Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Afmćlismót TV: góđ kjör á gistingu og góđ peningaverđlaun

Afmćlismót Taflfélags Vestmannaeyja fer fram komandi helgi en félagiđ er nú á sínu 90. ári. Helgi Ólafsson stórmeistari og Vestmanneyingur er stigahćstur skráđra keppenda sem eru nú um 20 talsins.

Enn er hćgt ađ skrá sig til leiks á skak.is. Afar góđ kjör fást á gistingu eđa tveggja manna herbergi í uppábúnum rúmum á 5500 kr. samtals. Ef ţrír í herbergi ţá er herbergiđ samtals á kr. 7000. Alger kostakjör og er gistingin í göngufćri viđ skákstađ. Áhugasamir um gistinguna hafi samband viđ Jóhannes í síma: 778-1500

Nánar um mótiđ má lesa hér; http://skak.blog.is/blog/skak/entry/2179051/


Steinţór Baldursson: Minning

steinthor_baldursson2

Steinţór leigđi bát í Tromsö fyrir dómarana og stóđ ađ sjálfsögđu í stefni.

Steinţór Baldursson kom eins og stormsveipur inn í íslenskt skáklíf ţegar sonur hans Felix byrjađi ađ tefla. Steinţór hafđi skođanir á hlutunum og ţar fór mikill framkvćmdamađur. Á hann var hlustađ međ athygli og innan skamms var hann bćđi kominn í stjórn Skáksambands Íslands og Taflfélagsins Hellis og reyndist gríđarlega öflugur stjórnarmađur.

Steinţór í Tromsö

Skákdómarinn Steinţór ađ störfum.

Ađ sjálfsögđu hafđi gamli handboltadómarinn mikinn áhuga á skákdómgćslu og var mjög fljótlega kominn í hlutverk skákdómarans. Tćknikunnátta Steinţórs nýttist einnig mjög vel og var hann einn helsti sérfrćđingur landsins í beinum skákútsendingum.

Skákstjórarnir í Tromsö

Íslensku dómararnir ađ störfum í Tromsó. Steinţórs er sárt saknađ í Bakú.



Steinţór var einn allra öflugasti skákdómari landsins og hafđi alţjóđleg dómararéttindi. Hann var einn skákdómara á Ólympíuskákmótinu í Tromsö 2014 og á Evrópumóti landsliđa í Laugardalshöllinni 2015. Steinţór var ţrautseigur međ afbrigđum og lét veikindin sem minnst stöđva sig. Hans síđasta skákstjóraverkefni var dómgćsla á Íslandsmótinu á Seltjarnarnesi í maí-júní sl.

Ţađ var gott ađ leita til Steinţórs. Hann var einstaklega úrráđagóđur og reyndist mér oft mjög vel ţegar ég ţurfti ráđ.

Garry Kasparov í góđum félagsskap
Garry Kasparov í góđum félagsskap.

Ţegar Steinţór er borđinn til grafar eru ég og margir ađrir úr skákhreyfingunni staddir á Ólympíuskákmótinu í Bakú í Aserbaísjan. Okkur ţykir leitt ađ geta ekki veriđ viđstödd útför Steinţórs, en viđ munum ţess í stađ kveđja okkar góđa vin međ okkar hćtti í Bakú. Til Bakú stefndi Steinţór á ađ fara en ţví miđur gekk ţađ ekki eftir. Hans er sárt saknađ.

Frasi Steinţórs, "gríđarlega vandađ",  er mikiđ notađur í Bakú og mun lifa í skákhreyfingunni um ókomna tíđ.

Skákhreyfingin hefur misst einn sinn besta mann. Margir í hreyfingunni hafa misst frábćran vin.

Claire, börnum Steinţórs, foreldrum hans og öđrum ađstandendum sendi ég einlćgar samúđarkveđjur.

Gunnar Björnsson,
Forseti Skáksambands Íslands


Íslandsmót öldunga 65+ fer fram á laugardaginn

ÍSLANDSMÓT ÖLDUNGA 65 ÁRA OG ELDRI -005

Íslandsmót öldunga  65 ára og eldri  verđur haldiđ laugardaginn 10. september  nk. í Ásgarđi, félagsheimili  FEB ađ Stangarhyl.  Ađ ţessu sinni standa báđir skákklúbbar eldri borgara á Höfuđborgarsvćđinu, RIDDARINN og ĆSIR, sameiginlega ađ mótinu, sem áđur hefur fariđ fram á vegum hins fyrrnefnda í Hafnarfirđi.

Ţetta er í ţriđja sinn sem slíkt Íslandsmót međ atskákarsniđi fer fram í ţessum aldursflokki.

Tefldar verđa 9 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma auk  3 sekúndna viđbótartíma á leik. Fjórar umferđir verđa tefldar fyrir hádegi en lokaumferđirnar fimm eftir hádegisverđarhlé.

Mótiđ hefst kl. 10 árdegis og lýkur um kl. 16.30  međ verđlaunaafhendingu. 

Ţátttökugjald er kr. 1000 og innifelur kaffi, svaladrykki og snarl međan á móti stendur. Björgvin Víglundsson er núverandi Íslandsmeistari og  hefur unniđ mótiđ í bćđi skiptin sem ţađ hefur veriđ haldiđ.  

Ađalverđlaun mótsins er kr. 50.000 ferđastyrkur á Norđurlandamótiđ í skák í Sastamala, Finnlandi, 22. -30. október nk.  Auk verđlaunagripa sem gefnir eru af Sportvöruverzluninni JÓA ÚTHERJA, verđa veitt vegleg bókaverđlaun og aldursflokkaviđurkenningar (65-70; 71-75; 76-80; 81 og eldri). Vćnst er góđrar ţátttöku sem víđast hvar ađ af landinu.  

Mótsnefndina skipa fulltrúar "Öđlinganefndar SÍ" ţeir: Einar S. Einarsson, formađur; Finnur Kr. Finnsson; Guđfinnur R. Kjartansson; Sigurđur E. Kristjánsson og Össur Kristinsson.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér

 


Íslandsmót skákfélaga hefst 29. september - félagaskiptaglugginn lokar ţann 9. september

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2016-2017 fer fram dagana 29. sept – 2. okt.  nk.  Mótiđ fer fram í Rimaskóla í Reykjavík.  1. umferđ (eingöngu í 1.deild) mun hefjast kl. 19.30 fimmtudaginn 29. september. Ađrar deildir munu hefja taflmennsku föstudaginn 30. september. kl. 20.00 og síđan tefla 1. október  kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag.  Síđasta umferđin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 2. október. 

Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viđbótartími bćtist viđ eftir hvern leik.

Ţátttökugjöld:

  • 1. deild kr. 70.000.-
  • 2. deild kr. 60.000.-
  • 3. deild kr. 20.000.-
  • 4. deild kr. 15.000.-

Skáksamband Íslands mun greiđa fargjöld utan stór-Reykjavíkursvćđisins samkvćmt reikningum fyrir sveitir í 1. og 2. deild.  Miđa skal viđ einn brottfararstađ á hverju svćđi, t.d. Akureyri, Egilsstađi, Ísafjörđ.  Sami háttur verđur hafđur í 3. og 4. deild og áđur, ţ.e. ţátttökugjöld höfđ lág en sveitirnar verđa sjálfar ađ sjá um ferđakostnađ á skákstađ.

Međfylgjandi er 3. kafli skáklaga Skáksambands Íslands sem varđa Íslandsmót skákfélaga og reglugerđ um Íslandsmót skákfélaga.

Vakin er athygli á viđbót viđ 2. grein reglugerđar um Íslandsmót Skákfélaga:

  1. gr.

Framkvćmdanefnd Íslandsmóts skákfélaga, sem skipuđ er af stjórn Skáksambands Íslands, ákveđur töfluröđ og skipar skákstjóra og umsjónarmenn Íslandsmóts skákfélaga.  Öllum taflfélögum, sem eiga sveitir í 1. deild, ber ađ útvega einn skákstjóra.  

Athugiđ ađ tilkynningar v. Keppendaskrár Skáksambands Íslands skulu hafa borist SÍ í síđasta lagi 9. september nk. sbr. 18. gr. skáklaga. 

Vakin er athygli á eftirfarandi texta í 19. grein skáklaga:  „Fyrir upphaf 1.umferđar fyrri hluta ÍS skulu félögin skila inn styrkleikaröđuđum lista allra ţeirra keppenda sem ţeir hyggjast nota í keppninni.“ 

Ţátttökutilkynningar ţurfa ađ berast Skáksambandi Íslands fyrir 20. september međ bréfi, tölvupósti (skaksamband@skaksamband.is), símleiđis eđa á Skák.is (guli kassinn). Ađ gefnu tilefni er minnt á ađ nauđsynlegt er ađ skrá sveitir í keppnina, ekki síst í 4. deild. 

Stjórn SÍ mćlist til – af gefnu tilefni - ađ félögin skrái ekki fleiri sveitir til keppni en ţau treysta sér til ađ manna í báđum hlutum keppninnar.


ÓL: Ísland blandar sér í toppbaráttuna í Bakú

image

Íslenska liđiđ í opnum flokki Ólympíuskákmótsins í Bakú vann Eistland í dag af miklu öryggi. Hjörvar Steinn Grétarsson, Jóhann Hjartarson og Bragi Ţorfinnsson unnu sínar skákir en Guđmundur Kjartansson tapađi. Ţessi 3-1 sigur tryggđi liđinu 8 stig af 10 mögulegum og er sveitin ţví komin í hóp ţjóđa á borđ viđ Rússland, Kína og Aserbaísjan.

P1040582

Hjörvar Steinn Grétarsson (2547) hefur fariđ á kostum í mótinu til ţessa og hefur unniđ allar fimm skákir sínar. Ađeins ţrír ađrir skákmenn hafa unniđ allar fimm skákir sínar; Jan-Krzysztof Duda (2675) frá Póllandi, Santosh Gujrathi Vidit (2669) frá Indlandi og Ian Nepomniachtchi (2740) frá Rússlandi. Ţá hefur Bragi Ţorfinnsson (2430) einnig unniđ allar sínar skákir en Bragi hefur teflt einni skák fćrra en Hjörvar Steinn.

Jóhann Hjartarson vann sína skák í dag međ einkar laglegum hćtti, en Guđmundur Kjartansson tapađi.

P1040603

Kvennaliđ Íslands atti kappi viđ Mexíkó í dag og tapađi naumlega 1,5-2,5. Liđiđ var hársbreidd frá ţví ađ nćla sér í jafntefli í viđureigninni. Eftir tap í 2.umferđ gegn Ítalíu hafa hamskipti Lenku Ptacnikovu (2159) veriđ slík ađ engin mótherji hefur séđ til sólar gegn henni, ţó oft hafi ţeim sýnst léttskýjađ. Lenka hefur unniđ síđustu ţrjár skákir og hefur nú 4 vinninga í 5 skákum. Guđlaug Ţorsteinsdóttir gerđi jafntefli í dag, en Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir töpuđu sínum skákum.

Í 6.umferđ opins flokks, sem hefst á fimmtudag klukkan 11 ađ íslenskum tíma, mćtir Ísland liđi Tyrklands. Í kvennaflokki mćtir Ísland liđi Perú. Báđar íslensku sveitirnar tefla ţví viđ andstćđinga sem hafa mun hćrri međalstig.

Í efstu sćtum opins flokks eru Holland, Úkraína og Indland, öll međ 10 stig. Úkraína hefur fariđ geysivel af stađ og hefur lagt bćđi Rússland og Kína ađ velli. Úkraína mćtir ofursveit Bandaríkjanna í 6.umferđ á međan Holland og Indland leiđa saman hesta sína. Í kvennaflokki eru tvćr ţjóđir međ fullt hús, Rússland og Úkraína, en ţessi liđ mćtast einmitt í nćstu umferđ.

Á morgun er eini frídagur mótsins.


Kennari verđur skákkennari: Neskaupsstađur

NeskaupsstađurNesskóli Neskaupstađ er ţátttakandi í verkefninu Kennari verđur skákkennari. Klara Sigríđur Sveinsdóttir mun í vetur kenna nemendum sínum í fjórđa bekk skák einu sinni í viku. Stefán Bergsson verkefnisstjóri heimsótti Klöru og nemendur hennar í morgun. Kennt var ţrjá tíma fyrir hádegi og fariđ yfir skákleiki og kennsluađferđir sem Klara getur nýtt sér í framhaldinu. Skólastjóri skólans er Einar Már Sigurđsson sem er mikil skákáhugamađur. Einar hafđi frá ýmsu ađ segja og m.a. sögum af alţjóđlega skákmótinu á Neskaupstađ áriđ 1984 sem Helgi Ólafsson vann. Skólinn fjárfesti í nýjum töflum og fara nemendur og Klara ţví vel búin inn í komandi skákvetur. Styrktarađili heimsóknarinnar var Hótel Capitano.


Viđureignir dagsins: Eistland og Mexíkó

Fimmta umferđ Ólympíuskákmótsins hefst kl. 11 í dag. Andstćđingar dagsins eru Eistar í opnum flokki og Mexíkóar í kvennaflokki.

Hannes Hlífar Stefánsson hvílir í dag gegn Eistum. 

Bein útsending.

Clipboard01


Íslenska kvennaliđiđ mćtir sveit Mexíkóa. Hrund Hauksdóttir hvílir. 

Bein útsending.

Clipboard02

 


Bikarsyrpa TR hefst á föstudaginn

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ ţriđja áriđ í röđ. Mót syrpunnar í vetur verđa fimm talsins og hefur umferđum hvers móts veriđ fjölgađ í sjö.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2001 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.

Fyrsta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 9. september og stendur til sunnudagsins 11. september. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.

 

Dagskrá Bikarsyrpu I:

1. umferđ: 09.september kl. 17.30 (fös).

2. umferđ: 10.september kl. 10.00 (lau).

3. umferđ: 10.september kl. 13.00 (lau).

4. umferđ: 10.september kl. 16.00 (lau).

5. umferđ: 11.september kl. 10.00 (sun).

6. umferđ: 11.september kl. 13.00 (sun).

7. umferđ: 11.september kl. 16.00 (sun).

Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni 7.umferđ.

 

Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hverja yfirsetu. Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan.

Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.

Sigurvegari mótsins hlýtur ađ launum bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2.sćti og 3.sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir samanlagđan árangur í mótunum fimm, ţar á međal er veglegur farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir samanlagđan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1.sćti gefur 5 einkatíma, 2.sćti gefur 3 einkatíma og 3.sćti gefur 2 einkatíma.

Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar til viđ undirbúning mótsins. Hlökkum til ađ sjá ykkur!

 

Skráningarform

Skráđir keppendur


Ólympíuskákmótiđ: 4. umferđ í kvennaflokki

Moldavía 1 ˝ - Ísland 2 ˝

moldavia

 

 

 

Viđ fengum liđ Moldavíu í dag, međ međalstig 2167.

Lenka hafđi svart gegn WIM Diana Baciu (2279) á 1. borđi. Upp kom tískuvörn sem viđ höfđum litiđ á fyrir skákina og bjuggumst viđ einhverju bitlausu g3-afbrigđi sem Baciu hafđi teflt nokkrum sinnum áđur. Sú moldavíska breytti ţó útaf og lék snemma h3, Be3 og Dd2 og stillti upp í kóngssókn. Lenka lenti í krappri vörn og í miđtaflinu var hún međ ,,koltapađ í tölvunum‘‘. Hún fann ţó leiđir til ţess ađ gera úrvinnsluna flókna fyrir hvítan og á ótrúlegan hátt missti Baciu af vinningsleiđinni sem tölvan mat á +17,98! Lenka fór međ kónginn á d6, beint í skotlínu hvítu mannanna og skyndilega var hún međ unniđ tafl ţví Baciu átti engar góđar skákir vegna lúmskra máthótanna Lenku. Á ţessum tímapunkti gekk undirritađur um gólf og púlsinn var ađ nálgast 200! Á sama tíma heima á Íslandi var einn Björn Ţorfinnsson ađ sturlast af spennu:

bjossi1

bjossi2

bjossi3

4lenka

Hér lék Lenka 37...Kd6! og öllum fráskákum međ riddarnum er auđvitađ svarađ međ 38...Dd2 mát, takk fyrir!

bjossi4

Frábćr baráttusigur Lenku, sem hefur unniđ tvćr skákir í röđ gegn mjög sterkum andstćđingum.

Guđlaug hafđi hvítt gegn IM Svetlana Petrenko (2176) á 2. borđi. Upp kom kóngs-indversk vörn og Gulla fékk ţćgilega stöđu út úr byrjuninni. Petrenko var međ veikt peđ á f5 og óvirka menn á kóngsvćngnum og hugsanlega hefđi Gulla getađ haldiđ pressunni og gert tilraun til ađ tefla til vinnings. Á ţessum tímapunkti var stađan í viđureigninni ađ snúast okkur í hag og viđ ţađ slakađi Gulla ađeins á klónni og hleypti Petrenko inn í skákina. 

4gulla

Hér var spurning hvort 34. a4 hefđi ekki gefiđ hvítum smá möguleika á ađ svíđa skákina. Gulla lék í stađinn 34. He1 og missti ađeins tökin á stöđunni í framhaldinu.

Sú moldavíska nýtti tćkifćriđ og sýndi góđa tćkni í framhaldinu. Gulla neyddist út í erfitt hróksendatafl og ţví varđ ţví miđur ekki bjargađ.

Hallgerđur Helga hafđi svart gegn WFM Olga Hincu (2125) á 3. borđi. Upp kom óvenjuleg leiđ gegn Grunfelds-vörn međ 3. Rd2!? Hvítur fékk rýmra og betra tafl og Halla mátti sćtta sig viđ ţrönga og erfiđa stöđu. Hún hefur sýnt ţađ hingađ til í mótinu ađ hún er hörku varnarskákmađur og ţrátt fyrir ađ hafa ţurft ađ leika riddaranum sínum til a8, ţar sem hann mátt dúsa í 21 leik(!), barđist hún eins og ljón.

4halla

Halla var ađ enda viđ ađ leika 19...Ra8 ţar sem hann valdar c7-peđiđ. Ţar fékk hann ađ dúsa í 21 leik ţangađ til ađ birtist skyndilega og klárađi skákina!

Hincu gerđi heiđarlega tilraun til ţess ađ vinna skákina, setti mikla pressu á Höllu sem fann alltaf varnir viđ hótunum hvíts. Hincu fór svo međ kónginn sinn alla leiđ á d5 en ţá sprakk svarta stađan allt í einu út međ skemmtilegu trikki, og Halla var skyndilega komin međ frumkvćđiđ. 

4-1halla

34...b5! og svartur er allt í einu kominn međ betra. Hrókurinn á a6 sveiflar sér yfir á e6 og riddarinn á a8 vaknar til lífsins. 35. Hxb5 gengur ekki ţví eftir 35...c6+ fellur hrókurinn á b5.

Halla tefldi óađfinnanlega í framhaldinu og vann frábćran sigur sem skrifast algjörlega á ótrúlega ţolinmćđi og baráttuţrek.

Veronika hafđi hvítt gegn WGM Elena Partac (2086) á 4. borđi. Viđ höfđum fyrir skákina krufiđ afbrigđi Partac í sikileyjarvörn og fundiđ ýmsar hugmyndir til ţess ađ gera henn lífiđ leitt. Veronika fór međ riddarann sinn til c4 samkvćmt planinu okkar og eftir ađ sú moldavíska hrókađi langt upphófst mikiđ kapplaup á báđum vćngjum; Veronika sótti á drottningarvćng og Partac á kóngsvćng. Veronika var alltaf međ betra tafl og vantađi ađeins herslumuninn upp á ađ fá vćnlegt endatafl og leggja ţar međ stórmeistarann ađ velli. Í tímahraki beggja endutóku ţćr stöđuna tvisvar og ţá var Veronika skynsöm og spurđi mig hvort hún ćtti ađ taka jafntefli, sem var hárrétt ákvörđun hjá henni.

4veronika

33. Re8+ og sama stađan komin upp ţrisvar. Mikilvćgt jafnteli.

Á ţessum tímapunkti voru stöđurnar hjá Lenku og Höllu ađ snúast okkur í hug svo jafntefli voru mjög góđ úrslit. Áfram hélt yfirstressađur Björn Ţorfinnsson:

bjossi5

Flott skák hjá Veroniku, sem var vel undirbúin og hafđi trú á sér í dag.

bjossi6

Á sama tíma og viđ lögđum Moldavíu ađ velli var Bragi ađ innsigla öruggan 3 1/2 - 1/2 sigur gegn Fćreyjum međ óađfinnanlegri úrvinnslu í endatafli. Ţađ voru ţví stoltir og glađir landsliđsmenn Íslands sem gengu út úr Kristalhöllinni og ţađ var glatt á hjalla í rútunni á leiđinni heim á hótel!

Á morgun fáum viđ sveit Mexíkó (međalstig: 2082) og erum fullar sjálfstrausts fyrir ţá viđureign. Ég er ánćgđur međ mjög margt í taflmennsku stelpnanna. Ţađ sem hefur skyniđ í gegn er baráttuţrekiđ í erfiđum stöđum, sem hefur veriđ ađ skila mörgum vinningum í hús. Viđ gćtum enn bćtt tímanotkunina ađeins til ţess ađ komast hjá tímahraki. Ađ sama skapi hefđi ég getađ gert betur sem liđsstjóri í dag og bent Guđlaugu á ađ bjóđa jafntefli í betri stöđu ţegar viđureignin var ađ snúast okkur í vil. Ţađ er hins vegar lúxusvandamál en mađur verđur ekki betri nema ađ vera tilbúinn ađ gagnrýna sjálfan sig - jafnvel eftir góđa sigra!

Ţangađ til nćst, bestu kveđjur frá Bakú.

Björn Ívar


Ólympíumót: 4. umferđ í opnum flokki

4th_ice_faoPörunin í fjórđu umferđ kom okkur nokkuđ á óvart. Viđ vorum búnir ađ vinna tvćr viđureignir og missa niđur einungis tvisvar sinnum hálfan vinning miđađ viđ hćsta mögulega vinningafjölda međ sigur í tveim viđureignum (1-3 í stađ 1,5-2,5 gegn Tékkum og svo 0,5 niđur gegn Sýrlandi). Viđ áttum ţví von á ţví ađ tefla upp fyrir okkur í 4. umferđ. Annađ kom á daginn ţegar frćndur okkar Fćreyingar komu upp úr hattinum. 

Ţrátt fyrir ađ viđ séum mun hćrra skrifađir á skáksviđinu áttum viđ í raun harma ađ hefna frá ţví í Tromsö ţar sem jafntefli varđ niđurstađan 2-2.

Ţví var í raun ekki annađ en sigur í bođi í viđureign dagsins. 

Hannes gerđi jafntefli nokkuđ snemma og mér fannst Bragi hafa fína stöđu. Ég var ekki avleg viss međ hinar stöđurnar. Hjörvar var klárlega alltaf međ fína stöđu en ég var hrćddur um ađ hann vćri ađ missa frumkvćđiđ og vćri ekki međ neitt. Eitthvađ var ég ađ misskilja stöđuna hjá Gumma líka og hélt ađ hún vćri shaky en líklegast var allt vel "undir control".

1. borđ : Hannes svart á Helga Dam Ziska (2546)

Helgi beitti rólegu afbrigđi í ítslska leiknum og fékk í mesta lagi eitthvađ "míkró" frumkvćđi. Hannes tefldi í raun af miklu öryggi og hratt og var ekki í mikilli hćttu í skákinni. Ţessi skák klárađist fyrst af öllum skákunum. Hannes muldrađi einhverjar pćlingar um ađ skipta ekki upp á riddara samkvćmt heilrćđi Ulf Anderson. Helgi hélt ađ Hannes hefđi bođiđ jafntefli og flengdi fram spađann sem Hannes tók glađur viđ og jafntefli niđurstađan!

2. borđ : Hjörvar hvítt á Jón Rauđgarđ (John Rodgaard)

Hjörvar hefur í ţessu móti og undanfariđ sérhćft sig í ađ fella gamalmenni á tíma. Ţessi skák var í raun engin undantekning ţar sem tímahrak Jóns hafđi mikil áhrif. Hjörvar kom Jóni á óvart í byrjuninni og ţó e.t.v. hafi hann ekki fengiđ mikiđ hafđi hann alltaf eitthvađ frumkvćđi og Rauđgarđinum leiđ ekki vel í stöđunni.

Ţegar frumkvćđiđ virtist vera ađ fjara út hélt Hjörvar tangarhaldi í vonina um skemmtilega fórn á f7-reitnum. Sú fórn var skemmtilega undirbúin međ lúmskum g3 og h4 leikjum.

4th_Hjorvar_Nxf7

Rauđgarđuinn féll í gildruna og var svo hrifinn af fórninni ađ hann leyfđi Hjörvari ađ máta sig í lokin!

4th_hjorvar_mat

4th_hjorvar_gummiHerbergi 526 átti góđan dag gegn Fćreyjum!

3. borđ : Guđmundur svart á Joan Andreasen

Gummi fékk akkúrat upp afbrigđiđ sem hann undirbjó fyrir skákina. Leikurinn hans ...c6 var sjaldgćfur og líklegast hefur hann komiđ andstćđingi hans á óvart.

Byrjanavaliđ líklega lúmskt gott hjá Gumma sem fékk ákveđna dýnamík í stöđuna sem oft getur vantađ í ađallínunum í ţessu afbrigđi

Ţegar Gummi var ađ komast inn á a-línunni var hann í raun kominn međ betra tafl međ góđan biskup og ákveđiđ tangarhald á svörtu reitunum. Ég allavega misskildi eitthvađ stöđuna, hélt ađ Gummi vćri ađ fórna peđi og ćtlađi ađ tefla stöđulega peđi undir međ granítharđan svartreitabiskup. Hann átti hinsvegar kröftugt framhald í kjölfariđ međ ...Rxe4 og mjög mikilvćgt ađ eiga svo ...f5-f4 í framhaldinu sem tryggđi svörtum mun betra tafl.

4th_gummi_Nxe4...Rxe4 var mikilvćgur leikur hér hjá Gumma!

Gummi gerđi smá mistök í úrvinnslunni í síđasta leik í tímahrakinu en ţađ kom engu ađ síđur ekki ađ sök og vinningurinn hafđist. Heilt yfir fín skák hjá Gumma.

 

4. borđ : Bragi hvítt á Sjúrđ Ţorsteinsson

4th_bragi

Bragi tefldi aftur afar vandađa skák og virđist vera ađ finna sig vel á ţessu móti. Ég var ánćgđur međ samvinnu okkur í undirbúningi en ţar var ákveđiđ ađ leita í smiđju Robin van Kampen sem er međ góđa vídeóseríu um Bb5+ í Sikileyjarvörninni. Mestur undirbúningurinn fór í ađ kíkja á fyrirlestrana hans á Chess24 og vorum viđ sammála um ađ ţessar Maroczy stöđur hentuđu skákstíl Braga fullkomlega og sérstaklega gegn ţessum andstćđing. Björn Ívar hafđi teflt nokkrar skákir viđ Sjúrđ og vildi meina ađ styrkleiki hans vćri í taktík en hann vćri ađ sama skapi slappur í manúveringum og strategískum stöđum.

Ţetta plan gekk í raun fullkomlega upp og Bragi fékk akkúrat stöđutýpuna sem viđ höfđum stúderađ og vildum fá. Fyrirlestur van Kampen var jafnframt mjög góđur og ýmsir punktar úr ţví sem Bragi nýtti sér eins og t.d. ađ drepa ekki á c6 fyrr en eftir ...a6. Reyndar vorum viđ ekki 100% vissir um hvort ţađ ćtti viđ í ţessu tilviki en ţađ hjálpar alltaf ađ hafa hugmyndir og punkta ađ vinna međ.

Sjúrđur gerđi smá mistök í byrjuninni međ ...e6 og eins missti hann af ađeins kröftugri vörn ađeins fyrr. Ađ öđru leiti varđist hann nokkuđ vel ţó svarta stađan sé alltaf passíf. Hinsvegar má Bragi eiga ţađ ađ hann tefldi ţessa skák mjög ţétt í sannkölluđum Karpov-stíl. Bragi bćtti stöđuna jafnt og ţétt og tefldi mikiđ fyrirbyggjandi gegn plönum andstćđingsins. Stađsetning hróksins á a-línunni til ađ fyrirbyggja b6-break var til dćmis lćrdómsríkt. Síđar hoppađi sá hrókur skemmtilega inn í skákina en ţađ vill oft verđa ađ skákir "flćđa" vel ţegar ţćr eru vel tefldar.

Bragi var alltaf međ ný vandamál fyrir svartan ţó ţau vćru smá og smátt og smátt molnađi Sjúrđur undan pressunni. Hann fekk einn séns á ađ berjast á móti međ ţví ađ fórna skiptamun í ca. 39. leik međ ...fxg5 en missti af ţví og ţurfti ţess í stađ ađ ţjást. Bragi klárađi úrvinnsluna glćsilega og hálfgerđ módelskák í afbrigđinu ţví niđurstađan.

Rd4_Bragi_Ne5Hér seint í skákinni var Re5+ skemmtilegur og opnađi flóđgáttir fyrir hvítu hrókana.

 

Fćreyingar voru ţví lagđir 3,5 - 0,5 sem verđa ađ teljast glćsileg úrslit. Á tímabili var undirritađur ađ sćtta sig viđ 2,5 en strákarnir voru til í meira og sóttu ţađ!

Í 5. umferđ og ţeirri síđustu fyrir eina frídag mótsins mćtum viđ ungri sveit Eista. Ţeir hafa stađiđ sig vel en engu ađ síđur er gríđarlega óvćnt ađ vera međ 3 sigra og 1 tap og tefla niđurfyrir okkur enn á ný! Ţessi viđureign er gríđarlega mikilvćg og sigur hér setur okkur í mjög góđa stöđu fyrir framhaldiđ. Viđ verđum stigahćrri á öllum borđum en Eistarnir eru ungir og hungrađir og ţetta verkefni verđur ađ tćkla af festu!


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.7.): 5
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 173
  • Frá upphafi: 8779111

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband