Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Íţróttir

Hrađkvöld hjá Helli í kvöld

Taflfélagiđ Hellir heldur hrađkvöld mánudaginn 7. desember og hefst mótiđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma.  

Sigurvegarinn fćr í verđlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Ţá hefur einnig veriđ tekinn upp sá siđur ađ draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fćr pizzu hjá Dominos Pizzum. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


Fádćma yfirburđir Rimaskóla

Yfirburđarsveit frá Rimaskóla. A sveitin tapađi ekki skák og hlaut 24 vinninga. Oliver Aron, Dagur Ragnarsson, Jón Trausti og Kristófer Jóel. Međ ţeim á myndinni er ţjálfari ţeirra Björn Ţorfinnsson

A-sveit Rimaskóla sýndi fádćma yfirburđi á Jólamóti ÍTR og TR ţegar sveitin vann allar viđureignir sínar 4-0! Rak skeleggan skákstjóra mótsins Ólaf H. Ólafsson ekki minni til ađ ţetta afrek hafi veriđ leikiđ eftir áđur og hefur Ólafur ţó veriđ skákstjóri í sveitakeppnum grunnskóla í ţrjá áratugi. Rimaskólakrakkarnir lét ekki 1. sćtiđ nćgja sér heldur lenti b-sveit skólans í 2. sćti og stúlknasveit og c-sveit skólans stóđu sig einnig vel. Frábćr árangur hjá Rimaskóla og enn ein stađfesting ţess hversu mikiđ stórveldi skólinn er í skólamótum. Ung og efnileg sveit Hólabrekkuskóla náđi svo 3. sćtinu. Stúlknasveit Engjaskóla varđ efst stúlknasveita í mótinu. Sigurskáksveit úr Grafarvogi. Stúlknasveit Engjaskóla hélt titlinum frá ţví í fyrra og varđ efsta stúlknasveitin á mótinu

            Keppni í eldri flokki fer fram á morgun og hefst klukkan 17. Eins og í dag verđur teflt í Skákhöllinni ađ Faxafeni 12. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir. Mótshald var allt međ hinu besta móti og mátti greina ánćgju á svip ţeirra fjölmörgu foreldra sem horfđu á krakkana tefla.

 

Úrslit mótsins:

  • 1.      Rimaskóli a-sv.                   24 vinningar af 24!
  • 2.      Rimaskóli b-sv.                   17,5
  • 3.      Hólabrekkuskóli a-sv.         14,5
  • 4.      Engjaskóli b-sv.                  14
  • 5.      Fellaskóli                            13
  • 6.      Engjaskóli stúlkur               13
  • 7.      Grandaskóli                         12,5
  • 8.      Rimaskóli c-sv.                   12,5
  • 9.      Melaskóli                             12,5
  • 10.  Laugalćkjaskóli a-sv.          12
  • 11.  Fossvogsskóli a-sv.              12
  • 12.  Hlíđaskóli                            11,5
  • 13.  Engjaskóli a-sv.                   10,5
  • 14.  Laugalćkjaskóli a-sv.          10,5
  • 15.  Rimaskóli stúlkur                 10
  • 16.  Fossvogsskóli b-sv.               10
  • 17.  Ísaksskóli                              9,5
  • 18.  Fossvogsskóli c-sv.               8,5
  • 19.  Landakotsskóli                      7
  • 20.  Hólabrekkuskóli b-sv.            6,5  

A-sveit Rimaskóla:

  • 1.      Oliver Aron Jóhannesson
  • 2.      Dagur Ragnarsson
  • 3.      Jón Trausti Harđarson
  • 4.      Kristófer Jóel Jóhannesson

B-sveit Rimaskóla

  • 1.      Andri Jökulsson
  • 2.      Jóhann Andri Finnsson
  • 3.      Hafţór Andri Helgason
  • 4.      Kjartan Vignisson

A-sveit Hólabrekkuskóla:

  • 1.      Friđrik Dađi Smárason
  • 2.      Donika Kolica
  • 3.      Heimir Páll Ragnarsson
  • 4.      Birgir Snćr Baldvinsson

Stúlknasveit Engjaskóla

  • 1.      Honey Grace Z. Bargamento
  • 2.      Aldís Birta Gautadóttir
  • 3.      Rósa Linh Róbertsdóttir
  • 4.      Ástdís Eik Ađalsteinsdóttir

 

Myndaalbúm mótsins


Skákţáttur Morgunblađsins: Friđrik liđsstjóri gömlu meistaranna

Friđrik Ólafsson er liđsstjóri „Reynslunnar" sem ţessa dagana etur kappi viđ úrvalsliđ kvenna í Marianske Lazne í Tékklandi, smábć sem er rómađur fyrir heilsulindir.

Friđrik Ólafsson er liđsstjóri „Reynslunnar" sem ţessa dagana etur kappi viđ úrvalsliđ kvenna í Marianske Lazne í Tékklandi, smábć sem er rómađur fyrir heilsulindir. Friđrik er ađ ţessu sinni í hlutverki liđsstjóra en Viktor Kortsnoj, Vlastimil Hort, Robert Hubner og Jan Timman heyja keppni á fjórum borđum gegn indversku skákdrottningunni Humpy Koneru, Katerinu Lahno frá Úkraínu og tékknesku skákkonunni Jönu Jackovu og Önnu Muzychuku frá Slóvakíu. Heiđursgestur er fyrrverandi heimsmeistari, Boris Spasskí.

Hinir nafntoguđu jaxlar af gamla skólanum eiga viđ ramman reip ađ draga; eftir fimm umferđir af átta höfđu konurnar náđ öruggri forystu: 11˝ : 8˝.

Margvísleg vopnaviđskipti hafa átt sér stađ millum sexmenninganna um áratuga skeiđ. Sumir hafa háđ fleiri en eitt einvígi sín í milli. Ţar ber hćst tvö mögnuđ einvígi sem Spasskí og Kortsnoj háđu međ tíu ára millibili en sigurvegarinn vann sér ţá inn rétt til skora á heimsmeistarann. Spasskí vann í Kćnugarđi áriđ 1968 6˝ : 3˝ en í Belgrad í ársbyrjun 1978 snerist dćmiđ viđ og Kortsnoj vann 10˝ : 7˝.

16 ára Filippseyingur sló út Ivantsjúk og Kamsky

Fyrir daga Anand og kínversku skákbyltingarinnar voru Filippseyingar herraţjóđin á skáksviđinu í Asíu. Eftir mikinn uppgang á áttunda áratug síđustu aldar var eins og einhver stöđnun tćki viđ og lítil endurnýjun átti sér ţar til nú ađ 16 ára Filippseyingur Wesley So kveđur sér hljóđs á heimsbikarmóti FIDE sem stendur yfir í Khanty Mansiysk í Siberíu. Slćr úr keppni tvo af sigurstranglegustu keppendunum, ţá Vasilí Ivantsjúk og Gata Kamsky. Ekki vakti minni athygli hvernig nýjar reglur FIDE um mćtingu urđu Kínverjunum Wang Yue og Li Chao ađ fótakefli í 3. umferđ; rétt fyrir umferđ virđist Wang Yue hafa „slakađ jurt" til landa síns Li Chao en ţar sem ţeir stóđu í hvíldarherberginu og svćldu hvor sína rettuna var skáklukkan sett í gang. Engin viđvera ţýđir tap: ţeir féllu báđir úr keppni.

Yfir 130 skákmenn hófu keppni á heimsbikarmótinu sem fram fer međ útsláttarfyrirkomulagi. Gaman var ađ sjá Judit Polgar mćtta til leiks. Hún sigrađi Rúmenann í Nisipeanu í 2. umferđ 4˝ : 3˝. Svo mćtti hún Boris Gelfand. Fyrri kappskákinni af tveimur tapađi hún svo ekkert nema sigur dugđi.

Baráttukraftur hennar í ţessari mikilvćgu skák er athyglisverđur. Kraftmiklir leikir eru 19. g4 og 21. Rf5 en 21. Hxf7 virđist sterkara međ hugmyndinni 21. ... Rxd2 22. Rf5! Gelfand er međ dágóđ fćri en flćkjurnar eiga illa viđ hann og ţegar hann opnar allt upp á gátt međ 27. f5 lifna biskuparnir viđ, 32. Hg6 er skemmtilegur lokahnykkur.

Heimsbikarmót FIDE:

Judit Polgar - Boris Gelfand

Vínartafl

1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 c6 4. De2 Be7 5. Rf3 0-0 6. Bb3 d6 7. 0-0 Rbd7 8. c3 a5 9. a4 b5 10. Bc2 Ba6 11. axb5 cxb5 12. Rbd2 Dc7 13. d4 a4 14. Bd3 Hfb8 15. Rh4 g6 16. f4 exf4 17. Rdf3 Rh5 18. Bd2 Rb6 19. g4 fxg3 20. Rg5 Rc4 21. Rf5 Bxg5 22. Bxg5 f6 23. Bh4 gxh2+ 24. Dxh2 Hf8 25. Be2 gxf5 26. Bxh5 fxe4 27. Df4 f5? 28. Kh1! Kh8 29. Hg1 Hf7 30. Bxf7 Dxf7 31. Dh6 Hf8

2009-12-05.jpg

32. Hg6 - og svartur gafst upp.

Eftir ţetta var gripiđ til skáka međ styttri umhugsunartíma og ţar varđ Ísraelsmađurinn hlutskarpari. Lokatölur urđu 3˝ : 1˝ .

Helgi Ólafsson helol@simnet.is


Arnar og Sigurbjörn mćtast í úrslitum

Arnar E. Gunnarsson og Sigurbjörn Björnsson munu mćtast í úrslitum Íslandsmótsins í atskák.  Arnar vann Magnús Örn Úlfarsson, 2-1 eftir bráđabana og Sigurbjörn Björnsson sigrađi Björn Ţorfinnsson á sama hátt.

Úrslitaeinvígiđ er fyrirhugađ ţann 27. desember nk. og verđur nánar kynnst ţegar nćr dregur.   


Skákkonur lögđu öldunga

Friđrik ÓlafssonSkákkonur (Snow Drops) lögđu öldunga (Old Hands) í keppni ţeirra á milli sem fram fór í Marianske Lazne í Tékklandi og ţađ ţrátt fyrir liđsstjórn Friđriks Ólafsson fyrir öldungana.  Timann stóđ sig best gömlu mannanna en Humpy Konaru stóđ sig best kvennanna.


Gelfand vann fyrri skákina gegn Karjakin

Short og Gelfand skemmtu sér vel viđ upphaf umferđarinnarÍ dag hófst 5. umferđ (undanúrslit) Heimsbikarmótsins í skák.  Gelfand (2758) vann Karjakin (2723) og Ponomariov (2739) og Malakhov (2706) gerđu jafntefli.  Síđari skák einvíganna verđur tefld á morgun.

 


Arnar, Björn, Magnús og Sigurbjörn í undanúrslitum

Arnar E. Gunnarsson, Björn Ţorfinnsson, Magnús Örn Úlfarsson og Sigurbjörn J. Björnsson eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í atskák.  Undanúrslitin hefjast kl. 13 á morgun, sunnudag, og fara fram í húsnćđi SÍ. 


Úrslit 3. umferđar:

 

 

Nr.NafnStigÚrslitNafnStig
1Arnar E. Gunnarsson24702-0Davíđ Ólafsson2315
2Ţröstur Ţórhallsson24400,5-1,5Magnús Örn Úlfarsson2320
3Guđmundur S. Gíslason23950-2Sigurbjörn J. Björnsson2300
4Björn Ţorfinnsson23752-0Ţorsteinn Ţorsteinsson2270


Röđun 4. umferđar:

 

Nr.NafnStigÚrslitNafnStig
1Arnar E. Gunnarsson2470 Magnús Örn Úlfarsson2320
2Björn Ţorfinnsson2375 Sigurbjörn Björnsson2300

 

 

 


Allt eftir bókinni í 2. umferđ

Allt var eftir bókinni í 2. umferđ (16 manna úrslitum) Íslandsmótsins í atskák.  Átta stigahćstu skákmenn mótsins eru ţví komnir í 3. umferđ (8 manna úrslit) sem nú er í gangi.

 

Nr.NafnStigÚrslitNafnStig
1Arnar E. Gunnarsson24702-0Jóhann Örn Ingvason2050
2Ţröstur Ţórhallsson24401,5-0,5Hallór Brynjar Halldórsson2260
3Guđmundur S.Gíslason23951,5-0,5Ólafur B. Ţórsson2135
4Björn Ţorfinnsson23752-0Halldór Pálsson1915
5Magnús Örn Úlfarsson23202-0Kjartan Óskar Guđmundsson1855
6Davíđ Ólafsson23152-0Friđrik Ţjálfi Stefánsson1540
7Sigurbjörn J. Björnsson23001,5-0,5Vigfús Ó. Vigfússon1920
8Ţorsteinn Ţorsteinsson22702-0Ágúst Örn Gíslason1600


Pörun 3. umferđar:

 

 

Nr.NafnStigÚrslitNafnStig
1Arnar E. Gunnarsson2470 Davíđ Ólafsson2315
2Ţröstur Ţórhallsson2440 Magnús Örn Úlfarsson2320
3Guđmundur S. Gíslason2395 Sigurbjörn J. Björnsson2300
4Björn Ţorfinnsson2375 Ţorsteinn Ţorsteinsson2270

 

 

 


Friđrik Ţjálfi og Ágúst Örn áfram

Fyrstu umferđ Íslandsmótsins í skák fór fram í dag.  Alls taka 30 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af einn stórmeistari og 2 alţjóđlegir meistarar.  Ágúst Örn Gíslason gerđi sér lítiđ fyrir og sigrađi sjálfan Kristján Örn Elíasson í spennandi einvígi.  Hinn ungi og efnilegi skákmađur, Friđrik Ţjálfi Stefánsson, sigrađi varaforseta SÍ, Magnús Matthíasson, í einvíg 2-1 eftir langan bráđabana.

Önnur umferđ er nú í gangi.

Úrslit 1. umferđar:

 

Arnar E. Gunnarsson2470Áfram  
Ţröstur Ţórhallsson2440Áfram  
Guđmundur S.Gíslason23952-0Ađalsteinn Thorarensen1660
Björn Ţorfinnsson23751,5-0,5Emil Sigurđarson1425
Magnús Örn Úlfarsson23202-0Dagur Kjartansson1475
Davíđ Ólafsson23152-1Dagur Andri Friđgeirsson1680
Sigurbjörn J. Björnsson23002-0Róbert Leó Jónsson0
Ţorsteinn Ţorsteinsson22702-0Pétur Jóhannesson1210
Hallór Brynjar Halldórsson22601,5-0,5Guđmundur Kristinn Leee1600
Ólafur B. Ţórsson21352-0Birkir Karl Sigurđsson1580
Jóhann Örn Ingvason20502-0Ólafur S. Ásgrímsson1650
Kristján Örn Elíasson19950-2Ágúst Örn Gíslason1600
Vigfús Ó. Vigfússon19202-0Örn Leó Jóhannsson1490
Halldór Pálsson19152-0Pétur Olgeir Gestsson 
Kjartan Óskar Guđmundsson18552-0Stefán Mér Pétursson1560
Magnús Matthíasson17351-2Friđrik Ţjálfi Stefánsson1540

 

 


Gelfand, Ponomariov, Malakhov og Karjakin í undanúrslitum

Fimmtu umferđ (8 manna úrslitum) Heimsbikarmótsins í skák lauk í dag.  Í undanúrslitum, sem hefjast á morgun tefla Gelfand og Karjakin annars vegar og Ponomariov og Malakhov hinsvegar.

Úrslit 5. umferđar:

 

NameNATTot
Round 5 Match 01
Gelfand, BorisISR3,5
Jakovenko, DmitryRUS1,5
Round 5 Match 02
Ponomariov, RuslanUKR3,5
Gashimov, VugarAZE1,5
Round 5 Match 03
Svidler, PeterRUS0,5
Malakhov, VladimirRUS1,5
Round 5 Match 04
Karjakin, SergeyUKR1,5
Mamedyarov, ShakhriyarAZE0,5

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.7.): 3
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 171
  • Frá upphafi: 8779109

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband