Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Jón Ţór Lemery - pistill frá Halkidiki


Clipboard01

Jón Ţór Lemery tók ţátt í HM áhugamanna fyrir skemmstu. SÍ styrki hann til fararinnar og hefur Jón Ţór skilađ frá sér stórskemmtilegum og fróđlegum pistli um mótiđ.

Pistillinn hefst svo.

Í apríl síđastliđnum tók ég ţátt í alţjóđlegu skákmóti áhugamanna sem nefnist, “The 2016 World Amateur Chess Championship,” sem var haldiđ í Halkidiki á Grikklandi. Ţetta var hefđbundiđ níu umferđa mót sem teflt var á níu dögum. Ađstađan á mótinu var mjög skemmtileg. Ţađ var haldiđ á fimm stjörnu hóteli nánast úti í sveit, alveg viđ ströndina. Ţađ var mikill lúxus á hótelinu, herbergiđ okkar var á tveimur hćđum og í ţví voru tvö bađherbergi og stofa. Sundlaugagarđurinn var mjög fallegur en, eins og viđ má búast á alţjóđlegu skákmóti, var hann ekki mikiđ notađur fyrr en síđasta skákin hafđi veriđ tefld.

Pistilinn myndskreyttan í heildi sinni má finna í PDF-viđhengi.

Ađ neđan má líka finna eina skák Jóns frá mótinu.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Enn tekst Carlsen ekki ađ vinna Giri

Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2855) hefur aldrei tekist ađ vinna Anish Giri (2785) í kappskák. Ţađ breyttist ekki í fimmtu umferđ Bilbaó-mótsins í gćr ţrátt fyrir ađ kappinn vćri mjög nálćgt ţví. Öđrum skákum umferđarinnar lauk međ jafntefli.

Carlsen er efstur međ 10 stig, en veitt eru 3 stig fyrir sigur og 1 stig fyrir jafntefli. Nakamura er annar međ 7 stig og Giri, sem gert hefur jafntefli í öllum skákunum, er ţriđji međ 5 stig. Ađrir hafa 4 stig, ţ.e. gert jafntefli í öllum skákunum nema tapađ fyrir Carlsen.

Clipboard04

Frídagur er í dag en seinni hálfleikur. hefst á morgun.

Nánar má lesa um gang mála í gćr á Chess.com.


Johan Salomon skákmeistari Noregs

johan18

Skáţingi Noregs lauk í gćr í Tromsř. Hinn 18 ára Johan Salomon hafđi sigur á mótinu. Hann fékk 6˝ vinning í 9 skákum og kom jafn og mark og Kjetil A. Lie (2516) en hafđi titilinn eftir stigaútreikning. Afar litlu munađi og hefđu úrslit á fjórđa borđi orđiđ önnur hefđi Kjetil orđiđ Noregsmeistari. Johan Sebastian-Christiansen (2387) hlaut bronsiđ.

Í Noregi tefla 22 skákmenn í efsta flokki (Klasse Elite) og tefldar eru 9 umferđir. Lengi vel höfđu Norđmenn aukakeppni um titilinn en hafa aflagt ţađ kerfi. Láta stigaútreikning duga. 

Viđtal viđ Johan

Í nćstefsta flokki (Klasse mester) hafđi Jřran Aulin-Jansson (2185) yfirburđarsigur. Jřran var forseti norska skáksambandsins í átta ár en lét af embćtti í fyrra. Ţrátt fyrir ađ vera ađeins 54 ára hefur Jřran teflt á Skákţingi Noregs í meira en 40 ára samfleytt! Hann á ţó ekki metiđ.

Einn Besti árangur Jřrans en áriđ 1987 varđ hann í 1.-2. sćti í efsta flokki en tapađi einvígi um titilinn fyrir Jonathan Tisdall. Hann á ađ eigin sögn metiđ yfir flest töp í röđ í efsta flokki en hann tapađi 10 skákum í röđ árin 2006 og 2007 og er ekki viss um ađ hann ţiggi sćti í efsta flokki ađ ári. Hann er ţó viss um ađ mćta til leiks eins og venjulega!

Viđtal viđ Jřran

JJ

Heimasíđa mótsins


MVL öruggur sigurvegari Dortmund-mótsins

Maxime Vachier-Lagrave

Franski stórmeistarinn Maxime Vachier-Lagrave (2798) vann öruggan sigur á Dortmund-mótinu sem lauk í dag. Sá franski hlaut 5˝ vinning í 7 skákum og varđ 1˝ vinningi fyrir ofan nćstu menn sem voru Kramnik (2812), Caruana (2810) og Dominguez (2713). M

MVL hefur veriđ á mikilli siglingu undanfariđ og er nú í öđru sćti heimslistans í skák.

 

Clipboard01

 

Frakkinn ungi er mikill knattspyrnuáhugamađur og gerđi grín ađ ritstjóra Skák.is ţegar leikur Íslands og Frakklands í stöđunni 4-0 á EM.

Clipboard02

 

 

 


Carlsen á sigurbraut - Wesley So lagđur ađ velli í gćr

Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2855) heldur áfram sigurgöngu sinni á Bilbaó-ofurmótinu. Í gćr vann Wesley So (2770). Ţriđja sigurskákin í röđ. Öđrum skákum lauk međ jafntefli. Reyndar er ţađ ţannig ađ öllum öđrum en skákum Carlsens hefur lokiđ međ jafntefli! Carlsen hefur 9 stig, en veitt er 3 stig fyrir sigur en 1 stig fyrir jafntefli. Nakamura er annar međ 6 stig og Giri (2785) er ţriđji međ 4 stig. Fimmta umferđ hefst kl. 14 og ţá teflir heimsmeistarinn viđ Giri.  

Lesa má lesa um gang mála í gćr á Chess.com.


Skákţáttur Morgunblađsins: Ţjóđverjar sigruđu á HM skáksveita 50 ára og eldri

Gullaldarliđiđ
Ţjóđverjar unnu nauman sigur á heimsmeistaramóti skáksveita skipađra keppendum 50 ára og eldri – ţeir fengu 16 stig, jafnmörg Armenum, en ađrir ţćttir sem teknir eru inn ţegar sveitir verđa jafnar voru Ţjóđverjum hagstćđari. Fyrsta borđs mađur ţeirra, Uwe Bönsch, náđi frábćrum árangri og hlaut 7˝ vinning úr níu skákum. Bronsverđlaun hlutu Englendingar, en ţeir höfđu innanborđs hina ţekktu stórmeistara John Nunn og Jonathan Speelman.

Íslensku sveitina skipuđu Jóhann Hjartarson, sem fékk fjóra vinninga af átta mögulegum á 1. borđi, greinarhöfundur hlaut fimm vinninga af átta á 2. borđi, Margeir Pétursson hlaut sex vinninga af átta og hlaut silfurverđlaun 3. borđsmanna, 4. borđsmađurinn Jón L. Árnason hlaut fimm vinninga af átta mögulegum og Friđrik Ólafsson hlaut ţrjá vinninga af fjórum mögulegum.

Fyrir fram var Íslandi rađađ í efsta sćti styrkleikalistans en alls tóku 57 liđ ţátt í 50+ flokknum. Ţess vegna er 7. sćti vonbrigđi. Ţó gerđist ţađ einn góđan veđurdag í Dresden ađ okkur leiđ öllum eins og sigurvegurum og var ţađ vegna íslenska knattspyrnulandsliđsins sem snerti einhvern streng út yfir alla Evrópu og víđar sem náđi langt út fyrir knattspyrnuna.

Skák Jóhanns viđ Vaganjan í viđureign Íslands og Armeníu er kannski lýsandi fyrir lánleysi liđsins en var ţó einn af hápunktum mótsins og gat Jóhann veriđ stoltur af taflmennsku sinni ţrátt fyrir tapiđ:

Dresden 2016 HM 50+; 6. umferđ:

Jóhann Hjartarson( Ísland) – Rafael Vaganjan (Armenía)

Frönsk vörn

1. e4

Gefur kost á franskri vörn, uppáhaldsbyrjun Vaganjans.

1. ... e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Rf3 Db6 6. Be2 Rh6 7. Bxh6! gxh6

Jóhann vissi ađ b2-peđiđ er „eitrađ“; eftir 7. ... Dxb2 kemur 8. Be3! Dxa1 9. Dc2! og svarta drottningin er í vanda.

8. Dd2 Bg7 9. O-O O-O 10. Ra3 cxd4 11. cxd4 Bd7 12. Rc2 f6 13. exf6 Hxf6 14. b4 a6 15.a4 Hxf3!?

Skiptamunsfórn sem sést hefur áđur. Vandinn er sá ađ ţađ er auđveldara ađ tefla svörtu stöđuna. Og Vaganjan tefldi mjög hratt!

16. Bxf3 Rxd4 17. Rxd4 Dxd4 18. Dxd4 Bxd4 19. Ha2 Hc8 20. Hb1 Kf7 21. g3 Ke7 22. Kg2 Kd6 23. Bg4 h5!? 24. Bxh5 e5 25. b5 a5 26. Hd1 Bc3 27. Bf3 Be6 28. Hc2 b6

Hvítur er skiptamun yfir en peđastađa svarts er sterk og einnig kóngsstađan. Samt eru vinningsmöguleikarnir allir hvíts megin.

G18VUGJP29. Be4! d4 30. f4 exf4! 31. gxf4 Kc5!

Kóngurinn heldur í tvísýnt ferđalag. Dćmigert fyrir Vaganjan.

32. He2 Kb4 33. Bc2 Bc4 34. He7 Ka3 35. Hd7 Be2 36. Hb1 Ka2 37. Bxh7 Hf8 38. Kg3 He8

G2CVUGK9

 

 

 

39. Hg1

Jóhann taldi ađ hann hefđi leikiđ skákinni niđur međ ţessum leik rétt fyrir tímamörkin. En tapleikurinn kemur síđar ţó ađ 39. h4! eđa 39. Kf2 hefđi veriđ betra.

39. ... Kb3 40. Hb1+ Kxa4 41. Bc2+

41. h4! var best.

41. ... Ka3 42. f5?

Og nú var best ađ leika 42. Hd6 og enn á hvítur sigurmöguleika.

42. ...Ka2 43. Hg1 Kb2! 44. Ba4 d3 45. Kf2 He5

Skyndilega er svartur kominn međ unniđ tafl.

46. Hg5 Bd2 47. Hg3 Hxf5+ 48. Kg2 Hg5 49. Hxg5 Bxg5 50. Kf2 Ka3 51. Hd4 Be7 52. Hc4 Bb4 53. Bc2 dxc2

– og Jóhann gafst upp.

Rússar unnu flokk keppenda 65 ára og eldri, en í sveit ţeirra voru kunnir kappar á borđ viđ Balasjov, Vasjúkov og Svesnikov. Nćsta heimsmeistaramót öldunga fer fram í strandbćnum Eretríu í Grikklandi undir lok apríl á nćsta ári.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 9. júlí 2016

Skákţćttir Morgunblađsins


MVL međ vinningsforskot í Dortmund - kominn í annađ sćti heimslistans

Maxime Vachier-Lagrave

Franski skákmađurinn Maxime Vachier-Lagrave (2798) heldur áfram ađ gera góđa hluti á Dortmundar-mótinu sem nú er í gangi. Í fimmtu umferđ, sem fram fór í gćr, vann Evgeny Najer (2687). MVL hefur 4 vinninga og hefur vinningsforskot á nćstu menn sem eru Ponomarov (2706) og Dominguez (2713). Kramnik (2812) og Caruana (2810) gerđu jafntefli í gćr og eru í 2.-6. sćti međ 2˝ vinning.

Međ frammistöđu sinni í Dortmund hefur Frakkinn náđ öđru sćti á heimslistanum. Kominn upp fyrir Kramnik og Caruana.

Nánar má lesa um gang mála á Chess.com.

2700

Sjötta umferđ byrjar kl. 13:15 í dag.   


Heimsmeistarinn vann áskorandann - kominn á toppinn í Bilbaó

Carlsen-Karjakin

Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2755) lét ekki tapiđ fyrir Hikaru Nakamura (2787) í Bilbaó sitja lengi í sér og hefur unniđ tvćr skákir í röđ. Í gćr vann áskorandann Sergey Karjakin (2773). Hrein úrslit í öllum skákum heimsmeistarans á mótinu. Í Bilbaó eru veitt 3 stig fyrir sigur og 1 fyrir jafntefli og er Norđmađurinn kominn á toppinn en öđrum skákum í gćr lauk međ jafntefli. Nakamura er annar međ 5 stig. 

Sex skákmenn taka ţátt og tefla tvöfalda umferđ. Í fjórđu umferđ teflir Carlsen viđ Wesley So (2770), Nakamura viđ Anish Giri (2785) og Karjakin (2773) viđ Wei Yi (2696).

Lesa má lesa um gang mála í gćr á Chess.com.


Skáktilbođ á tónlistarviđburđ á morgun í Hörpu - skákmenn hvattir til ađ fjölmenna

soryang02_1350x550

Vakin er athygli á tónlistarviđburđi, sem Skáksamband Íslands stendur fyrir í Norđurljósasal Hörpu, laugardaginn 16. júlí nk., en ţar kemur fram píanistinn SoRyang Yoo, sem borin er og barnsfćdd í Seoul í S-Kóreu. Henni var á unga aldri spáđ miklum frama í tónlistinni og hafđi ţegar 11 ára ađ aldri unniđ til fjölda tónlistarverđlauna í heimalandi sínu. 16 ára gömul yfirgaf hún heimabć sinn og hélt til Evrópu til ađ afla sér frekari menntunar í tónlistinni.

Hún útskrifađist frá Folkvang-Tónlistarháskólanum í Essen međ prófgráđu sem konsert píanisti, innritađist ađ ţví loknu í Tón-og sviđslistaskólann í Vínarborg og lauk ţađan prófi sem Master of Arts.  Síđan ţá hefur SoRyang haldiđ tónleika víđa um lönd, ađallega í Evrópu. Hún er vel ţekkt fyrir túlkun sína á Mozart og heldur reglulega tónleika, ţar sem verk hans eru flutt, í Mirabell-höllinni í Salzburg, Mozart-húsinu og í St. Péturskirkjunni í Vínarborg.  

Líklega er SoRyang kunnust fyrir ađ hafa flutt músíkina úr tónlistarsölunum út á „opin svćđi“ borganna og ţannig gefiđ almenningi kost ađ á njóta klassískra verka hinna miklu meistara. Hún hefur  haldiđ tónleika á ýmsum sögufrćgum stöđum, m.a í Vínarborg og ýmsum öđrum borgum í Evrópu. Ţetta hefur boriđ hróđur SoRyang víđa, langt út fyrir hiđ nýja heimaland hennar, Austurríki. 

Ţeim sem hafa hug á ađ vita meira um SoRuyang er hćgt ađ benda á vefsíđu hennar eđa ţá "gúgla" SoRyang Yoo, SoRyang pianiste, eđa eitthvađ í ţá veru. Ţar er ađ finna mikinn fróđleik um feril hennar auk fjölda hljóđdćma frá tónleikum hennar.

Tildrög ţessara tónleika eru í stuttu máli ţau ađ Friđrik Ólafsson, stórmeistari, kynntist SoRyang á skákhátíđ í Dresden sem hann hefur sótt undanfarin ár, en ţađ er sambýlismađur SoRyang, Dr. Rainer Maas, sem stađiđ hefur fyrir skákhátíđinni í samvinnu viđ borgaryfirvöld í Dresden og skákhreyfinguna ţar í borg. Ţess má geta ađ Dr.Maas, sem rekur öflug fyrirtćki í byggingariđnađinum í Dresden og víđar, er einlćgur ađdáandi skáklistarinnar og hefur látiđ gott af sér leiđa í hennar ţágu. Er nú Dresden talin sú borg í Ţýskalandi ţar sem skáklífiđ stendur međ hvađ mestum blóma og eru ţó margar um hituna.

Til ţess ađ gera langa sögu stutta ţá hafđi Dr. Maas samband viđ Friđrik fyrir nokkru og tjáđi honum áhuga ţeirra SoRyang á ţví ađ koma til Íslands í sumar og ferđast hér um. Hann gat ţess í leiđinni ađ SoRyang gćti vel hugsađ sér ađ halda hér einn konsert eđa svo. Brást Skáksamband Íslands vel viđ óskinni og tók ađ sér skipulagningu tónleikanna.

Meiri upplýsingar um tónleikana er ađ finna á vefsíđu Hörpu.

Kaupa miđa međ 20% afslćtti


Carlsen vann Wei Yi í Bilbaó - heimsmeistarinn og áskorandinn tefla saman í dag

Carlsen - Wei Yi

Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2855) lét tapiđ gegn Hikaru Nakamura (2787) ekki sitja í sér lengi og vann kínverska undradrenginn Wei Yi (2696) í annarri umferđ Bilbaó-mótsins í gćr. Öđrum skákum lauk međ jafntefli - ţar á međal hörkuskák Anish Giri (2785) og Sergey Karjakin (2773). Í dag mćtast Karjakin og Carlsen og verđur fróđlegt ađ fylgjast međ ţeirri skák - en ţeir mćtast einmitt í heimsmeistaraeinvígi í nóvember  í New York.

Nakamura (2787) er efstur međ 4 stig en veitt er 3 stig fyrir sigur og 1 fyrir jafntefli. Carlsen er annar međ 3 stig.

Lesa má lesa um gang mála í gćr á Chess.com.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.8.): 5
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 133
  • Frá upphafi: 8779283

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 95
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband