Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, mars 2018

Skákţáttur Morgunblađsins: Adhiban Baskaran sigrađi á 33. Reykjavíkurskákmótinu

G2U12IUL1Fyrir síđustu umferđ 33. Reykjavíkurmótsins hafđi indverski stórmeistarinn Adhiban Baskaran ˝ vinnings forskot á Tyrkjann Mustafa Yilmaz og vinnings forskot á ţá sem nćstir komu ţar á eftir. Hann tefldi viđ Yilmaz og ţurfti ađeins jafntefli til ađ tryggja sigur sinn í mótinu og ţađ hafđist eftir 30 leikja baráttu og hlaut hann 7 ˝ vinning af níu mögulegum. Lengi vel var útlit fyrir ađ Hannes Hlífar Stefánsson nćđi 2. sćti ţví ađ hann stóđ til vinnings um tíma gegn Richard Rapport en missti ţráđinn og lauk skákinni međ jafntefli eftir 108 leiki.

Efstu menn: 1. Adhiban Baskaran 7 ˝ v. (af 9) 2.-3. Maxime Lagarde Frakkland ) og Mustafa Yilmaz (Tyrkland) 7 v.

17 skákmenn fengu 6 ˝ vinning ţ. á m. Hannes Hlífar Stefánsson. Hinn 13 ára gamli Indverji Nihal Sarin tapađi ađ vísu í lokaumferđinni en var ţá búinn ađ tryggja sér annan áfanga sinn ađ stórmeistaratitli og er ţađ mál manna ađ ekki ţurfi ađ bíđa lengi eftir lokaáfanganum. Indverjar hafa undanfarin ár sett mikinn svip á Reykjavíkurskákmótin.

Jóhann Hjartarson og Björn Ţorfinnsson komu nćstir íslenskra keppenda á eftir Hannesi, hlutu 6 vinninga af níu.

Indverjinn Adhiban Baskaran er sjöundi stigahćsti skákmađur Indverja um ţessar mundir en í fyrra vakti hann mikla athygli er hann varđ í 3.-7. sćti í Wijk aan Zee í fyrra á eftir Wesley So og Magnusi Carlsen og sigrađi ţar m.a. Sergei Karjakin. Lykilsigur sinn vann hann gegn stigahćsta keppandanum: 8. umferđ:

Adhiban Baskaran – Richard Rapport

Slavnesk vörn

1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. e4 b5 6. Be2!?

Peđsfórnin er ţekkt en í eina tíđ léku menn nćr alltaf ađ hćtti Kasparovs, 6. e5 Rd5 7. a4 o.s.frv.

6. ... e6 7. O-O Be7 8. a4 b4 9. e5 bxc3 10. exf6 Bxf6 11. bxc3 Ba6 12. Re5!

Snjall riddaraleikur sem svartur hefđi átt ađ svara međ 12. .... Rd7, t.d. 13. Rxc6 Dc7 međ flóknu miđtafli. Uppskiptin sem nú fara í hönd veikja mjög svörtu reitina í stöđu Rapports.

12. ... Bxe5? 13. dxe5 Dxd1 14. Hxd1 Rd7 15. f4 Rb6 16. Hd6 O-O 17. Bf3 Rc8?

Bćđi hér og áđur varđ svartur ađ verjast međ ţví leika riddaranum til d5.

18. Hxc6 Bb7

G2U12IUKP19. Hxc8!

Einföld leikflétta. Barátta hróka svarts gegn biskupaparinu í opinni stöđu er vonlaus.

19. ... Haxc8

20. Bxb7 Hb8 21. Ba6 Hb3 22. Ba3 Hd8 23. Bb4 Hd2 24. Bxc4 Hbb2 25. Bf1 h5 26. a5 a6 27. Bc5 g6

– og svartur gafst upp um leiđ.

 

Horft til elo-stiganna

G2U12IUKTŢó ađ vinningarnir tali sínu máli í ţessu móti sem taldi 248 keppendur á gríđarlegu styrkleikabili ţá miđa margir af yngri kynslóđinni meira viđ elo-stigaávinning heldur en vinningatölu. Ţessir hćkkuđu um meira en 50 elo-stig fyrir frammistöđu sína: Arnar Smári Signýjarson 90, Batel Haile Goitom 88, Baltasar Máni Wedholm 84, Birkir Ísak Jóhannsson 74, Benedikt Briem 73, Ísak Orri Karlsson 72, Björn Hólm Birkisson 66, Benedikt Ţórisson 65, Tómas Möller 64, Magnús Hjaltason 57, Óskar Víkingur Davíđsson 51, Arnar Heiđarsson 51. 

Nýr samningur

Ađalstyrktarađili 33. Reykjavíkurskákmótsins var fjárfestingafyrirtćkiđ GAMMA. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, og Agnar Tómas Möller, einn stofnenda GAMMA, skrifuđu á ţriđjudaginn undir samning um áframhaldandi kostun Reykjavíkurskákmótsins nćstu ţrjú árin.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 15. mars 2018

Skákţćttir Morgunblađsins


Hrađskákmótaröđ TR – Mót 3 fer fram 23. mars

Ţriđja mót Hrađskákmótarađar Taflfélags Reykjavíkur fer fram föstudagskvöldiđ 23.mars í skáksal TR ađ Faxafeni 12. Tafliđ hefst stundvíslega klukkan 19:30. Mótiđ er opiđ öllum skákmönnum međ yfir 2000 skákstig, eđa ţeim sem hafa einhverntíman á ferlinum rofiđ 2000 stiga múrinn. Mótsnefnd áskilur sér rétt til ţess ađ bjóđa völdum gestum undir 2000 stigum ađ tefla međ.

Tefldar verđa 11 umferđir međ tímamörkunum 3+2 og verđur mótiđ reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga. Frítt inn!

Dagskrá mótarađarinnar:

  • Mót 1: 26.janúar
  • Mót 2: 23.febrúar
  • Mót 3: 23.mars
  • Mót 4: 27.apríl

Mćlst er til ţess ađ skákmenn skrái sig í gegnum skráningarformiđ til ţess ađ auđvelda skipulagningu mótsins. Einnig verđur hćgt ađ skrá sig til leiks á skákstađ á mótsdegi en skráningu lýkur kl.19:20.

SKRÁNINGARFORM

SKRÁĐIR KEPPENDUR


Páskaeggjamót Taflfélags Reykjavíkur haldiđ á sunnudaginn

paskaeggja3_2015-14-2

Páskaeggjamót Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ sunnudaginn 25.mars. Mótiđ er opiđ öllum grunnskólabörnum í 1.-7.bekk. Sex umferđir verđa tefldar međ 4 mínútna umhugsunartíma og bćtast 2 sekúndur viđ tímann eftir hvern leik (4+2). Mótiđ verđur tvískipt ađ ţessu sinni og er dagskrá mótsins sem hér segir:

  • 1.-3.bekkur kl.12:30 – 14:30.
  • 4.-7.bekkur kl. 15:00 – 17:00.

Verđlaunapeningur og páskaegg verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í hvorum flokki. Ţá verđur jafnframt páskaegg í verđlaun fyrir efstu stúlkuna í hvorum flokki sem og fyrir efsta sćti í hverjum árgangi (2005-2011). Ađ móti loknu í hvorum flokki verđa tveir ţátttakendur dregnir út í happdrćtti og hljóta ţeir ađ launum páskaegg. Mikilvćgt er ađ hafa í huga ađ ţátttakendur geta mest fengiđ eitt páskaegg hver í mótinu, ţó er happdrćttiđ undanskiliđ ţeirri reglu.

Skráning fer fram í gegnum skráningarformiđ hér ađ neđan, en einnig má nálgast ţađ í gula kassanum á skak.is.

Skráningarform

Skráđir keppendur


Icelandic Open - Íslandsmótiđ í skák fer fram 1.-9. júní

hlidarendi01

Icelandic Open - Íslandsmótiđ í skák fer fram dagana 1.-9. júní nk. Teflt verđur Valsheimilinu viđ Hlíđarenda viđ frábćrar ađstćđur í veislusal hússins. Mótiđ fer eftir sama fyrirkomulagi og mótiđ 2013 í Turninum áriđ sem var 100 ára afmćlismót Skákţings Íslands. Ţá sigrađi Hannes Hlífar Stefánsson eftir ađ hafa lagt Björn Ţorfinnsson ađ velli í úrslitaeinvígi. Björn krćkti sér hins vegar í stórmeistaraáfanga á mótinu. Teflt verđur til minningar um Hemma Gunn - en hann einmitt lést á mótiđ fór fram í Turninum 2013. 

Veislusalir_vals

Mótiđ er opiđ öllum íslenskum sem og erlendum skákmönnum. Tefldar verđa 10 umferđir og má finna umferđartöflu mótsins hér. Hćgt er ađ taka tvćr hálfs vinnings yfirsetur í umferđum 1-7. 

Ţátttökugjöld eru 10.000 kr. Stórmeistarar og alţjóđlegir meistarar fá frítt. FIDE-meistarar og unglingar 16 ára og yngri fá 50% afslátt. 

Hemmi Gunn

Góđ verđlaun eru á mótinu eđa samtals €7.500 eđa um 950.000 kr. 

Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíđa mótsins sem eins og er ađeins á ensku. Hćgt er ađ skrá sig Skák.is (guli kassinn). Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig til leiks sem fyrst. 


Öđlingamót TR hefst í kvöld

Skákmót öđlinga 40 ára og eldri hefst miđvikudaginn 21. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. ađ Faxafeni 12. Tefldar verđa 7 umferđir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina  auk 30 sekúndna viđbótartími á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öđlinga er Björgvin Víglundsson.

Dagskrá:
1. umferđ miđvikudag 21. mars kl. 19.30
2. umferđ miđvikudag 28. mars kl. 19.30
3. umferđ miđvikudag 4. apríl kl. 19.30
4. umferđ miđvikudag 11. apríl kl. 19.30
5. umferđ miđvikudag 18. apríl kl. 19.30
6. umferđ miđvikudag 25. apríl kl. 19.30
7. umferđ miđvikudag 2. maí kl. 19.30

Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan.

Hrađskákmót öđlinga fer fram miđvikudaginn 9. maí kl. 19:30 og ađ ţví loknu fer ţar fram verđlaunaafhending fyrir bćđi mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í ađalmótinu og hrađskákmótinu.

Tímamörk
90 mín + 30 sek viđbót eftir hvern leik

Verđlaun
1. sćti kr. 40.000
2. sćti kr. 20.000
3. sćti kr. 10.000

Verđlaunafé verđur skipt eftir Hort-kerfi verđi keppendur jafnir ađ vinningum. Lokaröđ keppenda rćđst af mótsstigum (tiebreaks).

Röđ mótsstiga (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrđis viđureign 4. Sonneborn-Berger

Ţátttökugjald (greiđist međ reiđufé viđ upphaf móts)

kr. 5.000 – Innifaliđ er frítt kaffi allt mótiđ ásamt rjómavöfflum og öđru góđgćti á lokakvöldi

SkákstjórnŢórir Benediktsson – s. 867 3109 – thorirbe76@gmail.com

Skráningarform

Skráđir keppendur


Grischuk blandar sér í baráttuna eftir sigur á Kramnik

phpXGgFH1

Rússinn Alexander Grischuk (2767) blandađi sér í toppbaráttuna á áskorendamótinu í skák međ góđan sigur á Vladimir Kramnik (2800) í maraţonskák í gćr. Heimsmeistarinn fyrrverandi, sem hefur ekki náđ sér á strik, hefur tapađ ţremur skákum á mótinu. Öđrum skákum lauk međ jafntefli. Fabiano Caruana (2784) er efstur međ 5,5 vinning, Shakhriyar Mamedyarov (2808) er annar međ 5 vinninga og Grischuk er ţriđji međ 4,5 vinninga. Líklegast er ađ baráttan um ađ tefla heimsmeistaraeinvígi viđ Carlsen standi á milli ţessara ţriggja.

Clipboard01

Níunda umferđ hefst kl. 14 í dag. Ţá teflir Caruana viđ Ding Liren (2769), Mamedyarov mćtir Aronian (2794), sem hefur veriđ heillum hofirinn, og Grischuk viđ Wesley So (2799).

Áttunda umferđ hefst kl. 14 í dag. 

Sjá nánar á Chess.com

Myndir: Peter Doggers (Chess.com)

 


Páskeggjamót Hugins fer fram á mánudaginn

Páskaeggjamót Hugins verđur haldiđ í 26. sinn mánudaginn 26. mars 2018, og hefst tafliđ kl. 17, ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Páskaeggjamótiđ kemur í stađ mánudagsćfingar. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Mótiđ er opiđ öllum krökkum á grunnskólaaldri. Skráningarform verđur sett upp á skak.is og eru vćntanlegir ţátttakendur beđnir um ađ skrá sig til ađ auđvelda undirbúning mótsins. Mótiđ verđur reiknđ til alţjóđlegra hrađskákstiga.

Allir ţátttakendur keppa í einum flokki en verđlaun verđa veitt í tveimur ađskildum flokkum. Páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í eldri flokki (fćddir 2002 – 2004) og yngri flokki (fćddir 2005 og síđar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fćr einnig páskaegg sem og efstu ţrjár stúlkurnar á mótinu. Ađ auki verđa tvö páskaegg dregin út. Enginn fćr ţó fleiri en eitt páskaegg. Lítiđ páskaegg verđur svo fyrir ţá sem ekki vinna til verđlauna.

Páskaeggjamótiđ verđur haldiđ í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Lyfjaval í Mjódd en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins.


Meistaramót Ása í dag

Ţriđjudaginn 20 mars halda Ćsir í Ásgarđi sitt meistaramót. Tefldar verđa 10 umferđir međ 10 mín. umhugsunar tíma.Tafliđ byrjar stundvíslega kl 13.00. Allir karlar velkomnir sem verđa 60 ára á árinu og eldri.Einnig konur sem verđa 50 ára  og eldri. Skákstađurinn er Stangarhylur 4, félagsheimili eldri borgara í Reykjavík.              


Álfhólsskóli Íslandsmeistari grunnskólasveita (4.-7. bekkur)

20180318_133659

Álfhólsskóli a-sveit er Íslandsmeistari barnaskólasveita eftir sigur í gćr á jöfnu og skemmtilegu íslandsmóti sem haldiđ var í Rimaskóla um helgina. Ekki leit ţó lengi vel út fyrir ađ Álfhólsskóli myndi hirđa gulliđ ţví skólinn var ekki í verđlaunasćti eftir laugardaginn. Miklu munađi um ađ Róbert Luu sem kom inn í liđiđ og styrkti ţađ mikiđ og skólinn byrjađi á ađ vinna Rimaskóla stórt sem hafđi leitt keppnina fram ađ ţví. Ísak Orri Karlsson fékk samt flesta vinninga fyrir liđiđ eđa 7 alls. 

Íslandsmeistarasveitina skipuđu ţeir. Róbert Luu (3,5 af 4), Ísak Orri Karlsson (7 af 9), Rayan Sharifa (6 af 9), Alexander Már Bjarnţórsson (6 af 9) og Gabríel Sćr Bjarnţórsson (4 af 5).

Sveitirnar sem á eftir komu voru mjög jafnar:

Clipboard01 

20180318_133551 (1)

Hefđi í raun hver ţeirra sem var hafa hirt gulliđ á góđum degi. Ţćr voru a.m.k. mikiđ í ţví ađ hirđa stig af hvorri annarri. Háteigsskóli endađi í 2 sćti međ fleiri liđsstig en Vatnsendaskóli sem urđu jafnir ţeim ađ vinningum.

20180318_133432

 

Rima- og Ölduselsskóli urđu svo ekki langt undan. Háteigsskóli hafđi reyndar flest liđsstig allra liđa.

20180318_133027

Efsta b-liđiđ var b-liđ Vatnsendaskóla sem stal sigrinum í síđustu umferđ međ stórsigri og örugglega í efsta sćti c-liđa var c-liđ Rimaskóla sem endađi í 6. sćti keppninni allri.  

20180318_132905

 

Borđaverđlaun fengu fyrir 

20180318_133303

  • 1. borđ. Joshua Davíđsson Rimaskóla 6,5 vinningar.
  • 2. borđ. Tómas Möller Vatnsendaskóla 7,5 vinningar.
  • 3. borđ. Bjartur Ţórisson Austurbćjarskóla og Birgir Logi Steinţórsson Ölduselsskóla 8 vinningar.
  • 4. borđ. Kjartan Karl Gunnarsson Rimaskóla 7 vinningar. 

 

Lokastađan á Chess-Results.


Rúnar hrađskákmeistari Akureyrar

p1020167_1319287

Ţađ er skammt stórra högga á milli hjá FM Rúnari Sigurpálssyni. Eftir ađ hafa orđiđ Skákmeistari Akureyrar nýlega međ sigri í einvígi um titilinn, bćtti hann nú öđrum titli í safn sitt ţegar hann bar sigur úr býtum á Hrađskákmóti Akureyrar.  Ţar ţurfti reyndar líka aukakeppni til ađ útkljá mótiđ, ţví ţeir Rúnar og Áskell Örn Kárason urđu jafnir á mótinu sjálfu. Mjög góđ ţátttaka var á mótinu og tefldu 18 skákmenn einfalda umferđ, alls 17 skákir hver. Ţeir Áskell og Rúnar höfđu nokkra yfirburđi og fengu báđir 16 vinninga. Ólafur Kristjánsson var ţriđji međ 13,5; Símon Ţórhallsson fékk 13 og Jón Kristinn Ţorgeirsson 12,5. 

Ţeir tefldu svo tvćr skákir til úrslita; ţeirri fyrri lyktađi međ jafntefli en Rúnar vann ţá seinni og er ţví Hrađskákmeistari Akureyrar 2018; líklega í 55. sinn sem hann hampar ţeim titli.  

Lokastöđuna má sjá hér:


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 36
  • Sl. viku: 295
  • Frá upphafi: 8764826

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 165
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband