Fćrsluflokkur: Spil og leikir
5.1.2009 | 15:48
Skákţing Vestmannaeyja hefst 11. janúar
Skákţing Vestmannaeyja hefst sunnudaginn 11. janúar kl. 19:30. Tefldar verđa 9 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk verđa 90 mínútur á alla skákina auk 30 sek. á leik. Teflt verđur á fimmtudögum auk valdra sunnudaga. Teflt verđur í húsnćđi Taflfélags Vestmannaeyja ađ Heiđarvegi 9. Mótiđ verđur reiknađ til íslenskra stiga og FIDE stiga.
Sigurvegari mótsins hlýtur nafnbótina Skákmeistari Vestmannaeyja og varđveislu farandbikars í eitt ár. Verđlaunagripir eru auk ţess til eignar fyrir 3 efstu sćtin.
Skráning er hjá Sverri í síma: 858-8866 eđa á netfangiđ: sverriru@simnet.is fram á laugardag kl. 19
Upplýsingar um skráđa keppendur má nálgast hér.
5.1.2009 | 14:09
Áfangaskák hjá Guđmundi í beinni!
Guđmundur Kjartansson teflir áfangaskák viđ enska stórmeistarann Mark Hebden (2515) í níundu umferđ Hastings-mótsins sem hefst kl. 14:15. Vinni Guđmundur skákina nćr hann lokaáfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.
Skákina má nálgast hér: http://www.hastingschess.org.uk/gameview/live/h09r09/default2.htm
5.1.2009 | 08:23
Atkvöld hjá Helli í kvöld
Taflfélagiđ Hellir heldur atkvöld mánudaginn 5. janúar 2009 og hefst mótiđ kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hrađskákir ţar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til ađ ljúka skákinni og síđan ţrjár atskákir, međ tuttugu mínútna umhugsun. Tilvalin upphitun fyrir ţá sem vilja hita sig upp fyrir Skákţing Reykjavíkur!
Sigurvegarinn fćr í verđlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Ţá hefur einnig veriđ tekinn upp sá siđur ađ draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fćr pizzu hjá Dominos Pizzum. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Ţar sem um er ađ rćđa fyrsta atkvöld ársins fá auk ţess ţeir ţrír efstu sem ekki eiga bók Braga Halldórssonar um Heimsbikarmót Stöđvar 2 ţá bók.
Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
4.1.2009 | 23:33
Jón Viktor skákmađur ársins 2008 ađ mati ritstjóra Skák.is
Ritstjóri Skák.is hefur venju samkvćmt gert hiđ árlega áramótauppgjör á bloggsíđu sinni. Ađ mati hans er Jón Viktor Gunnarsson skákmađur ársins 2008, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir skákkona ársins, Hjörvar Steinn Grétarsson efnilegasti skákmađur ársins og Taflfélag Bolungarvíkur skákfélag ársins.
Uppgjöriđ, sem er skrifađ í léttum dúr, má finna í heild sinni á bloggsíđu ritstjóra.
4.1.2009 | 18:55
Guđmundur gerđi jafntefli viđ Simon Williams (uppfćrt)
FIDE-meistarinn Guđmundur Kjartansson (2365) gerđi jafntefli viđ enska stórmeistarann Simon Williams (2494) í mjög fjörugri skák í áttundu og nćstsíđustu umferđ Hastings-mótsins, sem fram fór í dag. Guđmundur hefur 5˝ vinning og er í 6.-12. sćti.
Í lokaumferđinni, sem fram fer á morgun, teflir Guđmundur viđ enska stórmeistarann Mark Hebden (2515). Vinni Guđmundur skákina nćr hann lokaáfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli!
Rússneski stórmeistarinn Igor Kurnosov (2606) er efstur međ 7 vinninga og úkraínski stórmeistarinn Valerij Neverov (2571) annar međ 6˝ vinning. Í 3.-5. sćti eru ensku stórmeistararnir David Howell (2593) og Stuart Conquest (2526) og sćnski stórmeistarinn Emanuel Berg (2623).
Hćgt verđur ađ fylgjast međ skákum mótsins beinni og hefst umferđin á morgun kl. 14:15.
Rúmlega 100 skákmenn taka ţátt í ađalmótinu og ţar af 13 stórmeistarar. Guđmundur er u.ţ.b. nr. 60 í stigaröđinni.Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
4.1.2009 | 15:23
Tvöfaldur íslenskur sigur í Reggio Emila!
Björn Ţorfinnsson (2408) og Jón Viktor Gunnarsson (2463) urđu efstir og jafnir í b-flokki Reggio Emila-mótsins,sem lauk í dag. Jón Viktor vann ítalska FIDE-meistarann Alberto Pomaro (2254) en Björn tapađi fyrir ítalska FIDE-meistarann Marco Corvi (2343). Báđir hlutu ţeir 6˝ vinning og hćkka báđir um rúmlega 10 stig á mótinu.
Kínverjinn Ni Hua (2710)varđ langefstur í ađalmótinu en hann hlaut 7˝ vinning í 9 skákum. Annar varđ Ungverjinn Zoltan Almasi (2663) međ 6 vinninga og í 3.-5. sćti urđu Rúmeninn Mihail Marin (2556), Ţjóđverjinn Jan Gustafsson (2634) og Rússinn Konstantin Landa (2613).
4.1.2009 | 11:50
Skeljungsmótiđ 2009 - Skákţing Reykjavíkur
Skeljungsmótiđ 2009 - Skákţing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 11. janúar kl. 14. Tefldar verđa 9 umferđir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1˝ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferđir fara fram á miđvikudögum og föstudögum kl. 19 og á sunnudögum kl. 14. Teflt er í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12.
Upplýsingar um skráđa keppendur má nálgast hér. Nú eru 15 skákmenn skáđir til leiks og ţar á međal Sigurbjörn Björnsson og Sćvar Bjarnason.
Verđlaun:
- 1. sćti kr. 50.000
- 2. sćti kr. 30.000
- 3. sćti kr. 20.000
- Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 15.000 (íslensk stig gilda)
- Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 15.000 (íslensk stig gilda)
Sigurvegarinn hlýtur auk ţess nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2009 og farandbikar til varđveislu í eitt ár.
Ţátttökugjöld:
- kr. 3.500 fyrir 16 ára og eldri
- kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri
Dagskrá mótsins:
- 1. umferđ sunnudag 11. janúar kl. 14
- 2. umferđ miđvikudag 14. janúar kl. 19
- 3. umferđ föstudag 16. janúar kl. 19
- 4. umferđ sunnudag 18. janúar kl. 14
- 5. umferđ miđvikudag 21. janúar kl. 19
- 6. umferđ föstudag 23. janúar kl. 19
- 7. umferđ sunnudag 25. janúar kl. 14
- 8. umferđ miđvikudag 28. janúar kl. 19
- 9. umferđ föstudag 30. janúar kl. 19
Skákţingiđ er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga.
Skráning fer fram á taflfelag@taflfelag.is og í síma 895-5860 (Ólafur).
Hrađskákmót Reykjavíkur verđur haldiđ sunnudaginn 1. febrúar og hefst ţađ kl. 14.00. Tefldar verđa 2x7 umferđir eftir Monradkerfi.
3.1.2009 | 20:54
Íslenskur sigur á Reggio Emilia-mótinu!
Jón Viktor Gunnarsson (2463) sigrađi ítalska FIDE-meistarann Massimiliano (2320) í áttundu og nćstsíđustu umferđ b-flokks Reggio Emila-mótsins, sem fram fór í dag. Björn Ţorfinnsson (2408) gerđi hins vegar stutt jafntefli viđ ítalska FIDE-meistarann Luca Barillaro (2202). Björn er langefstur en hann hefur 6˝ vinning. Eini mađurinn sem getur náđ honum ađ vinningum er Jón Viktor sem er annar međ 5˝ vinning svo ţađ er ljóst ađ ţađ verđur íslenskur sigur í b-flokknum!
Kínverjinn Ni Hua (2710) er efstur í ađalmótinu međ 6˝ vinning og hefur tryggt sér sigur ţví hann hefur 1˝ vinnings forskot á Ungverjann Zoltan Almasi (2663) og Rúmenann Mihail Marin (2556) sem koma nćstir.
Í níundu og síđustu umferđ, sem fram fer í fyrramáliđ, teflir Björn viđ ítalska FIDE-meistarann Marco Corvi (2343) en Jón ítalska FIDE-meistarann Alberto Pomaro (2254). Sá ţarf ađ vinna Jón til ađ ná áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli svo búast má viđ harđri baráttu!
Skákirnar eru sýndar beint á netinu og skákir morgundagsins hefjast kl. 9:30.
3.1.2009 | 19:00
Guđmundur vann enskan stórmeistara!
FIDE-meistarinn Guđmundur Kjartansson (2365) sigrađi enska stórmeistarann Stewart G Haslinger (2526) í sjöundu umferđ Hastings-mótsins, en ţetta er fjórđa vinningsskák hans í röđ! Guđmundur hefur nú 5 vinninga og er kominn í 4.-12. sćti!
Í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Guđmundur viđ enska stórmeistarann Simon Williams (2494). Hćgt verđur ađ fylgjast međ skákinn í beinni og hefst viđureignin kl. 14:15.
Rússneski stórmeistarinn Igor Kurnosov (2606) er efstur međ 6˝ vinning og stórmeistarnir Emanuel Berg (2623), Svíţjóđ, og Valerij Neverov (2571) eru í 2.-3. sćti međ 5˝ vinning.
Rúmlega 100 skákmenn taka ţátt í ađalmótinu og ţar af 13 stórmeistarar. Guđmundur er u.ţ.b. nr. 60 í stigaröđinni.Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 22:34
Atkvöld hjá Helli
Taflfélagiđ Hellir heldur atkvöld mánudaginn 5. janúar 2009 og hefst mótiđ kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hrađskákir ţar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til ađ ljúka skákinni og síđan ţrjár atskákir, međ tuttugu mínútna umhugsun. Tilvalin upphitun fyrir ţá sem vilja hita sig upp fyrir Skákţing Reykjavíkur!
Sigurvegarinn fćr í verđlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Ţá hefur einnig veriđ tekinn upp sá siđur ađ draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fćr pizzu hjá Dominos Pizzum. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Ţar sem um er ađ rćđa fyrsta atkvöld ársins fá auk ţess ţeir ţrír efstu sem ekki eiga bók Braga Halldórssonar um Heimsbikarmót Stöđvar 2 ţá bók.
Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 130
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 93
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar