Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Minningarmót Birnu Norđdahl á Reykhólum 20. ágúst: Keppendur hvattir til ađ skrá sig sem fyrst

Birna nýtur lífsinsÁhugasamir keppendur á Minningarmóti Birnu Norđdahl skákmeistara ćttu ađ skrá sig sem fyrst. Mótiđ fer fram í íţróttahúsinu í hinu fallega og vinalega ţorpi á Reykhólum viđ Breiđafjörđ og verđur vel tekiđ á móti öllum, enda Reykhólamenn ţekktir fyrir gestrisni. 

reykhólar hlynurMótiđ hefst laugardaginn 20. ágúst kl. 14 og verđa tefldar 8 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma. Kvenfélagskonur munu bjóđa upp á ljúffengar veitingar ađ íslenskum siđ í kaffihléi og um kvöldiđ verđur hátíđarkvöldverđur í íţróttahúsinu.  

Kvennalandsliđ Íslands mun nota tćkifćriđ og fara í 2ja daga ćfingabúđir á Reykhólum til ađ undirbúa sig fyrir Ólympíumótiđ í Bakú sem hefst í byrjun nćsta mánađar, enda var Birna einmitt frumkvöđull ţess ađ fyrst var send út kvennasveit til Buenos Aires 1978. 

Ţá hafa margir fleiri sterkir skákmenn bođađ komu sína, međ gođsögnina Friđrik Ólafsson í broddi fylkingar, ásamt nýbökuđum Íslandsmeistara Jóhanni Hjartarsyni og fyrsta heimsmeistara Íslands í skák, Jóni L. Árnasyni.

1979 ath Friđrik - KarpovVonast er til ađ fleiri félagar Jóhanns úr Ólympíuliđinu í Bakú mćti. Líka má nefna kempurnar Björn Ţorfinnsson, Rúnar Sigurpálsson og Björn Ívar Karlsson. Mótiđ er öllum opiđ og ţátttaka ókeypis. Hrafn Jökulsson svarar fyrirspurnum í hrafnjokuls@hotmail.com og síma 695 0205. 

Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit er međ sérstök tilbođ fyrir ţá sem vilja gista nóttina eftir mótiđ, og eru gestir eindregiđ hvattir til ađ taka sér tíma til ađ njóta einstćđrar náttúrufegurđar og gestrisni heimamanna. Hćgt er ađ panta á bjarkalundur@bjarkalundur.is og í bođi er eftirfarandi fyrir skákmenn: 

  • Eins manns herbergi međ sameiginlegu bađi, međ morgunmat, kr. 9.000. 

  • Tveggja manna herbergi međ sameiginlegu bađi, međ morgunmat, kr. 13.000  / 15.000. 

  • Eins manns herbergi međ sér bađi, međ morgunmat, kr. 15.000. 

  • Tveggja manna herbergi međ sér bađi, međ morgunmat, kr. 20.000. 

Ţá er einnig hćgt ađ fá gistingu á hinu vistlega og nýstandsetta gistiheimili á Reykhólum, ţar sem 2ja manna herbergi kostar kr. 11.000. Nánari upplýsingar í reykholar@hostel.is. 

Ennfremur eru í bođi mjög skemmtileg og vel búin tjaldstćđi á landnámsjörđinni Miđjanesi, nánari upplýsingar: gustafjo@mmedia.is.

Fjölmargir ađilar í hérađi ađstođa viđ undirbúning mótsins og prímus mótor í hérađi er hinn kunni sagnfrćđingur og skákvinur Hlynur Ţór Magnússon á Reykhólum.

Nánari upplýsingar hjá Hrafni Jökulssyni í hrafnjokuls@hotmail.com


Oliver Aron: Pistill frá Pardubice

Ég fór ásamt Jóni Trausta, Degi Ragnarssyni og Veroniku á Pardubice open ţann 20. júlí. Viđ millilentum í Amsterdam og tókum svo lest frá Prag til Pardubice, bara frekar ţćgilegt ferđalag. Viđ gistum í háskólaíbúđ sem ađ var ódýrasti kosturinn og ţađ fór bara vel um okkur eftir ađ viđ höfđum keypt nokkrar viftur.

Viđ mćttum á stađinn tveimur dögum fyrir mót. Ég og Dagur tefldum í A-flokk en Veronika og Jón í B-flokki. Mótiđ gekk ágćtlega hjá mér og hćkkađi ég um 23 stig. Ţađ sem stóđ uppúr mótinu hjá mér var sigur á Tékkneska stórmeistaranum Vlastimil Jansa sem ásamt Vlastimil Hort skrifađi bókina Besti Leikurinn. Ég ćtla ađ skýra ţá skák hérna ađ neđan.

Svartur á leik

Jansa-Oliver

22...g6!

Sjá nánar skákina skýrđa ađ neđan.


Topalov efstur á Sinquefield Cup

Búlgarski stórmeistarinn Veselin Topalov (2761) er efstur međ 3˝ vinning ađ loknum fimm umferđum á Sinquefield Cup sem nú er í gangi í St. Louis í Bandaríkjunum. Í gćr vann hann Ding Liren (2755).

Levon Aronian (2792), Wesley So (2771) og Vishy Anand (2770) eru í 2.-4. sćti međ 3 vinninga.

Frídagur er í dag en mótinu verđur framhaldi á morgun. Umferđir hefjast kl. 18. Skemmtilegar beinar útsendingar eru frá mótinu.

Mótstaflan

Clipboard01


Lenka međ fullt hús eftir ţrjár umferđir

2016-08-08 20.28.56

Ţriđja umferđ Íslandsmóts kvenna fór fram í gćrkveldi. Allar skákirnar unnust á hvítt. Lenka Ptácníková (2136), sem vann Hallgerđi Helgu Ţorsteindóttur (2014), er efst međ fullt hús. Guđlaug Ţorsteinóttir (20151), sem hafđi sigur gegn Hrund Hauksdóttur (1789) er önnur međ 2 vinninga og á auk ţess frestađa skák viđ Veroniku Steinunni Magnúsdóttur (1786) til góđa.

Hallgerđur lenti snemma í vandrćđum gegn Lenku sem sýndi enga miskunn. Eftir 14 leiki var stađan ţessi.

Hvítur á leik

Lenka-Halla

15.Rd5! exd5 16.He1 Re5 17.Hxe5 Be6 18.Bxg6! fxg6 19.Dxg6+ Kd7 20.Hdxd5+! Bxd5 21.Hxe7+ Kxe7 22.Dg7+ Kd6 23.De5+ Kc5 24.Dxc7+ Bc6 25.Re5 Hac8 26.Rd3+ Kc4 27.b3+ 1-0

Glćsilega teflt hjá Lenku.

Guđlaug hafđi hvítt Hrund. Hrund lék illa af sér í 9. leik.

Hvítur á leik

 

Veró-Tinna

10. Bxh7+! Hvítur verđur sćlu peđi yfir. Guđlaug nýtti sér ţađ til sigurs í 44 leikjum.

Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1786) fékk yfirburđartafl eftir byrjunina gegn Tinnu Kristínu Finnbogadóttur (1931). Eftir sautján leik kom ţessi stađa upp.

Hvítur á leik

Veró-Tinna

17. Dg4! 

Hótar 18. Dxc8+ og 19. He8# og viđ ţví á svartur fá góđ svör. Tinna reyndi 17...Bd6 en eftir 18. c5 er mađur fyrir borđ. Veronika vann skákina í 53 leikjum.

Fjórđa umferđ fer fram á fimmtudagskvöldiđ. Ţá mćtast:

Lenka - Guđlaug

Hallgerđur - Tinna

Hrund - Veronika

Fyrr um fimmtudaginn munu Guđlaug og Veronika tefla frestađ skák úr fyrstu umferđ.

 


Skákgengiđ mćtir Vinaskákfélaginu

Í dag var dregiđ í fyrstu umferđ Hrađskákkeppni taflfélaga. Tólf liđ taka ţátt og ţví fara fjögur liđ beint í 2. umferđ (8 liđa úrslit).

ATH. smávćgilegar breytingar voru gerđar á lokadagsetningu 1. umferđar, miđađ er viđ ađ henni sé lokiđ eigi síđar en 18. ágúst nk.

Pörun 1. umferđar

  • Vinaskákfélagiđ – Skákgengiđ
  • Kvennalandsliđiđ – Huginn b
  • Breiđablik – TG
  • Fjölnir – SA

TR a, TR unglingaliđ, Huginn a og SSON fara beint í 2. umferđ.

Fyrstu umferđ á ađ vera lokiđ eigi síđar en 18. ágúst nk.

Heimasíđa mótsins


Davíđ og Bárđur Örn sigurvegarar Stórmóts Árbćjarsafns og TR

image-3-768x576

Skákmenn á öllum aldri fjölmenntu á Stórmót Árbćjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur í blíđskaparveđri í dag. Ţetta skemmtilega mót hefur löngum sannađ sig sem nokkurs konar upphaf skákvertíđarinnar.

Menn mćttu misćfđir til leiks, einkum voru ungu mennirnir sprćkir, sumir ţeirra nýkomnir frá Ólympíumótinu í Slóvakíu eđa öđrum skákmótum á meginlandinu.

Röđuđu ţeir sér og í efstu sćtin, međ ţeirri undantekningu ađ Davíđ Kjartansson deildi efsta sćtinu međ Bárđi Erni Birkissyni. Davíđ virtist annars stefna í átt ađ öruggum sigri, en ţá lenti hann í klónum á tvíburabrćđrunum; hann tapađi fyrir Bárđi og gerđi jafntefli viđ Björn bróđur hans.

Ţeir Davíđ og Bárđur hlutu 5,5 vinning. Í nćstu sćti röđuđu sér -allir međ 5 vinninga- nokkrir af efnilegustu skákmönnum landsins; Björn Hólm Birkisson, Oliver Aron Jóhannesson og Vignir Vatnar Stefánsson.

Allir voru glađir međ mótiđ, enda ađbúnađur međ besta móti og teflt í fallegu umhverfi í Árbćjarsafni. Úrslit og lokastöđu má finna á chess-results.


Helgi vann á Hauganesi

baccala_-_allir

Baccalá Bar-mótinu, einu magnađasta hrađskákmóti sumarsins lauk á Hauganesi viđ Eyjafjörđ sl. laugardag. Mótiđ var haldiđ í bođi Baccalá Bar og Ektafisks á Hauganesi ţar sem athafnamađurinn Elvar Reykjalín rćđur ríkjum. Frumkvöđull ađ mótshaldinu var hinsvegar dr. Ingimar Jónsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands m.m., en hann er búsettur á Litla-Árskógssandi, skammt frá Hauganesi.

baccala_fyrsti_leikur

30 keppendur tóku ţátt í mótinu og tefldu 11 umferđir, sjö mínútna skákir. Međal ţátttakenda voru tveir stórmeistara, tveir alţjóđlegir meistarar og tveir FIDE-meistarar. Keppni á mótinu var afar jöfn og lengi vel voru norđanmenn fjölmennir í forystusveitinni, en ţeim fćkkađi nokkuđ undir lokin. Fyrir síđustu umferđ stóđ baráttan um gulliđ milli ţeirra Helga Ólafssonar og Rúnars Sigurpálssonar og ţegar ţeim síđarnefnda mistókst ađ vinna sína skák var ljóst ađ stórmeistarinn stóđ einn uppi sem siguvegari.

Lokaröđ keppenda var ţessi:

  1. Helgi Ólafsson              9
  2. Rúnar Sigurpálsson         8˝
  3. Björn Ţorfinnsson          8˝
  4. Guđmundur Kjartansson      8
  5. Ţröstur Ţórhallsson        7
  6. Haraldur Haraldsson        7
  7. Áskell Örn Kárason         6˝
  8. Jón Kristinn Ţorgeirsson   6˝
  9. Sigurđur Arnarson          6˝
  10. Elsa María Kristínardóttir 6˝
  11. Símon Ţórhallsson          6
  12. Stefán Bergsson            6
  13. Ţormar Jónsson             6
  14. Guđfinnur Kjartansson      6
  15. Loftur Baldvinsson         5˝
  16. Sigurđur Eiríksson         5˝
  17. Kristján Stefánsson        5˝
  18. Guđmundur Freyr Hansson    5˝
  19. Ingimar Jónsson            5
  20. Sveinbjörn Sigurđsson      5
  21. Stefán Arnalds             5
  22. Gauti Páll Jónsson         5
  23. Smári Ólafsson             5
  24. Karl Steingrímsson         5
  25. Jón Arnljótsson            5
  26. Ástţór Björnsson           4
  27. Ulker Gasanova             3
  28. Pétur Axel Pétursson       1˝
  29. Hilmir Vilhjálmsson        1
  30. Ottó Andrés Jónsson         ˝

Skákstjóri var Áskell Örn Kárason. Verđlaun á mótinu voru vegleg; auk 100.000 kr. í verđlaunafé, fengu efstu menn gjafabréf fyrir tvo í hvalaskođun (međ mb. Níelsi frá Hauganesi) og kippu af eđalbjórnum Kalda sem bruggađur er í nćsta nágrenni viđ skákstađinn. Sigurvegarinn fékk svo stćrđarinnar hákarlsbeitu frá Ektafiski, auk forláta hálsmens.  Keppendur sneru ţví heim sáttir og sćlir og munu mótshaldarar hafa einsett sér ađ endurtaka leikinn ađ ári. Í einu orđi sagt, frábćrt mót!

 


Halldór Atli sigurvegari Bikarsyrpu Breiđabliks - Batel sigurvegari 12 ára og yngri

13977817_10207858925764321_1047553243_o

Mikil spenna ríkti í Stúkunni alla helgina og náđi hún hámarki ţegar ađ tvćr seinustu umferđirnar fóru fram í gćr. Ţegar ađ allt kom til alls stóđ baráttan á milli Blikana Halldórs Atla og Stephans Briem en ţeir gerđu jafntefli innbyrđis í ţriđju umferđ. Báđir unnu ţeir í fjórđu umferđ nokkuđ örugglega. Í seinustu umferđ varđ einn afleikur hjá Stephani ţess valdandi ađ Halldór stóđ uppi sem sigurvegari. 

13957483_10207858926284334_975345565_n


Í flokki 12 ára og yngri sigrađi hin unga og efnilega Batel, en hún var ađeins hálfu stigi frá ţví ađ hrifsa bronsiđ í sjálfu mótinu af Svölu Ţorsteinsdóttur. Batel endađi mótiđ međ 3,5 vinning og tefldi viđ stigamenn í öllum skákum. Ađ mínu mati er Batel sigurvegari ţessa móts, ég er handviss um ţađ ađ Batel er rétt ađ byrja, hún verđur komin í landsliđiđ eftir nokkur ár međ ţessu áframhaldi. 


Skákdeild Breiđabliks ţakkar öllum sem mćttur kćrlega fyrir og vonast til ađ sjá sem flesta á ćfingum Skákdeildarinnar í vetur. Ţađ er gott ađ tefla í Kópavogi!

Heildarmótiđ: 

  1. Halldór Atli Kristjánsson 4,5/5
  2. Stephan Briem 4/5
  3. Svava Ţorsteinsdóttir 3,5/5 14,5 stig
  4. Batel Goitom 3,5/5  14 stig
  5. Daníel Ernir Njarđarson 3,5/5 13,5 stig 

12 ára og yngri: 

  1. Batel Goitom 3,5/5
  2. Örn Alexandersson 3/5
  3. Gabríel Sćr Bjarnţórsson 3/5

Sjá nánar á Chess-Results.

Birkir Karl Sigurđsson.


Hrađskákmót viđ útitafliđ á morgun

Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir hrađskákmóti viđ útitafliđ á morgun. Tafliđ hefst klukkan 12:00 og tefldar verđa fimm umferđir hrađskák. 


Hannes og Bragi enduđu á jafntefli

Hannes og Bragi

ZDMI-mótinu lauk í Dresden í gćr. Landsliđsmennirnir Hannes Hlífar Stefánsson (2577) og Bragi Ţorfinnsson (2433) luku báđir mótinu međ jafntefli. Hannes hlaut 6 vinninga og endađi í 5.-10. sćti (8. sćti á stigum) og Bragi hlaut 5,5 vinninga og endađi í 11.-19. sćti (14. sćti á stigum).

Sigurvegari mótsins varđ rússneski stórmeistarinn Anton Demchenko (2611) en hlaut 7,5 vinning.

90 skákmenn tefldu í efsta flokk mótsins. Ţar af voru 11 stórmeistarar.

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 19
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 160
  • Frá upphafi: 8778694

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 93
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband