Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Íţróttir

Lenka vann í 2. umferđ í Olomouc

LenkaLenka Ptácníková (2262) vann Tékkann Vitezlav (2013) í 2. umferđ opna flokksins í Olomouc sem fram fór í dag.  Smári Rafn Teitsson tapađi í sinni skák.  Lenka hefur 2 vinninga en Smári hefur 1 vinning.

Alls taka 192 skákmenn ţátt í opna flokknum og ţar á međal eru einn stórmeistari kvenna (Lenka) og 11 alţjóđlegir meistarar.  Lenka er nr. 23 í stigaröđ keppenda en Smári er nr. 63.

Bragi vann í áttundu umferđ - Henrik međ jafntefli

Bragi HalldórssonBragi Halldórsson (2253) sigrađi í sinni skák í áttundu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.  Henrik Danielsen (2512) gerđi jafntefli viđ danska FIDE-meistaranum Jackob Aabling-Thomsen (2314).  Guđmundur Gíslason (2351) tapađi fyrir ungversku gođsögninni Lajos Portisch (2539) og Bjarni Jens Kristinsson (2044) tapađi fyrir pólska stórmeistaranum Michal Krasenkov (2628)

Henrik hefur 6 vinninga og er í 11.-24. sćti, Guđmundur hefur 5˝ vinning og er í 25.-43. sćti og Bjarni Jens og Bragi hafa 5 vinninga og eru í 44-.84. sćti.  Bjarni er efstur í flokki skákmanna međ 1901-2050 skákstig ásamt fimm öđrum.

Efstir međ 7 vinninga eru stórmeistararnir Maxim Rodshtein (2609), Ísrael, og Surya Shekhar Ganguly (2655), Indlandi. 

Skák Henriks gegn Norđmanninum  Odd Martin Guttulsrud (2073) í níundu og nćstsíđustu umferđ verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins á morgun.  Umferđin hefst kl. 11.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup. sem fram fer í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn.  Ţar af er 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).


Metţátttaka í Hrađskákkeppni taflfélaga: Pörun fyrstu umferđar

Sextán liđ taka ţátt í Hrađskákkeppni taflfélaga sem er metţátttaka en í fyrra tóku 15 liđ ţátt.      Meistararnir í Bolungarvík hefja titilvörnina gegn Akureyringum.  Stćrsta viđureign fyrstu umferđar verđur ađ teljast viđureign silfur- og bronsliđana frá síđasta Íslandsmóti skákfélaga, Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélags Vestmannaeyja.

Pörun 1. umferđar:

  • Taflfélag Bolungarvíkur - Skákfélag Akureyrar
  • Taflfélag Reykjavíkur - Taflfélag Vestmannaeyja
  • Skákfélag Íslands - Skákfélag Vinjar
  • Taflfélag Akraness - Taflfélagiđ Hellir
  • Taflfélag Garđabćjar - Skákfélag Reykjanesbćjar
  • Skákdeild Hauka - Skákfélag Selfoss og nágrennis
  • Taflfélagiđ Mátar - Skákdeild Fjölnis
  • Skákdeild KR - Víkingaklúbburinn
Fyrrnefnda félagiđ á heimaleik.  Fyrstu umferđ skal veriđ lokiđ 15. ágúst nk.  Minnt er á ađ til ađ ađ teljast vera löglegir í sveitum keppninnar ţurfa skákmenn ađ vera skráđir í viđeigandi félag í Keppendaskrá SÍ.
 

„Mórallinn í hópnum stendur upp úr“

helgi_lafsson.jpgÉg man ađ ég upplifđi ţetta sem alheimsviđburđ. „PR"-gildi viđburđarins fyrir Ísland var náttúrlega ótrúlegt. Viđ erum ađ tala um viđburđ sem var á forsíđu heimsblađanna dag eftir dag og viku eftir viku, enda hefur einvígiđ veriđ sett í ţađ samhengi síđar ađ ţađ hafi veriđ einn stćrsti keppnisviđburđur á síđustu öld. Ég var 15 ára gamall og var skákmeistari Vestmannaeyja en hafđi ţó ekki teflt mjög lengi. Mér fannst ţađ ekki ýkja merkilegt í ljósi ţess ađ Fischer hafđi orđiđ stórmeistari 15 ára. Ég sá fimm skákir og ţetta var algert ćvintýri," sagđi Helgi ţegar Morgunblađiđ bađ hann ađ rifja einvígi Fischers og Spasskís upp.

Ađ mati Helga er árangur Íslands í Dubai og Manila nokkuđ svipađur. „Ég held ađ ţetta sé ađ sumu leyti svipađ en viđ vorum kannski ţroskađri skákmenn í Manila og veraldarvanari. Ţađ liđu náttúrlega sex ár ţarna á milli. Ţađ má segja ađ svipađar áherslur hafi gert ţađ ađ verkum ađ liđiđ náđi vel saman í báđum tilfellum. Viđ létum ekki einhverja atburđi utan taflborđsins vera breytu í atburđarásinni. Viđ pössuđum upp á ađ undirbúningur fyrir mótin og fyrir skákirnar vćri í lagi. Ţessi hópur hafđi ţvćlst mikiđ saman og ţekkst árum saman. Ţegar ég horfi til baka ţá minnist ég ţess ađ ţađ var alltaf góđur mórall. Mér finnst ţađ standa svolítiđ upp úr hvađ ţađ var gaman ađ ţessum hóp. Ţađ ţýđir ţó ekki ađ menn hafi alltaf veriđ sammála um alla hluti, heldur var mórallinn almennt góđur. Ţađ var glađvćrđ yfir mönnum og ţađ tóku margir eftir ţví. Í öđrum liđum var alltaf mikil samkeppni en ţađ var einhvern veginn ekkert atriđi hjá okkur. Í fyrstu vakti mikla athygli hvađ viđ vorum međ sterka sveit en síđan urđum viđ bara ţekkt stćrđ og ţađ var alltaf vitađ ađ ţađ yrđi erfitt ađ tefla viđ okkur," sagđi Helgi.

Viđtaliđ viđ Helga Ólafsson er eftir Kristján Jónsson, blađamann Morgunblađsins, og birtist í sunnudagsmogganum, 25. júlí sl.  Viđtaliđ viđ Helga er hluti af greininni Íslenska skáksprengjan.  Á morgun lýkur umfjöllun hér á Skák.is međ viđtali viđ Margeir Pétursson.

Skákţćttir Morgunblađsins


Lenka og Smári unnu í fyrstu umferđ í Olomouc

Lenka Ptácníková (2262) og Smári Rafn Teitsson (2089) unnu bćđi í fyrstu umferđ c-flokks opin flokks skákhátíđinnar í Olomouc sem fram fór í dag.  Bćđi tefldu ţau viđ umtalsvert stigalćgri andstćđinga.

Alls taka 192 skákmenn ţátt í opna flokknum og ţar á međal eru einn stórmeistari kvenna (Lenka) og 11 alţjóđlegir meistarar.  Lenka er nr. 23 í stigaröđ keppenda en Smári er nr. 63.


Guđmundur, Bjarni Jens og Bragi unnu - Henrik međ jafntefli viđ Macieja (uppfćrt)

Guđmundur Gíslason sigurvegari Stigamótsins

Guđmundur Gíslason (2351), Bjarni Jens Kristinsson (2044) og Bragi Halldórsson (2253) unnu allir í sjöundu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.   Henrik Danielsen (2512) gerđi jafntefli viđ pólska stórmeistarann Bartlomiej Macieja (2639).  Henrik og Guđmundur eru hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.

Röng úrslit hjá Bjarna Jens voru birt á heimasíđu mótsins í dag og ţ.a.l. á Skák.is einnig en hafa nú veriđ leiđrétt.

Henrik og Guđmundur hafa 5˝ vinning og eru í 9.-20. sćti, Bjarni Jens hefur 5 vinninga og er í 21.-45. sćti og er efstur í sínum stigaflokki og Bragi hefur 4 vinninga og er í 72.-126. sćti.

Umfjöllun um umferđina má finna á Skákhorninu.

Átta skákmenn eru efstir og jafnir međ 6 vinninga.  Ţađ eru stórmeistararnir Maxim Rodshtein (2609) og Evgeny Postny (2577), Ísrael, Konstantin Landa (2598), Rússlandi, Georg Meier (2648), Ţýskalandi, Allan Stig Rasmussen (2510), Danmörku, Pavel Eljanov (2755), Úkraínu,Jonny Hector (2584), Svíţjóđ, og Surya Shekhar Ganguly (2655), Indlandi. 

Skákir Henriks og Guđmundar á morgun verđa sýndar báđar beint á vefsíđu mótsins.  Henrik mćtir danska FIDE-meistaranum Jackob Aabling-Thomsen (2314), Guđmundur ungversku gođsögninni Lajos Portisch (2539).  Bjarni Jens verđur ekki í beinni en mćtir pólska stórmeistaranum Michal Krasenkov (2628).  Umferđin hefst kl. 11.

Skákir íslensku skákmannanna úr 1.-7. umferđ fylgja međ fréttinni.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup. sem fram fer í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn.  Ţar af er 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).


Ný íslensk skákstig

Ný íslensk skákstig eru komin út (1. júní).  Hannes Hlífar Stefánsson er stigahćstur međ 2645 skákstig.  Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson koma nćstir.  Hjörvar Steinn Grétarsson er stigahćstur skákmanna 21 árs og yngri, Oliver Aron Jóhannesson hćkkađi mest frá síđasta stigalista (180 stig).  Svavar Viktorsson er stigahćstur nýliđea (1765 stig).  Jóhann Hjartarson hefur flest atskákstig.

20 stighćstu skákmenn landsins:

 

 Nr.NafnFélagStig
1Hannes H StefánssonHellir2645
2Jóhann HjartarsonBol2620
3Margeir PéturssonTR2600
4Héđinn SteingrímssonFjölni2545
5Helgi ÓlafssonTV2540
6Henrik DanielsenHaukar2525
7Friđrik ÓlafssonTR2510
8Jón Loftur ÁrnasonBolung2505
9Helgi Áss GrétarssonTR2500
10Karl ŢorsteinsHellir2485
11Stefán KristjánssonBol2485
12Jón Viktor GunnarssonBolung2460
13Bragi ŢorfinnssonBolung2445
14Guđmundur SigurjónssonTR2445
15Björn ŢorfinnssonHellir2435
16Hjörvar GrétarssonHellir2435
17Ţröstur ŢórhallssonBol2410
18Arnar GunnarssonTR2410
19Magnús Örn ÚlfarssonHellir2380
20Guđmundur Stefán GíslasonBol2380

 
10 stigahćstu ungmenni landsins (fćdd 1989 og síđar):

 

 Nr.Nafn
Stig
1Hjörvar Grétarsson2435
2Sverrir Ţorgeirsson2280
3Dađi Ómarsson2185
4Atli Freyr Kristjánsson2170
5Bjarni Jens Kristinsson2070
6Helgi Brynjarsson2010
7Ingvar Ásbjörnsson1985
8Hallgerđur H Ţorsteinsdóttir1975
9Patrekur Maron Magnússon1955
10Örn Leó Jóhannsson1945


Nýliđar:

Nr.NafnStig
1Svavar Viktorsson              1765
2Benedikt Einarsson             1740
3Árni Guđbjörnsson 1650
4Helgi Harđarson 1600
5Jón Víglundsson                1555
6Birgir Ađalsteinsson           1360
7Halldór Víkingsson             1340
8Valur Heiđar Einarsson 1170
9Heimir Páll Ragnarsson 1125
10Sigurđur Kjartansson 1070

 

Mestu  hćkkanir frá 1. mars:

 

Nr.Nafn01.jún01.marBr.
1Oliver Aron Jóhannesson 14901310180
2Emil Sigurđarson 17901615175
3Örn Leó Jóhannsson 19451775170
4Jon Olav Fivelstad 18751715160
5Magnús Kristinsson             15751415160
6Birgir R Ţráinsson             17801665115
7Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 17851675110
8Atli Jóhann Leósson            14651360105
9Jón Kristinn Ţorgeirsson 1600150595
10Halldór Pálsson                1970188090

Virkustu skákmennirnir:

 

Nr.NafnStigBr.Skákir
1Emil Sigurđarson 179017528
2Örn Leó Jóhannsson 194517028
3Bjarni Hjartarson 2000-1027
4Mikael Jóhann Karlsson 17858026
5Ţorvarđur F Ólafsson           22001026
6Sverrir Ţorgeirsson 22807023
7Svanberg Már Pálsson 17852523
8Björn Ţorfinnsson              24355022
9Guđmundur Stefán Gíslason      23803522
10Ingvar Jóhannesson             2340-1522
11Ţröstur Ţórhallsson            2410-3022
12Róbert Lagerman              2315-6022


Reiknuđ mót:

  • Skákţing Gođans 2010 (4.-7. umferđ)
  • Skákţing Akureyrar
  • MP Reykjavík Open
  • Íslandsmót skákfélaga (1.-4. deild)


Topp 10 í atskákstigum:

 

 Nr.NafnFélagAtstig
1Jóhann HjartarsonBol2605
2Helgi ÓlafssonTV2595
3Hannes H StefánssonHellir2575
4Margeir PéturssonTR2570
5Helgi Áss GrétarssonTR2540
6Henrik DanielsenHaukar2525
7Friđrik ÓlafssonTR2480
8Arnar GunnarssonTR2465
9Jón Loftur ÁrnasonBolung2465
10Jón Viktor GunnarssonBolung2445

 

 

Međ fréttinni er tengill á skákstigin, skákmenn međ 2000 stig eđa meira, stigahćstu unglinga landsins og atskákstig.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

„Árangurinn vakti gríđarlega athygli“

johann_hjartarson.jpg„Já, ég held ađ ţađ sé rétt ályktađ ađ ţessi kynslóđ sé afsprengi heimsmeistaraeinvígisins 1972. Ég hafđi mikinn áhuga á skák en einvígiđ ýtti mjög undir ţann áhuga. Ég var náttúrlega ekki nema níu ára gamall en man ţó mjög vel eftir ţessum viđburđi enda fylgdist ég vel međ. Ég mćtti á eina skákina međ föđur mínum og ţađ var eftirminnilegt." sagđi Jóhann Hjartarson ţegar Morgunblađiđ sló á ţráđinn til hans. Hann neitar ţví ekki ađ skákin hafi fengiđ mikla athygli hérlendis á níunda áratug síđustu aldar.

„Skákin naut meiri athygli á ţessum árum en dregiđ hefur úr ţví á síđustu árum. Ţađ má segja ađ ţessi skákáhugi ţjóđarinnar hafi sprungiđ út áriđ 1984 og fljótlega náđum viđ fjórir stórmeistaratitlum. Einnig vakti árangur okkar á HM ungmenna áriđ 1983 mikla athygli en ţá enduđum viđ í 2.-3. sćti. Árangur okkar á ólympíuskákmótunum vakti gríđarlega athygli. Okkur gekk oftast vel og ţađ byggist upp spenna jafnt og ţétt ţegar vel gengur. Viđ settum einnig markiđ hátt og markmiđiđ var ávallt ađ vera á međal tíu efstu. Viđ vorum ungir og metnađargjarnir. Líklega vorum viđ lágir á stigum miđađ viđ getu en liđsheildin var mjög góđ hjá okkur. Ţađ er nokkuđ misjafnt hvernig gengur ađ ná upp góđri liđsheild á ólympíumótum. Viđ undirbjuggum okkur mjög vel og brydduđum einnig upp á nýjungum. Má ţar nefna ađ viđ fengum Gunnar Eyjólfsson til liđs viđ okkur fyrir mótiđ í Manila. Ţađ er engin spurning ađ hann hafđi mikil áhrif. Viđ vorum hjá honum í öndunarćfingum og slíku í marga mánuđi í ađdraganda mótsins og ţegar út var komiđ var unniđ eftir ákveđinni áćtlun sem gekk međal annars út á ađ losa um spennu. Andlegi ţátturinn skiptir heilmiklu máli eins og sást hjá handboltalandsliđinu í Peking ţegar ţađ vann til silfurverđlauna. Ţađ er gaman ađ skođa hversu vel okkur gekk ţegar Gunnar var međ í för. Hann komst ekki međ okkur til Moskvu og ţá gátum viđ ekki neitt!" sagđi Jóhann og er ekki í vafa um besta árangur Íslands. „Árangur okkar í Manila stendur upp úr. Ţađ er klárlega okkar besti árangur á alla mćlikvarđa. Sovétríkin höfđu liđast í sundur og fyrir vikiđ voru mun fleiri sterkar ţjóđir mćttar til leiks."

Viđtaliđ viđ Jóhann Hjartarson er eftir Kristján Jónsson, blađamann Morgunblađsins, og birtist í sunnudagsmogganum, 25. júlí sl.  Viđtaliđ viđ Jóhann var hluti af greininni Íslenska skáksprengingin. Nćstu daga verđa viđtöl viđ Helga Ólafsson og Margeir Pétursson, sem einnig fylgdu greininni, birt hér á Skák.is

Skákţćttir Morgunblađsins


Henrik, Guđmundur og Bjarni Jens unnu í sjöttu umferđ

Henrik ađ tafliHenrik Danielsen (2512), Guđmundur Gíslason (2351) og Bjarni Jens Kristinsson (2044) unnu allir í sjöttu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.   Bragi Halldórsson (2253) gerđi jafntefli.  Henrik er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.   

Henrik hefur 5 vinninga og er í 5.-17. sćti, Guđmundur hefur 4˝ vinning og er í 18.-35. sćti, Bjarni Jens hefur 4 vinninga og er í 36.-78. sćti og Bragi hefur 3 vinninga og er í 111.-182. sćti

Stórmeistararnir Georg Meier (2648), Ţýskalandi, Konstantin Landa (2598), Rússlandi, Pavel Eljanov (2755), Úkraínu, og Maxim Rodshtein, Ísrael, eru efstir međ 5˝ vinning.  

Skákir Henriks og Guđmundar verđa báđir sýndar beint í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun.  Henrik teflir viđ pólska stórmeistarann Bartlomiej Macieja (2639) og Guđmundur mćtir Svíanum Joel Eklund (2192).   Umferđin hefst kl. 11.

Skákir íslensku skákmannanna úr 1.-6. umferđ fylgja međ.

Alls taka 292 skákmenn ţátt í Politiken Cup. sem fram fer í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn.  Ţar af er 21 stórmeistari og 4 alţjóđlegir meistarar.  Henrik er nr. 18 í stigaröđ keppenda, Guđmundur nr. 29, Bragi nr. 45 og Bjarni Jens nr. 113.  Stigahćstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2755).


„Náđum betri árangri sem liđ en einstaklingar“

Jón L. ÁrnasonJón L. Árnason var 11 ára gamall ţegar Fischer og Spasskí tefldu í Reykjavík. „Einvígi ţeirra hafđi úrslitaáhrif á ađ ég fór ađ tefla af fullum krafti. Ţađ er einfalt ađ svara ţví. Ég fór ađ tefla fyrir alvöru á ţessum tíma. Ţjóđin fór á hliđina í skákćđi og ég fylgdist vel međ. Ég fór og horfđi á fyrstu skákina. Hún var tíđindalítil framan af en svo fór kliđur um salinn ţegar Fischer drap á H2 eins og frćgt varđ," sagđi Jón ţegar Morgunblađiđ bađ hann ađ rifja upp upplifun sína af einvíginu. Ađ loknu ólympíumótinu í Dubai áriđ 1986 skrifađi Jón um mótiđ í bókinni Skákstríđ viđ Persaflóa. „Árangurinn í Dubai er eftirminnilegastur í mínum huga. Viđ höfnuđum í 5. sćti og ţađ var langbesti árangur Íslands á ólympíuskákmóti og vakti mikla athygli. Menn hafa leitt ađ ţví líkur ađ árangurinn í Manila hafi jafnvel veriđ betri svona stigalega séđ enda höfđu Sovétríkin liđast í sundur. Nokkrar ţjóđir spruttu upp úr ţví og ţví var um sterkara mót ađ rćđa en í Dubai. Líklega hefur árangur okkar í Manila ţví veriđ betri en í endurminningunni var hann betri í Dubai," sagđi Jón og hló viđ. Hann bendir á ađ íslenska liđiđ hafi oft á tíđum náđ betri árangri í ólympíumótunum heldur en Elo-stig liđsmanna hafi gefiđ tilefni til. „Viđ náđum betri árangri sem liđ heldur en einstaklingar. Viđ ţekktumst mjög vel og náđum upp ákveđinni liđsheild. Viđ höfđum ţađ umfram margar ađrar ţjóđir."

Spurđur um ađkomu Gunnars Eyjólfssonar ađ landsliđinu í Manila sagđi Jón mikinn feng hafa veriđ í Gunnari. „Hann var ekki eiginlegur liđsstjóri heldur meira eins og andlegur leiđtogi. Engar sérstakar sögur fóru af honum hvađ skákstyrkleika snerti og ţetta vakti ţví nokkra athygli á sínum tíma. Ţađ var mjög gott ađ hafa hann međ. Hann býr yfir mikilli reynslu en ýmislegt er hćgt ađ heimfćra frá leikhúsinu og yfir á skákina varđandi einbeitingu og ýmislegt ţess háttar. Hann átti ţátt í ţví ađ búa til liđsheild og ná upp krafti hjá keppendum." Jón getur ekki neitađ ţví ađ árangur Íslendinga á ţessum árum hafi vakiđ mikla athygli í hinum alţjóđlega skákheimi. „Íslendingar voru og eru nokkuđ ţekktir sem skákţjóđ en ţađ ţótti merkilegt ađ svo fámenn ţjóđ skyldi eignast fjóra stórmeistara á svo skömmum tíma. Viđ komum mörgum mjög á óvart í Dubai en komum kannski minna á óvart eftir ţađ, ţví ţá var litiđ á okkur sem alvöruliđ," sagđi Jón ennfremur.

Viđtaliđ viđ Jón L. Árnason er eftir Kristján Jónsson, blađamann Morgunblađsins, og birtist í sunnudagsmogganum, 25. júlí sl.  Viđtaliđ viđ Jón var hluti af greininni Íslenska skáksprengingunni.  Nćstu daga verđa viđtöl viđ Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson, sem einnig fylgdu greininni, birt hér á Skák.is

Skákţćttir Morgunblađsins


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778303

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband