Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Íţróttir

Henrik byrjar vel á minningarmóti Heini Olsen

Henrik ađ tafliStórmeistarinn Henrik Danielsen (2512) byrjar vel á minningarmótinu um Heini Olsen sem hófst í Klaksvík í Fćreyjum í dag.  Í fyrstu umferđ sigrađi hann danska alţjóđlega meistarann Simon Bekker-Jesen (2425).   Í 2. umferđ, sem fram í fyrramáliđ teflir Henrik viđ sterkasta skákmann Fćreyja, alţjóđlega meistarann Helga Dam Ziska (2426) en tvćr umferđir eru tefldar á morgun.

Samhliđa minningarmótinu fer fram Klaksvík Open.  Ţar tefla 18 skákmenn og ţar af 9 íslenskir!  Róbert Lagerman  (2282) er ţar nćststigahćstur keppenda en auk hans tefla ţar 8 stúlkur úr Ó.S.K.  Róbert vann Ásrúnu Bjarnadóttur en allar ÓSK-irnar töpuđu í dag.

Á minningarmótinu tefla 10 skákmenn og eru međalstig 2389 skákstig.  Henrik er nćststigahćstur  keppenda en stigahćstur er enski stórmeistarinn Gawain Jones (2568).  Róbert er nćststigahćstur í Klaksvík Open.  


Frábćrt afmćlismót - og Ţorvarđur vann

fjóir efstu og afmćlisbarniđTuttugu og sex ţátttakendur skráđu sig til leiks í sólarblíđunni viđ Hverfisgötuna í gćr, mánudag, ţegar skákmót var haldiđ til heiđurs afmćlisbarni  mánađarins, Magnúsi Matthíassyni, fráfarandi varaforseta.

Nćst fjölmennasta mót í sögu skákfélags Vinjar, sem haldiđ er í Vin var stađreynd og var líflegt viđ borđin, enda teflt bćđi inni og úti.

Eftir ađ Vinjarliđiđ hafđi fćrt Magnúsi afmćlisgjöf og ţakkađ honum samstarf og hlýjan hug til félagsins, og afmćlisbarniđ sagt nokkur orđ, fór Hrannar Jónsson, fyrirliđi, yfir skákreglur og dró í fyrstu umferđ. Gunnar Björnsson, forsetinn sjálfur, sagđi nokkur orđ, falleg orđ um fráfarandi varaforsetann og setti mótiđ formlega. Lék svo fyrsta leik í viđureign Magnúsar viđ Einar Björn og HrafnValdimarsson.

Bornar voru fram suđrćnar veitingar eftir ţriđju umferđ af sex, sem  tefldar voru eftir Monradkerfi og var umhugsunartími 7 mínútur á mann.  Eftir bráđskemmtilegt mót stóđ annađ afmćlisbarn mánađarins, Ţorvarđur Fannar Ólafsson uppi sem öruggur sigurvegari međ fullt hús. Hann sigrađi einnig seinast er hann kíkti í Vin og virđist kunna vel viđ sig í hundrađogeinum.

Ţess ber ađ geta ađ Björn Ţorfinnsson kom inn eftir tvćr umferđir og Jón Gauti ţurfti ađ hćtta í miđju móti, sem og Guđný Erla sem dreif sig beint til Fćreyja á annađ skákmót. Ţess ber einnig ađ geta ađ Magnús stefndi ađ sjálfsögđu á pall en lenti í hákörlum sem sýndu pilti litla virđingu á deginum hans. 

Myndaalbúm mótsins

Úrslit:

  •    1  6.0    -- Ţorvarđur Fannar Ólafsson  
  •    2  4.5    -- Birkir Karl Sigurđsson
  •    3  4.0    -- Pálmi Ragnar Pétursson
  •    4  4.0    -- Einar Valdimarsson  
  •    5  4.0    -- Arnar Valgeirsson   
  •    6  3.5    -- Ingi Tandri Traustason
  •    7  3.5    -- Magnús Matthíasson 
  •    8  3.5    -- Björn Sölvi Sigurjónsson
  •    9  3.5    -- Kristján Örn Elíasson   
  •   10  3.0    -- Hrafn Jökulsson    
  •   11  3.0    -- Pétur Atli Lárusson
  •   12  3.0    -- Jón Birgir Einarsson
  •   13  3.0    -- Björn Ţorfinnsson  
  •   14  3.0    -- Ásgeir Sigurđsson 
  •   15  3.0    -- Sonja Maria          
  •   16  3.0    -- Árni Pétursson    
  •   17  2.5    -- Hrannar Jónsson    
  •   18  2.0    -- Haukur Halldórsson 
  •   19  2.0    -- Guđmundur Valdimar Guđmundss
  •   20  2.0    -- Donika Kolica        
  •   21  2.0    -- Svandís Rós
  •   22  2.0    -- Ásta Sóley      
  •   23  2.0    -- Kristjan Guttesen   
  •   24  1.0    -- Gauti Páll Jónsson
  •   25  0.5    -- Jón Gauti Magnússon
  •   26  0.5    -- Guđný Erla         

 


Ponomariov efstur í hálfleik í Dortmund

Ruslan PonomariovÖllum skákum fimmtu umferđar Dortmund Sparkassen-mótsins lauk međ jafntefli í dag en fjörlega hefur veriđ teflt á mótinu.  Ponomariov (2734) náđi efsta sćti mótsins međ sigri á  Mamedyarov (2761), Kramnik (2790) vann sína fyrstu skák međ sigri á Naiditsch (2684) og Víetnaminn Le Quang Liem (2681) vann sína ađra skák í röđ međ sigri á Leko (2684).  Mótiđ er nú hálfnađ en frídagur er á morgun.

 
Úrslit 5. umferđar:

  • Leko – Le 0-1
  • Ponomariov – Mamedyarov 1-0
  • Kramnik – Naiditsch 1-0


Stađan:


  • 1. Ponomariov (2734) 3˝ v.
  • 2.-3. Le Quang Liem (2681) og Mamedyarov (2761) 3 v.
  • 4. Kramnik (2790) 2˝ v.
  • 5.-6. Leko (2734) og Naiditsch (2684) 1˝ v.

Tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2731 skákstig og er mótiđ í 20. styrkleikaflokki.

Ingvar Ţór Jóhannesson genginn í rađir TV

Ingvar Ţór

Ingvar Ţór Jóhannesson (2328) er genginn í rađir Vestmannaeyinga en hann var áđur í Helli. Ingvar hefur veriđ í fremstu röđ íslenskra skákmanna um nokkurt skeiđ og verđur ţví án efa góđur liđsstyrkur fyrir sitt nýja félag. Ingvar á ćttir sínar ađ rekja til Vestmannaeyja ţannig ađ segja má ađ hann sé nú kominn á heimaslóđir. Nýlega gekk Jon Ludvig Hammer (2636) í TV ţannig ađ ljóst er ađ Vestmannaeyingar eru ađ safna liđi fyrir átökin í haust í deildarkeppninni.


Afmćlismót Herra Magnúar Matthíassonar fer fram í dag í Vin

magnús matt og birkir karlÁ mánudaginn nćsta, 19. júlí klukkan 13:00 verđur haldiđ skákmót í Vin, Hverfisgötu 47. Er ţađ í tilefni afmćlis heiđurspiltsins Magnúsar Matthíassonar, aka Magnus von Matheus, fráfarandi varaforseta skáksambandsins en hann fer nú bráđlega ađ nálgast miđjan aldur miđađ viđ hann ćtlar sér ađ verđa allavega hundrađ ára.

Magnús er mikill dugnađarpiltur og fellur aldrei verk úr hendi. Framandi tungumál hafa ekki vafist honum um tönn og snarar hann heilu skjölunum yfir á íslensku ótt og títt fyrir landann. Ţá er drengurinn mikill útivistarálfur og hjólar reglulega milli Selfoss og Reykjavíkur auk ţess ađ vera áhugamađur um allt sem ţýskt er. Frćgt er orđiđ myndasafn hans af ísbirninum Knúti og kolkrabbanum Páli frá Oberhausen.

Ţó Magnús hafi átt afmćli 13. júlí sl. vill Skákfélag Vinjar fagna afmćlisbarninu međ léttu síđbúnu móti og um leiđ ţakka pilti hlýjan hug til félagsins undanfarin misseri. Allir eru hjartanlega velkomnir og vonandi ađ sem flestir sjái sér fćrt ađ taka nokkrar bröndóttar drengnum góđa
til heiđurs.

Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og skákstjóri er fyrirliđi Vinjarliđsins, Hrannar Jónsson. Forseti skáksambandsins, Gunnar Björnsson, setur mótiđ og leikur fyrsta leikinn í nýju og ábyrgđarlausu lífi fráfarandi varaforsetans.

Bókaverđlaun fyrir efstu sćtin og kaffi og viđeigandi sumarveitingar milli umferđa. Bara mćta tímanlega og skrá sig.


Skákţáttur Morgunblađsins: Ólympíuskákmót í deiglunni

Tveir nýliđar eru í ólympíuliđi Íslands sem teflir í opnum flokki Ólympíumótsins sem fram fer í Khanty Manyisk í Síberíu í haust. Liđiđ skipa Hannes Hlífar Stefánsson, Héđinn Steingrímsson, Bragi Ţorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Björn Ţorfinnsson. Tveir ţeir síđastnefndu hafa ekki teflt á ólympíumóti áđur og í fyrsta sinn eru brćđur í liđinu.


Ekki er útilokađ ađ skákin verđi einhvern tíma tekin upp sem keppnisgrein á Ólympíuleikum en fyrstu Ólympíumótin fóru fram međ reglulegu millibili á millistríđsárunum ţegar Aljékin og Capablanca voru skćrustu stjörnurnar en ýmsir ađrir komu ţar viđ sögu; í franska liđinu tefldi stundum Marcel Duchamp, frćgur myndlistarmađur, löngum spyrtur viđ dada og súrrealisma. Í Hamborg 1930 tapađi hann fyrir Jóni Guđmundssyni.

Sovétmenn tóku fyrst ţátt á Ólympíumóti í Helsinki 1952. Menn ţóttust greina ýmis einkenni sovéska samfélagsins: tortryggni, leynimakk og „hreinsanir“.

„Ég bjóst ekki viđ ađ ţađ kćmi allt fram,“ svarađi Smyslov ţegar Botvinnik bar upp á hann ađ hafa tjáđ valnefndinni ađ heimsmeistarinn gćti vart teflt af nokkru viti lengur. Ţykkjuţungur Botvinnik sat heima.

Í Munchen 1958 voru í liđinu í fyrsta sinn Petrosjan og Tal. Spasskí kom svo í liđiđ í Varna 1962 og ţessir menn voru bókstaflega óstöđvandi. En 1968 var Tal ekki valinn en kom aftur í Skopje 1972. Á Ól. í Buenos Aires 1978 mistókst sovésku sveitinni í fyrsta sinn ađ hreppa gulliđ. Ađeins Polugajevskí var valinn í liđ sem tefldi á Möltu tveim árum síđar. Petrosjan og Spasskí höfđu teflt samtals á 17 ólympíumótum og ađeins tapađ einni skák hvor, af einhverjum ástćđum voru ţessir heiđursmenn ekki í náđinni lengur.

Ţar kom ađ flaggiđ var dregiđ niđur; hin gildishlöđnu tákn, hamar og sigđ á rauđum fleti blöktu í síđasta sinn yfir íslensku skáksveitinni sem sat viđ borđ nr. 1 í lokaumferđ Ólympíumótsins í Novi Sad í gömlu Júgóslavíu haustiđ 1990 og inn í keppnissalinn lagđi lykt af brenndu laufi.

Á síđustu ólympíumótum hefur ermska sveitin boriđ ćgishjálm yfir keppinauta sína, Petrosjan sem starfađi um tíma sem götusópari í Moskvu getur horft ađ handan stoltur af arftökum sínum. Kannski er eftirfarandi skák sú ţekktasta sem hann tefldi á öllum tíu ólympíumótunum:

Ól. í Lugano 1968:

Milko Bobotsov – Tigran Petrosjan

Drottningarbragđ

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. cxd5 exd5 5. Rc3 c6 6. Bg5 Be7 7. Dc2 g6 8. e3 Bf5 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Rbd7 11. Bh6 Rg4 12. Bf4 O-O 13. O-O He8 14. h3 Rgf6 15. Re5 Rb6 16. Bg5 Re4 17. Bxe7 Dxe7 18. Dc2 Rd6 19. Ra4 Rbc4 20. Rxc4 Rxc4 21. Rc5 Rd6 22. Hac1Dg5 23. Dd1 h5

Sé borđinu skipt upp í hluta sést ađ minnihlutarás á drottningarvćng er nánast útilokuđ, á kóngvćngum hefur svartur hinsvegar óbundnar hendur.

24. Kh1 He7 25. Rd3 Re4 26. Rc5 Rd6 27. Rd3 Df5 28. Re5 f6 29. Rf3 Hg7 30. Rh2 He8 31. Kg1 Re4 32. Df3 De6 33. Hfd1 g5!

Úthugsuđ peđsfórn.

34. Dxh5 f5 35. He1 g4 36. hxg4 fxg4 37. f3

37. g3 er svarađ međ 37. ... Hg5 38. Dh4 Kg7 sem hótar 39. ... Hh8. Meiri von um björgun gaf 37. Dh4.

37. ... gxf3 38. Rxf3

gl6m3kqm.jpg38. ... Hh7 39. De5 Dc8!

Bakkar međ drottningu – vinnur drottningu. Óvenjuleg flétta!

40. Df4 Hf8 41. De5 Hf5

- og Bobotsov gafst upp.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í sunnudagsmogganum, 11. júlí 2010.

Skákţćttir Morgunblađsins


Mamedyarov efstur í Dortmund

Aserski stórmeistarinn Shakhriyar Mamedyarov (2761) er efstur í Dortmund Sparkassen-mótsins ađ lokinni fjórđu umferđ sem fram fór í dag.  Víetnaminn Le Quang Liem (2681) sigrađi Ponomariov (2734), sem var efstur ásamt Aseranum, en öđrum skákum lauk međ jafntefli.


Úrslit 4. umferđar:

Naiditsch – Leko ˝-˝
Mamedyarov – Kramnik ˝-˝
Le – Ponomariov 1-0


Stađan:


  • 1. Mamedyarov (2761) 3 v.
  • 2. Ponomariov (2734) 2,5 v.
  • 3. Le Quang Liem (2681) 2 v.
  • 4.-6. Leko (2734), Kramnik (2790) og Naiditsch (2684) 1,5 v.

Tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2731 skákstig og er mótiđ í 20. styrkleikaflokki.

Hrađskákkeppni taflfélaga

Hrađskákkeppni taflfélaga, hefst eftir verslunarmannahelgi.  Ţetta er í sextánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélag Bolungarvíkur er núverandi meistari.  Í fyrra var metţátttaka en ţá tóku 15 liđ ţátt og er stefnt ađ ţví ađ bćta ţađ met í ár!

Félög er hvött til ađ skrá liđ til leiks.

Dagskrá mótsins er sem hér segir

  • 1. umferđ (16 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 15. ágúst
  • 2. umferđ (8 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 25. ágúst
  • 3. umferđ (undanúrslit): Skuli vera lokiđ 5. september
  • 4. umferđ (úrslit): Skuli vera lokiđ 15. september (líklegt ađ keppnin verđi sett á helgina 10.-12. september)   

Skráning til ţátttöku rennur út 5. ágúst nk.   Forráđamenn taflfélaga eru vinsamlegast beđnir um ađ skrá sig í netfangiđ gunnibj@simnet.is eđa í síma 820 6533.
Tilkynna ţarf eftirfarandi:

  • Liđ
  • Liđsstjóri
  • Símanúmer liđsstjóra
  • Netfang liđsstjóra

Reglur keppninnar:

  • 1.  Sex manns eru í hvoru liđi og tefld er tvöföld umferđ, ţ.e. allir í öđru liđinu tefla viđ alla í hinu liđinu. Samtals 12 umferđir, eđa 72 skákir.
  • 2.  Heimaliđ sér um dómgćslu. Komi til deiluatriđa er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.
  • 3.  Varamenn mega koma alls stađar inn. Ţó skal gćta ţess ađ menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstćđingi og hafi ekki sama lit í báđum skákunum.
  • 4.  Ćtlast er til ţess ađ ţeir sem tefli séu fullgildir međlimir síns félags. Ađeins má tefla međ einu taflfélagi í keppninni.
  • 5.  Liđsstjórar koma sér saman um hvenćr er teflt og innan tímaáćtlunar.  Komi liđsstjórar sér ekki saman um dagsetningu innan tímaramma getur umsjónarađili ákvarđađ tímasetningu.
  • 6.  Verđi jafnt verđur tefldur bráđabani. Ţađ er tefld er einföld umferđ ţar sem dregiđ er um liti á fyrsta borđi og svo hvítt og svart til skiptist. Verđi enn jafnt verđur áfram teflt áfram međ skiptum litum ţar til úrslit fást.
  • 7.  Heimaliđ bjóđi upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eđa kex.
  • 8.  Viđureignirnar skulu fara fram innan 100 km. radíus (max 1-1,5 klst. ferđalag) frá Reykjavík nema ađ félög komi sér saman um annađ. 
  • 9.  Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auđiđ er í netfangiđ gunnibj@simnet.is og eigi síđar en 12 klukkustundum eftir ađ keppni lýkur.
  • 10. Úrslit keppninnar verđa ávallt ađgengileg á heimasíđu Hellis, www.hellir.blog.is , sem er heimasíđa keppninnar, og á www.skak.is.
  • 11. Mótshaldiđ er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvćmd mótsins.

Ponomariov og Mamedyarov efstir í Dortmund

Úkraíninn Ponomariov (2734) og Aserinn Mamedyarov (2761) eru efstir og jafnir međ 2,5 vinning ađ lokinni 3. umferđ Dortmund Sparkassen-mótsins sem fram fór í dag.  Mamedyarov vann Le Quang Liem (2681) en öđrum skákum lauk međ jafntefli.

 

Úrslit 3. umferđar:

Mamedyarov, Shakhriyar - Le Quang Liem1-0
Naiditsch, Arkadij - Ponomariov, Ruslan˝-˝
Kramnik, Vladimir - Leko, Peter˝-˝

Stađan:


  • 1.-2. Ponomariov (2734) og Mamedyarov (2761) 2,5 v.
  • 3.-6. Le Quang Liem (2681),Leko (2734), Kramnik (2790) og Naiditsch (2684) 1 v.

Tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2731 skákstig og er mótiđ í 20. styrkleikaflokki.

Ponomariov efstur í Dortmund

Úkraínski stórmeistarinn Ruslan Ponomariov (2734) er efstur međ fullt hús af lokinni annarri umferđ Dortmund Sparkassen-mótsins sem fram fór í dag.  Ponomariov sigrađi Kramnik í dag.  Öđrum skákum lauk međ jafntefli.   Aserski stórmeistarinn Shakhriyar Mamedyarov (2761) er annar međ 1,5 vinning.

Úrslit 2. umferđar:


Ponomariov, Ruslan - Kramnik, Vladimir1-0
Le Quang Liem - Naiditsch, Arkadij˝-˝
Leko, Peter - Mamedyarov, Shakhriyar˝-˝


Stađan:

  • 1. Ponomariov (2734) 2 v.
  • 2. Mamedyarov (2761) 1,5 v.
  • 3. Le Quang Liem (2681) 1 v.
  • 4.-6. Leko (2734), Kramnik (2790) og Naiditsch (2684) 0,5 v.

Tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2731 skákstig og er mótiđ í 20. styrkleikaflokki.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 8778299

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband