Fćrsluflokkur: Íslendingar erlendis
11.1.2011 | 16:26
Ţrefaldur íslenskur sigur í sjöttu umferđ í Dehli
Allir íslensku keppendurnir unnu í 6. umferđ alţjóđlega mótsins í Nýju Dehli sem fram fór í dag. Hannes Hlífar Stefánsson (2580) vann alţjóđlega meistarann Varugeese Koshy (2309), Henrik Danielsen (2519) vann K. Ramu (2220) og Guđmundur Kjartansson (2379) vann Khandok Manan (1566). Hannes og Henrik hafa 5 vinninga og eru í 8.-30. sćti en Guđmundur hefur 3˝ vinning. Efstur međ fullt hús er indverski stórmeistarinn Parimarjan Negi (2607).
Í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun og hefst kl. 9:30, teflir Hannes viđ indverska alţjóđlega meistarann Rahul Sangma (2386), Henrik viđ indverska FIDE-meistarann Diptayan Ghosh (2180) og Guđmundur viđ Indverjann Karthik Ramalingam (2046). Skák Hannes verđur sýnd beint og jafnvel Henriks líka.
Á mótinu taka ţátt 407 keppendur og Ţar á međal eru 24 stórmeistarar. Hannes er nr. 10 í stigaröđ keppenda, Henrik nr. 17 og Guđmundur nr. 42. Tefldar eru 11 umferđir.
- Heimasíđa indverska skáksambandsins
- Heimasíđa Skáksambands Nýju-Dehli
- Beinar útsendingar
- Chess-Results
10.1.2011 | 23:40
Skákáriđ 2010
Skákáriđ 2010 er lokiđ og ţađ fyrir nokkrum dögum síđan. Fínt skákár ţar sem gott Reykjavíkurskákmót, haldiđ í Ráđhúsinu, og góđ frammistađa íslensku landsliđsins á Ólympíuskákmótinu standa upp úr. Hannes Hlífar kom sá og sigrađi bćđi á MP Reykjavíkurskákmótinu og Íslandsmótinu.......eins og venjulega. Lenka Ptácníková stal senunni á Ólympíuskákmótinu međ frábćrri frammistöđu, krćkti sér í 20 skáka áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli og tefldi skák ársins. Jú og Kirsan var endurkjörinn forseti FIDE, ţrátt fyrir ađ Kasparov yrđi óđur.
Ekkert kom á óvart á MP Reykjavíkurskákmótinu. Hannes Hlífar vann..... ásamt Gupta, Indlandi, Kurzubov, Úkraínu, og Íslandsvininum Ivan Sokolov. Allir koma ţeir aftur á mótiđ í ár. Hannes Hlífar sigrađi einnig á Íslandsmótinu en ađ ţessu sinni ţurfti hann ađ hafa verulega fyrir ţví. Björn Ţorfinnsson stimplađi sig vel, var ađeins hálfum vinningi á eftir Hannesi og var valinn í Ólympíulandsliđiđ.
Bolvíkingar sigruđu á Íslandsmóti skákfélaga og standa vel ađ vígi eftir fyrri hlutann en ţar leiđa reyndar Eyjamenn. Búast má viđ harđri baráttu félaganna tveggja um Íslandsmeistaratitilinn.
Og landsliđsmálin. Ţar gekk vel. Hart var deilt um val á karlaliđinu ţar sem Henrik sat heima á međan Hjörvar og Ţorfinnssynir voru valdir. Karlaliđiđ stóđ sig vonum framar og liđiđ nú stóđ sig mun betur en síđast. Frammistađa kvennaliđsins var sem og til mikillar fyrirmyndar og Lenka fór á kostum. Sú ákvörđun stjórnar SÍ ađ ráđa landsliđsţjálfara held ég hafi veriđ skynsamleg og meiri festa yfir landsliđsmálun en oft áđur.
Góđ ţátttaka var á skákmótum innanlands. Gróska er í skákinni innanlands. Guđmundur Gíslason krćkti sér í áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli á Íslandsmótinu. Skákmenn tefldu minna erlendis en oft áđur enda mun dýrara ađ taka ţátt í mótum erlendis eftir hruniđ. Björn Ţorfinnsson náđi frábćrum árangri í Rúmeníu og var nálćgt stórmeistaraáfanga.
Ritstjóri er bjartsýnn fyrir áriđ 2011. Spáir skemmtilegu Íslandsmóti á Egilsstöđum. Ţátttökulisti MP Reykjavíkurmótsins, sem verđur birtur á nćstum dögum, lítur afar vel út. Ţar verđur ađ finna marga kunna kappa og mörg ný athyglisverđ nöfn. Mótiđ verđur jafnframt Norđurlandamót og ţar verđur t.d. ađ finna marga af sterkustu skákmönnum Norđurlandanna eins og t.d. Jon Ludvig Hammer.
Eins og venjulega hefur ritstjóri valiđ hina og ţessa viđburđi ársins. Sjálfsagt gleymist eitthvađ í upptalningunni og biđst ég fyrirfram afsökunar á ţví. Upptalningin á léttu nótunum og bak viđ hana liggja engin geimvísindi og má enginn vera móđgađur vegna hennar. Sem er erfitt ţví skákmenn eiga ţađ til ađ verđa móđgungargjarnir!
Töluvert var um óvćnt úrslit á árinu. Má ţar nefna ađ Atli Antonsson vann Róbert Lagerman á MP Reykjavíkurskákmótinu og Sverrir Örn Björnsson vann Íslandsmeistarann Hannes Hlífar Stefánsson á Íslandsmóti skákfélaga.
Svo má nefna ađ Guđmundur Kristinn Lee varđ Íslandsmeistari í Víkingaskák og sló ţar viđ mörgum ţrautreyndum Víkingaskákmanninum.
Ađ Henrik skyldi ekki vera valinn í Ólympíuliđiđ verđur ţó ađ teljast óvćntasta frétt ársins.
Skák ársins
Án efa skák Lenku og Repkovu á Ólympíuskákmótinu sem Halldór Grétar hefur gert góđ skil á Skákhorninu. Sjálfur var ég staddur á Ólympíuskákmótinu og var ásamt Jóhanni Hjartarsyni staddur í herbergi ţar sem viđ horfđum á skákina beint á Netinu. Jóhanni leyst svona mátulega á 18. Rb5 taldi stöđuna of góđa fyrir svona leik! Leikurinn reyndist tćr snilld, sem og biskupsleikir í framhaldinu og úr varđ besta skák ársins ađ mati íslenskra skákáhugamanna.
Deila ársins
Hart var deilt um val á Ólympíuliđinu og fóru margir hart fram í gagnrýni sínu á SÍ og landsliđsţjálfarann fyrir ađ velja ekki Henrik í liđiđ. Henrik svarađi fyrir sig á réttan hátt, á skákborđinu sjálfu, og vann m.a. lokađ skákmót í Fćreyjum skömmu síđar.
Liđ ársins:
Liđ ársins eru íslensku landsliđin á Ólympíuskákmótinu. Frábćr frammistađa beggja liđa og fararstjórinn, ţađ er ég, var gífurlega stoltur af mínu fólki. Allir hćkkuđu á stigum en góđur andi einkenndi liđin. Sérstaklega var ég stoltur af kvennaliđinu, en ég tók ađ mér liđsstjórn međ ađeins dags fyrirvara, ţegar Davíđ forfallađist. Ţađ ţýddi ađ stelpurnar ţurftu ađ leggja enn meira á sig varđandi stúderingar og ákvörđunartöku og stóđu ţá plikt međ sóma!
Félagaskipti ársins
Félagaskipti margra ungra skákmanna úr TR og Helli yfir í Skákfélag Íslands vakti athygli.
Í fyrra sagđi ég Stefán Kristjánsson eiga félagaskipti ársins en hann gekk í Taflfélag Bolungarvíkur, sagđi sig úr félaginu eftir deilur viđ eigin liđsmenn.
Stefán tefldi samt međ sveitinni í síđari hlutanum í vor. Eiginlega samt ekki-félagaskipti ársins!
Efnilegasti skákmađur ársins
Ţađ er alltaf erfitt ađ velja efnilegasta skákmann ársins. Örn Leó Jóhannsson var hćkkunarkóngur ársins međ 144 stig. Dađi Ómarsson og Sverrir Ţorgeirsson stóđu sig vel á Haustmóti TR og sá síđarnefndi var međal sigurvegara ţess. Efnilegasti skákmađur ársins hlýtur hins vegar ađ vera Hjörvar Steinn Grétarsson sem sigrađi á nánast hverju einasta móti sem hann tók ţátt í á árinu og bar ţar hćst sigur hans á Skákţingi Reykjavíkur.
Skákkona ársins
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir kom verulega á óvart á Íslandsmótinu kvenna í skák ţar sem hún kom jöfn Lenku í mark.
En skákkona ársins 2010 er auđvitađ Lenka og ţá sérstaklega fyrir frammistöđu á Ólympíuskákmótinu ţar sem hún sló í gegn á fyrsta borđi. Hún náđi alţjóđlegum áfanga sem telur 20 skákir á Ól og hefur ţví náđ tilskyldum áföngum en ţarf ađ hćkka sig í 2400 til ađ verđa útnefnd. Lenka var einnig sannur leiđtogi í liđinu, hvatti liđsfélaga sína áfram. Fyrirmyndar liđsmađur.
Skákmađur ársins
Lenka kemur sterklega til greina sem skákmađur ársins ađ áđurnefndum ástćđum. Ég ćtla hins vegar ađ velja Hannes Hlífar sem skákmann ársins. Fyrsta borđs mađur íslenska landsliđsins sem stóđ sig svo vel. Náđi góđri frammistöđu á alţjóđlegu móti í St. Pétursborg. Sigrar hans á Íslandsmótinu og MP Reykjavíkurskákmótinu ráđu ţó mestu í vali ritstjóra.
Hér ćtla ég ađ nefna Ásgeir P. Ásbjörnsson sem tefldi sínar fyrstu kappskákir í einhverja áratugi. Hann tefldi fyrir Gođann og hlaut 3˝ vinning í fjórum skákum og komst ţar međ inn á stigalista afreksmanna, ţ.e.. ţeirra skákmanna sem hafa meira en 2300 skákstig og teljast virkir samkvćmt skilgreiningu FIDE.
Viđburđur ársins
Margir skemmtilegir viđburđir áttu sér stađ á árinu. Hellir stóđ fyrir unglingamóti í byrjun árs í samvinnu viđ skákstyrktarsjóđ Kópavogs.
TR stóđ fyrir afar skemmtilegu atskákmóti í samvinnu viđ CCP og MP banka ţar sem Jón L. kom sá og sigrađi. Viđburđur ársins hlýtur ţó ađ vera MP Reykjavíkurskákmótiđ sem tókst eins og áđur sagđi glimrandi vel
Taflfélag ársins
Ađ velja taflfélag ársins er erfiđara nú en oft áđur. Bolvíkingar urđu jú Íslandsmeistarar en voru ekki jafn ferskir í mótahaldi eins og oft áđur.
Eyjamenn halda uppi öflugu starfi og eru efstir á Íslandsmóti skákfélaga.
TR hélt flott CCP-MP mót og mjög góđ Haustmót og Skákţing Reykjavíkur. Félagiđ gaf út auk ţess mjög skemmtilegt afmćlisblađ.
Skákfélag Íslands kom sterkt inn í ár ţegar félagiđ sigrađi á Íslandsmóti unglingasveita međ sameiginlegu liđi ásamt Laugdćlum en ađ öđru leyti er starfsemin ekki komin í verulegan gang.
Og Víkingaklúbbnum tókst ađ komast í Kastljósiđ fyrir Víkingaskákina.
Ég ćtla samt ađ koma á óvart í ár og velja Gođann sem félag ársins. Gođinn hefur komiđ eins og ferskur andblćr í íslenskt skáklíf og lífiđ í kringum Íslandsmót skákfélaga vakti athygli. Ađ fá t.d. Einar Hjalta til ađ halda fyrirlestur í gegnum Skype er eftirtektarvert fyrir fjarstadda Gođamenn Og ţví má ekki gleyma ađ Gođinn var búinn til úr ekki neinu og sínum tíma og er hrein viđbót viđ íslenskt skáklíf.
Félagsmálamađur ársins
Annađ félag hefur vakiđ ţjóđarathygli fyrir skemmtileg skákmót og um ţau hefur veriđ fjallađ í heimildamynd og nýlega var mikil umfjöllun um félagiđ í Mogganum. Hér er veriđ ađ tala um Skákfélag Vinjar. Starfsemi félagsins er auk ţess gífurlega jákvćđ og sem fyrrum starfsmađur Kleppsspítala hef ég ávallt boriđ gífurlega virđingu fyrir starfi félagsins og sá árangur sem ţađ hefur náđ fyrir skjólstćđinga sína er ađdáunarverđur.
Kletturinn í starfi Vinjar, Arnar Valgeirsson, forseti félagsins, er félagsmálamađur ársins 2010 ađ mati ritstjóra.
Skáksíđa ársins
Skák.is
Atvik ársins
Atvik ársins, sem ritstjóri upplifđi er hins er ţegar Garry Kasparov trompađist á FIDE-ţinginu samanber eftirfarandi neđangreint og ţegar Larry frá Bermúda öskrađi til baka á hann (sjá eftir 2 mín.)
Prćssless.
Mynd ársins
Mynd ársins er tengd atviki ársins. Takiđ eftir álkulega manninum á hćgri hönd Kasparov.
Ummćli ársins:
Fáir skrifa á skemmtilegri hátt um skák en Helgi Ólafsson. Í afmćlisblađi TR skrifar hann mjög skemmtilega grein. Ein setning úr ţeirri grein, sem lýsir stíl Helga mjög vel, eru ummćli ársins ađ mati ritstjóra ţar sem hann lýsir ţegar hann og Jón L. tefldu í Stokkhólmi 1977:
Viđ tefldum á Rilton cup og okkur fannst mikiđ til ţess koma ţegar Jóni tókst ađ ná jafntefli viđ búlgarska stórmeistarann Spassov. Á gamlárskvöld sáum viđ stórmyndin King Kong"".
Hornverjar ársins
Áriđ 2009 var Áskels Arnar á Skákhorninu sem fór á kostum. Hornverji ársins 2010 er ađ mínu mati Halldór Grétar Einarsson sem gladdi skákáhugamenn međ skákskýringum oft og iđulega viđ góđar undirtektir og má ţar nefna í kringum Ólympíuskákmótiđ og skák ársins.
Fćrsla ársins
Áramótauppgjöriđ í fyrra verđur ađ teljast fćrsla ársins enda milljónasta fćrslan á Moggablogginu!
Ađ lokum
Skákáriđ 2010 var flott skákár. Ég á von góđu skákári í ár, ekki síđur. MP Reykjavíkurmótiđ stendur vonandi fyrir sínu og vonandi fáum viđ sterkt Íslandsmót á Egilsstöđum
Gleđilegt nýtt skákár!
Gunnar Björnsson
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
10.1.2011 | 10:16
Henrik og Guđmundur unnu í fjórđu umferđ í Dehli
Fjórđa umferđ alţjóđlega mótsins í Nýju-Dehli fór fram í nótt. Henrik Danielsen (2519) og Guđmundur Kjartansson (2379) unnu en Hannes Hlífar Stefánsson (2580) gerđi jafntefli. Allir tefldu ţeir viđ töluvert stigalćri andstćđinga. Henrik hefur 3˝ vinning, Hannes hefur 3 vinninga en Guđmundur hefur 2 vinninga. 16 skákmenn eru efstir og jafnir međ fullt hús. Síđari umferđ dagsins hefst kl. 11.
Ţá teflir Henrik viđ indverska alţjóđlega meistarann Nikil Shyam (2381) og gćti sú skák hugsanlega veriđ sýnd beint. Hannes og Guđmundur tefla viđ töluvert stigalćgri andstćđinga.
Á mótinu taka ţátt 407 keppendur. Ţar á međal eru 24 stórmeistarar. Hannes er nr. 10 í stigaröđ keppenda, Henrik nr. 17 og Guđmundur nr. 42.
- Heimasíđa indverska skáksambandsins
- Heimasíđa Skáksambands Nýju-Dehli
- Beinar útsendingar
- Chess-Results
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2011 | 17:06
Ţrefaldur sigur í ţriđju umferđ
Vel gekk hjá íslensku skákmönnunum í 3. umferđ alţjóđlega mótsins í Nýju Dehli og allir sigruđu ţeir í sínum skákum, reyndar allir gegn mun stigalćgri andstćđingum. Hannes Hlífar Stefánsson (2580) og Henrik Danielsen (2519) hafa 2,5 vinning en Guđmundur Kjartansson (2379) hefur 1 vinning. 34 skákmenn hafa enn fullt hús vinninga.
Á morgun verđa tefldar tvćr umferđir og hefst sú fyrri kl. 4:30 í nótt. Allir tefla ţeir viđ umtalsvert stigalćgri andstćđinga.
Á mótinu taka ţátt 407 keppendur. Ţar á međal eru 24 stórmeistarar. Hannes er nr. 10 í stigaröđ keppenda, Henrik nr. 17 og Guđmundur nr. 42.- Heimasíđa indverska skáksambandsins
- Heimasíđa Skáksambands Nýju-Dehli
- Beinar útsendingar
- Chess-Results
8.1.2011 | 19:09
Hannes, Henrik og Guđmundur ađ tafli í Nýju Dehli
Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2580) og Henrik Danielsen (2514) og alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2380) eru ađ tafli í alţjóđlegu móti í Nýju-Dehli í Indlandi. Eftir tvćr umferđir, sem fram fóru í dag, hafa stórmeistarinn Hannes og Henrik 1,5 vinning en Guđmundur er ekki kominn á blađ.
Á morgun fer fram ţriđja umferđ mótsins og heft hún kl. 9.
Á mótinu taka ţátt 407 keppendur. Ţar á međal eru 24 stórmeistarar. Hannes er nr. 10 í stigaröđ keppenda, Henrik nr. 17 og Guđmundur nr. 42.
Íslendingar erlendis | Breytt 9.1.2011 kl. 16:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2010 | 11:42
Henrik tapađi í lokaumferđinni
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) tapađi fyrir danska alţjóđlega meistaranum Jens Kristiansen (2421) í sjöundu og síđustu umferđ ŘBRO-nýársmótsins sem fram fór í gćr. Henrik hlaut 5 vinninga og endađi í 3.-11. sćti.
Sćnski stórmeistarinn Jonny Hector (2576) sigrađi á mótinu međ fullu húsi. Áđurnefndur Kristiansen varđ annar međ 6 vinninga.
Henrik tapar 2 stigum fyrir frammistöđu sína.
Alls taka 64 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 2 stórmeistarar, Henrik, sem er nćststigahćstur og Jonny Hector (2576), sem er stigahćstur, og tveir alţjóđlegir meistarar.
29.12.2010 | 23:09
Henrik tapađi fyrir Hector
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) tapađi fyrir sćnska stórmeistaranum Jonny Hector (2576) í fimmtu umferđ ŘBRO-nýársmótsins sem fór í dag. Henrik hefur 4 vinninga og er í 2.-8. sćti.
Hector er efstur međ fullt hús vinninga. Mótinu lýkur á morgun međ 2 umferđum og hefjast ţćr kl. 12 og 18. Í fyrri umferđinni teflir Henrik viđ danska FIDE-meistarann Igor Teplyi (2394).
Alls taka 64 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 2 stórmeistarar, Henrik, sem er nćststigahćstur og Jonny Hector (2576), sem er stigahćstur, og tveir alţjóđlegir meistarar.
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2010 | 23:53
Henrik vann í fjórđu umferđ í Köben - efstur ásamt Hector
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) vann danska FIDE-meistarann Per Nćsby Andreasen (2239) í fjórđu umferđ ŘBRO-nýársmótsins sem fór í dag. Henrik hefur fullt hús vinninga ásamt sćnska stórmeistaranum Jonny Hector (2576) og mćtast ţeir í fimmtu umferđ sem fram fer á morgun og hefst kl. 18.
Alls taka 64 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 2 stórmeistarar, Henrik, sem er nćststigahćstur og Jonny Hector (2576), sem er stigahćstur, og tveir alţjóđlegir meistarar.
28.12.2010 | 18:41
Henrik sigrađi í 3. umferđ - efstur međ fullt hús
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) vann Danann Alexander Rosenkilde (2190) í ţriđju umferđ ŘBRO-nýársmótsins sem fram fór í dag. Henrik hefur fullt hús og er eftur ásamt fjórum öđrum. Í fjórđu umferđ, sem hófst kl. 18, teflir Henrik viđ danska FIDE-meistarann Per Nćsby Andreasen (2239). Skákin er sýnd beint á vefsíđu mótsins.
Alls taka 64 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 2 stórmeistarar, Henrik, sem er nćststigahćstur og Jonny Hector (2576), sem er stigahćstur, og tveir alţjóđlegir meistarar.
19.12.2010 | 19:41
Henrik endađi í 4.-10. sćti í Bansko
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) gerđi jafntefli viđ ísraelska alţjóđlega meistarann Mikhail Zaslavsky (2424) í níundu og síđustu umferđ Bansko-mótsins em fram fór í dag. Henrik hlaut 6,5 vinning og endađi í 4.-10. sćti.
Árangur Henriks samsvarađi 2487 skákstigum og hćkkar hann 3 skákstig fyrir frammistöđu sína.
Sigurvegari mótsins varđ armenski stórmeistarinn Avetik Grigoryan (2580) en hann hlaut 8 vinninga, annar varđ ísraelski alţjóđlegi meistarinn Tamir Nabaty (2529) međ 7,5 vinning og ţriđji varđ búlgarski stórmeistarinn Grigor Grigorov (2479) međ 7 vinninga.
Alls tóku 114 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 10 stórmeistarar. Stigahćstur keppenda var búlgarski stórmeistarinn Igor Cheparinov (2668). Henrik var 10. í stigaröđ keppenda.
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 184
- Frá upphafi: 8764055
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 151
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar