Fćrsluflokkur: Spil og leikir
5.4.2016 | 11:25
Áfangastađur sem skákmenn vilja vitja - viđtal viđ Helga Ólafsson
Helgi Ólafsson međ seinna bindiđ um sögu Reykjavíkurskákmótsins
Viđtal Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.
"Reykjavík er einfaldlega tákn í skákheiminum, einn af ţeim áfangastöđum sem skákmenn vilja koma til," segir Helgi Ólafsson stórmeistari, en nýlega kom út seinna bindi ritverks hans, Reykjavíkurskákmót í 50 ár. Helgi tekur ţar ţráđinn upp ţar sem fyrra bindinu sleppti og tekur saman sögu allra Reykjavíkurskákmótanna frá árinu 1992 og fram til 2014.
Reykjavíkurmótiđ hefur í seinni tíđ veriđ "opiđ" mót ţar sem hver sem er hefur getađ tekiđ ţátt óháđ getu en var á árum áđur bođsmót, ţar sem sumum af sterkustu skákmönnum heims var bođiđ til ţátttöku. "Ţetta hefur hvort tveggja sinn sjarma," segir Helgi um ţessa ţróun sem orđiđ hefur á mótinu í tímans rás.
Glćsileg umgjörđ Hörpunnar
"Ađalbreytingin hefur veriđ sú ađ ţađ eru engin stigalágmörk, sem hefur gert mótiđ nokkuđ skemmtilegt á síđustu árum," segir Helgi. Ţađ sé ekki síst vegna ţess hvađ Harpan hafi reynst áhugaverđur keppnisstađur. "Salurinn rúmar vel fjöldann, og Harpan vekur mikla athygli í umfjöllun um mótiđ, til dćmis á erlendum skákvefsíđum." Umgjörđin ţyki ţar hin glćsilegasta, en eini gallinn sem menn hafi orđiđ varir viđ sé ađ stöku sinnum berist tónlist inn í salinn frá öđrum viđburđum Hörpunnar. "Ég hef ţó ekki frétt af ţví ađ ţađ hafi truflađ menn svo nokkru nemi, ţó ađ menn séu vissulega misnćmir fyrir svona áreiti."
Ţađ breyti ţví ţó ekki ađ heildarsvipur mótsins hafi veriđ góđur í seinni tíđ. "Fólk er ađ koma hingađ héđan og ţađan víđsvegar um heiminn. Til dćmis sigurvegarinn í ár, Gupta, kemur frá Indlandi í fimmta sinn til Reykjavíkur." Ţá séu einnig keppendur frá Kína og fleiri löndum sem hafi lagt langan veg undir fót til ţess ađ taka ţátt í mótinu. "Ţađ er mörgum sem finnst ađ ţeir verđi ađ koma til Reykjavíkur og tefla, ţó ţađ sé bara einu sinni," segir Helgi.
Frćgasta skák 21. aldarinnar
Helgi segir ađ ţessar vinsćldir megi rekja til ţeirrar miklu sögu og dramatíkur sem fylgi íslenskri skáksögu. Ţá hafi ungir skákmenn oft komiđ hingađ, sem sumir hverjir séu nú međal stćrstu nafnanna í skákheiminum.
Hann nefnir sem dćmi ađ áriđ 2004 hafi Magnús Carlsen, núverandi heimsmeistari, komiđ til landsins, 13 ára gamall, til ţess ađ tefla á mótinu. "Samhliđa ţví var haldiđ Reykjavík Rapid mótiđ, og ţar vill svo til ađ hann teflir viđ Kasparov," segir Helgi. Sú skák eigi gott tilkall til ţess ađ kallast frćgasta skák sem tefld hafi veriđ á ţessari öld, en hćgt sé ađ finna umfjallanir um hana á netinu og víđar. Veki ekki síst athygli ađ undrabarniđ Carlsen gerđi jafntefli viđ Kasparov og var á tímabili međ yfirhöndina í skákinni. "Ţarna má segja ađ gamli og nýi tíminn hafi mćst," segir Helgi, sem rekur ţessa skák í verki sínu.
Viđbrigđi fyrir unga skákmenn
Ţađ séu ţó ekki bara undrabörn eins og Carlsen sem hafi notiđ góđs af mótinu, heldur hafi íslensk ungmenni mörg hver fengiđ ţar góđa reynslu inn í framtíđina. "Ţetta er mjög stór viđburđur, eitt ađalmótiđ á árinu, og ţarna fá ţau ákveđna eldskírn," segir Helgi sem segir helst hćgt ađ líkja ţessu viđ muninn á stórmóti og venjulegu móti í golfi. "Ţađ er ţví oft mikil unun ađ sjá unga skákmenn standa sig vel á ţessu móti," segir Helgi ađ lokum.
-------------------
Viđtaliđ viđ Helga var birt í Morgunblađinu 5. apríl sl. Viđtaliđ tók Stefán Gunnar Sveinsson. Stefáni Gunnari og Morgunblađinu er ţakkađ kćrlega fyrir ađ leyfa birtingu hér á Skák.is.
-------------------
Áhugasamir geta skráđ sig fyrir bókinni hér á Skák.is (guli kassinn efst). Krafa verđur ţá stofnuđ í netbanka. Ţeir sem hafa ţegar greitt bók en ekki fengiđ afhent geta nálgast eintak á skrifstofu SÍ á milli 9-13 - alla virka daga.
Einnig er hćgt ađ óska eftir ađ eintak sé sent pósti međ ţví ađ senda tölvupóst í netfangiđ skaksamband@skaksamband.is.
Spil og leikir | Breytt 11.4.2016 kl. 17:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2016 | 10:56
Ný fundargerđ stjórnar SÍ
Nú liggur fyrir fundargerđ stjórnar SÍ frá 21. mars sl. Međal ţess sem ţá var rćtt var:
- GAMMA Reykjavíkurskákiđ - fariđ yfir nokkra ţćtti
- Íslandsmótiđ í skák
- EM einstaklinga
- NM stúlkna - keppendalisti og fararstjóri
- HM öldungasveita - ákveđiđ ađ styrkja ţátttöku Gullaldarliđsins
- Ólympíumót 16 ára og yngri - ákveđiđ ađ senda liđ
- Landsliđsţjálfarar - Liđsstjórar fyrir Ól 2016 í Bakú ráđnir
- Reglugerđ um EM/HM ungmanna
Fundargerđina má nálgast í heild sinni hér.
5.4.2016 | 08:05
Ţorsteinn Magnússon sigurvegari fimmtu Bikarsyrpu TR
Fimmta Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur var haldin um nýafstađna helgi og settust ríflega 20 vösk skákungmenni viđ skákborđin. Mótiđ var ćsispennandi allt fram í síđustu umferđ og sáust mörg óvćnt úrslit.
Strax í 1.umferđ hófst fjöriđ er Adam Omarsson (1068) lagđi Arnar Milutin Heiđarsson (1403) ađ velli međ svörtu. Ţá stýrđi Benedikt Ţórisson (1000) hvítu mönnunum til sigurs gegn Svövu Ţorsteinsdóttur (1291). Kristján Dagur Jónsson (1189) gerđi jafntefli viđ Daníel Erni Njarđarson (1409) í 2.umferđ og hann vann Stefán Orra Davíđsson (1251) í 3.umferđ. Í 4.umferđ lenti Kristján Dagur hins vegar í klóm Ţorsteins Magnússonar (1306). Ţorsteinn vann skákina og var ţví efstur fyrir síđustu umferđ ásamt Sćmundi Árnasyni (1260), en Sćmundur gerđi sér lítiđ fyrir og lagđi stigahćsta mann mótsins, Jón Ţór Lemery (1575), í 4.umferđ. Ţeir Ţorsteinn og Sćmundur höfđu áđur gert innbyrđis jafntefli í 3.umferđ. Í lokaumferđinni tefldi Ţorsteinn af miklu öryggi og vann Guđmund Peng Sveinsson (0) á međan Sćmundur tapađi fyrir Stefáni Orra.
Ţorsteinn Magnússon er ţví sigurvegari fimmtu Bikarsyrpu TR. Hann hlaut 4,5 vinning í skákunum 5 og hćkkar fyrir vikiđ um 18 skákstig. Í 2.sćti varđ Stefán Orri Davíđsson međ 4 vinninga og nćldi hann sér jafnframt í 48 skákstig, sem reyndist mesta stigahćkkun allra ţátttakenda. Fjórir skákmenn koma í humátt á eftir međ 3,5 vinning, ţeir Sćmundur Árnason, Kristján Dagur Jónsson, Jón Ţór Lemery og Jason Andri Gíslason. Stigaútreikningur fćrđi Sćmundi Árnasyni bronsverđlaunin en Sćmundur hćkkađi jafnframt um 26 skákstig.
Kristján Dagur Jónsson hćkkađi nćst mest allra á ţessu móti en hann nćldi sér í 39 skákstig. Hann tefldi mjög vel í mótinu og tefldi skákir sínar í botn, og alltaf til sigurs. Til marks um ţađ ţá tefldi hann 106 leikja maraţonskák í síđustu umferđ gegn Ólafi Erni Ólafssyni ţar sem Kristján Dagur reyndi ađ finna leiđ til sigurs í jafnteflislegu riddaraendatafli. Ţrautseigjan skilađi sér ađ lokum, eftir miklar riddaratilfćrslur, er Kristján Dagur fann vinningsleiđ og vann skákina. Ţađ var ekki seinna vćnna ţví ađeins vantađi 6 leiki upp á ađ Ólafur Örn hefđi getađ krafist jafnteflis á grundvelli 50 leikja reglunnar. Kristján Dagur, sem hefur mćtt manna best á skákćfingar TR undanfarin misseri, ţekkti greinilega alla króka og kima ţessa endatafls. Ţađ skilar sér ţví augljóslega bćđi í vinningum og skákstigum ađ mćta vel á ćfingar hjá Taflfélaginu og leysa ţau verkefni sem ţar eru lögđ fyrir nemendur.
Sjötta Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur verđur haldin dagana 27.-29.maí í húsakynnum félagsins. Ţetta verđur jafnframt síđasta Bikarsyrpan á ţessu starfsári, en ţráđurinn verđur vitaskuld tekinn upp aftur nćsta haust.
Myndskreytta frásögn má finna á heimasíđu TR.
4.4.2016 | 20:50
Kjördćmamót Reykjaness í skólaskák 2016
Ţetta er einstaklingsmót og er keppt í hinum hefđbundnu aldurshólfum sem hafa gilt frá ţví ađ fyrirbćriđ "Skólaskák" var sett á laggirnar áriđ 1979.
Mótiđ fer fram föstudaginn 8. apríl í Stúkunni viđ Kópavogsvöll.
Flokkarnir sem gefa rétt til ţátttöku á kjördćmismóti eru annars vegar
7. bekkur og yngri og hins vegar unglingastig 8.-10.bekkur.
Stađsetning:
Keppt verđur í stúkunni viđ Kópavogsvöll í ađstöđu Skákdeildar Breiđabliks.
Dagskrá:
Kjördćmamót unglingastigs kl: 8.30-11.30 (mćting kl 8:15)
Kjördćmamót 7. bekk og yngri kl: 12.00-15.00 (mćting kl 11:45)
Ţátttökurétt hafa:
- nemendur í grunnskólum í Reykjaneskjördćmi í 7. bekk og yngri og 8.-10. bekk.
Frá hverjum skóla geta allir nemendur međ skákstig fengiđ ađ keppa og ađ auki 2 stigalausir í hvoru aldurshólfi sem hafa sýnt sérstaklega góđan árangur í vetur.
Mikilvćgt ađ skólar sendi fullorđinn ábyrgđarmann međ sínum krökkum til ađ hjálpa til viđ eftirlit og til ađ halda uppi aga.
Tímamörk og umferđir:
10 mín á skákina og 7 umferđir.
Skráning:
Skráning á Skák.is (guli kassinn efst) fyrir kl. 12.00 á fimmtudegi 7. apríl 2016. Mikilvćgt ađ umsjónarmenn međ skákstarfi skrái sína nemendur til ađ tryggja ađ ţeir sterkustu mćti til leiks.
Tveir efstu keppendur í eldri flokki vinna sér rétt til keppni á Landsmótinu í skólaskák og ţrír efstu í yngri flokki.
Föstudaginn 15.apríl verđa svo sérstök Kópavogsmót fyrir 1. , 2. og 3.-4.bekk, nánar auglýst í nćstu viku.
Mótsstjóri verđur Halldór Grétar Einarsson. Honum til ađstođar verđa skákennarar í Reykjaneskjördćmi.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2016 | 16:13
Wow air mótiđ hefst 11. apríl
Hiđ glćsilega Wow air Vormót Taflfélags Reykjavíkur hefst í skákhöll félagsins ađ Faxafeni 12mánudaginn 11. apríl Mótiđ er nú haldiđ í ţriđja sinn og hefur fest sig í sessi sem eitt af ađalmótum Taflfélags Reykjavíkur.
Tefldar verđa sjö umferđir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á fyrstu 40 leikina en eftir ţađ bćtast viđ 15 mínútur. 30 sekúndur bćtast viđ eftir hvern leik alla skákina. Teflt verđur einu sinni í viku á mánudagskvöldum og hefjast umferđirnar kl. 19.30 Tvćr yfirsetur (bye) verđa leyfđar í umferđum 1-5.
Mótiđ er fyrst og fremst hugsađ fyrir sterkari skákmenn og er frábćr upphitun fyrir Skákţing Íslands sem hefst ađ móti loknu.
Í A meistaraflokk hafa allir skákmenn međ GM/IM/FM/WGM titil ţátttökurétt, auk allra skákmanna međ yfir 2200 Elo skákstig.
Í B áskorendaflokk hafa allir skákmenn međ yfir 2000 Elo skákstig ţátttökurétt.
Skákmenn sem uppfylla stigalágmörkin 1. apríl eru gjaldgengir
Tveimur skákmönnum á stigabilinu 2000 2199 verđur bođiđ sćti í A flokki. Ţau sćti eru fyrst og fremst hugsuđ fyrir unga og upprennandi skákmenn á öllum aldri í mikilli framför.
Allt ađ fjórum skákmönnum sem ekki hafa tilskilin stig fyrir B flokkinn verđur bođin ţátttaka ţar. Ţau sćti eru fyrst og fremst ćtluđ efnilegustu skákkrökkunum og unglingunum, en allir geta sótt um.
Hćgt er ađ sćkja um ţessi 6 sćti međ ţví ađ senda póst á taflfelag@taflfelag.is eđa hafa samband viđ formann félagsins Björn Jónsson í síma 8999268 eigi síđar en 4. apríl.
Sigurvegari Wow air Vormótsins í fyrra var Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari. Sverrir Örn Björnsson sigrađi í B flokki og annar varđ Vignir Vatnar Stefánsson. Ţeir tveir unnu sér inn keppnisrétt í A flokki í ár, en reyndar hefur Vignir ţegar náđ tilskyldum 2200 stigum til ađ keppa í flokknum!
Glćsileg verđlaun eru í mótinu í bođi Taflfélags Reykjavíkur og vina okkar hjá Wow air.
A Meistaraflokkur:
1. Flugmiđi međ Wow air á einn af áfangastöđum félagsins í evrópu (skattar og gjöld innifaliđ) plús 40.000 krónur
2. 40.000 krónur
3. 20.000 krónur
B Áskorendaflokkur:
1. Flugmiđi međ Wow air á einn af áfangastöđum félagsins í evrópu (skattar og gjöld innifaliđ) plús 20.000 krónur
2. 20.000 krónur
3. 10.000 krónur
Auk ţess verđa veittir bikarar fyrir efsta sćtiđ í hvorum flokki auk farandbikars fyrir sigurvegara A flokks. Verđlaunapeningar fyrir annađ og ţriđja sćtiđ í báđum flokkum.
Tvö efstu sćtin í B flokki veita ţátttökurétt í A flokki ađ ári.
Umferđatafla:
- umferđ mánudag 11. apríl kl. 19.30
- umferđ mánudag 18. apríl kl. 19.30
- umferđ mánudag 25. apríl kl. 19.30
- umferđ mánudag 02. maí kl. 19.30
- umferđ mánudag 09. maí kl. 19.30
- umferđ mánudag 16. maí kl. 19.30
- umferđ mánudag 23. maí kl. 19.30
Verđlaunaafhending mun fara fram laugardaginn 28. maí, kl. 14.00 fyrir upphaf umferđar í lokamóti Bikarsyrpu TR.
Tekiđ skal fram ađ 25% af verđlaunafé úr Wow air mótinu verđur haldiđ eftir ef verđlaunahafar mćta ekki á verđlaunaafhendinguna til ađ taka viđ verđlaunum sínum án gildra ástćđna.
Ef fresta ţarf skákum verđa ţćr viđureignir tefldar á miđvikudagskvöldum kl. 19.30 (samhliđa skákmóti öđlinga).
Ţátttökugjald er kr. 5000 fyrir félagsmenn Taflfélags Reykjavíkur en kr. 10.000 fyrir ađra.
Ţeir skákmenn sem skrá sig fyrir 7. apríl fá 50% afslátt af ţátttökugjaldinu. Frítt er fyrir titilhafa á mótiđ skrái ţeir sig fyrir 7. apríl, annars kr. 5000.
4.4.2016 | 14:20
Ný reglugerđ um val keppenda á HM og EM ungmenna
Stjórn SÍ hefur sett nýja reglugerđ um val keppenda á HM og EM ungmenna. Verđur stuđst viđ reglugerđina ţegar til ţess kemur ađ velja fulltrúa Íslands á EM ungmenna sem fram fer í Prag 17.-28. ágúst nk.
Eldri reglum er breytt í nokkrum veigamiklum atriđum
- Stuđst er viđ alţjóđleg skákstig - ekki íslensk skákstig
- Ekki er lengur tekin punktstađa á stigum - heldur má horfa á hćstu skákstig síđustu sex mánađa.
- Bćtt er viđ nýjum flokki - efri afreksmörkum.
- Til stađar er ţrenn mörk og miđast ţau viđ:
- Efri afreksmörk - ef líklegt er ađ keppandi endi í efsta fjórđungi mótsins (SÍ greiđir allan kostnađ)
- Afreksmörk - ef líklegt er ađ keppandi endi í efri helmingi mótsins (SÍ greiđir helming kostnađar)
- Lágmörk - ef líklegt er ađ keppandi endi ofar en í neđsta fjórđungi mótsins (Keppandi greiđir allan kostnađ
Til hliđjónar viđ afreks- og lágmörk er horft á keppendalista á HM og EM ungmenna 2015. Afreks- og lágmörk skulu endurskođuđ árlega.
Reglugerđina í heild sinni má nálgast á heimasíđu SÍ.
Tefldar verđa níu umferđir eftir svissneska kerfinu. Fimm á laugardegi og fjórar á sunnudegi Umhugsunartími verđur 15 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Tafliđ hefst kl. 13 á laugardeginum en kl. 11 á sunnudeginum.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4. 7. bekk. Ef sérstaklega efnilegir skákmenn finnast í 1. 3. bekk er ţeim leyfilegt ađ tefla međ sínum skóla en ţá ađeins í a-sveit hans! Í hverri sveit mega vera allt ađ ţrír varamenn.
Ţátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Ţó ekki hćrri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla.
Veitt verđa verđlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verđunum fyrir efstu sveitir af landsbyggđinni.
Veitt verđa borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borđi.
Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til ţátttöku á Norđurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í september nćstkomandi í Noregi.
Skráning fer fram á Skák.is. Upplýsingar um ţegar skráđar sveitir má finna hér.
Skráningu skal lokiđ í í síđasta lagi 8. apríl
Ath. Áríđandi er ađ sveitirnar séu skráđar fyrirfram.
Skákakademía Reykjavíkur sér um framkvćmd mótsins.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2016 | 20:50
Davíđ fylgir Jóhanni í landsliđsflokk eftir spennandi lokaumferđ
FIDE-meistarinn Davíđ Kjartansson (2348) fylgir Jóhanni Ingvasyni (2171) í landsliđsflokk Íslandsmótsins í skák. Fyrir umferđina voru fimm keppendur jafnir í 2.-6. sćti međ 5,5 vinning og ljóst ađ einhver ţeirra fengi sćtiđ. Af ţessum fimm keppendum unnu ađeins tveir, ţ.e. Lenka Ptácníková (2192) vann forystusauđinn Jóhann Ingvason (2171) og Davíđ sem hafđi sigur gegn Jóni Trausta Harđarsyni (2058).
Dagur Ragnarsson (2243) og Oliver Aron Jóhannesson (2177), sem höfđu 5,5 vinninga, gerđu jafntefli í innbyrđis skák og Björgvin Víglundsson (2164), sem einnig hafđi 5,5 vinning, tapađi fyrir Vigni Vatnari Stefánssyni (2228). Eftir stóđu ţví ađeins Lenka og Davíđ.
Davíđ hafđi svo annađ sćti eftir stigaútreikning og sćti í landsliđsflokki sem fram fer á Seltjarnarnesi 31. maí - 11. júní nk.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
3.4.2016 | 09:42
Öđlingamótiđ: Skákir fyrstu umferđar
Skákir fyrstu umferđar Skákmóts öđlinga hafa veriđ slegnar inn en Ţórir Benediktsson sló ţćr inn. Ţćr fylgja međ sem viđhengi.
2.4.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Baráttan í áskorendamótinu stendur á milli Caruana og Karjakin
Ţegar tilkynnt var ađ einvígiđ um heimsmeistaratitilinn mundi fara fram í New York í haust beindust sjónir manna í Bandaríkjunum ađ áskorendamótinu í Moskvu og fulltrúum Bandaríkjanna Hikaru Nakamura og Fabiano Caruana. Líklegt verđur ađ telja ađ Nakamura njóti meiri hylli međal landa sinna en Caruana. Framlag hans til skákarinnar í Bandaríkjunum er meira. Hann er nćstyngsti skákmeistari Bandaríkjanna í sögunni, vann titilinn ađeins 16 ára gamall áriđ 2005 en sá yngsti, Bobby Fischer, varđ Bandaríkjameistari 14 ára í ársbyrjun 1958.
Fabiano Caruana hefur hinsvegar veriđ mönnum nokkur ráđgáta eftir ađ hann lýsti ţví yfir nýlega ađ hann myndi á nćstu árum tefla fyrir Bandaríkin. Hann er fćddur í Miami í Flórída og hefur mörgum sést yfir ţá stađreynd, en fyrir meira en tíu árum flutti fjölskylda hans til Madríd á Spáni og Fabiano tók síđan upp ítalskt ríkisfang til viđbótar viđ hiđ bandaríska og tefldi fyrir Ítalíu um árabil án ţess ađ hafa nokkurn tímann haft ţar fasta búsetu.
Ţegar ţetta er ritađ er stađan sú í Moskvu ađ ţessi ágćti fulltrúi Bandaríkjanna, bandaríska skáksambandsins og Ítalíu er kominn í efsta sćtiđ ásamt öđrum fulltrúa tveggja ţjóđa. Sergei Karjakin er fćddur í Úkraínu en teflir nú fyrir Rússa. Eins og áđur hefur komiđ fram vinnur sigurvegari mótsins réttinn til ađ skora á heimsmeistarann. Stađan eftir tíu umferđir:
1.-2. Caruana og Karjakin 6 v. 3.-4. Anand og Aronjan 5˝ v. 5. Giri 5 v. 6. Svidler 4˝ v. 7. Nakamura 4 v. 8. Topalov 3˝ v.
Vel mannađur áskorendaflokkur
Ţó ađ Reykjavíkurskákmótinu hafi lokiđ fyrir nokkrum dögum sitja menn ekki auđum höndum. Áskorendaflokkur Skákţings Íslands hófst í Stúkunni á Kópavogsvelli á ţriđjudaginn og er vel mannađur enda tvö sćti í landsliđsflokki í húfi. 22 skákmenn hófu keppni en stigahćstir eru Dagur Ragnarsson, Vignir Vatnar Stefánsson, Oliver Aron Jóhannesson, Lenka Ptacnikova og Ţorvarđur Ólafsson.
Ţriggja leikja dćmin
Í hinu víđlesna skáktímariti New in chess segir bandaríski stórmeistarinn Pal Benkö frá samskiptum sínum viđ Bobby Fischer og minnist ţess ţegar ţeir hittust í Lugano í Sviss haustiđ 1968 og hann lagđi fyrir hann fremur einfalt ţriggja leikja dćmi. Fischer hafđi gaman af skákdćmum en hann átti í talsverđum erfiđleikum međ ađ finna lausnina og ţađ tók hann meira en eina klukkustund.
Hvítur leikur og mátar í 3. leik.
Í ţessu sama blađi er ađ finna annađ dćmi sem Jan Timman fjallar en um höfundur ţess var mađur ađ nafni Sam Lloyd, fremsti skákdćmahöfundur Bandaríkjanna á sinni tíđ:
Hvítur leikur og mátar í 3. leik.
Kubbel og Trotzky koma strax upp í hugann ef velja á bestu skákdćmahöfunda allra tíma. Sá síđarnefndi, Alexei Trotzky, starfađi áratugum saman sem skógarvörđur og frá kofa hans bárust mörg snilldardćmi. Áriđ 1941 var Trotzky á áttrćđisaldri hćttur störfum og sestur ađ í Leningrad en innrás nasista yfirvofandi og var hvattur til ađ yfirgefa borgina en svarađi ţví til ađ hann kysi heldur ađ dvelja ţar. Ţar mćtti hann örlögum sínum og lést veturinn 1942.
Hvítur leikur og mátar í 3. leik.
Lausnir birtast í nćsta pistli.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 26. mars
Spil og leikir | Breytt 3.4.2016 kl. 09:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 14
- Sl. sólarhring: 34
- Sl. viku: 144
- Frá upphafi: 8778502
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar