Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Guđmundur vann aserskan skákmeistara

4turec_8

Guđmundur Kjartansson (2437) vann aserska skákmeistarann Ravan Aliyev (2252) í áttundu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í gćr í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Gummi hefur 4 vinninga.

Níunda umferđ fer fram í dag. Ţá teflir Gummi viđ úkraínska stórmeistarann Mykhaylo Oleksiyenko (2636). Skákin verđur sýnd beint og hefst kl. 12:45.

Útsendinguna má nálgast hér.

Howell

Enski stórmeistarinn David Howell (2684) er efstur međ 7 vinninga. 

Umfjöllun um gang mála má finna á heimasíđu ECU.

Mótiđ er gríđarlega sterkt. Ţátt taka 397 skákmenn frá 38 löndum og ţar af er 171 stórmeistari. Ţađ segir ýmislegt um styrkleika mótsins ađ Guđmundur er ađeins nr. 220 í stigaröđ keppenda. 


Arnar Gunnarsson hlutskarpastur á Meistaramóti TRUXVA

20170606_233905-620x330
 
Alţjóđlegi meistarinn Arnar Gunnarsson sigrađi á afar glćsilegu Hrađskákmeistaramóti Truxva sem fram fór annan í Hvítasunnu, ţeim merkilega degi. Arnar fékk 10 vinninga af 11 mögulegum sem verđur ađ teljast mjög gott á svo sterku móti.

Ţađ hafđi lengi veriđ í umrćđunni hjá Truxva, ungliđahreyfingu TR, ađ halda mót ţar sem sterkum TR-ingum yrđi bođiđ ađ taka ţátt ásamt Truxvunum. Eftir miklar samningaviđrćđur milli undirritađs og Kjartans Maack formanns sem sá einnig um mótshaldiđ, varđ lokaniđurstađan ţessi: 11 umferđir međ  tímamörkum 4 plús 2, öllum úr ungliđaheyfingu TR bođin ţáttaka auk allra TR-inga međ yfir 2000 stig eđa ţá TR-inga sem einhverntíman hafa komist yfir 2000 stig svo ţeir vćru nú ekki skildir útundan. Síđan fengu fjórir öflugir utanfélagsmenn ađ fljóta međ til ađ gera mótiđ enn sterkara og skemmtilegra! Ţađ voru ţeir IM Einar Hjalti Jensson, FM Dagur Ragnarsson, FM Oliver Aron Jóhannesson og Jón Trausti Harđarson. Ţannig fór ađ ţeir Einar Hjalti og Oliver lentu einmitt í öđru og ţriđja sćti međ 8.5 og 8 vinninga.

Mótiđ var vel skipađ sem sést á ţeim fjórum alţjóđlegu meisturum og ţremur Fidemeisturum sem tefldu og öllum ţeirra sem freistuđu ţess ađ hćkka hrađskákstigin sín, en ţau eru afar mikilvćg í augum flestra skákmanna.

Mótiđ einkenndist af gríđarlegum sviptingum svo ţađ lá viđ ađ Swiss Manager réđi ekki viđ öll óvćntu úrslitin! Arnar sýndi ţó mikinn stöđugleika og tapađi bara gegn Einari, en Einar sem tapađi í fyrstu umferđ náđi Arnari ađ vinningum međ sigrinum. Arnar vann hins vegar allar síđustu skákirnar og tryggđi sér ţannig sigur. Veitt voru bókaverđlaun fyrir efstu tvö sćti ţeirra međ yfir 2000 stig og efstu tvo međ undir 2000 stig, en ţađ eiga víst einhverjir nokkrir Truxvar eftir ađ rjúfa ţann múr, en ţeim fer ört fćkkandi (eđa fjölgandi ef undirritađur tekur sig ekki á!) Verđlaunahafar voru ţeir Arnar, Einar, Hilmir Freyr Heimisson og Björn Hólm Birkisson. Hilmir og Björn stóđu sig mjög vel og Hilmir hćkkar um heil 108 hrađskákstig, eftir ađ hafa unniđ međal annarra ţá brćđur Björn og Braga Ţorfinnssyni. Ljóst ađ ţađ verđur algjör óţarfi ađ halda upp á jólin á hans heimili.

Mótiđ fór vel fram og mikil stemning var í Taflfélaginu ţetta kvöld. Hver veit nema mót af svipuđu sniđi verđi haldiđ aftur, ţar sem unglingarnir í TR fá tćkifćri til ađ spreyta sig gegn eldri og reyndari skákmönnum. – Jú! Eđa öfugt!

Gauti Páll Jónsson 

Lokastöđu og öll úrslit má nálgast á chess-results.

Nánar á heimasíđu TR.


Nakamura vann Giri í fyrstu umferđ - Carlsen og So gerđu jafntefli

carlsen-so

Altibox Norway Chess-mótiđ hófst í gćr í Stafangri í Noregi. Fjórum skákum af fimm lauk međ jafntefli og ţar á međal annars skák tveggja stigahćstu skákmanna heims Magnúsar Carlsen (2832) og Wesley So (2812). Ţađ voru ađeins ein hrein úrslit en Hikaru Nakamura (2785) vann Anish Giri (2771). 

Önnur umferđ hefst kl. 14 í dag. Ţá teflir Carlsen viđ Caruana (2808) en forystusauđurinn Nakamura mćtir Aronian (2793).

Ítarlega umfjöllun um gćrdaginn má finna á Chess.com.

 


Guđmundur gerđi jafntefli í gćr

4turec_8

Guđmundur Kjartansson (2437) gerđi jafntefli viđ rússneska skákmeistarann Vladislav Chizhikov (2282) í sjöundu umferđ EM einstaklinga í gćr. Guđmundur hefur 3 vinninga. 

Áttunda umferđ fer fram í dag. Ţá teflir Gummi viđ Aserann Ravan Aliyev (2252).

Spánverjinn David Anton Gujarro (2660) og Englendingurinn David Howell (2684) eru efstir á mótinu. Stöđu mótsins má finna hér

Daglega umfjöllun um mótiđ má finna á heimasíđu ECU.

Mótiđ er gríđarlega sterkt. Ţátt taka 397 skákmenn frá 38 löndum og ţar af er 171 stórmeistari. Ţađ segir ýmislegt um styrkleika mótsins ađ Guđmundur er ađeins nr. 220 í stigaröđ keppenda. 


Barna- og unglingastarf Hugins: Óskar vann stigakeppni vetrarins

20170529_185851

Síđasta barna- og unglingaćfing  Hugins  fyrir sumarhlé var haldin 26. maí sl. Úrslitin í stigakeppni ćfinganna var ţá ţegar ráđin. Óskar Víkingur Davíđsson var međ 23 stiga forskot á Óttar Örn Bergmann Sigfússon sem ljóst var ađ ekki yrđi brúađ á ţessari ćfingu ţar sem ćfingin gaf mest 3 stig. Á lokaćfingunni voru ţrír efstir og jafnir međ 4v af fimm mögulegum en ţađ voru Ótttar Örn Bergmann Sigfússon, Óskar Víkingur Davíđsson og Stefán Orri Davíđsson. Ţeir unnu hvorn annan á víxl, Óttar Örn vann Óskar ađ ég tel í fyrsta sinn, Óskar vann Stefán Orra og Stefán Orri vann Óttar. Óttar Örn var efstur á stigum og hlaut fyrsta sćtiđ, Óskar var annar og Stefán Orri ţriđji. 

Í ćfingunni tóku ţátt: Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Óskar Víkingur Davíđsson, Stefán Orri Davíđsson, Brynjar Haraldsson, Einar Dagur Brynjarsson, Garđar Már Einarsson, Sigurđur Rúnar Gunnarsson, Rayan Sharifa, Bergţóra Helga Gunnarsdótttir, Gunnar Freyr Valsson, Gabríel Elvar Valgeirsson, Hans Vignir Gunnarsson og Alfređ Dossing. 

Eftir lokaćfinguna er Óskar efstur í stigakeppni vetrarins međ 56 stig, Óttar Örn í öđru sćti međ 36 stig og síđan voru jafnir Stefán Orri Rayan međ 31 stig og deildu ţeir ţriđja sćtinu.  Ţetta er fjórđa áriđ í röđ sem Óskar er í fyrsta sćti en í annađ skiptiđ deildi hann ţví međ Heimi Páli. Keppnin sem hann fékk ţennan vetur var minni en síđasta vetur ţegar Dawid fylgdi honum eins og skugginn. 

Á ţessum ćfingum hafa veriđ veittar viđurkenningar fyrir framfarir á ćfingunum yfir veturinn. Í ţetta sinn var ákveđiđ ađ veita ţrjár viđurkenningar. Ţćr hlutu Garđar Már Einarsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Rayan Sharifa. Óttar Örn og Rayan komu upp úr yngri flokknum í byrjun vetrar. gengi ţeirra fór svo vaxandi ţegar leiđ á veturinn og í kokin enduđu ţeir í öđru og ţriđja sćti í stigakeppni ćfinganna og tóku nánast öll stigin í eldri flokki ćfinganna. Báđir hafa ţeir tekiđ góđum alhliđa framförum í vetur. Garđar Már byrjađi í lok nóvember og var getan ekki mikil til ađ byrja međ. Hann bćtti sig svo jafnt og ţétt og náđi áđur en veturinn var á enda ađ vinna sína fyrstu ćfingu og ná sér í nokkur önnur verđlaun.

Mánudagsćfingar sem eru opnar börnum og unglingum á grunnskólaldri voru uppstađan í barna- og unglingastarfinu í vetur. Umsjón međ ţeim ćfingum höfđu Alec Elías Sigurđarson, Erla Hlín Hjálmarsdóttir ogg Vigfús Ó. Vigfússon. Ţessu til viđbótar var bođiđ upp á aukaćfingar fyrir félagsmenn á laugardögum og ţriđjudögum ţar sem fariđ var í ýmis grunnatriđi í endatöflum, taktik og byrjunum. Ćfingarnar í vetur voru vel sóttar en tćplega 100 börn og unglingar sóttu ţćr. Sumir mćttu ađeins á fáar ćfingar en kjarninn sem sótti ćfingarnar mćtti afar vel og fengu 14 viđurkenningu fyrir mćtinguna í vetur en ţađ voru: Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Rayan Sharifa, Gunnar Freyr Valsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Brynjar Haraldsson, Óskar Víkingur Davíđsson, Andri Hrannar Elvarsson, Stefán Orri Davíđsson, Batel Goitom Haile, Zofia Momuntjuk, Wiktoria Momuntjuk, Bergţóra Helga Gunnarsdóttir, Garđar Már Einarsson og Alfređ Dossing.

Nú verđur gert hlé á Huginsćfingunum í Mjóddinni ţangađ til í haust ţegar ţćr byrja aftur um mánađarmótin ágúst – september.

Nánar á heimasíđu Hugins.


Altibox Norway Chess hefst í dag - Carlsen vann hrađskákmótiđ

Altibox Norway Chess-mótiđ hefst í dag í Stafangri í Noregi. Ţátt taka tíu af allra bestu skákmönnum heims. Í gćr tefldu keppendur hrađskák sem svo réđ töfluröđ mótsins. Carlsen hafđi ţar mikla yfirburđi og hlaut 7,5 vinninga í 9 skákum. Nakamura og Aronian komu nćstir međ 5,5 vinninga. 

Ítarlega umfjöllun um gćrdaginn má finna á Chess.com.

Sjálft ađalmótiđ hefst í dag kl. 14. Í fyrstu umferđ teflir heimsmeistarinn viđ Wesley So (2812). Tveir stigahćstu skákmenn heims.

 


Guđmundur tapađi í gćr

4turec_8

Guđmundur Kjartansson (2437) tapađi í gćr fyrir ítalska stórmeistaranum Daniele Vocaturo (2604) í sjöttu umferđ EM einstaklinga. Guđmundur hefur 2,5 vinninga. 

Sjöunda umferđ fer fram í dag. Ţá teflir Gummi viđ Rússann Vladislav Chizhikov (2282).

10 skákmenn eru efstir og jafnir međ 5 vinninga. Stöđu mótsins má finna hér

Umfjöllun um mótiđ má finna á heimasíđu ECU.

Mótiđ er gríđarlega sterkt. Ţátt taka 397 skákmenn frá 38 löndum og ţar af er 171 stórmeistari. Ţađ segir ýmislegt um styrkleika mótsins ađ Guđmundur er ađeins nr. 220 í stigaröđ keppenda. 


Vignir Vatnar sigrađi á hrađkvöldi

Vignir Vatnar Stefánsson sigrađi međ fullu húsi á hrađkvöldi Hugins sem haldiđ var mánudaginn 29. maí sl. Tefldar voru átta umferđir og frá sjónarhóli skákstjórans, sem einnig var ađ tefla virtist ţetta vera nokkuđ öruggt hjá Vigni Vatnari. Vinningarnir streymdu í hús hjá honum jafnt og ţétt og sigurinn tryggđur fyrir síđustu umferđ. Hann ćtlađi greinilega ekki ađ láta slá sig út af laginu tvö hrađkvöld í röđ. Annar var Halldór Pálsson međ 6,5v og ţriđji var Eiríkur Björnsson međ 5,5v..

Vignir Vatnar sá um dráttinn í happdrćttinu og fór alveg á hinn enda mótstöflunnar og valdi Pétur Jóhannesson. Vignir Vatnar valdi pizzumiđa frá Dominos en Pétur tók nokkuđ óvćnt miđa frá American Style.

Nćsta skákkvöld verđur hrađkvöld mánudaginn 12. júní nk en ţađ verđur jafnfram síđasta skákkvöldiđ fyrir sumarleyfi.

Lokastađan á hrađkvöldinu:

  1. Vignir Vatnar Stefánsson, 8v/8
  2. Halldór Pálsson, 6,5v
  3. Eiríkur Björnsson, 5,5v
  4. Vigfús Ó. Vigfússon, 5v
  5. Gunnar Nikulásson, 4v
  6. Atli Jóhann Leósson, 4v
  7. Hjálmar Sigurvaldason, 4v
  8. Sigurđur Freyr Jónatansson, 3v
  9. Björgvin Kristbergsson, 3v
  10. Stefán Már Pétursson, 3v
  11. Hörđur Jónasson, 2v
  12. Pétur Jóhannesson

Úrslitin í chess-results:


Ingvar öruggur sigurvegari á minningarmóti Sveinbjörns

 

18814631_1681968141831285_1233327939909755384_o

Ingvar Ţór Jóhannesson (2372) vann öruggan sigur á minningarmóti Sveinbjörns Óskars Sigurđssonar sem fram fór um hvítasunnuhelgina á Akureyri. Ingvar tefldi eins og sá sem valdiđ hafđi. Leyfđi ađeins jafntefli í fyrstu (Haraldur Haraldsson) og síđustu umferđ (Áskell Örn Kárason). Mikil spenna var um nćstu sćti. Svo fór ađ Akureyringar Tómas Veigar Sigurđarson (2063) og Ólafur Kristjánsson (2117) hlutu ţau. Björn Hólm Birkisson fékk verđlaun fyrir bestan árangur undir 2000 skákstigum og Helgi Pétur Gunnarsson sömu verđlaun fyrir bestan árangur undir 1800.

18891580_1681968138497952_3205469275621425950_o

Tefld voru tímamörkin 44+15 sem eru afar athyglisverđ tímamörk. Eru einhvers konar sambland af kapp- og atskák. 

Mótshaldiđ er ákaflega skemmtilegt og afar fjörlega teflt. Töluvert um óvćnt úrslit. Heimamenn fá miklar ţakkir fyrir gott mótshald sem vonandi verđur framhald á.

Lokastöđu mótsins má finna á Chess-Results.

18891916_1681949545166478_354394023622932888_o

 


Gleđin og vináttan allsráđandi á Air Iceland Connect-hátíđ Hróksins í Nuuk

Róbert Lagerman varaforseti Hróksins teflir fjöltefli í Nuuk Center.

 

Skákfélagiđ Hrókurinn hefur síđustu vikuna stađiđ fyrir Air Iceland Connect-hátíđ í Nuuk, höfuđborg Grćnlands. Ellefu Hróksmenn héldu til Nuuk á mánudag, eftir ađ Hrafn Jökulsson forseti Hróksins og Árni Gunnarsson framkvćmdastjóri AIC undirrituđu samstarfssamning ađ viđstöddum Guđlaugi Ţór Ţórđarsyni utanríkisráđherra. A

Hrafn Jökulsson og Árni Gunnarsson framkvćmdastjóri FÍ undirrita samtarfssamning ađ viđstöddum Guđlaugi Ţór Ţórđarsyni utanríkisráđherra og fulltrúm Hróksins.

 

AIC hefur frá upphafi veriđ helsti bakhjarl Hróksins viđ ađ útbreiđa skák, samvinnu og vináttu milli grannţjóđanna í norđri. Hrókurinn hélt fyrsta skákmótiđ í sögu Grćnlands 2003 og hefur síđan fariđ um 60 sinnum međ skákveislu í farangrinum.Hróksliđar heimsóttu í vikunni tvo grunnskóla í Nuuk og fćrđu 1. bekkingum reiđhjólahjálma ađ gjöf frá Hróknum, Eimskip og Kiwanis.

1. bekkingar í Atuarfik Samuel Kleinschmidt skólanum međ hjálma frá Hróknum, Eimskip og Kiwanis.

 

Börnin í  skólunum tveimur, Atuarfik Samuel Kleinschmidt og Kangillinnguit Atuarfiat, tóku gjöfunum fagnandi og launuđu fyrir sig međ undurfögrum söng. Liđsmenn skákfélagsins í Nuuk munu á nćstu dögum heimsćkja ađra grunnskóla og fćra 1. bekkingum hjálma. Alls fá um 240 sex ára börn í Nuuk hjálma ađ gjöf. 

Kofoeds Skole er athvarf fyrir heimilislausa og einstćđinga í Nuuk, sem Guđmundur Ţorsteinsson stýrir. Hróksliđar komu fćrandi hendi međ splunkuný íţróttaföt og skó frá Intersport, HENSON og Jóa útherja.

Hrókurinn heimsótti Kofoeds Skole sem er fyrir heimilislausa og einstćđinga í Nuuk. Forstöđumađur heimilisins er Guđmundur Ţorsteinsson sem ásamt eiginkonu sinni, Benedikte Abelson, hefur í áratugi unniđ ađ auknum samskiptum Íslands og Grćnalnds. Hrókurinn fćrđi gestum athvarfsins gnótt af nýjum íţróttafötum og skóm frá Intersport, Ellingsen, HENSON  og Jóa útherja.

Hrókurinn heimsćkir jafnan Pitu heimilin í Nuuk og Tasiilaq, en ţar eru systkinahópar sem ekki geta dvaliđ hjá fjölskyldum sínum. Nú eru 16 börn á Pitu heimilinu í Nuuk og ţau fengu öll glađning frá íslenskum vinum.

 

Nćst lá leiđin á Pitu-heimiliđ sem er fyrir börn sem ekki geta dvaliđ hjá fjölskyldum sínum. Pitu-heimiliđ hefur ţá sérstöđu ađ taka viđ systkinahópum og er mjög vel um börnin hugsađ. Nú dvelja 16 börn á heimilinu í Nuuk og ţau fengu öll gjafir, m.a. frá IKEA, Intersport, Nóa Síríus og prjónahópi Gerđubergs.

Gleđistund međ gömlum og góđum vinum í athvarfi í Nuuk. 

Á ţriđjudagsmorgun heimsóttu Hróksliđar Sukuisaarfik Vćrested, sem er athvar sem opiđ er frá 8-16, og er sérstaklega ćtlađ ađ rjúfa félagslega einangrun og auka lífsgćđi gesta. Hróksmenn heimsćkja ţetta athvarf jafnan međ góđar gjafir ţegar leiđin liggur til Nuuk. 

Róbert Lagermann, varaforseti Hróksins, hefur fariđ í ótal leiđangra til Grćnlands.

Róbert Lagermann skákmeistari og varaforseti Hróksins tefldi fjöltefli í Nuuk Center, verslunarmiđstöđ höfuđborgarinnar, á miđvikudag og alls spreyttu sig um 40 gegn Róberti. Ţrír náđu jafntefli, m.a. hin 14 ára Jokiba Napatoq frá Ittoqqortoormitt, afskekktasta ţorpi Grćnlands. 

Sigurvegarar og Hróksliđar á Meistaramóti Air Iceland Connect i Nuuk 2017.

Á miđvikudag var komiđ ađ Air Iceland Connect-meistaramótinu, sem líka var haldiđ í Nuuk Center, í samvinnu viđ skákfélag heimamanna. Kornungur grćnlenskur skákmađur,  Mikael Mikiiki, sigrađi međ glćsibrag, hlaut 6,5 vinning af 7 mögulegum. Mikael gerđi ađeins eitt jafntefli, viđ Róbert Lagermann, en sigrađi í öllum öđrum skákum. Hann hlaut vegleg verđlaun og Hróksliđar tilkynntu í mótslok ađ Mikael yrđi bođiđ til Íslands í skákţjálfun. 

Hinn ungi Mikael gerđi jafntefli viđ Róbert á Air Iceland Connect meistaramótinu í Nuuk, og varđ efstur međ 6,5 vinning af 7. Mikill efnispiltur.

Auk skákviđburđa áttu Hróksmenn mjög gagnlega fundi međ embćttismönnum og stjórnmálamönnum, enda mikill áhugi á Grćnlandi ađ gera skák ađ kennslugrein í grunnskólum landsins. 

Róbert og Steffen Lynge, lögreglumađur, gítarleikari og skákmeistari. Tók ţátt í fyrstu hátíđ Hróksins í Qaqortoq 2003, hjálparhella í Upernavik 2012 og lykilmađur í Nuuk í mörg ár.

Hátíđin í heild heppnađist međ miklum ágćtum, og Hróksliđar nutu ómetanlegrar ađstođar Péturs Ásgeirssonar sendiherra, sem er rćđismađur Íslands í Nuuk. Ađ auki studdi Reyukjavíkurborg hátíđina fjárhagslega, enda vinaborg Nuuk og fjölmörg fyrirtćki og einstaklingar gáfu gjafir og vinninga.  

Jokiba Napatoq frá Ittoqqortoormiit er snjöll ung skákkona. Hún hlaut sérstaka viđurkenningu á Meistaramóti Nuuk og er hér ásamt Róberti og Hrafni og lukkudýri hátíđarinnar.

Air Iceland Connect-verkefni Hróksins var ţriđja verkefni félagsins á Grćnlandi á árinu. Í febrúar var haldin Polar Pelagic-skákhátíđ í Kulusuk og Tasiilaq og um páskana lá leiđin ađ vanda til Ittoqqortoormitt, en ţangađ hafa Hróksliđar fariđ alla páska síđustu 11 árin. 

Hrafn og Justus Hansen frá Tasiilaq, ţingmađur og fulltrúi í sveitarstjórn Sermersooq. Justus hefur lagt til ađ skák verđi kennslugrein í grćnlenskum skólum.

Hrókurinn mun á nćstu mánuđum heimsćkja marga stađi á Grćnlandi, m.a. Kangerlussuaq, Ilulisat, Nanortaliq, Narsaq og Qaqortoq. Hróksliđar ţakka af öllu hjarta ţeim sem styđja starfiđ á Grćnlandi og hlakka til ađ halda áfram ađ ţróa skáklíf á Grćnlandi, og vináttu og samvinnu milli ţjóđanna.

Myndaalbum (HJ)


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband