Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Annađ mót Bikarsyrpu TR hefst á morgun

BikarsyrpanBanner_generic

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ ţriđja áriđ í röđ. Mót syrpunnar í vetur verđa fimm talsins og hefur umferđum hvers móts veriđ fjölgađ í sjö.

Annađ mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 4. nóvember og stendur til sunnudagsins 6. nóvember. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.

Sú nýbreytni verđur höfđ á ađ međfram Bikarsyrpunni verđur Bikarmót stúlkna haldiđ í fyrsta sinn. Međ ţví gefst stelpum sem vilja prófa form Bikarsyrpunnar aukiđ tćkifćri á ađ spreyta sig áđur en ţćr taka ţátt í sjálfri Bikarsyrpunni. Tefldar verđa fimm umferđir í stúlknamótinu, ein á föstudag og tvćr hvorn daginn laugardag og sunnudag, en ađ öđru leyti verđur fyrirkomulag hiđ sama og í Bikarsyrpunni. Nánari dagskrá má sjá hér ađ neđan.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2001 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.

Dagskrá Bikarsyrpu II:

  • 1. umferđ: 4. nóvember kl. 17.30 (fös)
  • 2. umferđ: 5. nóvember kl. 10.00 (lau)
  • 3. umferđ: 5. nóvember kl. 13.00 (lau)
  • 4. umferđ: 5. nóvember kl. 16.00 (lau)
  • 5. umferđ: 6. nóvember kl. 10.00 (sun)
  • 6. umferđ: 6. nóvember kl. 13.00 (sun)
  • 7. umferđ: 6. nóvember kl. 16.00 (sun)

Dagskrá Bikarmóts stúlkna:

  • 1. umferđ: 4. nóvember kl. 17.30 (fös)
  • 2. umferđ: 5. nóvember kl. 10.00 (lau)
  • 3. umferđ: 5. nóvember kl. 13.00 (lau)
  • 4. umferđ: 6. nóvember kl. 10.00 (sun)
  • 5. umferđ: 6. nóvember kl. 13.00 (sun)

Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni síđustu umferđ hvors móts fyrir sig.

Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu (í stúlknamótinu er ein yfirseta leyfđ í umferđum 1-3). Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan.

Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.

Sigurvegari hvors móts hlýtur ađ launum bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2.sćti og 3.sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir samanlagđan árangur í mótunum fimm, ţar á međal er veglegur farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir samanlagđan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1.sćti gefur 5 einkatíma, 2.sćti gefur 3 einkatíma og 3.sćti gefur 2 einkatíma.

Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar til viđ undirbúning mótsins. Hlökkum til ađ sjá ykkur!

Skráningarform

Skráđir keppendur


Jón Arnljótsson er skákmeistari Skagafjarđar 2016

Jón ArnljótssonLokaumferđ Skákţings Skagafjarđar 2016 – Landsbankamótsins var háđ í gćr. Sigurganga Jóns Arnljótssonar virtist óstöđvandi, en fyrir lokaumferđina var hann búinn ađ leggja alla sína andstćđinga og í raun búinn ađ tryggja sér sigur á mótinu og hinn virđulega titil "Skákmeistari Skagafjarđar 2016". Jón tefldi viđ Ţór Hjaltalín í lokaumferđinni og eftir mikla bráttuskák ákváđu ţeir ađ skipta međ sér jöfnum hlut og endađi Jón međ 5˝ vinning úr 6 skákum.

Knútur Finnbogason sótti mótiđ alla leiđ frá Siglufirđi og tefldi af miklu öryggi. Eftir tap gegn Jóni í fyrstu umferđ fóru hlutirnir ađ ganga og lagđi hann alla sína andstćđinga eftir ţađ. Hlaut hann 5 vinninga og annađ sćtiđ á mótinu. Ţór Hjaltalín tók svo ţriđja sćtiđ međ 3˝ vinning. 

Mótsstjórn vill ţakka keppendum fyrir skemmtilegt mót og drengilega keppni. Einnig viljum viđ fćra Gunnari Björnssyni, forseta vorum bestu ţakkir fyrir hjálp og stuđning og sömuleiđis Landsbanka Íslands fyrir góđan stuđning viđ mótiđ og skáklíf í Skagafirđi. Nánar um úrslit á mótinu má sjá á Chess-Results.

Heimasíđa Skákfélags Sauđárkróks


Skák á bókasöfnum borgarinnar

GrófinSkákakademía Reykjavíkur hefur síđustu misserin veriđ međ skákkynningu og kennslu á bókasöfnum borgarinnar. Samhliđa ţví ađ bjóđa upp á kennslu hafa söfnin bćtt í taflsettakost sinn svo nú má tefla á söfnum borgarinnar. Kynningarnar hafa veriđ vel sóttar og ţá sérstaklega af fjölskyldufólki. Margir ungir áhugasamir skákmenn hafa fengiđ kennslu og foreldrarnir frćđslu á ţví hvar megi enn frekar lćra skák. 


Dagur og Vignir sigurvegarar alţjóđlegs unglingamóts í Uppsölum

Vignir og Dagur

Dagur Ragnarsson (2232) og Vignir Vatnar Stefánsson (2163) komu sáu og sigruđu á alţjóđlegu unglingaskákmóti sem lauk í gćr í Uppsölum í Svíţjóđ. Ţeir félagarnir hlutu 6,5 vinninga í 9 skákum. Dagur hafđi svo gulliđ međ hálfu stigi eftir stigaútreikning. Glćsilegur árangur hjá ţeim félögunum sem báđir voru í toppbaráttunni allt mótiđ. Dagur var taplaus á mótinu en gerđi 5 jafntefli. Vignir tapađi fyrir Degi í innbyrđis skák en var duglegri viđ ađ vinna sína andstćđinga.

Oliver Aron Jóhannesson (2263) tapađi í lokaumferđinni og varđ í 8.-9. sćti. Oliver var einnig í toppbaráttunni allt mótiđ og var taplaus ţar til í lokaumferđinni.

Vignir heldur áfram stigamokstri og hćkkar um 52 stig fyrir frammistöđu sína á mótinu. Ţađ ţýđir ađ Vignir verđur međ ríflega 2350 skákstig á nćsta stigalista. Dagur hćkkar um 25 skákstig en Oliver lćkkar lítilsháttar eđa um 7 skákstig.

Skákklúbburinn í Uppsölum fćr miklar ţakkir fyrir ađ bjóđa ţeim félögum ađ taka ţátt í mótinu. Ţar ráđa ríkjum Carl Fredrik forseti sćnska skáksambandsins og Íslendingurinn G. Sverrir Ţór.

Ítarlega umfjöllun um mótiđ má finna á heimasíđu sćnska skáksambandsins

Einnig má finna umfjöllun um mótiđ hér.

Viđtal viđ Dag Ragnarsson.

 


Páll efstur á Skákţingi Garđabćjar

Ţriđja umferđ Skákţings Garđabćjar fór fram sl. mánudagskvöld. Páll Sigurđsson hélt forustunni eftir ađ hafa fariđ heldur halloka í miđtafli en náđi svo sterkum hótunum og líklega jafnteflisstöđu ţegar Baldur Möller var svo vinsamlegur og sprengdi sig í endataflinu međ fremur skjótum endalokum. Jón Magnússon vann nokkuđ örugglega gegn Ingvar Vignissyni og hiđ sama gerđi Jón Ţór Lemery gegn Birki Ísak eftir ađ sá síđarnefndi missti mann í 16. leik.

Ţeir Jón Ţór Lemery og Jón Magnússon eru í 2.-3. sćti međ 2,5 vinninga.

Loftur vann Jón Eggert í köflóttri skák en hann hafđi lengst af ađeins betra. Birkir Karl vann Stefán örugglega en Bjarnsteinn og Ţorsteinn gerđu jafntefli í skrautlegri skák, sem skipti a.m.k. tvisvar um eigendur. Alec og Bjarki Freyr tefldu einnig skrautlega skák ţar sem Bjarki náđi mjög vćnlegri stöđu en í stađ ţess ađ auka pressuna fór hann í uppskipti og Alec rétti úr kútnum og endađi á ađ hirđa drottningu. Sigurđur Freyr vann svo á neđsta borđi nokkuđ örugglega.

Allar skákirnar má finna á chess-results mótssíđunni á pgn formi. Einnig má finna öll úrslit og stöđuna í mótinu sem og pörun nćstu umferđar á Chess-results.com

 


Ný alţjóđleg hrađskákstig

Ný alţjóđleg hrađskákstig komu út í gćr 1. nóvember. Hjörvar Steinn Grétarsson (2658) er langstigahćsti hrađskákmađur landsins. Tíu nýliđar eru á listanum. Stigahćstur ţeirra er Björgvin Víglundsson (2122). Guđmundur Kjartansson (115) hćkkar mest allra frá október-listanum.

Heildarlistann yfir ţá sem hafa alţjóđleg hrađskákstig má finna hér.

Topp 20

No.NameTitStigGmsDiff
1Gretarsson, Hjorvar SteinnGM26581829
2Hjartarson, JohannGM253800
3Stefansson, HannesGM25352339
4Thorfinnsson, BjornIM25161211
5Gunnarsson, Jon ViktorIM251024-13
6Kristjansson, StefanGM248300
7Gunnarsson, ArnarIM24762420
8Gretarsson, Helgi AssGM246524-64
9Olafsson, HelgiGM245418-48
10Kjartansson, GudmundurIM245324115
11Thorhallsson, ThrosturGM244712-84
12Thorfinnsson, BragiIM24272433
13Petursson, MargeirGM236600
14Johannesson, Ingvar ThorFM2360123
15Ulfarsson, Magnus OrnFM235224-7
16Asbjornsson, AsgeirFM23441240
17Arnason, Jon LGM234000
18Olafsson, FridrikGM233600
19Kjartansson, DavidFM232900
20Jensson, Einar HjaltiIM232100


Nýliđar

1Viglundsson, Bjorgvin 2122112122
2Kristjansson, Olafur 211492114
3Olafsson, Smari 195791957
4Bjorgvinsson, Andri Freyr 195591955
5Eiriksson, Sigurdur 192191921
6Isolfsson, Eggert 1853111853
7Johannesson, Haki 174691746
8Sigurdsson, Sveinbjorn 174091740
9Ulfsson, Olafur Evert 1513111513
10Arnarson, David 1486111486


Mestu hćkkanir

1Kjartansson, GudmundurIM245324115
2Mai, Alexander Oliver 15431175
3Thorsson, Pall 18671170
4Mai, Aron Thor 16421168
5Ragnarsson, DagurFM21591162
6Halldorsson, Halldor 22711261
7Karlsson, Mikael Johann 21271258
8Asbjornsson, AsgeirFM23441240
9Stefansson, HannesGM25352339
10Gudmundsson, Gunnar Erik 10931039


Reiknuđ hrađskákmót

  • Hrađskákkeppni talfélaga (undanúrslit og úrslit)
  • Atkvöld Hugins, 26. september (1.-3. umferđ)
  • Hrađskákmót TR
  • Hausthrađskákmót SA

 


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Hrađskákmót Hugins fer fram á mánudaginn

Hrađskákmót Hugins í Mjóddinni verđur haldiđ mánudaginn 7. nóvember nk. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a og hefst tafliđ kl. 20. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik.

Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga. Heildarverđlaun á mótinu eru kr. 20.000.

Núverandi hrađskákmeistari Hugins er Hjörvar Steinn Grétarsson. Ţetta er í tuttugasta of fyrsta sinn sem mótiđ fer fram. Björn Ţorfinnsson og Davíđ Ólafsson hafa hampađ titlinum oftast eđa fjórum sinnum.

Verđlaun skiptast svo:

  1. 10.000 kr.
  2. 6.000 kr.
  3. 4.000 kr.

Ţátttökugjöld eru kr. 400 fyrir félagsmenn en kr. 600 fyrir ađra. Fyrir unglinga í Huginn eru ţau kr. 300 en kr. 400 fyrir ađra.


Jón Olav sigrađi á hrađkvöldi Hugins

Jón Olav Fivelstad lék á alls oddi á hrađkvöldi sem haldiđ var 31. október sl. Stigahćrri andstćđingar voru honum engin fyrirstađa ađ ţessu sinni og ţegar upp var stađiđ voru 8,5 vinngingar í húsi hjá honum af 10 mögulegum og fyrsta sćtiđ var hans. Ţátttakendur tefldu tvöfalda umferđ og Jon Olav missti einn vinning niđur gegn Vigfúsi Ó. Vigfússyni og hálfan vinning niđur gegn Omari Salama.

Ţeir komu svo nćstir, Vigfús í öđru sćti međ 8 vinninga og Omar ţriđji međ 7,5 vinning. Jón Olav dró Pétur Jóhannesson í happdrćttinu. Pizzumiđarnir frá Dominos voru búnir ţannig ađ ţeir fengu báđir úttektarmiđa hjá Saffran. Nćsta mánudag 7. nóvember verđur Hrađskákmót Hugins.

Lokastađan á hrađkvöldinu:

  1. Jón Olav Fivelstad, 8,5v/10
  2. Vigfús Ó. Vigfússon, 8v
  3. Omar Salama, 7,5v
  4. Smári Arnarson, 4v
  5. Björgvin Kristbergsson 2v
  6. Pétur Jóhannesson

Úrslitin í chess-results:


Dagur og Vignir efstir fyrir lokadaginn í Uppsölum

Dagur og Vignir Vatnar

Dagur Ragnarsson (2232) og Vignir Vatnar Stefánsson (2163) eru efstir og jafnir međ 5 vinninga ađ loknum sjöundu umferđ alţjóđlega unglingamótsins í Uppsölum í Svíţjóđ sem fram fór í dag. Dagur gerđi jafntefli viđ, félaga sinn úr Rimaskóla og Fjölni, Oliver Aron Jóhannesson (2263). Vignir vann Svíann Jung Min Seo (2131). Oliver Aron er í 3.-7. sćti međ 4,5 vinning.

Tvćr umferđir eru tefldar á morgun. Í fyrri umferđ morgundagsins teflir Dagur viđ Finnann Voivo Keinanen (2345), stigahćsta keppenda mótsins, Vignir viđ finnskćttađa Svíann Felix Tuomainen (2198) og Oliver viđ Svíann Isak Storme (2153).

Fyrri umferđ morgundagsins hefst kl. 8 og sú síđari kl. 14. Hćgt er ađ fylgjast međ strákunum í ţráđbeinni á Chess24.

 


Kapptefliđ um Skáksegliđ VIII - Helgađ minningu Björns Víkings Ţórđarsonar

BVŢ

Nú í nóvember - nćstu 4 miđvikudaga - verđur efnt til 4 móta GrandPrix kappteflis á vegum RIDDARANS, skákklúbbs eldri borgara, sem helgađ er minningu fallinna félaga sem lokiđ hafa siglingu sinni um taflsins höf.

Um er ađ rćđa keppni um hinn fagra farandgrip "SKÁKSEGLIĐ" sem tefld verđur nćstu fjóra miđvikudaga ţar sem ţrjú bestu mót hvers keppanda telja til stiga og vinnings. Ţetta er önnur af tveim mótaröđum klúbbsins međ ţessu sniđi og markmiđi.  Hin er "Skákharpan" ađ vori.

Upphaflega var mótiđ helgađ minningu Gríms heitins Ásćlssonar, trillukarls og skákfrömuđar, en ađ ţessu sinni verđur ţađ ásamt honum sérstaklega tileinkađ BIRNI VÍKINGI Ţórđarsyni, heiđursriddara klúbbsins, sem siglt hafđi skákskútu sinni seglum ţöndum um haffleti og skákreiti taflborđsins um áratugaskeiđ.  Fyrst hjá TR,  síđan í KR og nú síđustu árin í Riddaranum í Vonarhöfn, Strandbergi, safnađarheimili Hafnarfjarđarkirkju, ţar sem eldri skákmenn á höfuđborgarsvćđinu etja kappi allan ársins hring. (Milli ţess ađ tefla annars stađar líka.)

Björn Víkingur sem lést fyrr á árinu er öllum sem honum kynntust og viđ hann tefldu afar minnisstćđur mađur sem mikil sjónarsviftir er af. Andi hans mun svífa yfir vötnunum og töflunum í Vonarhöfn ţennan mánuđinn sem endranćr.

Allir sem vilja heiđra minningu hans er hvattir til ađ taka ţátt og geta telft međ í einhverju ţessarra fjögurra miđvikudagsmóta í nóvember óháđ mótaröđinni - engin aldurstakmörk.  Ýtt á klukkurnar kl. 13  /ESE


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 16
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 130
  • Frá upphafi: 8778451

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 103
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband