Færsluflokkur: Spil og leikir
9.9.2016 | 07:00
Bikarsyrpa TR hefst í dag
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað þriðja árið í röð. Mót syrpunnar í vetur verða fimm talsins og hefur umferðum hvers móts verið fjölgað í sjö.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2001 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
Fyrsta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 9. september og stendur til sunnudagsins 11. september. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.
Dagskrá Bikarsyrpu I:
1. umferð: 09.september kl. 17.30 (fös).
2. umferð: 10.september kl. 10.00 (lau).
3. umferð: 10.september kl. 13.00 (lau).
4. umferð: 10.september kl. 16.00 (lau).
5. umferð: 11.september kl. 10.00 (sun).
6. umferð: 11.september kl. 13.00 (sun).
7. umferð: 11.september kl. 16.00 (sun).
Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7.umferð.
Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hverja yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.
Þátttökugjald í mótið er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.
Sigurvegari mótsins hlýtur að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2.sæti og 3.sæti. Sérstök verðlaun verða veitt næsta vor fyrir samanlagðan árangur í mótunum fimm, þar á meðal er veglegur farandbikar. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagðan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1.sæti gefur 5 einkatíma, 2.sæti gefur 3 einkatíma og 3.sæti gefur 2 einkatíma.
Vinsamlegast skráið þátttakendur sem fyrst, það hjálpar til við undirbúning mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur!
Spil og leikir | Breytt 29.8.2016 kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2016 | 23:00
Ólympíumót: 6. umferð í opnum flokki
Eftir stórgóða byrjun á mótinu þar sem hver sigurinn á fætur öðrum hefur unnist var komið að erfiðu liði Tyrkja. Tyrkir eru númer 19 í stigaröðinni en eina tap okkur í mótinu kom einmitt á móti liði á svipuðu róli eða Tékkum númer 17 í röðinni.
Tyrkirnir eru okkur að góðu kunnir enda höfum við mætt þeim á tveim síðustu stórmótum. Við urðum að lúta í gras á EM 2015 en gerðum jafntefli við þá á ÓL í Tromsö árið 2014. Við þekkjum því Tyrkina mjög vel og Ipatov reyndar okkur að góðu kunnur einnig enda teflt á Íslandi og margir í liðinu sem þekkja hann vel enda vinsamlegur fýr. Í Tromsö spiluðum við einmitt oft fótbolta með honum en Ipatov er mikill aðdáandi Barcelona liðsins. Þess má geta að Barcelona hafa farið vel af stað í spænska boltanum með tvo sigra í tveim leikjum með markatöluna 7-2. Er líka svo að Barcelona skarta fremsta knattspyrnumanni heims að margra mati, Lionel Messi frá Argentínu. Í framhaldi af því er gaman að segja frá þvi að Sandor Mareco frá Argentínu átti einmitt glæsilega fléttu gegn Wang Yue frá Kína. Wang Yue er sterkur skákmaður en þó ekki skildur Yao Ming á nokkurn hátt en hann er fremsti körfuknattleiksmaður Kínverja frá upphafi og einn af stærstu leikmönnum í sögu NBA deildarinnar. Einn stærsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar var einmitt Manute Bol en hann er einn af tveimur NBA leikmönnum frá Súdan sem hafa spilað í NBA deildinni. Hinn er Luol Deng. Ég er að segja frá þessu því 1. borðs maður Suður-Súdan, Cepriano Rehan Deng er einmitt ekki skyldur Luol Deng. Suður-Súdan menn hafa samt slegið í gegn hér með þrjá stigalausa menn en hafa staðið sig frábærlega og meðal annars er þriðja borð þeirra með rating performance vel yfir 2100 og stefnir í flott byrjunarstig. Skák er merkilegt nokk vinsælasta sportið í Súdan en körfubolti er aðeins númer tvö þrátt fyrir almennt góða meðalhæð í landinu. Þegar við spurðum Deng hvar þeir tefldu helst í Súdan í klúbbum eða einhverju slíku var svarið einfalt...."We just play under the trees man!"... en jáhhh....aftur að umferðinni....
Að þessu sinni vorum við mættir upp á stóra sviðið. Ekki bara í líkindamáli heldur í orðsins fyllstu merkingu þar sem 10 efstu sveitirnar í opnum flokki og kvennaflokki tefla á upphækkuðu sviði sem brakar nokkuð vel í. Ég hafði á orði að við værum komnir á Saga Class og hér vildum við vera enda aðbúnaður betri þar sem keppendur hafa hálfgerð skrifborð með hólfum og allt mun vandaðra. Jóhann reyndar leiðrétti mig og benti á að þetta væri meira Economy Comfort en við værum að nálgast Saga Class!
Rétt fyrir neðan sviðið fundum við svo frændur okkar Norðmenn sem hafa átt mót vel undir væntingum. Nægir þar að nefna stórvin okkar Jón Lúðvík kenndan við Hamar en hann hefur gert jafntefli í öllum sínum skákum þrátt fyrir að tefla 150-300 stigum niður fyrir sig í hverri einustu skák. Engu að síður var öll athyglin á viðureign Norðmanna í upphafi umferðar en þar mætti forsetafrúin ungrú Haliev til að leika fyrsta leikinn fyrir Magnus Carlsen.
Ungfrú Haliev er hér að leika fyrsta leiknum fyrir Carlsen og virðist ætla að krefjast þess að hann api eftir 2. umferðinni þar sem Carlsen lék einmitt 1.e3 í fyrsta leik. Úr varð þó að peðinu var ýtt einum reit lengra.
Töfrar hennar dugðu þo skammt þar sem jafntefli varð niðurstaðan á öllum borðum gegn stigalægri sveit Filipseyja. Carlsen beitti uppskiptaafbrigðinu í franskri vörn en það hefur sjaldan verið talið líklegt til afreka og breytti Carlsen ekki ímynd þessa saklausa afbrigðis.
En færum okkur yfir í okkar menn:
1. borð Hannes hvítt á Dragan Solak
Hannes hafði sigur á Solak á ÓL í Tromsö árið 2014 sem var lykillinn að góðum úrslitum þar. Þá hafði Hannes líka hvítt. Skiljanlega splæsti Hannes því í 1.d4 í umferð dagsins. Snemma stefndi í rólegt tafl þar sem Hannes myndi njóta þess að eiga biskupaparið en svartur trausta stöðu.
Skjótt skipaðist hinsvegar veður í lofti og eftir að Dragan Solak drap með riddara á g4 lék Hannes ekki besta leiknum og lenti í algjörri beyglu. Hannes missti af 14...Df6 (bjóst við 14...Dh4 þegar 15.hxg4 er óljóst) og þvi miður var á ferðinni allt annað en léleg valdaránstilraun hjá Tyrkjanum.
Hér var Hannes í vondum málum eftir ...Df6!
Í stuttu máli reyndist erfitt að kæfa þessa valdaránstilraun niður þar sem Solak var í raun með hartnær kolunnið tafl eftir mistök Hannesar. Sem betur fer spýtti Hannes í lófana og eftir nokkra góða kaffibolla frá liðsstjóranum var Hannes einhvern veginn búinn að mjaka sér inn í skákina og eftir Bd2 var Hannes "back in the game" eins og maður segir og ÞÞ var sammála:
Þröstur reyndist þarna hafa rétt fyrir sér enda reyndur og góður Ólympíuliðsmaður. Skömmu síðar sá Solak engan annan kost en að taka þráskák. Sannkallað baráttujafntefli hjá Hannesi og gríðarlega mikilvægt fyrir liðið þar sem það leit á tímabili út fyrir tap með hvítu mönnunum. Þetta var fyrsta skákin til að klárast og gaf mönnum baráttuþrek á hinum borðunum.
2. borð: Hjörvar svart á Ipatov
Ipatov kom Hjörvari eilítið á óvart en Hjörvar hafði að mestu eytt undirbúningi í Catalan. Miðað við meðferðina sem Eistinn fékk í umferðinni á undan er kannski skiljanlegt að Ipatov hafði ákveðið að feta aðra braut. Niðurstaðan varð drottningarindversk vörn þar sem Ipatov valdi nokkuð saklaust afbrigði sem þó gaf honum aðeins betri stöðu. Á borðinu var hálfgert Noteboom afbrigði með skiptum litum ef svartur hefði drepið á b5 og leyft cxb5. Sú útgáfa hefði þó verið betri á hvítan en venjulegt Noteboom afbrigði.
Þrátt fyrir smá "tölvu-frumkvæði" hjá Ipatov virtist Hjörvar alltaf hafa fullt control á stöðunni og jafnaði taflið og var í raun stutt frá því að fá vinningssénsa sjálfur þegar Ipatov gaf peð. Íslandsvinurinn hafði þo nægar bætur að þvi er virðist og líklegast aldrei í neinni hættu þó Hjörvar hafi verið kominn með "betra í blöðunum" undir lokin.
Þessi staða er seint í taflinu. Hjörvar er peði yfir en virkni manna, peðastaða og biksupaparið tryggja Ipatov nægar bætur til að vera ekki í mikilli taphættu hér.
Jafntefli niðurstaðan og þessi skák kláraðist nánast á sama tíma og skák Braga.
3. borð: Jóhann hvítt á Yilmaz
Jóhann mætti enn og aftur gríðarlega vel undirbúinn til leiks. Ég hafði hvíslað því á Facebook að von væri á rólegu afbrigði í Najdorf en Jóhann hafði í raun "pinnað" það algjörlega niður hvað andstæðingurinn myndi tefla og ætlaði í Be2 afbrigðið gegn Najdorf.
Á daginn kom að Jói var nánast með þessa leiki alla, f3, g3, Hae1 og Ra1 í tölvunni fyrr um daginn. Þessi Ra1 manúvering er reyndar þekkt í þessum stöðum. Hugmyndin er Ra1-c2-b4 og hoppa inn á c6 reitinn. Þessi hugmynd þvingar oft ...a5 leikinn hjá svörtum en þá hefur svartur veikt sig og hvítur hefur ýmsa möguleika til að nýta sér það. Margir voru hrifnir af þessari manúveringu hjá Jóhanni:
Jóhann tefldi í raun algjöra módelskák í Karpov stíl í þessu afbrigði. Handbragðið algjörlega frábært. Ef Jóhann hefði fundið nákvæma leiki í kringum 30. leik hefði í raun verið um algjöra kennslubókarskák að ræða.
Á þessum timapunkti var Jóhann í raun búinn að búa til kebab úr svörtu stöðunni
Því miður missti Jóhann þráðinn á þeim punkti og Tyrkinn komst inn í skákina með góðri varnartaflmennsku, raunar svo góðri að hann neyddi Jóhann í skiptamunsfórn. Svartur hefur líklegast staðið betur en ekki var hlaupið að finna vinninginn.
Þegar fyrstu tímamörkum var náð vildi Tyrkinn í raun bjóða jafntefli. Hann bað liðsstjórann Krasenkow um leyfi en hann sagði honum að tefla áfram. Þegar þetta átti sér stað var staðan 1,5-1,5.
Yilmaz reyndi eitthvað áfram en Jóhann tefldi vel. Eftir tímamörkin eyddi Yilmaz miklum tíma í að reyna að finna leið til að tefla til vinnings en gekk brösulega. Ástæðan fyrir því var einfaldlega að flestar vinningstilraunir þýddu mikla áhættu og í raun það mikla að Jóhann hefði þá fína sénsa á að taka af honum vinninginn. Þegar klukka Yilmaz sýndi um 2 mínútur eftir á alla skákina var Krasenkow liðsstjóri Tyrkja orðinn svo stressaður að hann gaf skákstjóra merki um að hann ætlaði að tala við sinn liðsmann og bað hann vinsamlegast um að bjóða jafntefli hið snarasta.
Jóhanni var mikið létt þegar boðið kom en tók sér samt akademískar 30 sekúndur í að taka boðinu og tryggði þar gott jafntefli 2-2 við Tyrkina. Krasenkow var lítillega disgusted út í Yilmaz og spurði hann hvers vegna í fjandanum hann hefði skipt upp á drottningum. Ég spái honum hvíld á morgun!!
4. borð: Bragi svart á Can
Bragi mætti "heitur teitur" til leiks í þessa skák við Emre Can með fjóra vinninga úr jafn mörgum skákum. Emre þessi á sér alnafna í liði Liverpool í knattspyrnu sem hefur skapað ófáa brandarana á samskiptamiðlum.
Skák útgáfan af Emre Can virðist þó vera minna á bekknum og mætti galvaskur til leiks. Bragi líka og var vel undirbúinn. Upp kom Ragozin afbrigðið og Bragi var alls óhræddur við tilburði Tyrkjans. Snemma varð ljóst að Tyrkinn hafði í raun lítið fram að færa og fékk Bragi fína stöðu. Mannsaugað mat það þó svo að Tyrkinn stæði aðeins betur. Rannsóknir eftirá bentu þó til þess að Bragi hefði í raun að mestu haft betra í tölvunum og átt enn eina þétta og vel teflda skák.
Erfitt var að finna plan á báða bóga í lokin og þráleikið
Tyrkinn gerði í raun ekki neitt og staðan var í algjöru dýnamisku jafnvægi þegar upphófst endurtekning leikja. Tyrkinn vatt sér að Krasenkow liðsstjóra sem gaf leyfi fyrir þrátefli. Can lék og boltinn var hjá okkur. Bragi spurði mig ráða en aðeins voru um 3 mínútur á klukku Braga og Hjörvar við það að klára sína skák og því aðeins Jóhann eftir. Ég ákvað að jafnteflið væri skynsamlegt og við settum traustið á Jóhann. Jafntefli niðurstaðan og Bragi heldur áfram að tefla vel með 4,5 úr 5 skákum.
Í herbergi 537 þar sem Gulla og Lenka hafa það yfirleitt gott kom spurning um hvaða læti hefðu eiginlega verið rétt fyrir umferð í herbergi 535 (hvar undirritaður og Bragi voru staddir)....hér er svarið við því:
Greinilegt að motivation ræðurnar eru að virka hjá okkur :-)
Í ljósi þess að Tyrkirnir voru að meðaltali næstum 100 stigum hærri en við á öllum borðum verða þetta að teljast frábær úrslit.
Mótið
Þó lítill tími gefist í raun til að fylgjast með eru engu að síður gaman að labba á milli og bera alla fremstu skákmenn heims augum. Ekki er síður gaman að labba um neðri borðin og sjá flóruna af allskonar fólki frá öllum heimshornum. Eins og áður segir eru vinir okkar í Suður-Súdan i miklu uppháldi en ég tek alltaf rúnt fram hjá þeirra skákum. Í raun magnað að fylgjast með hvað þeir eru harðir, þrir þeirra stigalausir og ekki með neina þjálfun en margir hverjir að tefla vel yfir 2000 stigum að því er virðist.
Indverjar eru að slá í gegn hérna. Þeir hafa unnið allar sínar viðureignir og virðast vera að springa út með ungt og skemmtilegt lið. Í liði þeirra er enginn Anand sem fyrr og Krishnan Sasikirian ekki í liðinu og eins kemur á óvart að sjá ekki Abhijeet Gupta Íslandsvin.
Bandaríkin koma í öðru sæti en þeir hafa misst niður óvæntan hálfan matchpoint eftir jafntefli við Íslandsbanana frá Tékklandi. Bandaríkjamenn unnu góðan sigur á Úkraínu í 6. umferðinni. Úkraína var spútnikliðið ásamt Indverjum með fullt hús fyrir umferðina en þeir verða að sjálfsögðu áfram í toppbaráttu enda nú þegar búnir að leggja Rússa og Kínverja þrátt fyrir tapið gegn Bandaríkjamönnum. Caruana tryggði sigurinn með því að kreysta dropa úr steini gegn Eljanov. Bandaríkjamenn til alls líklegir.
Rússar, Kínverjar og Hollendingar koma svo í humátt á eftir með eitt tap á bakinu ásamt öðrum. Í þeim hópi er einnig skemmtileg lið Kanada sem mæta Úkraínu i 7. umferðinni. Nú fer virkilega að sverfa til stáls og verður gaman að fylgjast með næstu umferðum!
Einstaklingar að skara framúr
Hjörvar var í góðum hópi manna með fullt hús 5 af 5 fyrir umferðina. Eftir umferðina er aðeins einn eftir með 6 vinninga af 6 en Hjörvar kemur í humátt á eftir í góðum hópi.
7. umferðin
Í 7. umferð er komið að annarri traustri sveit. Grikkir eru númer 18 í röðinni og við því að fá sveitir 17-19 í þessu móti. Til marks um hvað Grikkir hafa verið traustir töpuðu þeir sinni fyrstu skák í dag þegar Stelios Halkias tapaði gegn Azerbaijan. Tyrkirnir hafa ekki enn tapað viðureign en hafa gert mikið af jafnteflum í stökum skákum. Ég tel okkur eiga finan séns á að ná úrslitum gegn þessari sveit þó að vissulega séu þeir traustir og stigahærri en við. Við búumst við að Halkias hvíli og að við mætum aðalliði þeirra.
Áfram Ísland, muna að negla og "I AM A CHAMPION!"
Frá Baku í Azerbaijan,
Ingvar Þór Jóhannesson - liðsstjóri í opnum flokki.
Spil og leikir | Breytt 9.9.2016 kl. 08:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2016 | 22:34
Ólympíuskákmótið: 6. umferð í kvennaflokki
Ísland 1 ½ - Perú 2 ½
Við mættum liði Perú (meðalstig: 2175) í 6. umferð.
Íslenska kvennalandsliðið fyrir 6. umferð.
Lenka hafði hvítt gegn WGM Cori T. Deysi (2402) á 1. borði. Deysi hefur m.a. teflt á Reykjavik Open ásamt bróður sínum Jorge Cori. Upp kom kóngsindversk vörn sem við höfðum litið vel á fyrir skákina. Staðan eftir byrjunina var í jafnvægi og hélst í raun þannig langt fram eftir miðtaflinu. Mér fannst Lenka standa vel en í raun bauð staðan ekki upp á mikið og kannski mátti hvorugur hreyfa sig mikið. Eftir tímamörkin komu upp töluverðar flækjur og þá þurfti Lenka að gefa skiptamun.
Hér lék Cori 46...Re5! og fékk betra tafl. Hvítur má ekki drepa á e5 vegna 47...Bxe5+ eða 47...Bg5+
Lenka náði samt að halda stöðunni saman og átti góða möguleika á jafntefli í framhaldinu. Í tímahrakinu missti hún af bestu vörninni, lék af sér hrók og neyddist til að gefast upp. Hörku skák sem hefði endað með jafntefli á góðum degi.
Guðlaug hafði svart gegn Vanessa Sanchez Zambrano (1892) á 2. borði. Guðlaug tefldi sjaldgæft afbrigði í slavneskri vörn, sem við höfðum litið á, þar sem hún hirti snemma hvíta peðið á c4 og hékk á því eins lengi og hún gat.
Gulla lék síðast 4...Be6!? til að hanga á peðinu á c4. Hér getur hvítur leikið skákinni af sér með 5. Rg5?? Da5+!
Liðsstjórinn grettir sig og vonast eftir 5. Rg5??
Zambrano féll þó ekki í gildruna en tefldi engu að síður alltof passíft, fékk litlar bætur fyrir peðið í framhaldinu og Guðlaug hafði fullt ,,kontról á stöðunni. Í framhaldinu náði hún að virkja mennina sína og ýta frípeðunum sínum á drottningarvæng. Zambrano átti engin svör við þessu og sannfærandi sigur Guðlaugar staðreynd í vel útfærðri skák.
Hallgerður Helga hafði hvítt gegn Ann Chumpitaz (2150) á 3. borði. Upp kom ítalskur leikur og Chumpitaz jafnaði taflið snemma. Halla lenti fljótlega í erfiðri vörn en varðist vel, eins og svo oft áður, og náði að stýra skákinni út í endatafl þar sem báðar höfðu tvo riddara og nokkur peð. Chumpitaz fann ekki vænlegustu leiðina í tímahraki og jafntefli varð niðurstaðan eftir harða baráttu. Góð úrslit hjá Höllu sem er að berjast vel í sínum skákum.
Hér lék Halla 74. Re5+! og eftir 74...Kxh7 75. Rxf7 e3 76. Re5 var samið um jafntefli.
Hrund hafði svart gegn Ingrid Aliaga Fernandez (2096) á 4. borði. Upp kom rólegt afbrigði í drottningarpeðsbyrjun, afbrigði sem Arthur Yusupov tefldi stundum í gamla daga. Hrund tefldi samkvæmt réttri hugmynd en við höfðum lagt upp með að hún reyndi að ná frumkvæðinu snemma. Í 11. leik lék Fernandez 11. Hc2!? sem var lúmskur og kom í veg fyrir hugmynd Hrundar að leika 11...Df6.
Fernandez lék síðast 11. Hc2!? og Hrund féll í gildruna með 11...Df6?? Eftir 12. c5 vinnur hvítur mann. Í stað 11...Df6 getur svartur t.d. leikið 11...c5 eða 11...De7 með fínni stöðu.
Niðurstaðan var óverjandi mannstap og ekki einu sinni hægt að ná neinu sprikli, sem Hrund þó reyndi. Svekkjandi tap niðurstaðan. Hrund getur þó lært töluvert af tapinu því eftir leik eins og 11. Hc2 hefði hún getað gert ráð fyrir því að hvítur væri að plana eitthvað vafasamt.
Lokatölur 1½ - 2½ en 2-2 hefðu ekki verið ósanngjörn úrslit á móti þessu sterka liði Perú, miðað við taflmennsku okkar. Á morgun mætum við grjóthörðu liði Spánar (meðalstig: 2335). Ekki góð pörun miðað við stöðuna í mótinu en við höfum verið að tefla vel hingað til og óttumst ekkert. Ekkert!
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.
Björn Ívar
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2016 | 20:20
Kennari verður skákkennari: Fáskrúðsfjörður
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar tekur þátt í verkefninu Kennari verður skákkennari. Vilberg Marinó Jónasson kennari við skólann mun í vetur sjá um skákkennslu í skólanum. Vilberg mun kenna skák tvær kennslustundir á viku og er stefnt að því að hafa kennsluna í lotuformi þannig að sem flestir nemendur skólans fái einhverja skákkennslu á árinu. Á miðvikudaginn var heimsótti Stefán Bergsson skólann og kenndi með Vilberg. Kennslan gekk afar vel og nemendur voru áhugasamir. Vilberg sem hefur ágætis skákgrunn er reyndur knattspyrnumaður og þjálfari og stefnir á síðar í vetur að efna til skákmóts í skólanum.
Suzuki umboðið var aðal styrktaraðili heimsóknarinnar á Fáskrúðsfjörð.
8.9.2016 | 20:03
ÓL: Ísland gerði jafntefli við Tyrkland í opnum flokki
Íslenska liðið í opnum flokki Ólympíuskákmótsins í Bakú gerði jafntefli við Tyrkland í sjöttu umferð sem fram fór í dag. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Jóhann Hjartarson og Bragi Þorfinnsson gerðu allir jafntefli. Sé litið til þess að Tyrkir eru stigahærri á öllum borðum þá mætti ætla að íslensku landsliðsmennirnir hafi tekið stiginu fagnandi. Hugur landsliðsmanna er hins vegar þannig innréttaður að þeir ætluðu sér sigur í þessari viðureign og ekkert annað. Liðsmenn eru hins vegar ekki að velta sér upp úr því sem hefði getað orðið, enda verður úrslitunum ekki breytt úr þessu. Undirbúningur fyrir viðureign morgundagsins er þegar hafinn og eru landsliðsmenn nýlega komnir aftur á hótelið eftir að hafa haldið liðsfund utandyra í hlýrri kvöldgolunni hér í Bakú.
Íslenska liðið er sem stendur í 13-26.sæti með 9 stig af 12 mögulegum og hefur jafn marga vinninga og stórlið heimamanna, Aserbaísjan. Noregur, með heimsmeistarann Magnus Carlsen innanborðs, hefur einnig 9 stig.
Kvennaliðið íslenska tapað með minnsta mun fyrir Perú, 1,5-2,5. Liðið var hársbreidd frá því að næla í jafntefli sem hefðu verið einkar góð úrslit sé litið til þess að Perú hefur töluvert hærri meðalstig en það íslenska. Guðlaug Þorsteinsdóttir tefldi mjög vel í dag og vann sannfærandi sigur á öðru borði, hennar fyrsta sigurskák til þessa í mótinu. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir gerði jafntefli í mikilli baráttuskák þar sem teflt var til síðasta manns. Lenka Ptacnikova mætti hinni geysisterku Deysi Cori (2402) og var grátlega nærri því að landa jafntefli, en varð að lokum að játa sig sigraða eftir hetjulega baráttu. Hrund Hauksdóttir tapaði sinni skák á fjórða borði eftir slæma yfirsjón snemma tafls.
Í 7.umferð opins flokks mætir Ísland (2527) liði Grikklands (2592). Í kvennaflokki mætir Ísland (2003) liði Spánar (2335). Báðar íslensku sveitirnar tefla því aftur við andstæðinga sem hafa hærri meðalstig. Búast má við að róðurinn verði þungur fyrir kvennaliðið því Spánn er 14.stigahæsta skáksveit mótsins á meðan íslenska sveitin er í 61.sæti.
Indland er í efsta sæti opna flokksins með fullt hús, eða 12 stig. Árangur þeirra til þessa er glæsilegur, ekki síst fyrir þær sakir að Viswanathan Anand (2776), fyrrum heimsmeistari, teflir ekki með liðinu. Bandaríkin hleyptu mikilli spennu í mótið með því að leggja Úkraínu að velli í dag með minnsta mun. Með sigrinum settist lið Bandaríkjanna eitt að öðru sætinu með 11 stig. Í humátt á eftir koma tíu þjóðir með 10 stig, þar á meðal eru Kína, Rússland, Úkraína og andstæðingar okkar Íslands í 2.umferð, Tékkland.
Í kvennaflokki eru tvö lið efst og jöfn eftir innbyrðis jafntefli í dag, Rússland og Úkraína. Viðureign þeirra var þrungin spennu enda hafa þessar hæfileikaríku skákkonur marga hildi háð við skákborðið. Það vakti nokkra athygli að þrír fyrrum heimsmeistarar kvenna sátu að tafli í þessari viðureign. Á 1.borði vann Anna Muzychuk (2550) frá Úkraínu fyrrum heimsmeistarann Alexöndru Kosteniuk (2538) frá Rússlandi. Á 2.borði gerði fyrrum heimsmeistarinn, María Muzychuk (2539) jafntefli gegn hinni rússnesku Valentínu Guninu (2520). Á 4.borði tapaði fyrrum heimsmeistarinn, Anna Ushenina (2457) frá Úkraínu, fyrir hinni rússnesku Olgu Girya (2452).
Viðureignir morgundagsins hefjast klukkan 11 að íslenskum tíma.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2016 | 12:29
Viðureignir dagsins: Tyrkland og Perú
Sjötta umferð Ólympíuskákmótsins hófst kl. 11 í dag. Andstæðingar dagsins eru Tyrkir í opnum flokki og Perú í kvennaflokki.
Opinn flokkur
Guðmundur Kjartansson hvílar í dag í opnnum flokki.
Tyrkir eru með nítjánda sterkasta lið móts sé miðað við meðalstig en íslenska liðið er það 19. sterkasta.
Kvennaflokkur
Íslenska kvennaliðið mætir sveit Perúmanna. Veronika Steinunn Magnúsóttir hvílir. Íslenska kvennaliðið er hið 61. sterkasta sé miðað við meðalstig en Perú hefur 41. sterkasta.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)
8.9.2016 | 09:24
Skákæfingar Fjölnis hefjast alla miðvikudaga kl. 16:30
Vikulegar skákæfingar Skákdeildar Fjölnis fyrir börn og unglinga hefjast miðvikudaginn 14. september og verða þær framvegis alla miðvikudaga í vetur frá kl. 16:30 18:00. Æfingarnar eru í Rimaskóla og er gengið inn um íþróttahús skólans. Árangur þeirra barna sem sótt hafa reglulega skákæfingar Fjölnis hefur verið mjög góður á undanförnum árum og skákdeildin hlotið mörg verðlaun og viðurkenningar fyrir árangursríkt starf.
Foreldrar áhugasamra barna í Grafarvogi og á höfuðborgarsvæðinu öllu eru hvattir til að nýta sér skemmtilegar og áhugaverðar skákæfingar Fjölnis sem bjóðast ókeypis.
Í fyrra mættu að jafnaði 30 krakkar á hverja æfingu. Æfingarnar miðast við að þátttakendur kunni góð skil á öllum grunnatriðum skáklistarinnar og tefli sér til ánægju. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á æfingarnar af og til. Þeir geta auðveldlega aðstoðað með ýmsum hætti. Reynt er að hafa æfingarnar fjölbreyttar og skemmtilegar, kennsla og skákmót til skiptis. Boðið er upp á veitingar á hverri æfingu svo sem ávexti, kexmeti og vatn. Öllum skákæfingum lýkur með verðlaunaafhendingu. Meðal leiðbeinenda í vetur verða m.a. afreksunglingar í skáklistinni úr úrvalsflokki Skákskóla Íslands.
Umsjón með skákæfingum Fjölnis í vetur hefur líkt og undanfarin ár Helgi Árnason formaður skákdeildarinnar. Munið fyrstu skákæfinguna 14. september kl. 16:30.
8.9.2016 | 09:21
Bikarsyrpa TR hefst á morgun
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað þriðja árið í röð. Mót syrpunnar í vetur verða fimm talsins og hefur umferðum hvers móts verið fjölgað í sjö.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2001 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
Fyrsta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 9. september og stendur til sunnudagsins 11. september. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.
Dagskrá Bikarsyrpu I:
1. umferð: 09.september kl. 17.30 (fös).
2. umferð: 10.september kl. 10.00 (lau).
3. umferð: 10.september kl. 13.00 (lau).
4. umferð: 10.september kl. 16.00 (lau).
5. umferð: 11.september kl. 10.00 (sun).
6. umferð: 11.september kl. 13.00 (sun).
7. umferð: 11.september kl. 16.00 (sun).
Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7.umferð.
Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hverja yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.
Þátttökugjald í mótið er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.
Sigurvegari mótsins hlýtur að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2.sæti og 3.sæti. Sérstök verðlaun verða veitt næsta vor fyrir samanlagðan árangur í mótunum fimm, þar á meðal er veglegur farandbikar. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagðan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1.sæti gefur 5 einkatíma, 2.sæti gefur 3 einkatíma og 3.sæti gefur 2 einkatíma.
Vinsamlegast skráið þátttakendur sem fyrst, það hjálpar til við undirbúning mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur!
8.9.2016 | 07:00
Afmælismót TV hefst á laugardaginn
Helgina 10.-11. september 2016 fer fram atskákmót í Eyjum í tilefni af 90 ára afmæli Taflfélags Vestmannaeyja.
Keppendur verða úr Eyjum og á fastalandinu. Reiknað er með flestir keppendur ofan af landi komi með Herjólfi laugardaginn 10. september. frá Landeyjahöfn kl. 09.45 og til Eyja um kl. 10.30. Akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar tekur tæplega 2 klst. og þurfa farþegar og ökutæki að vera mætt 30 mín. fyrir brottför Herjólfs frá Landeyjahöfn. Algengt er að farþegar geymi ökutæki sín á bílastæðum í Landeyjahöfn meðan á dvöl þeirra í Eyjum stendur.
Næsta ferð til Landeyjahafnar frá Eyjum að loknu skákmótinu er kl. 18.30 sunnudaginn 11. sept og nú síðasta þann dag kl. 21.00 um kvöldið. Mæting um borð 30 mín. fyrir brottför.
Tefldar verða níu umferðir, umhugsun 20 mín. á skák auk 5 sek. á hvern leik. Reiknað er með að umferðin taki um 60 mín. Skákstjóri verður Stefán Bergsson.
Laugardagur 10. sept. 2016
Kl. 12.00 17.00 Tefldar verða fimm umferðir fyrri daginn.
Kl. 17.00 18.00 Skoðunarferð með rútu um Heimaey.
Sunnudagur 11. sept. 2016
Kl. 12.00 - 16.00 Tefldar verða fjórar umferðir seinni daginn.
Kl. 16.30 17.00 Mótsslit og verðlaunahending.
Ekkert þátttökugjald á atskákmótið og í skoðunarferðina.
Fyrstu verðlaun verða 75 þús. kr., önnur verðlaun kr. 50 þús. kr. og þriðju verðlaun kr. 25 þús. kr. Landsbankinn er helsti stuðningsaðili mótsins.
Nánari upplýsingar um ferðir til og frá Eyjum á herjolfur.is og gistingu í Eyjum á visitvestmannaeyjar.is
Skráning þátttakenda á 90 ára afmælismótið fer fram á Skák.is.
Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.
Afmælisnefnd Taflfélags Vestmannaeyja.
Spil og leikir | Breytt 29.8.2016 kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2016 | 21:39
Ólympíumót: 5. umferð í opnum flokki
Ef við vorum hissa að vera paraðir niður fyrir okkur þegar við fengum Færeyinga í 4. umferð þá vorum enn meira hissa þegar pörun 5. umferðar var ljós. Við tefldum aftur niður fyrir okkur og að þessu sinni gegn ungri sveit Eista.
Eistar höfðu átt gott mót fram að þessu og eru með tvo ungra stráka í kringum 2500 stigin á efstu tveimur borðunum. Eistar höfðu fram að þessu gert jafntefli við þétta sveit Qatar og Kazakstan auk þess sem þeir lögðu Finna að velli stórt. Því var ljóst að um erfiðar viðureign væri að ræða þó að við værum stigahærri á öllum borðum.
Viðureignin þróaðist vel fyrir okkur og Bragi og Hjörvar fengu fljótlega mjög góðar stöður. Jóhann virtist hafa stjórn á sinni skák og Guðmundur var með jafna stöðu úr byrjuninni en þó var mikið strategísk undiralda í þeirri skák og lítið mátti útaf bera hjá báðum aðilum.
1. borð : Hjörvar svart gegn A.Volodin 2473
Hjörvar tefldi byrjunina hratt og af miklu öryggi. Hann var vel undirbúinn og þekkt byrjunina betur en andstæðingur sinn. Snemma varð ljóst að hann vissi ekki hvað ætti að gera og leikir snemma í byrjuninni eins og b3 og Rc3 komu honum í töluverð vandræði.
Svartur var í raun kominn með algjört yfirburðatafl eftir 12-14 leiki sem verður að teljast nokkuð ótrúlegt fyrir lokaða Catalan byrjun.
Staðan hjá Hjörvar var það góð að andstæðingur hans reyndi að fórna peði nokkuð snemma tafls.
Ég missti raunar af því þegar andstæðingurinn gaf peðið og var hérna mjög vongóður um að Hjörvar hefði frábæra stöðu þegar ég átti mig á svona sjöundu rúnti um stöðurnar hjá okkar mönnum að Hjörvar var peði yfir sem gerði vonirnir ennþá meiri enda þýðir það allt að kolunnið tafl hjá svörtum hér.
Hjörvari urðu ekki á mistök í úrvinnslunni og hafði hér frábæran sigur með svörtu. Skákin var síðust að klárast og tryggði í raun sigur okkar manna. Hjörvar er fáum með fullt hús á mótinu, 5 vinninga af 5!
Hjörvar og Jóhann, einbeittir við upphaf umferðar
2. borð : Jóhann hvítt gegn Ottoman Ladva 2501
Jóhann lék e4 gegn sínum andstæðingi og upp kom Sikileyjarvörn. Ottoman beitti afbrigði sem Jóhann hafði búist við en þar leikur hann ...b6 en sleppir ...a6 sem yfirleitt er leikið í slíkum stöðum. Í stöðu í dýnamísku jafnvægi lék Ottoman leiknum ...Ba6 sem Jóhann kallaði tröllvitlausan eftir á.
Jóhann við rannsókn á skákinni á frídeginum.
Í kjölfarið fylgdi hinn dýnamíski ...d5 leikur hjá svörtum en hann virtist ekki eiga rétt á sér og Jóhann vann peð með nákvæmum leikjum og Eistinn virtist ekki hafa nægar bætur fyrir peðið.
Þrátt fyrir peðsvinninginn var tæknilega úrvinnslan erfið. Tímahrak nálgaðist þó Jóhann gerði vel í að halda betri tíma alla skákina og á þessum tímapunkti. Jóhann var fyrst um sinn hálf planlaus í stöðunni og Otooman hefði e.t.v. á einhverju augnabliki getað haldið taflinu. Þess í stað missti hann af sínum færum og Jóhann kláraði skákina glæsilega með mikilli leiftursókn og fórnum.
Hér kláraði Jóhann með sannkallarði "moggafléttu" 40.Hxc8!
Góður sigur hjá Jóhanni. Andstæðingur hans er sterkur og hrósaði Margeir honum m.a. og sagðist oft hafa teflt við hann í hraðskákmótum.
3. borð: Guðmundur svart á A.Shiskov 2368
Guðmundur beitti aftur Nimzo indverskri vörn og upp kom hvasst afbrigði þar sem hvítur fær að leika e4 snemma. Guðmundur komst vel út úr byrjuninni og með fína stöðu en var ekki nægjanlega gætinn á einum tímapunkti og gerði strategísk mistök.
Hér drap Gummi á e5 sem opnar taflið of mikið. Betra hefði verið ...d5 og svartur stendur síst lakar. Í kjölfarið braust hvítur í gegn á drottningarvæng og svartur var of seinn með sína lisskipan. Vandamálin í svörtu stöðunni reyndust ekki leysanleg og Gummi varð að gefa taflið þrátt fyrir harða baráttu.
4. borð: Bragi hvítt gegn R.Jezov 2283
Aðra umferðina í röð mætti Bragi vel undirbúinn til leiks og aftur var leitað í smiðju Robin van Kampen sem á frábæra fyrirlestraröð sem mælir með þeirri leið er Bragi valdi. Þess má geta að þessa fyrirlestra má nálgast á Chess24, svei mér þá ef ég rukka ekki Fionu starfsmann þeirra um prósentur þegar menn flykkjast þangað að skoða þessa fyrirlestra!
Allavega....Bragi fékk fína stöðu, allt sem hann vill úr byrjuninni og betri tíma á klukkunni þar að auki.
Má í raun segja að svartur sé hér snemma tafls með hartnær strategísk tapað! Veikleikarnir eru einfaldlega of miklir og Jesov réði ekki við að eiga við þá og tapaði fljótt peði og svo skákinni. Skákir Braga og Jóhanns voru fyrstar að klárast og eftir stóð Hjörvar með gjörunnið tafl og því ljóst að flottur sigur var í höfn.
Við hittum á Robin van Kampen á frídeginum og færðum honum bestu þakkir fyrir óbeina mikla og góða aðstoð. Þrátt fyrir það þarf líka að klara dæmið og Bragi hefur svo sannarlega verið að gera það vel og er með 4 vinninga úr 4 skákum þegar mótið er hálfnað.
Niðurstaðan varð semsagt glæsilegur 3-1 sigur fyrir okkar menn sem var í raun framar vonum þar sem þetta er týpísk viðureign sem gæti í raun dottið hvorum megin sem er og dansað við 2,5-1,5 eða 2-2 bilið.
Næst á dagskrá er lið Tyrkja en við ættum að vera farnir að þekkja þá nokkuð vel enda gerðum við jafntefli við þá í Tromsö 2014 og töpuðum fyrir þeim í Laugardalshöll 1-3 í nóvember síðastlinum (2015). Þeir eru alltaf með sama liðið, Solak, Ipatov, Yilmaz, Can og Esen. Erfitt er að lesa í uppstillinguna hjá þeim en líkast til tefla tvö efstu borðin hjá þeim þó að Solak hafi tapaði fyrir Hannesi árið 2014.
Þó Tyrkirnir séu stigahærri og erfið og hörð sveit teljum við að raunhæfur möguleiki sé á að standa í þeim og gott betur en það ef allir hitta á góðan dag. Stemmningin er góð í hópnum og menn hafa trú sjálfum sér. Við stefnum á að hefna fyrir Tyrkjaránið á morgun ;-)
Ingvar Þór Jóhannesson - liðsstjóri í opnum flokki.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.7.): 19
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 142
- Frá upphafi: 8778742
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 96
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar