Fćrsluflokkur: Spil og leikir
13.12.2016 | 09:35
Jólapakkamót Hugins fer fram á sunndaginn í Álfhólsskóla
Jólapakkaskákmót Hugins verđur haldiđ sunnudaginn 18. desember nk. í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótiđ hefst kl. 13 og er ókeypis á mótiđ. Mótiđ er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 19. skipti en ţađ var fyrst haldiđ fyrir jólin 1996. Síđan hefur ţađ veriđ haldiđ nánast á hverju ári og hefur alltaf veriđ eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verđur í allt ađ 6 flokkum:
- Flokki fćddra 2001-2003
- Flokki fćddra 2004-2005
- Flokki fćddra 2006-2007
- Flokki fćddra 2008-2009
- Flokki fćddra 2010 síđar
- Peđaskák fyrir ţau yngstu
Tefldar verđa 5 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verđlaun fyrir 3 efstu sćtin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bćđi drengi og stúlkur. Auk ţess verđur happdrćtti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2016 | 17:28
Mjög góđ frammistađa Stefáns Orra og Óskars Víkings á Benidorm
Brćđurnir Óskar Víkingur (1707) og Stefán Orri Davíđssynir (1374) stóđu sig afar vel á alţjóđlegu móti í Benidorm á Spáni. Stefán Orri vann sigur í flokki 10 ára og yngri. Óskar hlaut 4 vinninga í 5 skákum í flokki 12 ára og yngri Áđur tefldu ţeir báđir á alţjóđlegu móti en skiptu svo yfir í unglingamót ţar sem Stefán sló í gegn.
Á alţjóđlega mótinu hlaut Óskar 5˝ vinning í átta skákum ţrátt fyrir ađ tefla viđ stigahćrri andstćđinga í öllum umferđum nema einni. Stefán Orri hlaut 2˝ vinning í skákum og tefldi upp fyrir sig í öllu umferđum. Óskar hćkkađi um 114 stig og Stefán um 62 skákstig.
Stefán skipti yfir í unglingamót 10 ára eins og áđur sagđi. Ţar fór hann mikinn og vann mótiđ međ 5˝ vinningi í 6 skákum ţrátt fyrir ađ vera ađeins nr. 10 í stigaröđ keppenda. Hćkkađi hann um 124 skákstig fyrir frammistöđuna!
Óskar skipti einnig í unglingamótiđ 12 ára og yngri og sleppti tveimur fyrstu umferđum. fékk hann 4 vinninga í 5 skákum og hćkkađi um 22 skákstig. Alls koma ţeir brćđur međ 322 skákstig í handrađanum eftir ţetta skemmtilega skákćvintýri!
12.12.2016 | 16:52
Jólamót Víkingaklúbbsins haldiđ á miđvikudaginn
Jólamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verđur haldiđ í Víkinni Víkingsheimilinu miđvikudaginn 14. desember. Telfdar verđa 5. umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann. Mótiđ hefst mótiđ kl. 17.15. Allir krakkar/unglingar á grunnskólaaldri eru velkomnir og ţátttaka er ókeypis. Veitt verđa verđlaun fyrir 3. efstu sćtin, auk ţess sem ţrjár eftstu stúlkur fá verđlaun. Einnig eru verđlaun fyrir ţrjá efstu félagsmenn í stúlku og drengjaflokki, auk ţess sem efsti einstaklingur í hverjum árgangi fćr medalíu.
Barna og unglingaćfingar voru vikulega í vetur, en nćsta ćfing eftir jólafríđ verđur miđvikudaginn 11. janúar og verđa ćfingar vikulega fram á vor.
Skráning á mótiđ fer m.a fram á netfangiđ: vikingaklubburinn(hjá)gmail.com og á skak.is (guli kassinn), ţs ţegar sá kassi verđur tilbúinn!
Nánari upplýsingar veitir Gunnar (gsm: 8629744).
Úrslit mótsins 2015 hér:
Úrslit 2014 hér:
Úrslit 2013 hér:
Úrslit 2012 hér:
12.12.2016 | 10:24
Friđriksmót Landsbankans - Íslandsmótiđ í hrađskák fer fram á laugardaginn - Skráning hefst kl. 16 í dag
Friđriksmót Landsbankans - Íslandsmótiđ í hrađskák - fer fram í útibúi Landsbankans viđ Austurstrćti 11 laugardaginn 17. desember nk. Mótiđ hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.30.
Gera má ráđ fyrir ađ flestir sterkustu skákmenn landsins taki ţátt og efsti keppandi mótsins fćr titilinn Íslandsmeistari í hrađskák. Tímamörkin eru 4+2 og tefldar eru ellefu umferđir.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst) og hefst í dag kl. 16:00. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst enda takmarkast ţátttaka viđ um u.ţ.b. 80-90 manns. Gildir ţar lögmáliđ, fyrstir koma, fyrstir fá, en ţó njóta stórmeistarar og alţjóđlegir meistarar forgangs varđandi ţátttöku.
Ţetta er ţrettánda áriđ í röđ sem Landsbankinn og Skáksamband Íslands standa fyrir Friđriksmótinu í skák, en mótiđ er haldiđ til heiđurs Friđriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Margir af sterkustu stórmeisturum landsins hafa undanfarin ár teflt til heiđurs Friđriki.
Verđlaun fyrir efstu sćti eru eftirfarandi:
- 100.000 kr.
- 60.000 kr.
- 50.000 kr.
- 30.000 kr.
- 20.000 kr.
Séu tveir eđa fleiri jafnir í efsta sćtinu verđur stigaútreikningur látinn ráđa Íslandsmeistaratitlinum. Verđlaunafé skiptist eftir Hort-kerfinu.
Aukaverđlaun
- Efsti mađur međ 2001-2200 skákstig 10.000 kr.
- Efsti mađur međ 2000 stig og minna: 10.000 kr.
- Efsta konan: 10.000 kr.
- Efsti strákur 16 ára og yngri (2000 eđa síđar): 10.000 kr.
- Efsta stúlka 16 ára og yngri (2000 eđa síđar): 10.000 kr.
- Efsti eldri skákmađur (1956 eđa fyrr): 10.000 kr.
- Útdreginn heppinn keppandi: 10.000 kr.
Aukaverđlaun eru miđađ viđ alţjóđleg hrađskákstig 1. desember sl.(alţjóđleg og íslensk skákstig til vara hafi menn ekki alţjóđleg hrađskákstig). Stigaútreikningur rćđur séu menn jafnir og efstir.
Hver keppandi getur ađeins unnin ein aukaverđlaun og eru aukaverđlaunin valin í ţeirri röđ sem fram kemur ađ ofan.
Mótiđ er reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Fyrri sigurvegarar
- 2015 - Ţröstur Ţórhallsson
- 2014 - Héđinn Steingrímsson
- 2013 - Helgi Ólafsson
- 2012 - Bragi Ţorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
- 2011 - Henrik Danielsen
- 2010 - Jón Viktor Gunnarsson og Ţröstur Ţórhallsson
- 2009 - Héđinn Steingrímsson
- 2008 - Helgi Ólafsson
- 2007 - Héđinn Steingrímsson
- 2006 - Helgi Áss Grétarsson
- 2005 - Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
- 2004 - Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2016 | 10:02
Kynslóđamót Skákskólans og skákdeildar Breiđabliks í Stúkunni
Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands vann allar skákir sínar og sigrađi örugglega á kynslóđamóti Skákskólans og Skákdeildar Breiđablikur sem fram fór í Stúkunni á Kópavogsvelli ađ morgni laugardagsins laugardaginn 10. desember. Í 2. sćti varđ Bárđur Örn Birkisson međ 6 vinninga. Tímamörk voru 4 2.
Á mótinu tóku ţátt ungmenni sem stundađ hafa ćfingar í Stúkunni í haust og mörg undanfarin misseri en Skákskólinn og skákdeild Breiđabliks hafa haft samvinnu um ţessa starfssemi. Ţá var foreldrum borđiđ ađ vera međ og afi systkinanna Björns Hólms, Bárđar og Freyju Birkisbarna var einnig međal ţátttakenda. Ţá var Ísfirđingurinn Guđmundur Gíslason í bćjarferđ og var bođin ţátttaka međ. Keppendur voru 20 talsins.
Á nýju ári verđa fleiri slík mót á dagskrá. Skákstjórar voru Halldór Grétar Einarsson, Birki Karl Sigurđsson og Helgi Ólafsson.
Lokastađa á Chess-Results.
12.12.2016 | 09:01
Fjölmennt fjölskylduskákmót á jólaćfingu TR
Laugardaginn 10. desember var haldin hin eina og sanna Jólaskákćfing TR. Jólaskákćfingin ár hvert er uppskeruhátíđ haustannarinnar og krakkarnir bregđa ţá á leik međ fjölskyldunni í skemmtilegri liđakeppni.
Jólaskákćfingin í dag var sameiginleg fyrir alla skákhópana sem hafa veriđ í gangi í haust, byrjendahópinn, stelpuhópinn, laugardagsćfingahópinn og afrekshópa A og B. Fjölskylduskákmótiđ, sem er tveggja manna liđakeppni, var fyrst á dagskrá. Krökkunum hafđi veriđ bođiđ upp á ađ taka einhvern fjölskyldumeđlim međ sér á jólaskákćfinguna og mynda liđ.
Hvorki meira né minna en 33 liđ tóku ţátt, samtals 67 ţátttakendur, og sýndu liđin mikiđ hugmyndaríki viđ nafnagiftina, eins og sjá má á ţátttakendalistanum hér ađ neđan! Tefldar voru 5 umferđir međ 5 mín. umhugsunartíma. Fóru leikar svo ađ í fyrsta sćti jöfn urđu liđin Easy win, easy life og Sharks međ 9 vinninga af 10 mögulegum. Fimm fyrstu liđin fengu Hátíđarpoka Freyju í verđlaun. En úrslit urđu annars sem hér segir:
1.-2. Easy win, easy life, Bárđur Örn og Björn Hólm, 9v.
1.-2. Sharks, Vignir Vatnar Stefánsson og Stefán Már Pétursson, 9v.
3. Stúfur og Kertasníkir, Adam Omarsson og Omar Salama, 7,5v.
4.-5. Möllersfeđgar, Tómas Möller og Agnar Tómas, 7v.
4.-5. Jólahrókarnir, Gylfi Már og Ţórir Ben., 7v.
6.-9. Heilögu Ásarnir, Ásthildur Helgadóttir og Helgi Áss Grétarsson, 6v.
6.-9. Bestersen, Einar Tryggvi Petersen og Jakob Alexander Petersen, 6v.
6.-9. Stekkjastaur og Stúfur, Elsa Kristín Arnaldardóttir og Arnaldur Loftsson, 6v.
6.-9. Stubbarnir, Soffía Arndís og Haukur B, 6v.
10.-13. Stúfur og Leppunarlúđinn, Alexander Björnsson og Björn Jónsson, 5,5v.
10.-13. Gluggagćgir og Grýla, Jósef Omarsson og Lenka Ptacnikova, 5,5v.
10.-13. Kethrókur, Kristján Orri Hugason og Hugi Ólafsson, 5,5v.
10.-13. Jólakóngarnir, Gabríel Sćr og Alexander Már, 5,5v.
14.-23. Jólastúfarnir, Bjartur Ţórisson og Benedikt Ţórisson, 5v.
14.-23. Skákmeistararnir, Freyja Birkisdóttir og Bárđur Guđmundsson, 5v.
14.-23. Mögnuđu Mandarínurnar, Iđunn Helgadóttir og Helgi Pétur, 5v.
14.-23. Álftamýri 56, Bergţóra H. Gunnarsdóttir, Gunnar Fr. Rúnarsson og Sigurđur R. Gunnarsson, 5v.
14.-23. Drottningin óstöđvandi, Einar Dagur og Ingvar Wu, 5v.
14.-23. Lárún, Eyrún Lára Sigurjónsdóttir og Lárus H. Bjarnason, 5v.
14.-23. Mislitu biskuparnir, Emil Kári og Kristján Dagur, 5v.
14.-23. Galdraliđiđ, Einar Helgi og Ásgerđur, 5v.
14.-23. Rayano, Rayan og Ammarr, 5v.
14.-23. Jólastuđ, Anna Katarina og Jón, 5v.
24. Vinaliđiđ, Daníel Davíđsson og Annamaría Ţorsteinsdóttir, 4,5v.
25.-28. Ađventuriddararnir, Hildur Birna Hermannsdóttir og Hermann Ţór Geirsson, 4v.
25.-28. Yoda og jólasveinninn, Markús Hrafn og Skúli.
25.-28. Skáksveinarnir, Ásgeir Valur Kjartansson og Bjarki Dagur Arnarsson, 4v.
25.-28. 23Afl, Mikael Bjarki Heiđarsson og Jón Höskuldsson, 4v.
29. Villti, tryllti riddarinn, Matthías Guđni og Baldur
30.-31. DB8, Dagur Björn Arason og Ari Björnsson
33.-31. Pokémonarnir, Friđrik Ólafur Guđmundsson og Finnur Malmquist
32.-33. Taflliđiđ, Rigon og Róbert, 2v.
32.-33. Skákliđiđ, Victor og Dong, 2v.
Ađ ţessari skemmtilegu liđakeppni lokinni fór fram verđlaunaafhending. Fyrst voru veitt verđlaun (medalíur) fyrir mćtingu/ástundun á skákćfingunum á ţessari önn í byrjendahópnum, stúlknahópnum og laugardagsćfingahópnum.
Í byrjendahópnum fengu eftirfarandi drengir verđlaun fyrir góđa mćtingu:
1. Anthony Gia Bao.
2. Daníel Davíđsson og Friđrik Ólafur Guđmundsson Briem.
3. Emil Kári Jónsson, Dagur Björn Arason, Stefán Darri Ţorbjargarson og Hlynur Orri Ingólfsson.
Í stelpuhópnum fengu eftirfarandi stúlkur verđlaun fyrir góđa mćtingu:
Aldursflokkur 6-7 ára, fćdd 2009-2010, (1.-2. bekk).
1. Sigurbjörg Birna Ţórđardóttir.
2. Gerđur Gígja Óttarsdóttir.
Aldursflokkur 8-9 ára, fćdd 2007-2008, (3.-4. bekk).
1. Katrín María Jónsdóttir.
2. Iđunn Helgadóttir,Bergţóra Helga Gunnarsdóttir, Elsa Kristín Arnaldardóttir.
3. Anna Katarina Jónsdóttir.
Aldursflokkur 10-12 ára, fćdd 2004-2006, (5.-7. bekk).
1. Ásthildur Helgadóttir.
2. Lísa Mímósa Mímisdóttir.
3. Esther Lind.
Í laugardagsćfingahópnum fengu eftirfarandi krakkar mćtingarverđlaun:
1. Bjartur Ţórisson, Benedikt Ţórisson, Einar Tryggvi Petersen, og Einar Dagur Brynjarsson.
2. Ottó Bjarki Arnar.
3. Adam Omarsson og Jósef Omarsson, Freyja Birkisdóttir, Rayan Sharifa.
Ţví nćst fór fram verđlaunaafhendingin fyrir Fjölskylduskákmótiđ og ađ lokum var happdrćtti, dregiđ úr skráningarnúmerum liđanna. Í happdrćtti voru ţrír Freyju Hátíđarpokar og fimm bćkur úr bókalager TR, ţannig ađ 8 liđ höfđu heppnina međ sér! Ţá var bara jólahressingin eftir, sem var skemmtilegur lokapunktur á jólaskákćfingunni. Malt og appelsín, piparkökur, súkkulađibitakökur og vanilluhringir allt átti ţetta vel viđ á vel heppnađri jólaćfingu.
Skákstjórar voru Torfi Leósson og Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir. Ţórir Benediktsson og Kjartan Maack tóku myndir.
Skákćfingarnar hefjast ađ nýju á nýju ári laugardaginn 8. janúar 2017. Sjáumst ţá! Gleđileg jól!
Pistill: Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir.
11.12.2016 | 19:41
Mjög góđ frammistađa Mai-brćđra í Róm
Mai-brćđurnir, Aron Ţór (1893) og Alexander Oliver (1717), áttu afar gott alţjóđlegt mót í Róm á Ítalíu sem fram fór 3.-10. desember. Alexander hlaut gull í flokki skákmanna međ 1500-1799 skákstig. Alexander hlaut 5 vinninga í 9 skákum og tapađi ađeins einni skák ţrátt fyrir ađ hafa teflt viđ stigahćrri andstćđinga í öllum umferđum nema einni.
Aron Ţór átti einnig afar gott. Hann hlaut 4,5 vinninga ţrátt fyrir ađ hafa teflt viđ stigahćrri andstćđinga í öllum umferđum!
Alexander hćkkar um 120 skákstig en Aron Ţór hćkkar um 72 skákstig. Frábćr frammistađa hjá ţeim brćđrum.
10.12.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Guđmundur Kjartansson í Fćreyjum
Guđmundur Kjartansson vann fimm fyrstu skákir sínar á Rúnavik open, skákmóti sem Fćreyingar héldu öđrum ţrćđi til ađ fagna ţví ađ ţeir hafa nú eignast sinn fyrsta stórmeistara, Helga Dam Ziska. Helgi var í hópi ţeirra sem sćmdir voru titlinum á ţingi FIDE í Bakú á dögunum. Hann var stigahćsti keppandi mótsins og Jóhann Hjartarson kom nćstur.
Mótiđ fór fram í Rúnavík á Austurey en ţar búa um ţrjú ţúsund manns. Skipuleggjendur gerđu vel viđ íslensku skákmennina; á Ólympíumótinu í Bakú var ţeim bođin ţátttaka Jóhanni Hjartarsyni og Guđmundi Kjartanssyni og síđan bćttust í hóp keppenda Ţröstur Ţórhallsson, Vignir Vatnar Stefánsson, Gauti Páll Jónsson, Loftur Baldvinsson og Heimir Páll Ragnarsson.
Fćreyingar hyggjast halda mótiđ aftur ađ ári og má búast viđ mörgum skákmönnum héđan enda ekkert ţví til fyrirstöđu ađ Íslendingar eigi gott samstarf á skáksviđinu viđ frćndur vora Fćreyinga. Gunnar Björnsson forseti SÍ var međal skákstjóra og annar kunnur einstaklingur úr skákhreyfingunni, Rúnar Berg, var međal gesta á mótsstađ en hann er nú búsettur í Fćreyjum.
Úrslit mótsins voru mikill sigur fyrir Guđmund Kjartansson sem vann fimm fyrstu skákir sínar og varđ síđan einn efstur. Keppendur voru 40 talsins en í efstu sćtum urđu:
1. Guđmundur Kjartansson 7 v. (af 9 mögulegum). 2.-3. Miquel Munoz og Nikolaj Mikkelsen 6 ˝ v. 4. 7. Jóhann Hjartarson, Helgi Dam Ziska, Jakob van Glud og Hans Kristian Simonsen 6 v. 8.- 12. Daniel Semecen, Simon Bekker Jensen, Ţröstur Ţórhallsson, Rogvi Egilstoft Nielsen og Vignir Vatnar Stefánsson 5 ˝ v.
Međ frammistöđu sinni á ţessu móti náđi hinn 13 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson ţví markmiđi ađ komast yfir 2400 elo-stig og á nýbirtum lista FIDE er hann í 17.sćti međal íslenskra skákmanna međ 2404 elo stig. Hann er í 5. sćti yfir sterkustu skákmenn Evrópu 14 ára og yngri og í 11. sćti á heimslistanum. Má mikils vćnta af ţessum unga manni.
Guđmundur Kjartansson tefldi af miklu öryggi en sigrar hans yfir öflugum andstćđingum í 3.-5. umferđ voru lykillinn ađ frammistöđu hans ţegar hann vann Munoz, Jóhann Hjartarson og Hamitevici. Skákin viđ hinn öfluga alţjóđlega meistara fra Moldóvíu gekk ţannig fyrir sig:
Rúnavík 2016; 3. umferđ:
Guđmundur Kjartansson Vladimir Hamitevici
Hollensk vörn
1. c4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 g6 4. d4 d6 5. Rf3 Bg7 6. Rc3 O-O 7. O-O c6 8. Hb1 Kh8 9. b4 Be6 10. d5 Bg8 11. Rd4 a5?!
Öruggara er 11. ... cxd5.
12. dxc6 Rxc6 13. Rxc6 bxc6 14. Bxc6 axb4 15. Hxb4 Hc8 16. Bb5 h6 17. a4 g5 18. Rd5 Re4 19. Be3 Rc5 20. Bd4 e5 21. Bxc5!?
21. Bxc3 kom einnig til greina en ţar sem svartur hefur lokađ hornalínunni a1-h8 á ţessi leikur fullan rétt á sér.
21. ... Hxc5 22. e4 fxe4 23. Re3 Hf3 24. Da1 Da5 25. De1 Be6 26. Hb2!
Og nú kemst a-peđiđ á skriđ.
26. ... Da8 27. Dd2 Bf8 28. Hd1 h5 29. a5 h4 30. gxh4?
Ónákvćmni, 30. a6 var best og svartur er án gagnfćra.
30 ... Hc7 31. Kh1 g4?!
Enn sterkara var 31. ... Hh7!
32. a6 Hh7 33. Hg1 Hxh4 34. Hg2 Hh7 35. Ha2 Hf4 36. Kg1 Db8 37. Ha1 Db6 38. Da5 Da7?
Hann varđ ađ fara í drottningarkaupin.
39. Bc6! Be7
Hamitevici féll á tíma um leiđ og hann lék ţessum leik. Athugun leiđir í ljós ađ svarta stađan er töpuđ eftir 40. Hb1! ásamt Db6.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 3. desember 2016
Spil og leikir | Breytt 4.12.2016 kl. 19:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2016 | 10:20
Haraldur sigurvegari U-2000 mótsins
Hinn reynslumikli Haraldur Baldursson (1957) sigrađi á U-2000 móti Taflfélags Reykjavíkur sem lauk síđastliđiđ miđvikudagskvöld. Haraldur hlaut 6,5 vinning í skákunum sjö, hálfum vinningi meira en Dawid Kolka (1907) sem varđ annar. Ţriđji međ 5,5 vinning varđ Hilmar Ţorsteinsson (1800). Ţetta er annađ áriđ í röđ sem Haraldur sigrar á U-2000 mótinu en ţar ađ auki vann hann eitt af mótunum ţegar ţau voru haldin á fyrri hluta síđasta áratugs.
Fjórir keppendur komu nćstir međ 5 vinninga hver, ţeirra á međal hinn ţrettán ára Blikapiltur, Stephan Briem (1594), en Stephan hefur veriđ á fljúgandi siglingu ađ undanförnu og rokiđ upp stigalista Fide. Ekkert lát virđist á uppgangi kappans ţví á U-2000 mótinu landađi hann tćplega 70 Elo-stigum. Sannarlega vel gert en góđur hluti keppenda á mótinu samanstóđ af yngri kynslóđinni sem lét ţá eldri og reyndari svitna verulega viđ skákborđin.
Ćriđ verkefni beiđ Haraldar sem hafđi hvítt gegn hinum eitilharđa Jon Olav Fivelstad (1918) sem kallar einfaldlega ekki allt ömmu sína, enda vćri frekar skrýtiđ ađ gera ţađ. Úr varđ mjög svo spennandi viđureign sem einkenndist af stöđulegri baráttu ţar sem leiđ lá út í endatafl ţar sem hvor hafđi riddara og jafnmörg peđ á hvorum vćng fyrir sig. Ţegar tími keppenda var orđinn naumur henti Haraldur jafnteflisbođi í loftiđ sem Jon Olav hafnađi snarlega ţrátt fyrri ađ vera međ innan viđ mínútu á klukkunni. Svo fór ađ neitunin varđ honum ađ falli, ef svo má ađ orđi komast, og eftir ađ hafa tekiđ áhćttuna á ađ sćkja sigurinn fékk Haraldur líkast til unna en ţó vandteflda stöđu. Ţađ var viđ hćfi ađ viđureign ţeirra félaga var síđasta skák mótsins til ađ klárast en langleiđina gengiđ í miđnćtti sigldi Haraldur sigrinum í höfn og skaust ţar međ upp í efsta sćtiđ.
Á ţriđja borđi sigrađi Hilmar hinn beinskeytta Friđgeir Hólm (1739) nokkuđ örugglega en Friđgeir á ţađ til ađ tefla alltof hratt og ekki vafamál ađ međ smá bremsu kćmi hans rétti styrkleiki betur í ljós. Hafđi hann reyndar á orđi eftir mót ađ hann kynni ekki ađ tefla hćgar en ekki var skákstjóri alveg tilbúinn í ađ taka undir ţá fullyrđingu. Međ sigrinum innsiglađi Hilmar gott mót ţar sem hann tekur inn stigahćkkun upp á tćp 50 Elo-stig. Vel gert hjá kauđa sem hefur veriđ ađ sýna sig á skákmótum á nýjan leik eftir nokkurt hlé, sjálfsagt vegna náms eđa annarrar vitleysu.
Eins og ávallt voru margar viđureignir spennandi og skemmtilegar og eitthvađ af athyglisverđum úrslitum litu dagsins ljós. Má ţar til dćmis nefna sigur Ingvars Egils Vignissonar (1554) međ svörtu gegn Páli Ţórssyni (1771) ţar sem Páll tefldi líflega og fórnađi manni fyrir peđ á e6 á ţeim forsendum ađ svartur var ekki búinn ađ hrókfćra. Örlítiđ vantađi ţó upp á sóknina og náđi Ingvar ađ verjast áhlaupinu og snúa leiknum sér í hag. Gott mót hjá Ingvari Agli sem hlaut 4 vinninga og tryggđi sér aukaverđlaun fyrir besta samanlagđan árangur í U-2000 mótinu og Skákţingi Garđabćjar.
Ef litiđ er á mestu stigahćkkanir keppenda sést ađ Dawid, Stephan, Ólafur Evert Úlfsson (1464), Arnar Milutin Heiđarsson (1358), Jóhann Bernhard Jóhannsson (1426), Benedikt Briem (1077) og Freyja Birkisdóttir (1186) hćkkuđu öll um meira en 50 Elo-stig.
Afar skemmtilegu og vel skipuđu U-2000 móti er ţví lokiđ í ár en tvöfallt fleiri keppendur tóku ţátt í mótinu nú heldur en í fyrra. Börn, fullorđnir ásamt nýjum keppendum sýna vel ađ U-2000 mótiđ er sannarlega komiđ til ađ vera og má fullyrđa hér ađ leikar verđa endurteknir ađ ári liđnu. Taflfélag Reykjavíkur ţakkar öllum fyrir ţátttökuna og óskar verđlaunahöfum til hamingju.
10.12.2016 | 10:15
Jólaćfing TR haldinn í dag
Hin árlega Jólaskákćfing verđur haldin laugardaginn 10.desember kl.14-16. Ćfingin er um leiđ uppskeruhátíđ haustannarinnar ţví veitt verđa verđlaun fyrir ástundun á haustönn. Allir krakkar úr öllum skákhópum TR, sem ćfa á laugardögum og sunnudögum, eru velkomnir á ţessa sameiginlegu Jólaskákćfingu.
Ćfingin er einskonar fjölskylduskákmót ţar sem tveir mynda eitt liđ og mega foreldrar, ömmur og afar og frćndur og frćnkur gjarnan tefla međ börnunum. Bođiđ verđur upp á léttar veitingar.
Byrjendahóparnir, stelpuhópurinn og hópurinn sem ćfir kl.14 verđa ţví ekki međ venjulegar ćfingar ţennan dag, heldur hittast á sameiginlegri Jólaskákćfingu kl.14.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 9
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 140
- Frá upphafi: 8779652
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 120
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar