Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Hollenskur sigur á Reykjavik Open Pub Quiz

20160311_233052

Reykjavik Open Pub Quiz fór fram á Hótel Plaza í gćr. Vel var mćtt en 25 tveggja manna liđ voru skráđ til keppni. Međal keppenda voru bćđi stórmeistarar og skákáhugamenn, Íslendingar og útlendingar. Kvissid fór nú fram í áttunda skipti en ţađ fór fyrst fram áriđ 2009. 

Ingvar Ţór Jóhannesson samdi spurningarnar međ hjálp Björns Ívars Karlssonar. Voru ţćr í léttari kantinum í byrjun en ţyngdust ţegar á leiđ. Ţegar fariđ var yfir rétt svör kom í ljós ađ sigurvegararnir voru Hollendingarnir Lennart Ootes og Arne Hall međ 25 spurningar réttar af 30 mögulegum. Nokkur liđ komu í humátt eftir međ yfir 20 stig og ţar á međal liđ sem Ađalsteinn Thorarensen fór fyrir.  

Spurningarnar verđa birtar á skak.is á nćstu dögum.


Úrslit í Barna Blitz fara fram á morgun

Úrslitin í Reykjavík Open Barna Blitz verđa tefld á morgun, sunnudaginn 13. mars klukkan 11:00, í höfuđstöđvum GAMMA ađ Garđastrćti 37. Sýningarsalur GAMMA, sem er ađalstyrktarađili Reykjavíkurskákmótsins, er vel til fallinn undir skákmót. Fyrir um ári síđan tefldi Mamedyarov fjöltefli ţar sem heppnađist vel.

Úrslitin eru tefld međ útsláttarfyrirkomulagi og dregiđ í hverja umferđ. Í hverri umferđ ţarf ađ vinna tvćr skákir.

Í úrslitunum eru:

Óskar Víkingur Davíđsson Huginn

Stefán Orri Davíđsson Huginn

Sindri Snćr Kristófersson Huginn

Róbert Luu Taflfélagi Reykjavíkur

Alexander Oliver Mai Taflfélagi Reykjavíkur

Stephan Briem Skákdeild Breiđabliks

Joshua Davíđsson Skákdeild Fjölnis

Sćmundur Árnason Skákdeild Fjölnis

Áhorfendur velkomnir!


Sjötta umferđ GAMMA Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 12 í dag

Dagurinn verđur tekinn snemma á GAMMA Reykajvíkurskákmótinu en sjötta umferđ hefst í dag kl. 12 í Hörpu. Stórmeistarinn Helgi Ólafsson verđur međ skákskýringar sem hefsjast kl. 14

Í Hörpu í dag má einnig nálgast síđara bindi Helga Ólafssonar um sögu Reykjavíkurskákmótins í 50 ár en hćgt verđur ađ nálgast bókina á milli 11:30 og 16:00.

Ţađ eru margar athyglisverđar viđureignir í dag. Á efstu borđunum ţremur mćtast:

  • Sergei Movsesian (2653) - Richard Rapport (2720)
  • Abhijeet Gupta (2634) - Ivan Chaparinov (2684)
  • Shakhriyar Mamedyarov (2747) - Gawain Jones (2645)

Allir hafa ţeir hafa 4,5 vinninga nema Aserinn brosmildi sem hefur 4 vinninga. 24 kákmenn hafa 4 vinninga og er Bragi Ţorfinnsson (2419) ţar eini fulltrúi landsans.

Bragi teflir viđ ítalska stórmeistarann Sabino Brunello (2567). Međal annarra viđureign má nefna ađ Hjörvar Steinn Grétarsson (2572) og Björn Ţorfinnsson (2410) tefla saman.

Skákáhugamenn eru hvattir til ađ fjölmenna í Hörpu í dag! Ókeypis ađgangur!

 


Blitz í Hörpu í kvöld

Á laugardagskvöldiđ fer fram hrađskákmót í Hörpu. Mótiđ hefst stundvíslega klukkan 20:00. Tefldar verđa níu umferđir međ 3 02 (3 mínútur + 2 sekúndur í viđbótartíma).

Skráning á mótiđ er á upplýsingaborđi Reykjavíkurmótsins í Hörpu á laugardaginn frá 11:30 – 15:00. Ekki er hćgt ađ skrá sig til ţátttöku eftir 15:00 og verđa engar undantekningar gerđar.

Ţátttökugjald er 1500 kr. og greiđist viđ skráningu. 18ára aldurstakmark.

Nánar hér; http://www.reykjavikopen.com/side-events-calendar/


GAMMA Reykjavík Open: Fimm efstir eftir 5. umferđ - Bragi efstur Íslendinga

Ţađ var nóg um ađ vera í umferđ dagsins á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Okkar fólki hefur oft gengiđ betur, en okkar efstu menn áttu allir slćman dag. 

Stórmeistararnir Gawain Jones (2645) frá Englandi og Abhijeet Gupta (2634) frá Indlandi voru efstir fyrir umferđina og tókust á um forystuna. Gawain, sem er ţekktur fyrir kraftmikla taflmennsku og fjörugar leikfléttur, sat á friđarstóli og gerđu ţeir félagar átakalítiđ jafntefli. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2572) var efstur Íslendinga fyrir umferđina og mćtti hinum ungverska GM Richard Rapport (2720) á ţriđja borđi. Sá ungverski, sem er talsvert stigahćrri, reyndist okkar manni of stór biti og fór svo ađ lokum ađ hann hafđi sigur. 

Talsvert var af fjörugum skákum og óvćntum úrslitum, en nefna má ađ svissneski alţjóđlegi meistarinn Alexandre Vuilleumier (2366) lagđi hinn unga og efnilega Aryan Tari (2553) og Agnar Tómas Möller (1882) hafđi betur gegn Thomas Lochte (2067). Óvćnt úrslit eru ţrćdd nánar hér á eftir.

Fimm stórmeistarar eru efstir og jafnir eftir umferđina og alţjóđlegi meistarinn Bragi Ţorfinnsson (2419) er efstur Íslendinga í 6. - 29. sćti međ 4 vinninga. Hann mćtir ítalska stórmeistaranum Sabino Brunello (2567) í 6. umferđ, sem hefst kl. 12 á morgun.

 

Efstu menn

1GMCheparinov Ivan BUL26844,5
2GMJones Gawain C B ENG26454,5
 GMGupta Abhijeet IND26344,5
4GMMovsesian Sergei ARM26534,5
5GMRapport Richard HUN27204,5

 

Úrslit

urslit_5umf

Nánar á Chess-Results

 

Stađan eftir 5. umferđ

Sćti NafnŢjóđStigVinn
1GMCheparinov Ivan BUL26844,5
2GMJones Gawain C B ENG26454,5
 GMGupta Abhijeet IND26344,5
4GMMovsesian Sergei ARM26534,5
5GMRapport Richard HUN27204,5
6GMMamedyarov Shakhriyar AZE27474
7GMMelkumyan Hrant ARM26534
8GMShabalov Alexander USA25204
9GMSargissian Gabriel ARM27024
10IMPaehtz Elisabeth GER24744
11GMRambaldi Francesco ITA25414
12IMTan Justin AUS24414
13GMAndreikin Dmitry RUS27324
14GMAgdestein Simen NOR26104
15GMRamirez Alejandro USA25644
16IMPetrov Nikita RUS24644
17GMMarin Mihail ROU25974
 GMGrigoriants Sergey RUS25874
19IMThorfinnsson Bragi ISL24194
20FMAntal Tibor Kende HUN24064

Nánar á Chess-Results

 

Viđtöl

IM Tania Sachdev (2370) mćtti í myndver og fór yfir sigurskák sína gegn Hannesi Hlífari (2600).

 

Skákir dagsins

Stórmeistarinn góđkunni, Mihail Marin (2597) tefldi fjöruga skák í 5. umferđ gegn fidemeistaranum Erik Hedman (2349)

 

Fidemeistarinn Povilas Lassinskas (2229) veit ađ ţeir sem gefa vinna aldrei skákir. Hann gekk ţó heldur langt í eftirfarandi skák gegn alţjóđlega meistaranum Marc Esserman (2458)

 

Óvćnt úrslit

  • Sebastian Finsterwalder (2095) 1-0 WGM Petra Papp (2325)
  • Agnar T Möller (1882) 1-0 Thomas Lochte (2067)
  • Haraldur Baldursson (1947) 0-1 Helgi Pétur Gunnarsson (1737)
  • IM Alexandre Vuilleumier (2366) 1-0 IM Aryan Tari (2553)
  • IM Tania Sachdev (2370) 1-0 GM Hannes Hlífar Stefánsson (2600)
  • Lennart Fransson (2144) ˝ - ˝ Ţór Már Valtýsson (1946) 
  • Frank Diaz (2060) ˝ - ˝ Alec Elías Sigurđarson (1365)
  • Arnar Heiđarsson (1333) ˝ - ˝ Sigurđur Daníelsson (1763)
  • Gerd Meier (1851) ˝ - ˝ Jóhann Arnar Finnsson (1664)
  • Óskar Víkingur Davíđsson (1628) ˝ - ˝ Björn Hólm Birkisson (1929)
  • Ragnar Edvardsen (1954) ˝ - ˝ Alexander Oliver Mai (1558)
  • Alexander Probst (2006) ˝ - ˝ Walter Driscoll (1810)
  • Jóhann Ingvason (2171) ˝ - ˝ Lars-Henrik Bech Hansen (1970)
  • FM Halldór Grétar Einarsson (2245) ˝ - ˝ Tom O´Gorman (2067)
  • FM James P Jackson (2347) ˝ - ˝ Kjell Hakon Lien (2083)
  • FM Marina Brunello (2363) ˝ - ˝ Mike Hoogland (2087)
  • Henrik Oie Lobersli (2134) ˝ - ˝ IM Christian Braun (2386)
  • FM Sebastian Mihajlov (2387) ˝ - ˝ Frederik Aunan Lindsoe (2112)
  • GM Nils Grandelius (2646) FM Konstantin Kavutskiy (2369)
  • Thomas Riccardi (2135) ˝ - ˝ IM Houska Jovanka (2387)
  • Thomas Schou-Moldt (2186) ˝ - ˝ Haraldur Haraldsson (1988)
  • GM Danyyil Dvirnyy (2572) ˝ - ˝ WGM Tatev Abrahamyan (2324) 

 

Pörun 6. umferđar

porun_6umf

 

Nánar á Chess-Results

 


Reykjavíkurskákmótiđ í 50 ár - seinna bindi fáanlegt í dag í Hörpu

Reykjavíkurskákmót 50 ára

Međ Sögu Reykjavíkurmótsins í 50 ár, seinna bindi, lýkur Helgi Ólafsson hálfrar aldar yfirreiđ yfir helsta skákmót Íslendinga frá upphafi.

Á ţessum tíma hefur mótiđ breyst frá ţví ađ vera lokuđ keppni fárra útvalinna meistara, áriđ 1964, í opiđ og fjölmennt skákmót, sannkallađa skákhátíđ sem skreytt er alls kyns hliđarviđburđum. Hátíđ sem stöđugt lađar breiđara og fjölmennara róf skákmanna ađ skákborđinu, allt frá erlendum ofurstórmeisturum til óreyndra íslenskra ungmenna.

Helgi Ólafsson, fćddur í Reykjavík 15. ágúst 1956, er ţriđji stórmeistari Íslands í skák. Hann er margfaldur Íslandsmeistari í kappskák, at- og hrađskák og ađ góđu kunnur fyrir umfjöllun sína um skák í dagblöđ og tímarit. Sjálfur stóđ Helgi í eldlínunni um 30 ára skeiđ, er hafsjór fróđleiks um Reykjavíkurskákmótiđ og einkar lagiđ ađ miđla ţessu efni af áhuga og ástríđu. Á 50 ára afmćlismótinu tók Helgi aftur ţátt eftir áralangt hlé. Ţar sýndi hann enn styrk sinn og lauk keppni efstur Íslendinga međal allra efstu manna.

Gefum Helga orđiđ:

"Í tveim bindum um 50 ára sögu Reykjavíkurskákmótanna hafa veriđ teknar til međferđar yfir 200 skákir en í ţví síđara, sem hér liggur fyrir, er hćgt ađ finna yfirlit yfir ţćr allar. Ég hef leitast viđ ađ spinna í kringum ţessar skákir frásagnir af baráttunni um efstu sćtin í hverju móti."

"Ţađ er auđvitađ magnađ ađ ţeir skákmenn sem taldir eru fremstir í dag hafa allir veriđ međ á Reykjavíkurskákmóti: heimsmeistarinn Magnús Carlsen og Fabiano Caruana hafa báđir tvisvar veriđ međ. Fremsta skákkona heims, Hou Yifan, var međ áriđ 2012 og einnig má nefna bestu kínversku skákmennina, Wei Yi og Liren Ding. Bandaríski stórmeistarinn Hikaru Nakamura tefldi hér 16 ára gamall áriđ 2004, Hollendingurinn Anish Giri tefldi hér áriđ 2013, einnig Filippseyingurinn Wesley So og Úkraínumađurinn Pavel Eljanov." 

Útgáfan sćtir miklum tíđindum, ţađ er ekki á hverjum degi sem skákbók er gefin út á íslensku, hvađ ţá ţegar um vandađ stórvirki er ađ rćđa eins og hér er raunin – nokkuđ sem enginn skákáhugamađur ćtti ađ láta fram hjá sér fara.

Hćgt er ađ nálgast bókina í Hörpu í dag á milli kl. 15 og 19 og svo um helgina á međan umferđum stendur. Hćgt er greiđa fyrir hana á skákstađ eđa í netbanka. Verđ kr. 4.900 kr. 


Reykjavik Open Pub Kviss fer fram í Center Hótel Plaza í kvöld - hver fetar í fótspor heimsmeistarans?

Hammer og Carlsen
Reykjavik Open Pub Kviss fer fram í kvöld á Hótel Plaza (fyrstu hćđ) klukkan kl. 21:30. Hvert liđ stendur saman af tveimur ađilum. Skráning er á stađnum og eru ţátttakendur beđnir um ađ mćta tímanlega.

Ekkert mál er fyrir staka ađila ađ mćta á stađinn og fá ţar félaga. 

30 spurningar um hvađeina er varđar skák. Sigurvegarar 2015 voru Magnus Carlsen og Jon Ludvig Hammer.

Tilbođ á köldum á krana fyrir ţá sem ţađ vilja!

Hér má sjá spurningarnar frá í fyrra: http://www.reykjavikopen.com/pub-quiz/.

Skák- og skákáhugamenn eru hvattir til ađ fjölmenna!

Stóra spurningin er: Hver fetar í fótspor heimsmeistarans?


Gupta og Jones efstir á Reykjavíkurskákmótinu - Hjörvar og Stefán efstir Íslendinga

Jones og Henrik Danielsen
Stórmeistararnir Abhijeet Gupta (2634), Indlandi, og Gawain Jones (2645) eru efstir međ fullt hús á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu ađ lokinni fjórđu umferđ sem fram fór í gćrkveldi. Sautjan skákmenn koma nćstír međ 3˝ vinning. Ţar á međal eru Hjörvar Steinn Grétarsson (2572) og Stefán Kristjánsson (2478). 

Skáksalur (1)

Leikar fara nú heldur betur ađ ćsast á mótinu. Fimmta umferđ hefst kl. 15 í dag og hefjast skákskýringar í umsjón Helga Áss Grétarsson kl. 17.

Um kl. 21:30 hefst Reykjavik Open Pub Quiz kl. 21:30 í kvöld í Center Hótel Plaza

Margar athyglisverđar eru í kvöld og má ţar nefna:

  • GA Gayain Jones (2645) - GM Abhijeet Gupta (2634)
  • GM Sabino Brunello (2567) - GM Shakhriyar Mamedyarov (2747)
  • GM Richard Rapport (2720) - Hjörvar Steinn Grétasson (2572)
  • GM Stefán Kristjánsson (2478) - Sergei Movsiesen (2653)
  • IM Tania Sadchev (2370) - Hannes Hlífar Stefánsson (2600)

 

 


Undankeppni fyrir NM stúlkna 19. mars

Norđurlandamót stúlkna fer fram í Noregi helgina 29. apríl til 1. maí. Í yngsta flokknum, stúlkur fćddar 2003 og síđar, verđur haldin undankeppni um eitt laust sćti í stúlknalandsliđi Íslands.

Undankeppnin fer fram í Skáksambandi Íslands laugardaginn 19. mars. klukkan 14:00. Tefldar verđa sjö umferđir međ tíu mínútna umhugsunartíma. Ef keppendur verđa jafnir í efsta sćti verđur teflt um sćtiđ.


Fjórđa umferđ GAMMA Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 17

Richard RapportFjórđa umferđ GAMMA Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 17 í Hörpu. Leikar eru heldar betur farnar ađ ćsast og hafa óvćnt úrslit, sett mikinn svip á mótiđ. Stórmeistararnir Henrik Danielsen og Hjörvar Steinn Grétarsson er međal ţeirra sem hafa fullt hús. Björn Ţorfinnsson heldur áfram ađ tefla viđ armenska landsliđsmenn!

Vinkona Hjörvars

Skákskýringar í umsjón Ţrastar Ţórhallssonar hefjast svo kl. 19. Helstu viđureignir dagsins eru:

  • Henrik Danielsen (2488) - Gawain Jones (2645)
  • Guđmundur Kjartansson (2446) - Richard Rapport (2720)
  • Sergei Movsesian (2653) - Björn Ţorfinnsson (2410)
  • Hannes Hlífar Stefánsson (2600) - Lars Oskar Hauge (2393)

Grćni kallinn

Áhorfendur eru hvattir til ađ fjölmenna á skákstađ. Ókeypis ađgangur ađ veislunni!

Freyja

 

 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 35
  • Sl. sólarhring: 37
  • Sl. viku: 150
  • Frá upphafi: 8778486

Annađ

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 110
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband