Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Íţróttir

Grein úr Morgunblađinu: Íslenska skáksprengingin

Um miđjan níunda áratuginn eignađist Ísland gullaldarliđ í skák og fjóra stórmeistara á skömmum tíma. Ţjóđarsálin tók viđ sér međ tilheyrandi látum og landsliđsmennirnir voru međal annars kjörnir menn ársins hjá DV áriđ 1986.

Eftir Kristján Jónsson (kris@mbl.is).

Dćmigerđ mynd frá ferđum landsliđsins á ólympíuskákmót, tekin í Dubai 1986, ţar sem sá tími sem til fellur er notađur til ađ stúdera. Seint á síđustu öld náđi skákáhugi íslensku ţjóđarinnar nýjum hćđum ţegar íslenskir skákmenn komust í fremstu röđ í heiminum í ţeirri göfugu hugarleikfimi. Smám saman hafđi orđiđ til vísir ađ sterkasta skáklandsliđi sem Ísland hefur aliđ af sér, og í hönd fór tímabil sem varla verđur kallađ annađ en íslenska skáksprengingin. Ungir kappar létu ţá verulega ađ sér kveđa og urđu fjórir ţeirra stórmeistarar á tveggja ára tímabili. Fengu ţeir síđar viđurnefniđ fjórmenningaklíkan í jákvćđri merkingu ţess orđs. Hér er átt viđ ţá Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason og Margeir Pétursson. Liđlega aldarfjórđungi síđar ţykir Morgunblađinu full ástćđa til ţess ađ rifja upp ţá tíma ţegar litla Ísland stríddi stórveldunum hvađ eftir annađ á ólympíuskákmótum og fékk til ţess ađstođ frá Braga Kristjánssyni, skákskýranda Morgunblađsins til margra ára. 

Skákheiminum hlýtur ađ hafa orđiđ fremur bilt viđ ţegar smáríkiđ Ísland eignađist skyndilega fjóra stórmeistara nánast á einu bretti um miđjan níunda áratug síđustu aldar. Fram ađ ţví höfđu einungis tveir Íslendingar orđiđ stórmeistarar í skák, en ţađ voru ţeir Friđrik Ólafsson og Guđmundur Sigurjónsson en sá síđarnefndi tefldi međ fjórmenningaklíkunni á ólympíuskákmótunum 1984 og 1986. Áđur hafđi Ísland ţó komist rćkilega á skáklandakortiđ, ekki síst fyrir tilstilli Friđriks, sem komst í fremstu röđ og varđ síđar forseti Alţjóđa skáksambandsins. Ekki er óvarlegt ađ áćtla ađ stađa Friđriks í skákheiminum hafi átt stóran ţátt í ţví ađ einvígiđ um heimsmeistaratitilinn í skák var haldiđ hér á landi áriđ 1972. Íslendingum var ţó ekki treyst fyrir ţessum stórviđburđi alveg út í bláinn, ţví ţegar höfđu Íslendingar veriđ gestgjafar stórra alţjóđlegra skákmóta. Einvígi Bobby Fischers og Borisar Spasskís hefur veriđ kallađ „Einvígi aldarinnar" og er líklega magnađasta heimsmeistaraeinvígi sögunnar, ţó slíkar fullyrđingar séu ávallt umdeilanlegar. Skákáhugi ţjóđarinnar jókst til mikilla muna viđ ađ fá ţennan stórviđburđ til landsins og var hann ţó talsverđur fyrir. Fćra má fyrir ţví rök ađ skáksprengingin á Íslandi, sé afsprengi einvígis Fischers og Spasskís ţó í ţví felist nokkur einföldun. Fleira kemur til eins og útgáfustarfsemi sem Jóhann Ţórir Jónsson bar hitann og ţungann af, en hans ţáttur í framvindunni var ekki lítill.

Ungu mennirnir láta ađ sér kveđa

Í ársbyrjun áriđ 1984 hélt Búnađarbankinn alţjóđlegt skákmót ţar sem starfsmenn bankans, Jóhann og Margeir, urđu í tveimur efstu sćtunum. Til glöggvunar má nefna ađ Lev Alburt hafnađi í 10. sćti í mótinu en hann varđ bandarískur meistari 1984 og '85. Reykjavíkurskákmótiđ var haldiđ í kjölfariđ og ţar sigrađi Jóhann aftur en deildi sigrinum međ Helga og Samuel Reshevsky. Íslensku skákmennirnir fóru ţví međ gott veganesti til Ţessalóníku í Grikklandi ţar sem ólympíuskákmótiđ var haldiđ áriđ 1984. Uppskeran varđ 31,5 vinningar og hafnađi Ísland í 15. sćti af 88 ţjóđum. Guđmundur, fjórmenningarnir og Karl Ţorsteins skipuđu sveitina. Jón L. fékk 8 vinninga í 11 skákum og var međ besta vinningshlutfall Íslendinganna.


Skákstríđ viđ Persaflóa

Vegna árangursins í Ţessalóníku var ekki ađ undra ađ sama liđi skyldi teflt fram á Heiđrađir Gullaldarliđiđ fékk jafnan góđar móttökur ţegar ţađ snéri heim úr siglingum sínum og var ţá sómi sýndur.ólympíuskákmótinu tveimur árum síđar. Haldiđ var á framandi slóđir í Dubai í Sameinuđu arabísku furstadćmunum og náđist ţar árangur sem seint verđur toppađur. Íslenska sveitin hafnađi í 5. sćti af 108 ţjóđum og hlaut 34 vinninga. Í mótinu gerđi Ísland til dćmis jafntefli, 2:2, viđ Sovétríkin međ ţá Garry Kasparov og Anatoli Karpov innanborđs. Báđir hafa ţeir náđ betri tökum á skáklistinni en almennt ţekkist í mannkynssögunni. Helgi tapađi fyrir Kasparov ţar sem heimsmeistarinn ţurfti ađ hafa mikiđ fyrir sigrinum og á öđru borđi gerđu ţeir Jóhann og Karpov jafntefli. Ljóst má vera ađ úrslitin gegn Sovétríkjunum, 2:2 jafntefli međ Kasparov og Karpov innanborđs, voru stórkostleg. Til ađ gefa einhverja mynd af ţví er líklega best ađ tína til árangur Kasparovs og Karpovs á ólympíuskákmótum: Kasparov tefldi 82 skákir á 8 ólympíumótum og tapađi 3 ţeirra! Karpov tefldi 68 skákir á 6 ólympíumótum og tapađi 2 ţeirra!

Sexmenningarnir skiluđu allir góđum árangri í mótinu. Helgi fékk 6,5 v í 12 skákum, Jóhann 8 v af 12, Jón L. 8 v af 13, Margeir 7,5 v af 12, Guđmundur 2 v af 4 og Karl 2 v af 3. Jón L. og Margeir fengu stórmeistaratign ađ mótinu loknu. Jón skrifađi bók um ćvintýriđ í Dubai ásamt dr. Kristjáni Guđmundssyni liđsstjóra sveitarinnar og heitir bókin „Skákstríđ viđ Persaflóa". Ţar kemur međal annars fram ađ útgerđarmađurinn Soffanías Cecilsson frá Grundafirđi hét liđinu peningaverđlaunum ef ţví tćkist ađ verđa á međal tíu efstu ţjóđanna í Dubai en 11. sćti í Havana 1966 var besti árangur Íslands á ólympíuskákmóti fram ađ ţessu. Niđurstađan skilađi sveitinni 1 milljón íslenskra króna á ţávirđi frá Soffaníasi. Kristján og Jón draga ekki dul á ţađ í bókinni ađ áheit Soffaníusar hvatti skákmennina til dáđa.

Kasparov sakađi Íslendinga um svindl

Setiđ ađ tafli gegn Rússlandi í Manila 1992. Jóhann glímir viđ sjálfan Garry Kasparov á 1. borđi.Jón L. lýsir ţeim Kasparov og Karpov afar skemmtilega í fyrrnefndri bók: „Ţađ er einkennileg líđan ađ tefla andspćnis sveit, ţar sem Karpov og Kasparov sitja hliđ viđ hliđ. Ţeir eru ólíkir í háttum. Kasparov iđar í sćtinu og er óstyrkur ađ sjá eins og fyrr er vikiđ ađ en Karpov er aftur á móti sallarólegur, nánast hreyfingarlaus viđ borđiđ. Hann hreyfđi höfuđiđ lítilsháttar til og frá međan hann var ađ hugsa, svona eins og til ađ örva blóđstreymi til heilans og svo gaut hann augunum rannsakandi til Jóhanns - ţetta frćga (ískalda) Karpov-augnaráđ. Karpov sat meira viđ borđiđ en Kasparov en er hann stóđ upp til ađ teygja úr sér, leit hann á stöđur liđsmanna sinna. Og K-in tvö tóku oftar en einu sinni tal (međ litlu t-i!) saman og virtust rćđa stöđurnar á hinum borđunum. Raunar er óleyfilegt ađ keppendur rćđi saman međan á skákum stendur, en skákstjóri fann ţó enga ţörf hjá sér til ţess ađ ţagga niđur í ţessum snillingum! Ţrátt fyrir allt umtal um ađ grunnt sé á ţví góđa milli ţessara tveggja heimsmeistara, var ţađ ekki ađ merkja á ţeim, ţar sem ţeir stungu saman nefjum."

Síđar í mótinu tapađi Ísland 1:3 gegn Bandaríkjunum og missti ţar međ af toppbaráttunni. Snillingurinn Kasparov átti erfitt međ ađ skilja ţau úrslit og sparađi síst stóru orđin. „Kasparov trylltist viđ ţessi úrslit og gekk svo langt ađ ásaka íslensku sveitina um ađ hafa gert sér ţađ ađ leik, ađ tapa fyrir Bandaríkjamönnum. Viđ litum á ţetta sem hrós frá heimsmeistaranum. Auđvitađ gat svona sterk sveit, eins og sú íslenska, ekki tapađ svo stórt án ţess ađ brögđ vćru í tafli!"

Besti árangurinn í Manila?

Fjórmenningaklíkan myndađi hryggjarsúluna í landsliđinu á ólympíuskákmótum í tćpan áratug til viđbótar og sýndi ađ árangurinn í Dubai var engin tilviljun ţví liđiđ sýndi mikinn stöđugleika. Áriđ 1988 fór mótiđ aftur fram í Ţessalóníku og varđ Ísland í 15. sćti međ 32 vinninga. Margeir fékk 7,5 v af 12 mögulegum. Guđmundur hćtti eftir mótiđ í Dubai og Karl eftir mótiđ í Ţessalóníku. Tveimur árum síđar, í Novi Sad í Júgóslavíu, var Ísland aftur í toppbaráttunni og hafnađi í 8. sćti međ 32,5 vinninga. Jóhann fékk 8,5 v í 13 skákum.

Áriđ 1992 fór keppnin fram í Manila á Filippseyjum og enn einu sinni voru Íslendingarnir í stuđi. Fengu 33,5 vinninga og 6. sćtiđ varđ stađreynd af 102 ţjóđum. Fćra má fyrir ţví rök ađ árangurinn í Manila sé sá besti í sögunni hjá Íslendingum. Ţá var járntjaldiđ í Austur-Evrópu falliđ međ ţeim afleiđingum ađ mun fleiri sterkar skákţjóđir urđu til, enda voru Sovétríkin helsta stórveldiđ í skákinni. Eina Vesturlandaţjóđin sem hafnađi ofar en Ísland var Bandaríkin, sem endađi í 4. sćti, og ţau voru međ 3 fyrrum Sovétmenn innanborđs. Hannes Hlífar Stefánsson og Ţröstur Ţórhallsson skipuđu liđiđ ásamt fjórmenningunum. Hannes var tvítugur ţegar teflt var í Manila og stóđ sig frábćrlega en hann fékk 7 v í 9 skákum og tryggđi sér stórmeistaratitil. Árangur annarra var eftirfarandi: Jóhann 6,5 v af 12, Margeir 5,5 v af 10, Helgi 5 v af 9, Jón L. 7 v af 11 og Ţröstur 2,5 v af 5.

Gunnars ţáttur Eyjólfssonar

Ţegar keppnin fór fram í Manila bćttist íslenska hópnum liđsauki úr óvćntri átt, en stórleikarinn Stórleikarinn Gunnar Eyjólfsson reyndist landsliđinu drjúgur liđsauki og er hér ásamt Helga í Manila 1992.Gunnar Eyjólfsson var međ í för sem eins konar andlegur leiđtogi. Gunnar hefur ekki veriđ keppnismađur í skák en átti hins vegar ađ hjálpa skákmönnunum ađ einbeita sér ađ verkefninu. Auk ţess blés hann ţeim baráttuanda í brjóst fyrir hverja umferđ međ ýmsum ađferđum. Ţarna var gerđ áhugaverđ tilraun hvađ varđar andlega ţáttinn sem virđist hafa heppnast fullkomlega.

Gott dćmi um ađkomu Gunnars er frásögn Margeirs frá mótinu í Manila. „Gunnar hafđi mjög góđ áhrif og hjálpađi mönnum ađ ná hámarkseinbeitingu. Ţá var líka meiri agi á liđinu. Ţađ voru allir vaktir á sama tíma og gerđu ćfingar. Gunnar passađi einnig upp á ađ menn vćru ekki ađ stúdera yfir sig sem gat valdiđ ţví ađ menn mćttu ţreyttir í skákirnar. Hann hélt vel utan um mannskapinn hvađ ţetta varđađi. Ég man eftir ţví ţegar viđ tefldum viđ Rúmeníu ţá lenti ég á móti manni sem mér hafđi gengiđ illa á móti. Ţessi einstaklingur tefldi mjög hratt í byrjun og ćtlađi ađ taka mig á taugum. Ég verđ ađ játa ađ ég varđ talsvert stressađur yfir ţessu og ţurfti ađ eyđa miklum tíma í ađ leysa málin. Gunnar skynjađi ţetta einhvern veginn og sá ađ ég var ekki alveg rólegur. Hann mátti auđvitađ ekki rćđa viđ mig á međan skákinni stóđ en sendi mér augnaráđ međ ţeim skilabođum ađ ég ţyrfti ađ ná mér niđur og einbeita mér. Ţá gerđi ég nokkrar öndunarćfingar í sćtinu og andađi mjög djúpt ađ mér eins og hann hafđi kennt okkur. Ţá leiđ mér mun betur og náđi jafntefli nokkuđ örugglega út úr mjög erfiđu tafli. Ég myndi ţví segja ađ ţetta jafntefli hafi veriđ Gunnari ađ ţakka," sagđi Margeir viđ Morgunblađiđ ţegar hann var beđinn um ađ rifja upp ţátt Gunnars Eyjólfssonar.

Fjórmenningarnir kvöddu í Moskvu

Ungir og reffilegir menn á leiđ á keppnisstađ til ţess ađ ganga frá andstćđingum sínum.Áriđ 1994 var teflt í Moskvu og Ísland varđ í 22. sćti međ 32,5 vinninga og fékk Margeir fékk 7,5 v af 10. Keppnin í Moskvu var síđasta ólympíuskákmótiđ sem fjórmenningarklíkan tefldi á. Nćsta mót var haldiđ í Jerevan í Armeníu áriđ 1996 og ţá var Jón L. hćttur. Ísland náđi 12. sćti međ 33 vinninga. Jóhann fékk 7 v af 11. Eftir mótiđ í Jereven hćttu Jóhann og Margeir ađ tefla međ landsliđinu. Helgi hélt áfram, einn fjórmenninganna.

Ţegar frá líđur er auđveldara ađ átta sig á ţví hversu sterkum sveitum Ísland tefldi fram međ fjórmenningaklíkuna innanborđs. Árangurinn á ţví tímabili sem hér er rifjađ upp er einstakur en síđan 1996 hefur Ísland ekki komist nálćgt topp 10 á ólympíuskákmótum. Besti árangurinn á seinni árum er 22. sćti áriđ 2002 en Ísland hefur oftar en ekki veriđ ađ berjast um ađ vera á međal 50 efstu. Athyglisvert er ađ áriđ 2002 var Gunnar Eyjólfsson einnig međ í för sem andlegur leiđtogi og virtist ţađ skila árangri eins og í Manila.

Grein ţessi er eftir Kristján Jónsson, blađamann Morgunblađsins, og birtist í sunnudagsmogganum, 25. júlí sl.  Nćstu daga verđa viđtöl, sem tengjast greininni, viđ Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason og Margeir Pétursson einnig birt hér á Skák.is

Skákţćttir Morgunblađsins


Verđlaunaafhending vegna Meistaramóts Skákskóla Íslands

senda4Hjörvar Steinn Grétarsson fékk loks afhendan farandgripinn sem keppt er um á Meistaramóti Skákskóla Íslands fyrir áriđ 2010. Hjörvar vann mótiđ sem haldiđ um mánađarmótin maí-júní sl. Ţar sem sigurvegari ársins 2009, Sverrir Ţorgeirsson, sat ţá ađ tafli í Kanada og hafđi skiliđ farandgripinn eftir heima var ekki hćgt ađ afhenda Hjörvari verđlaunin í mótslok.  Sl. föstudag hélt Skákskólinn  lítiđ hóf fyrir sigurvegara síđustu tveggja ára, Hjörvar fékk farandgripinn góđa og eignagrip.

Ţeir Sverrir Ţorgeirsson og Bjarni Jens Kristinsson sem urđu efstir á meistaramótinu 2009, og háđu síđar um sumariđ einvígi sem Sverrir vann, fengu einnig afhend verđlaun fyrir árangurinn 2009.   

Myndaalbúm (Valur Óskarsson)

 

 


Henrik gerđi jafntefli viđ Eljanov - Guđmundur vann - báđir međ 3˝ vinning

Guđmundur Gíslason sigurvegari StigamótsinsStórmeistarinn, Henrik Danielsen (2512), gerđi jafntefli viđ áttunda stigahćsta skákmann heims, úkraínska stórmeistarann Pavel Eljanov (2755) í skemmtilegri skák í fjórđu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.  Guđmundur Gíslason (2351) sigrađi pólsku skákkonuna Dorota Czarnota (2214).  Báđir hafa ţeir 3˝ vinning og eru í 10.-24. sćti.  

Skákir beggja í fimmtu umferđ verđa sýndir beint á vef mótsins á morgun.  Umferđin hefst kl. 11.   Henrik mćtir ţá danska skákmanninum Jackie Andersen (2276) en Guđmundur mćtir danska skákmanninum Sune Berg Hansen (2595).

Umfjöllun um skák Henriks má finna á Skákhorninu.   

Bragi Halldórsson (2253) og Bjarni Jens Kristinsson (2044) töpuđu báđir. Bjarni hefur 2 vinninga en Bragi hefur 1˝ vinning. 

Skákir íslensku skákmannanna úr 1.-3. umferđ fylgja međ.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup. sem fram fer í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn.  Ţar af er 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).


Emil og Eiríkur Örn sigruđu á Unglingalandsmótinu í skák

Emil Sigurđarson, HSK, og Eiríkur Örn Brynjarsson, sigruđu á Unglingalandsmótinu í skák sem fram fór í Borgarnesi í dag.   Emil í flokki, 11-14 ára, og Eiríkur í flokki 15-18 ára.  

Röđ efstu manna í yngri flokki:

  • 1. Emil Sigurđarson, HSK; 7 v. af 7 mögulegum
  • 2. Arnţór Ingi Ingvason, UMFN, 6 v.
  • 3. Sóley Lind Pálsdóttir, UMSK, 5 v. (24,5 stig)
  • 4. Kristinn Andri Kristinsson, 5 v. (22,0)
  • 5.-6. Mikael Máni Freysson, UÍA, og Snorri Hallgrímsson, HSŢ, 4˝ v.
  • 7.-12. Atli Geir Sverrisson, UÍA, Hulda Rún Finnbogadóttir, UMSB, Magni Marelsson, ÍFH, Óskar Már Óskarsson, HSK, Sindri Magnússon, UMSK, og Sćţór Atli Harđarson 4 v.

Alls tóku 22 skákmenn ţátt.

Röđ efstu manna í eldri flokki:

  • 1. Eiríkur Örn Brynjarsson 9 v. af 9 mögulegum
  • 2. Jóhann Óli Eiđsson, UMSB, 8 v.
  • 3. Páll Andrason, 7 v.
  • 4. Nökkvi Jarl Óskarsson, UÍA, 6 v.
  • 5. Auđur Eiđsdóttir, UMSB, 5 v.
Alls tóku 10 skákmenn ţátt.

Heildarúrslit

Henrik, Guđmundur og Bjarni Jens unnu í ţriđju umferđ - Henrik mćtir Eljanov

Henrik ađ tafliStórmeistarinn Henrik Danielsen (2512), Guđmundur Gíslason (2351) og Bjarni Jens Kristinsson (2044) unnu allir í ţriđju umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.  Bragi Halldórsson (2253) tapađi hins vegar.  Henrik hefur fullt hús, Guđmundur 2˝ vinning, Bjarni Jens 2 vinninga og Bragi 1˝ vinning.

Fjórđa umferđ fer fram á morgun og hefst kl. 12.  Henrik mćtir ţá langstigahćsta keppenda mótsins, úkraínska stórmeistaranum Pavel Eljanov (2755) sem jafnframt er áttundi stigahćsti skákmađur heims.  Skákin verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins.    

Skákir íslensku skákmannanna úr 1.-2. umferđ fylgja međ.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup. sem fram fer í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn.  Ţar af er 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).

Henrik og Guđmundur unnu í 2. umferđ

Guđmundur Gíslason sigurvegari StigamótsinsStórmeistarinn Henrik Danielsen (2512) og Guđmundur Gíslason (2351) unnu báđir í 2. umferđ Politiken Cup sem fram fór í morgun.  Bragi Halldórsson (2253) gerđi jafntefli en Bjarni Jens Kristinsson (2044) tapađi.    Henrik hefur 2 vinninga, Guđmundur og Bragi hafa 1,5 vinning en Bjarni Jens hefur 1 vinning.

Ţriđja umferđ fer fram síđar í dag og hefst kl. 14.   Skák Henrik gegn Dananum Sigfred Haubro (2152) verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins.

Skákir íslensku skákmannanna úr fyrstu umferđ fylgja međ fréttinni.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup. sem fram fer í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn.  Ţar af er 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).

Hrađskákkeppni taflfélaga

Hrađskákkeppni taflfélaga, hefst fljótlega eftir verslunarmannahelgi.  Ţetta er í sextánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélag Bolungarvíkur er núverandi meistari.  Í fyrra var metţátttaka en ţá tóku 15 liđ ţátt og er stefnt ađ ţví ađ bćta ţađ met í ár.  Skráningarfrestur er til 5. ágúst.   

Eftirfarandi félög hafa skráđ sig til leiks (liđsstjóri í sviga):

  • Bolungarvík (Guđmundur)
  • Haukar (Ingi Tandri)
  • Hellir (Vigfús)
  • KR (Einar S)
  • TG (Páll)
  • SA (Stefán)
  • Selfoss (Magnús)
  • SFÍ (Kristján Örn)
  • TR (Ríkharđur)
  • TV (Einar K)
  • Vin (Arnar)
  • Víkingaklúbburinn (Gunnar Freyr)

 

Dagskrá mótsins er sem hér segir

  • 1. umferđ (16 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 15. ágúst
  • 2. umferđ (8 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 25. ágúst
  • 3. umferđ (undanúrslit): Skuli vera lokiđ 5. september
  • 4. umferđ (úrslit): Skuli vera lokiđ 15. september (líklegt ađ keppnin verđi sett á helgina 10.-12. september) 
Skráning til ţátttöku rennur út 5. ágúst nk.   Forráđamenn taflfélaga eru vinsamlegast beđnir um ađ skrá sig í netfangiđ gunnibj@simnet.is eđa í síma 820 6533.
Tilkynna ţarf eftirfarandi:

  • Liđ
  • Liđsstjóri
  • Símanúmer liđsstjóra
  • Netfang liđsstjóra

 

Reglur keppninnar:

  • 1.  Sex manns eru í hvoru liđi og tefld er tvöföld umferđ, ţ.e. allir í öđru liđinu tefla viđ alla í hinu liđinu. Samtals 12 umferđir, eđa 72 skákir.
  • 2.  Heimaliđ sér um dómgćslu. Komi til deiluatriđa er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.
  • 3.  Varamenn mega koma alls stađar inn. Ţó skal gćta ţess ađ menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstćđingi og hafi ekki sama lit í báđum skákunum.
  • 4.  Ćtlast er til ţess ađ ţeir sem tefli séu fullgildir međlimir síns félags, ţ.e. séu rétt skráđir í keppendaskrá SÍ). Ađeins má tefla međ einu taflfélagi í keppninni.
  • 5.  Liđsstjórar koma sér saman um hvenćr er teflt og innan tímaáćtlunar.  Komi liđsstjórar sér ekki saman um dagsetningu innan tímaramma getur umsjónarađili ákvarđađ tímasetningu.
  • 6.  Verđi jafnt verđur tefldur bráđabani. Ţađ er tefld er einföld umferđ ţar sem dregiđ er um liti á fyrsta borđi og svo hvítt og svart til skiptist. Verđi enn jafnt verđur áfram teflt áfram međ skiptum litum ţar til úrslit fást.
  • 7.  Heimaliđ bjóđi upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eđa kex.
  • 8.  Viđureignirnar skulu fara fram innan 100 km. radíus (max 1-1,5 klst. ferđalag) frá Reykjavík nema ađ félög komi sér saman um annađ. 
  • 9.  Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auđiđ er í netfangiđ gunnibj@simnet.is og eigi síđar en 12 klukkustundum eftir ađ keppni lýkur.
  • 10. Úrslit keppninnar verđa ávallt ađgengileg á heimasíđu Hellis, www.hellir.blog.is , sem er heimasíđa keppninnar, og á www.skak.is.
  • 11. Mótshaldiđ er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvćmd mótsins.

Skák á Unglingalandsmóti fer fram í dag

Unglingalandsmótiđ er í fullum gangi í Borgarnesi.  Í dag fer fram skákkeppnin.  Teflt verđur í Menntaskóla Borgarfjarđar sunnudaginn 1. ágúst frá kl. 15:00 til kl.18:00.

Keppnisreglur:  11 - 14 ára og 15 - 18 ára strákar og stelpur í sama flokki.

Unglingalandsmótiđ

 


Henrik, Bragi og Bjarni Jens unnu í fyrstu umferđ

Bjarni Jens KristinssonStórmeistarinn Henrik Danielsen (2512), Bragi Halldórsson (2253) og Bjarni Jens Kristinsson (2044) sigruđu allir í sínum skákum í fyrstu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag í Kaupmannahöfn.   Guđmundur Gíslason (2351) gerđi jafntelfi en allir tefldu ţeir viđ mun stigalćgri andstćđinga.  

Önnur umferđ fer fram í fyrramáliđ.  Skák Henriks gegn gegn Dananum Klaus Nielsen (2095) verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins en áhugasamir verđa ađ vera árrisulir ţar sem umferđin hefst kl. 7.  Tvćr umferđir fara fram á morgun.

Hćgt er ađ skođa skák Henriks á Skákhorninu.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup í ár, ţar af 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ, keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).


Guđmundur vann í lokaumferđinni

Guđmundur KjartanssonAlţjóđlegi meistarinn, Guđmundur Kjartansson (2384), vann lettnesku skákkonuna Ilze Berzina (2267), sem er stórmeistari kvenna í níundu og síđustu umferđ Czech Open sem fram fór í dag.  Guđmundur hlaut 5 vinninga og endađi í 88.-135. sćti.

Sigurvegari mótsins varđ úkraínski stórmeistarinn Anton Korobov (2657) en hann hlaut 8 vinninga. Í 2.-5. sćti međ 7 vinninga urđu alţjóđlegu meistararnir Hans Tikkanen (2469), Svíţjóđ, og S.P. Sethuraman (2513), Indlandi, og stórmeistararnir Martin Kravtsiv (2559), Úkraínu, og Sergey Grigoriants (2566) og Artur Gabrielian (2559), Rússlandi.

Árangur Guđmundar samsvarađi 2344 skákstigum og lćkkar hann um 5 stig fyrir frammistöđu sína.

Sex skákir Guđmundar eru ađgengilegar á vef mótsins og fylgja ţćr međ fréttinni.

Alls taka 308 skákmenn ţátt í efsta flokki Czech Open sem fram fer 23.-31. júlí í Pardubice í Tékklandi, ţar á međal 42 stórmeistarar, 10 stórmeistarar kvenna og 65 alţjóđlegir meistarar.  Guđmundur er númer 100 í stigaröđ keppenda.

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 8778301

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband