamun undir er stađan töpuđ, t.d. 21. ... c6 22. Re4! o.s.frv. eđa 21. ... Rc6 22. Rd5 Hec8 23. f4 og riddarinn á h3 sleppur ekki út.
Fjölmargir skákmenn eru ađ ná góđum árangri á ţessu Reykjavíkurmóti og sjá fram á mikla stigahćkkun. Einn ţeirra er hinn 13 ára gamli Hilmir Freyr Heimisson sem vann ţrautreyndan skákmann, Erling Ţorsteinsson, í 33 leikjum í gćr. Lok skákarinnar vöktu athygli:
Hilmir Freyr Heimisson Erlingur Ţorsteinsson
Hilmir hafđi fórnađ manni snemma tafls, Erlingur hitti ekki á bestu vörnina og átti í vök ađ verjast ţegar hér var komiđ sögu:
og svartur gafst upp ţví mátiđ blasir viđ, 33. .... Bxb7 34. Dc7+ Ka8 35. Hd8+ Hxd8 36. Dxd8+ Bc8 37. Dxc8 mát.
Heimsmeistarinn Magnús Carlsen kom til landsins seinni part föstudagsins og vann um kvöldiđ hina vinsćlu pub-quiz keppni ásamt landa sínum Jon Ludwig Hammer. Mćtti í Hörpuna á laugardaginn og skýrđi nokkrar skákir í streymis-útsendingum mótshaldarans, fór á pöbba-rölt um kvöldiđ og mćtti síđan í hefđbundna knattspyrnukeppni á sunnudagskvöldiđ sem fór fram í Mýrinni.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 16. mars 2015.
Spil og leikir | Breytt 22.3.2015 kl. 22:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2015 | 22:57
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins fer fram á miđvikudaginn
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verđur haldiđ í Víkinni Víkingsheimilinu miđvikudaginn 25. mars. Tefldar verđa 6. umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann og hefst mótiđ kl. 17.15. Allir krakkar eru velkomnir og ţátttaka er ókeypis. Keppt verđur ţrem flokkum: Flokki fćddra 1999-2005, flokki fćddra 2006 og yngstu krakkarnir og byrjendur tefla tefla í sérflokki. (ţrjú mót).
Allir fá páskaegg fyrir framistöđu sína og ţátttaka í mótinu er ókeypis. Barna og unglingaćfingar Víkingaklúbbsins verđa vikulega á miđvikudögum fram á sumar.
ATH: Nauđsynlegt er ađ skrá sig (nafn og fćđingarár) til ađ tryggja ţátttöku.
Skráning á mótiđ fer fram á Skák.is (guli kassinn efst)
Heimilisfang hér:
Knattspyrnufélagiđ Víkingur
Trađarlandi 1, 108 Reykjavík
22.3.2015 | 20:55
Páskaeggjamót Hugins
Páskaeggjamót Hugins verđur haldiđ í 23. sinn mánudaginn 23. mars 2015, og hefst tafliđ kl. 17, ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Páskaeggjamótiđ kemur í stađ mánudagsćfingar. Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótiđ er opiđ öllum krökkum á grunnskólaaldri.
Allir ţátttakendur keppa í einum flokki en verđlaun verđa veitt í tveimur ađskildum flokkum. Páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í eldri flokki (fćddir 1999 2002) og yngri flokki (fćddir 2003 og síđar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fćr einnig páskaegg sem og efstu ţrjár stúlkurnar á mótinu. Ađ auki verđa tvö páskaegg dregin út. Enginn fćr ţó fleiri en eitt páskaegg. Lítiđ páskaegg verđur svo fyrir ţá sem ekki vinna til verđlauna.
Páskaeggjamótiđ verđur haldiđ í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins.
22.3.2015 | 11:25
Skákfélagiđ Huginn Íslandsmeistari skákfélaga
Skákfélagiđ Huginn sigrađi á ćsispennandi Íslandsmóti skákfélaga sem lauk í gćr í Rimaskóla. Sveitin vann Skákfélag Reykjanesbćjar 7,5-0,5 í lokaumferđinni á međan helsti keppinauturinn Taflfélag Reykjavíkur sigrađi Skákdeild Fjölnis 6,5-1,5. Taflfélag Vestmannaeyja varđ í ţriđja sćti. B-, C- og D-sveitir TR unnu 2.-4. deild.
Lokastađan:
- Skákfélagiđ Huginn 56,5 v.
- Taflfélag Reykjavíkur 55 v.
- Taflfélag Vestmannaeyja 52,5 v.
- Skákdeild Fjölnis 38 v.
- Taflfélag Bolungarvíkur 36 v.
- Skákfélag Akureyrar 33,5 v.
- Víkingaklúbburinn 29,5 v.
- Skákfélagiđ b-sveit 25 v.
- Skákfélag Reykjanesbćjar 17,5 v.
- Skákfélag Íslands 16,5 v.
Nánar á Chess-Results.
Skákfélag Reykjanesbćjar og Skákfélag Íslands falla niđur í 2. deild.
Hjörvar Steinn Grétarsson, Hugin, og Björn Ţorfinnsson, TR, stóđu sig best allra en ţeir hlutu 8 vinninga í 9 skákum.
2. deild
B-sveit TR vann öruggan sigur en hún hlaut 31,5 v. Skákdeild KR varđ í öđru sćti međ 28,5. Ţessar tvćr sveitir hafa áunniđ sér rétt til ađ tefla í fyrstu deild ađ ári.
Spennan um ţriđja sćti var mikil. Ţađ féll í skaut b-sveitar Skákfélags Akureyrar en sveitin hlaut 22,5 vinning. Ađeins munađi 3 vinningum á verđlaunasćti og fallsćti.
Lokastađan:
- Taflfélag Reykjavíkur b-sveit 31,5 v.
- Skákdeild KR 28,5 v.
- Skákfélag Akureyrar b-sveit 22,5 v.
- Skákdeild Hauka 21,5 v. (9 stig)
- Taflfélag Garđabćjar 21,5 v. (7 stig)
- Skákfélagiđ Huginn c-sveit 20 v.
- Vinaskákfélagiđ 19,5 v.
- Víkingaklúbburinn b-sveit3 v.
Vinaskákfélagiđ og Víkingaklúbburinn féllu niđur í 3. deild. Afar litlu munađi ađ Vinaskákfélagiđ hefđi fengiđ hálfan vinning til viđbótar í lokaumferđinni. Ţá hefđi komiđ til ţeirra sérstöku stöđu og draga hefđi ţurft um hvort Vinaskákfélagiđ eđa b-sveit Hugins hefđi falliđ en liđin hefđu veriđ hnífjöfn eftir allan stigaútreikning.
Stöđuna má nálgast á Chess-Results.
3. deild
C-sveit Taflfélags Reykjavíkur vann öruggan sigur en sveitin hlaut fullt hús stiga. Borgnesingar og Selfyssingar urđu í 2. og 3. sćti međ 9 stig. Borgnesingar fengu fleiri vinninga og fá sćti í 2. deild ađ ári.
D-sveit Skákfélaga Akureyrar, a-unglingasveit TR og f-sveit Hugins féllu niđur í 4. deild
Stöđuna má nálgast á Chess-Results.
4. deild
D-sveit TR vann öruggan sigur en sveitin hlaut 13 stig. B-sveit Taflfélags Garđabćjar varđ í öđru sćti 12 stig. Skákgengiđ varđ í ţriđja sćti međ 10 stig. Ţessar ţrjár sveitir unnu sér keppnisrétt í 3. deild ađ ári.
Stöđuna má nálgast á Chess-Results.
Myndir vćntanlegar!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2015 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Hjörvar og Jón Viktor í fararbroddi
Hjörvar Steinn Grétarsson vann Zhansaya Abdumalik frá Kasakstan í fjórđu umferđ Reykjavíkurskákmótsins á fimmtudagskvöldiđ og var međ fullt hús vinninga ásamt fimm öđrum fyrir fimmtu umferđ sem fram fór í gćrkvöldi. Hann átti ađ tefla viđ Aserann Shakriyar Mamedyarov í toppslag umferđarinnar. Íslensku skákmennirnir hafa margir hverjir stađiđ sig prýđilega ţó enginn eins vel og Jón Viktor Gunnarsson sem hafđi hlotiđ 3 ˝ vinning úr fjórum skákum eftir sigur á Gawain Jones á fimmtudagskvöldiđ. Hann gerđi jafntefli viđ nćststigahćsta keppanda mótsins, Tékkann David Navara, sem mátti berjast fyrir jafntefli peđi undir í erfiđu hróksendatafli.
Međ 3 vinninga af fjórum voru međal annarra Hannes Hlífar Stefánsson, Einar Hjalti Jensson, Guđmundur Kjartansson, Henrik Danielsen, Einar Valdimarsson og Ţröstur Ţórhallsson. Athygli vekur einnig frammistađa hins unga Jóns Kristins Ţorgeirssonar sem er međ 2 ˝ vinnning eftir jafntefli viđ indverska stórmeistarann Sahaj Grover í 4. umferđ. Í ţeirri umferđ var heldur meira jafnrćđi međ keppendum en í ţeim fyrstu og margar stórskemmtilegar baráttuskákir sáu dagsins ljós. Mikla athygli vakti skák Héđins Steingrímssonar viđ Aserann Shakriyar Mamedyarov en Mamedyarov hafđi sigur eftir ađ hafa náđ ađ snúa á Héđin í miđtaflinu.
Jón Viktor Gunnarsson dróst á móti Svíanum Nils Grandelius í umferđ gćrdagsins. Ţađ vita flestir ađ hann á heilmikiđ inni og gćti hćglega nćlt sér í áfanga ađ stórmeistatatitli ef svo heldur fram sem horfir. Hann fann glćsilega vinningsleiđ gegn Gawain Jones ţegar margir töldu ađ hann ţyrfti ađ taka jafntefli međ ţráskák.
Gawain Jones Jón Viktor Gunnarsson
Enskur leikur
1. c4 c5 2. Rf3 g6 3. g3 Rc6 4. Rc3 Bg7 5. Bg2 d6 6. O-O Bf5 7. d3 Dd7
Ţetta dálítiđ frumstćđa kerfi sem byggist á framrás h-peđsins hefur Jón Viktor margoft reynt í hrađskák. Hvers vegna ekki ađ prófa ţađ líka í kappskák?
8. He1 Bh3 9. Bh1 h5 10. Rg5 h4 11. Rd5 hxg3 12. hxg3 Rf6 13. Rf4 Bg4 14. f3 e5!
Byrjunartaktík Jóns hefur gengiđ fullkomlega upp, hann hefur náđ ađ opna h-línuna og getur hrókerađ langt.
15. Rd5 Be6 16. e4 Rh5 17. Kf2 Bxd5 18. exd5 Rd4 19. g4 Rf6 20. Bg2 O-O-O 21. Be3 Rh7 22. Rxh7 Hxh7 23. Dd2 f5 24. Hh1 Hdh8 25. Bxd4 cxd4 26. Hxh7 Hxh7 27. Hh1 Hxh1 28. Bxh1 Dd8!
Mislitir biskupar eru engin trygging fyrir jafntefli ţví biskup svarts er miklu virkari en sá hvíti.
29. Kg3 Bf6 30. Dh6!
Góđur varnarleikur, annars kemst biskupinn til g5.
30. ... Da5!?
Lítur glćfralega út en Jón Viktor hafđi komiđ auga á hinn snjalla 32. leik.
31. gxf5 De1+ 32. Kh2 e4!
Leikur peđinu ofan í ţrćlvaldađa reitinn! Ţessu ţema beitti Kasparov betur en ađrir.
33. Df8+ Bd8! 34. fxg6 Dh4+ 35. Kg2 Dg5+ 36. Kf1 Dc1+ 37. Kg2 Dg5+ 38. Kf1 exd3 39. Dxd6 Dc1+ 40. Kg2 Dg5+ 41. Kf1
Ţađ lá ekki alveg ljóst fyrir hvernig svartur ćtlađi ađ tefla ţessa stöđu til vinnings. Ţannig gengur ekki 41. ... d2 vegna 42. De6+ Kb8 43. Ke2! o.s.frv. En Jón fann lausnina.
41. ... Dc1+ 42. Kg2 Dd2+ 43. Kh3
Eđa 43.Kg1 De3+ og 44. ... d2.
43. ... Dh6+ 44. Kg2 d2! 45. Dc5+ Kb8 46. Dxd4 Dxg6+ 47. Kh3 Dh7+ 48. Kg2 Dc2! 49. Df4+ Ka8
- og hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 14. mars 2015
Spil og leikir | Breytt 15.3.2015 kl. 23:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 3
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 8778301
Annađ
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar