Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2016
22.8.2016 | 08:23
Meistraramót Hugins hefst eftir viku
Meistaramót Hugins (suđursvćđi) 2016 hefst miđvikudaginn 31. ágúst klukkan 19:30. Mótiđ er 7 umferđa opiđ kappskákmót sem lýkur 19. september. Leyft verđur ađ taka 2 yfirsetur í 1.-5. umferđ sem tilkynna ţarf um fyrir lok nćstu umferđar á undan. Vegleg og fjölbreytt verđlaun eru í bođi. Umhugsunartíminn verđur 1˝ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.
Mótiđ er öllum opiđ og er reiknađ til alţjóđlegra og íslenskra skákstiga. Skráning í mótiđ fer fljótlega af stađ á skák.is en einnig er hćgt ađ skrá sig međ ţví ađ hringja í skákstjóra s-866-0116 (Vigfús).
Skákdagar eru mánudagar, miđvikudagar og fimmtudagar en aldrei eru meira en tvćr umferđir í viku.
Ađalverđlaun:
- 50.000
- 40.000
- 30.000
Aukaverđlaun (miđađ er viđ alţjóđleg skákstig)
- Skákmeistari Hugins (suđursvćđi): Kr. 10.000.
- Besti árangur undir 2000 skákstigum: Skákbók hjá skákbóksölunni ađ verđmćti kr. 5.000.
- Besti árangur undir 1800 skákstigum: Skákbók hjá skákbóksölunni ađ verđmćti kr. 5.000.
- Besti árangur undir 1600 skákstigum: Skákbók hjá skákbóksölunni ađ verđmćti kr. 5.000.
- Besti árangur stigalausra: Skákbók hjá skákbóksölunni ađ verđmćti kr. 5.000.
- Unglingaverđlaun (15 ára og yngri), skákbćkur hjá skákbóksölunni ađ verđmćti: 1.vl. kr. 5.000, 2. og 3.vl. kr. 4000.
Ţátttökugjöld:
Félagsmenn kr. 3.500; ađrir 4.500-
Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.000; Ađrir 3.000.
Allir titilhafar fá frítt í mótiđ
Umferđartafla:
- 1. umferđ, miđvikudaginn, 31. ágúst, kl. 19:30
- 2. umferđ, fimmtudaginn, 1. september, kl. 19:30
- 3. umferđ, mánudaginn, 5. september, kl. 19:30
- 4. umferđ, miđvikudaginn, 7. september, kl. 19:30
- 5. umferđ, mánudaginn, 12. september, kl. 19:30
- 6. umferđ, fimmtudaginn, 15. september, kl. 19:30
- 7. umferđ, mánudaginn, 19. september, kl. 19:30
21.8.2016 | 22:04
Guđmundur vann í maraţonskák í fyrstu umferđ í Abu Dhabi
Alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2442) tekur ţátt í alţjóđlegu skákmóti sem hófst í dag í Abu Dhabi í Sameinuđu arabísku furstadćmunum. Guđmundur vann indversku skákkonuna Rucha Pujari (2137), sem er FIDE-meistari kvenna, í fyrstu umferđ í dag. Maraţonskák sem tók 105 leiki.
Í lokastöđunni féll hin indverska á tíma en ţó beiđ hennar ţađ erfiđa verkefni ađ verjast međ hróki gegn hróki biskupi Guđmundar.
Á morgun teflir Gummi viđ heimamanninn Saleh Salem (2617). Skákin verđur sýnd beint og hćgt ađ fylgjast međ í beinni. Umferđin hefst kl. 13
137 skákmenn frá 32 löndum taka ţátt í mótinu. Ţar á međal 40 stórmeistarar.
21.8.2016 | 21:51
EM ungmenna: Tómas, Vignir, Bárđur og Jón Kristinn unnu í dag
Fjórir vinningar komu í hús í dag í fjórđu umferđ EM ungmenna. Tómas Möller (u8), Vignir Vatnar Stefánsson (u14), Bárđur Örn Birkisson (u16) og Jón Kristinn Ţorgeirsson (u18) unnu sínar skákir.
Vignir Vatnar (u14) er efstur íslensku krakkanna međ 2˝ vinning. Tómas, Bárđur Örn og Jón Kristinn hafa 2 vinninga. Björn Hólm Birkisson (u16) hefur 1˝ vinning.
Úrslit 4. umferđar:
Stađan
Fimmta umferđ fer fram á morgun.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2016 | 12:57
Glćsilegt Minningarmót Birnu Norđdahl á Reykhólum: Lenka og Jón L. efst
Íslandsmeistarinn Lenka Ptáčníková og stórmeistarinn Jón L. Árnason sigruđu á Minningarmóti Birnu Norđdahl á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst. Keppendur komu hvađanćva af landinu og var mikil stemmning í íţróttahúsinu ţar sem mótiđ fór fram viđ frábćrar ađstćđur.
Mótiđ var haldiđ til ađ minnast Birnu E. Norđdahl (1919-2004) sem var brautryđjandi í kvennaskák á Íslandi. Birna var bóndi og listakona og fyrsta konan sem sögur fara af ađ hafi teflt á skákmóti hérlendis, áriđ 1940. Hún átti frumkvćđi og allan heiđur af ţví ađ íslensk kvennasveit fór í fyrsta skipti á Ólympíuskákmót, í Argentínu 1978.
Íslenskar landsliđskonur í skák voru heiđursgestir á mótinu á Reykhólum, og í ţeim hópi voru skákkonur sem tefldu međ Birnu á Ólympíumótum 1978 og 1980. Ţetta var hluti af upphitun kvennalandsliđsins fyrir Ólympíumótiđ í Bakú sem hefst eftir hálfa ađra viku.
Tefldar voru 8 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma og voru keppendur 37, ţar af fjórir stórmeistarar. Í kvennaflokki urđu Lenka Ptáčníková og Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir jafnar og efstar, en Lenka var hćrri á stigum. Guđlaug Ţorsteinsdóttir, sem varđ fyrst kvenna Íslandsmeistari, áriđ 1975, hreppti bronsiđ, en jafnar í 4.-7. sćti urđu Hrund Hauksdóttir, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Áslaug Kristinsdóttir og Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir. Ţćr Áslaug, Guđlaug og Sigurlaug voru allar í landsliđinu samtíđa Birnu, rétt eins og Svana Samúelsdóttir, sem tók núna ţátt í skákmóti eftir langt hlé.
Í karlaflokki urđu Jón L. og Jóhann Hjartarson efstir og jafnir, en Jón var hćrri á stigum. Í ţriđja sćti varđ Hannes Hlífar Stefánsson, sem mun leiđa sveit Íslands á Ólympíumótinu í Bakú sem hefst núna í byrjun september.
Hrund og Veronika fengu verđlaun fyrir bestan árangur 20 ára og yngri, og heimamađurinn Guđjón D. Gunnarsson (betur ţekktur sem Dalli) varđ efstur skákmanna međ 2000 skákstig eđa minna.
Vegleg peningaverđlaun voru veitt á mótinu. Verđlaun í kvennaflokki voru íviđ hćrri en hjá körlunum, og er ţađ algjör nýbreytni á skákmótum. Ţađ var ađ frumkvćđi Finns Árnasonar forstjóra Ţörungaverksmiđjunnar á Reykhólum, sem styrkti mótiđ međ verulegu fjárframlagi. Auk ţess tefldi Finnur á mótinu, ţó ađ árangur hans ţar hafi kannski ekki veriđ alveg í takti viđ peningaframlagiđ.
Fjölmenni var viđ setningu mótsins á Reykhólum í dag og ríkti afar góđur andi á mótinu. Samhliđa fór fram sýning á munum sem tengjast Birnu, bćđi listaverk eftir hana og verđlaunagripir hennar af skákmótum, sem og myndir sem tengjast sögu íslenskra skákkvenna.
Viđ setningu mótsins flutti Hlynur Ţór Magnússon sagnfrćđingur á Reykhólum ávarp, en hann var frumkvöđull ađ mótinu og skipuleggjandi ásamt Skákfélaginu Hróknum. Setningarávarpiđ flutti Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitastjóri Reykhólahrepps, og svo lék Birna E. Norđdahl, barnabarn skákdrottningarinnar, fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi Hlífari.
Mótiđ var afar skemmtilegt og spennandi frá upphafi og leikgleđin í fyrirrúmi. Heimamenn á Reykhólum og fjölskylda Birnu tóku virkan ţátt í hátíđinni og voru tvćr dćtur Birnu međal keppenda, ţćr Indiana Svala Ólafsdóttir og Anna María Ólafsdóttir.
Í mótslok ţakkađi Hrafn Jökulsson forseti Hróksins fjölskyldu Birnu, fólkinu á Reykhólum og í Reykhólahreppi, keppendum og bakhjörlum, en ţó sérstaklega Hlyni Ţór Magnússyni, fyrir frumkvćđiđ og frábćrt samstarf viđ skipulagningu hátíđarinnar.
Í tilefni af hátíđinni fćrđu Hrókurinn og Ţörungaverksmiđjan grunnskólanum á Reykhólum 10 taflsett ađ gjöf, og munu Hróksmenn efna til skákdaga í skólanum í haust. Mikill skákáhugi er međal barna og ungmenna á Reykhólum og tóku ţau virkan ţátt í hátíđinni.
21.8.2016 | 11:38
Ólympíufarinn: Omar Salama
Ólympíuskákmótiđ fer fram 2.-13. september nk. í Bakú í Aserbaísjan. Nítján manns verđa í sendinefnd Íslands. Fram ađ móti verđa Ólympíufararnir kynntir - einn á dag.
Í dag kynnum viđ til leiks Omar Salama sem verđur einn fimm íslenskra skákstjóra á stađnum.
Nafn?
Omar Salama
Aldur?
35
Hlutverk?
Ađstođar sector arbiter.
Uppáhalds íţróttafélag?
Valur
Hvernig er undirbúningi ţínum fyrir mótiđ háttađ?
Áriđ 2016 var ég međ fjögur dómaranámskeiđ í Kaíró, Monrovía, Stockholm og Kampala. Ég var yfirdómari Afríkumeistaramótanna í kappskák, atskák og hrađskák. Var líka dómari í Úganda í lók júlí. Held mér í skákformi međ ţví tefla á netinu daglega og og fylgjast mjög vel međ helstu elítuskákmótum.
Hvenćr tókstu fyrst ţátt á Ólympíuskákmóti og hversu oft hefur ţú tekiđ ţátt?
Fyrst var í Dresden 2008. Ţetta er í fjórđa skipti.
Getur ţú nefnt frćgan skákmann fćddan í Bakú?
Elmar Magerramov (ţjálfari Kasparov)
Minnisstćđasta atvik á Ólympíuskákmóti?
Í Tromsö í Noregi. Einn skákmađur mótmćlti ađ tefla á móti skákkonu af ţví ađ hún átti ekki ađ tefla í karlaflokki.
Er Kaspíahafiđ haf eđa stöđuvatn?
Rauđahafiđ ef ţađ er í bođi.
Minnisstćđa skák á Ólympíuskákmóti og af hverju?
Verđur tefld í Bakú.
Hverjar eru ţínar vćntingar/vonir um gengi íslensku liđanna?
Vonandi gengur vel og ţau nái hćrra sćti en siđastu árum.
Í ljósi ţess ađ Björn Ţorfinnsson er ekki í Bakú-hópnum hver verđur ađaltrúđur ferđarinnar?
Ţađ verđa margir. Og ţađ verđur sérstaklega gaman ađ fá KÖE međ í fyrsta skipti
Eitthvađ ađ lokum?
Ég held ađ ţađ verđur mest skemmtilegast og vel skipulagđ ólimpíumót hingađ til
20.8.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Tveir nýliđar í kvennaliđi Íslands á Ólympíumótinu í Baku
Lokaćfingin fyrir Ólympíumótiđ fer fram ţessa dagana í húsakynnum SÍ ţar sem stendur yfir keppni í landsliđsflokki kvenna og allar í ólympíusveitinni eru međ. Líklegt er ađ úrslit hafi ráđist á fimmtudagskvöldiđ en ţá vann Lenka Ptacnikova Guđlaugu Ţorsteinsdóttur. Ţćr höfđu báđar unniđ fyrstu ţrjár skákir sínar. Stađan fyrir síđustu umferđ sem fram fer í dag er ţessi:
1. Lenka Ptacnikova 4 v. (af 4) 2. Guđlaug Ţorsteinsdóttir 3 v. 3. 4. Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir 2 v. 5. Hrund Hauksdóttir 1 v. 6. Tinna Kristín Finnbogadóttir 0 v.
Í fjórđu umferđ mćttust einnig nýliđarnir Hrund og Veronika. Hrund vann Hallgerđi í fyrstu umferđ mótsins en í ţessari skák var uppbygging hennar gegn sikileyjarvörn ekki nćgilega markviss og Veronika leysti úr lćđingi mikinn kraft í eftirfarandi stöđu:
Skákţing Íslands 2016:
25. ... f4!
26. Dxf4 Rf3+!
27. Kf1 Dxf4
28. gxf4 Bc4+!
29. Bd3
Ekki 29. Re2 Hg1 mát.
29. .. Bxd3+!
og Hrund gafst upp ţar sem hún verđur hrók undir eftir 30. Hxd3 Hg1+ 31. Ke2 Rxd4+ og 32. ... Hxa1.
Minningarmót um Birnu Norđdahl
Ţađ er vel viđ hćfi í ađdraganda ólympíumótsins og ađ loknu Íslandsmóti kvenna ađ halda minningarmót um merkan brautryđjenda, Birnu Norđdahl. Mótiđ fer fram laugardaginn 20. ágúst ađ Reykhólum viđ Breiđafjörđ og hafa kunnir kappar á borđ viđ Friđrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason bođađ komu sína og ţátttöku. Tefldar verđa átta umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma.Birna Norđdahl, sem var bóndi og listamađur, dreif áfram af miklum krafti ţá hugsjón sína ađ íslenskar konur tćkju ţátt í ólympíuskákmótum. Henni tókst ćtlunarverk sitt og fyrsta íslenska kvennaliđiđ var sent á Ólympíumótiđ í Buenos Aires haustiđ 1978 Birna sem ţá var tćplega sextug tefldi á 3. borđi en ađrar í ţessari ólympíusveit Íslands voru Guđlaug Ţorsteinsdóttir, Ólöf Ţráinsdóttir og Svana Samúelsdóttir.
Skákfélagiđ Hrókurinn er ađal-skipuleggjandi minningarmótsins en nánari upplýsingar má finna á skak.is og hrokurinn.is.
So efstur á Sinquefield cup
Filippseyingurinn Wesley So vann Búlgarann Veselin Topalov í 6. umferđ stórmótsins í St. Louis og komst viđ ţađ í efsta sćtiđ. Tíu skákmennt taka ţátt í mótinu. Magnús Carlsen sá sér ekki fćrt ađ vera međ vegna undirbúnings fyrir heimsmeistaraeinvígiđ viđ Karjakin í New York í haust en stađan ţegar ţrjár umferđir eru eftir er ţessi:
1. So 4 v. (af 6) 2. 3. Anand og Topalov 3 ˝ v. 4. 8. Vachier Lagrave, Aronjan, Nakamura og Liren Dind 3 v. 9. Giri 2 ˝ v. 10. Svidler 1 ˝ v.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 13. ágúst 2016
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2016 | 11:23
Ólympíufarinn: Ingvar Ţór Jóhannesson
Ólympíuskákmótiđ fer fram 2.-13. september nk. í Bakú í Aserbaísjan. Nítján manns verđa í sendinefnd Íslands. Fram ađ móti verđa Ólympíufararnir kynntir - einn á dag.
Í dag kynnum viđ til leiks Ingvar Ţór Jóhannesson, liđsstjóra í opnum flokki.
Nafn?
Ingvar Ţór Jóhannesson stundum kallađur Zibbit eđa Xzibit vegna vals á notendanafni á skákţjóninum ICC í kringum aldamótin. Ţađ val var einmitt litaf af ást minni á geisladisknum At the speed of life međ meistara Xzibit. Ţar var lagiđ Paparazzi í miklum metum en ţađ hefur međal annars hljómađ í flutningi hóps íslenskra skákmanna í borgum eins og Dunkirk og Pardubice.
Aldur?
39 ára en mun yngri í anda mun
Hlutverk?
Liđsstjóri/Einvaldur í opnum flokki. Ég verđ líklegast beđinn um ađ ná í eitthvađ kaffi líka en ég er ađ vinna í ţví ađ semja um ađ útselja ţá vinnu.
Uppáhalds íţróttafélag?
Ćtli ţađ verđi ekki ađ vera Ţróttur Reykjavík ţótt ţađ taki ansi mikiđ á á köflum. Eins ber mađur hlýju til ýmissa skákfélaga.
Hvernig er undirbúningi ţínum fyrir mótiđ háttađ?
Fundarhöld og hittingar og passa ađ menn séu klárir í slaginn.
Hvenćr tókstu fyrst ţátt á Ólympíuskákmóti og hversu oft hefur ţú tekiđ ţátt?
Var liđsstjóri hjá kvennaliđinu 2014 í Tromsö sem er eina Ólympíuskákmótiđ en hef veriđ á tveimur Evrópumótum.
Getur ţú nefnt frćgan skákmann fćddan í Bakú?
Ég samdi nú einu sinni spurningu á pub quiz á Reykjavik Open sem hafđi mynd af Kasparov, Radjabov, Sutovsky og Elinu Danielian og spurt var hvađ ţau ćttu sameiginlegt
..sem er ţá vćntanlega ađ vera öll fćdd í Baku
Minnisstćđasta atvik á Ólympíuskákmóti?
Ţađ voru mörg skemmtileg atvik á síđasta Ólympíumóti en ţví miđur var ţađ heldur leiđinlegt atvik sem er minnisstćđast en ţađ var ţegar einn keppandi fékk hjartaáfall nokkuđ stutt frá ţar sem liđ okkar var ađ tefla í síđustu umferđ.
Ţađ var samt gaman ţegar viđ vorum í fótbolta nokkrir Íslendingar međ Magnusi Carlsen og fleiri stórmeisturum og MC kallađi Ingvar ţegar hann vildi fá sendingu ..sem hann auđvitađ fékk, vandađa innanfótar stođsendingu!
Er Kaspíahafiđ haf eđa stöđuvatn?
Ef einhver skýrir ţađ haf ţá verđ ég einfaldlega ađ treysta ţví!
Minnisstćđa skák á Ólympíuskákmóti og af hverju?
Hef hugsađ ţessa spurningu mikiđ en dettur engin ákveđin skák í hug. Eigum viđ ekki bara ađ segja ađ ţađ sé skákin ţar sem ađ litla stelpa frá Rwanda tapađi útaf zero tolerance en ţađ sýnir ađ ţar er á ferđinni ein versta regla skáksögunnar.
Hverjar eru ţínar vćntingar/vonir um gengi íslensku liđanna?
Ţađ er alltaf ágćtis viđmiđ ađ enda ofar á töflunni heldur en stigin gefa til kynna. Oft hefur líka veriđ ákveđiđ viđmiđ ađ vinna Norđurlandakeppnina ţađ er hinsvegar ansi erfitt núna međ Magnus Carlsen og félaga hjá Noregi. Fyrst og fremst vona ég ţó ađ ferđin verđi gagnleg fyrir yngri liđsmenn beggja sveita og ţeir nái ađ drekkja í sig ţekkingu og visku frá eldri liđsmönnum sem vonandi bćtir komandi kynslóđir (vá hvađ ţetta var klén og pólitísk setning!)
Í ljósi ţess ađ Björn Ţorfinnsson er ekki í Bakú-hópnum hver verđur ađaltrúđur ferđarinnar?
Í ljósi ţess hversu líkamsbyggingar okkar Björns samsvara sér vel tel ég eđlilegast ađ ég taki ađ mér fíflalćti og eftirhermur til ađ halda hópnum léttum. Annars eru menn almennt nokkuđ stríđnir ţannig ađ litlar áhyggjur ţarf ađ hafa af stemmningsleysi í hópnum.
Eitthvađ ađ lokum?
Ađ lokum legg ég til ađ lausaganga sauđfjár á Íslandi verđi bönnuđ!
20.8.2016 | 11:09
Útitafliđ: Heljarstuđ á Menningarnótt
Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir skákdagskrá á Menningarnótt. Klukkan 12:30 fer fram hiđ kunna Alheimsmót í Leifturskák ţar sem ţátttakendur eru ađeins međ eina mínútu á klukkunni. Í hverri umferđ ţarf ađ vinna tvćr skákir. Mótiđ er bođsmót međ tólf keppendum sem tefla allir viđ alla. Sex sterkir keppendur eru ţegar skráđir og geta ađrir áhugasamir sent ţátttökubeiđni á stebbibergs@gmail.com. Eftir Alheimsmótiđ eđa klukkan 14:00 fer fram Menningarnćturmótiđ í Heilinn og höndin. Heilinn og höndin er ţannig skák ađ tveir og tveir eru saman í liđi. Annar segir mann en hinn leikur. Skemmtilegt fyrirkomulag á skák sem hefur notiđ aukinna vinsćlda síđustu árin. Í hverju liđi mega heildarstig hvers pars ekki vera hćrri en 4500 FIDE- skákstig. Tefldar verđa fimm umferđir. Skráning á stebbibergs@gmail.com
Hátíđin fer fram viđ útitafliđ í Lćkjargötu.Á myndinni ađ neđan má sjá einn sterkasta Leifturskákmann landsins Jón Gunnar Jónsson ađ tafli. Jón er sigurstranglegur fyrir laugardaginn en ţađ er hinn eldsnöggi Halldór Brynjar Halldórsson frá Akureyri einnig.
19.8.2016 | 20:10
EM ungmenna: 4˝ vinningur í hús í dag
Önnur umferđ EM ungmenna fór fram í dag í Prag. Öllu betur gekk í dag en í gćr og kom 4˝ vinningur í hús í 11 skákum. Björn Hólm Birkisson (u16), Jón Kristinn Ţorgeirsson (u18), Freyja Birkisdóttir (u10) unnu í dag. Róbert Luu (u12), Vignir Vatnar Stefánsson (u14) og Bárđur Örn Birkisson (u16) gerđu jafntefli.
Vignir Vatnar (u14) er efstur íslensku krakkanna međ 1˝ vinning.
Úrslit 2. umferđar:
Ţriđja umferđ fer fram á morgun.
19.8.2016 | 18:30
Suzuki bílar (Helgi Áss) sigurvegarar Borgarskákmótsins
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sem tefldi fyrir Suzuki bíla sigrađi á 31. Borgarskákmótinu sem fram fór í Ráđhúsi Reykjavíkur á miđvikudaginn 17. ágúst sl. Ţá voru rétt tćp 30 ár síđan fyrsta Borgarskákmótiđ fór fram í Lćkjargötu á 200 ára afmćli Reykjavíkurborgar ţann 18. ágúst 1986. Helgi sigrađi alla andstćđinga sína og lauk móti međ 7 vinninga. Ţetta er í ţriđja sinn sem Helgi Áss sigrar á mótinu en nokkuđ langt er um liđiđ síđan ţví hann vann mótin 1992 og 1994. Suzuki bílar brutu hins vegar blađ í sögu keppninnar og voru fyrsta fyrirtćkiđ til ađ vinna mótiđ í tvisvar en ţeir höfđu áđur unniđ mótiđ 2008 en deildu ţá efsta sćtinu međ Ístak.
Formađur borgarráđs og stađgengill Borgarstjóra Sigurđur Björn Blöndal setti mótiđ, Ađ ţví loknu lék hann fyrsta leiknum í skák Jóhanns Hjartarsonar (Hlađbćr Colas hf) og Birkis Karls Sigurđssonar (Samhentir kassagerđ). Mótiđ í ár var vel sótt en alls tók 71 keppandi ţátt ađ ţessu sinni. Skráning í mótiđ fór hćgt ađ stađ og margir skráđu sig seint og sumir ekki fyrr en á skákstađ. Fyrirfram var gert ráđ fyrir ađ keppendur yrđu ekki fleiri en 70 og líklegur ţátttakendafjöldi vćri í kringum 60 og voru ađeins 36 skáksett á stađnum. Nokkuđ var um misröđun í settunum frá fyrri mótum ţannig ađ ađeins náđust 35 nokkuđ heil sett út úr ţeim töflum. Ţar í vantađi eina svarta drottningu og í snatri kveđinn upp sá úrskurđur á ţví borđi vćri svartur hrókur á hvolfi ígildi drottningar. Ţessi svarti hrókur á hvolfi gekk svo á milli borđa eftir umferđum eins og heita kartaflan sem enginn vildi hafa.
Átta titilhafar tóku ţátt í mótinu og fyrirfram mátti búast viđ harđri keppni ţeirra á milli um sigur á mótinu. Sú varđ líka raunin ţví ţeir tóku sjö af 10 efstu sćtunum. Ţrír titillausir keppendur komust á milli ţeirra. Ţeirra fremstur var skákdómarinn Omar Salama (Efling stéttarfélag) sem varđ annar í mótinu međ 6v eins og alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (Verkalýđsfélagiđ Hlíf) sem var ţriđji en Omar var sjónarmun á undan á stigum.
Yfir sjötíu ára aldursmunur var á yngsta og elsta keppenda mótsins ţeim Tryggva Jónssyni (8) og Magnúsi V. Jónssyni (83) sem á árum áđur var ţekktur knattspyrnudómari og stóđu ţeir báđir sig međ prýđi. Yngri skákmenn voru nokkru fćrri en oft áđur ţar sem 11 manna hópur fór á HM ungmenna daginn áđur. Ţeir sem heima sátu stóđu fyrir sínu en fremstur fór Oliver Aron Jóhannesson (Borgun hf) sem hlaut 5,5v. Skammt undan komu svo Jón Trausti Harđarson (Reykjavíkurborg) međ 5v og Örn Leó Jóhannsson (Sorpa) međ 4,5.
Af titillausum skákmönnum náđi Bragi Halldórsson (Hamborgarabúlla Tómasar) athygliverđum árangri međ ţví ađ lenda í 4 sćti međ 5,5v eins og Oliver Aron en Bragi hafđi 4. sćtiđ á stigum. Bragi tapađi ađeins fyrir sigurvegara mótsins og gerđi jafntefli viđ Oliver í lokaumferđinni en vann ađra andstćđinga. Sá ţriđji á titils sem var í topp 10 var Ögmundur Kristinsson (Ís-spor) sem fékk 5v.
Af stúlkunum stóđ Lenka Ptacniková (Hreyfill/Bćjarleiđir) sig best (4v), Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (Hlölla bátar) (4v) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (Góa/Linda sćlgćtisgerđ) (4). Ţađ verđur nóg ađ gera hjá ţeim ţví kvennalandsliđiđ fer í ćfingabúđir á Reykhólum um nćstu helgi og tekur ţátt í minningarmóti um Birnu Norđdahl á laugardaginn.
Töluverđur fjöldi áhorfenda var á mótinu, ţá ađallega túristar sem staddir voru í Ráđhúsinu og fylgdust spenntir međ af pallinum. Međan skákstjórar brugđu sér í mat fyrir mótiđ notuđ margir ţeirra tćkifćriđ og settust ađ tafli ţannig ađ ţeir komu til baka úr matnum voru túristar búnir ađ yfirtaka skáksalinn ţannig ađ annađ hvert borđ var setiđ og tiltölulega fáir túristar viđ landakortiđ.
Skákfélagiđ Huginn vill koma á framfćri ţökkum til allra ţeirra sem tóku ţátt, Borgarinnar fyrir ađ hýsa mótiđ, Taflfélagi Reykjavíkur fyrir samstarfiđ og síđast en ekki síst ţeim fjölmörgu fyrirtćkjum sem styrktu mótiđ.
Sjáumst ađ ári!
Lokastađan:
Röđ | Nafn | Stig | Fyrirtćki | Vinn. | BH. | |
1 | GM | Gretarsson Helgi Ass | 2450 | Suzuki bílar | 7 | 32˝ |
2 | Salama Omar | 2282 | Efling Stéttarfélag | 6 | 33˝ | |
3 | IM | Kjartansson Gudmundur | 2354 | Verkalýđsfélagiđ Hlíf | 6 | 32˝ |
4 | Halldorsson Bragi | 2175 | Hamborgarabúlla Tómasar | 5˝ | 32 | |
5 | FM | Johannesson Oliver | 2138 | Borgun hf | 5˝ | 27 |
6 | IM | Jensson Einar Hjalti | 2327 | Ölstofan | 5 | 32 |
7 | Kristinsson Ogmundur | 2075 | Ís-spor | 5 | 31˝ | |
8 | FM | Sigfusson Sigurdur | 2225 | N1 | 5 | 30˝ |
9 | GM | Hjartarson Johann | 2585 | Hlađbćr Colas hf | 5 | 30˝ |
10 | FM | Sigurpalsson Runar | 2303 | Húsasmiđjan hf | 5 | 30˝ |
11 | Bjornsson Bjorn Freyr | 2145 | Kvika Banki ehf | 5 | 30 | |
12 | Runarsson Gunnar | 2103 | Kópavogsbćr | 5 | 28˝ | |
13 | Halldorsson Halldor | 2223 | Sjóvá Tryggingafélag | 5 | 28 | |
14 | Hardarson Jon Trausti | 1942 | Reykjavíkurborg | 5 | 24˝ | |
15 | Thorsson Olafur | 2170 | Lucky records | 4˝ | 33 | |
16 | Johannsson Orn Leo | 2098 | Sorpa | 4˝ | 32˝ | |
17 | Gudfinnsson Saebjorn | 0 | Kentucky Fried Chicken | 4˝ | 29˝ | |
18 | Arnarsson Hrannar | 2073 | Iceland Travel | 4˝ | 26 | |
19 | WGM | Ptacnikova Lenka | 2089 | Hreyfill/Bćjarleiđir hf | 4 | 30 |
20 | Thorsteinsdottir Hallgerdur | 1943 | Hlölla bátar | 4 | 27˝ | |
21 | Bjornsson Gunnar | 2105 | Mjólkursamsalan | 4 | 27˝ | |
22 | Andrason Pall | 1953 | Arion Banki | 4 | 27 | |
23 | Bergsson Stefan | 2073 | Hvalur hf | 4 | 27 | |
24 | Maack Kjartan | 2197 | Íslandspóstur | 4 | 26 | |
25 | Bjornsson Sverrir Orn | 2057 | Grillhúsiđ Tryggvagötur | 4 | 26 | |
26 | Mamak Wojciech | 1953 | 4 | 26 | ||
27 | Johannsson Hjortur Yngvi | 1613 | 4 | 25˝ | ||
28 | Finnlaugsson Gunnar | 2070 | Starfsmannfelag Reykjavíkurborggar | 4 | 25˝ | |
29 | Sigurdsson Arnljotur | 1868 | 4 | 24˝ | ||
30 | Eliasson Kristjan Orn | 1860 | Landsbankinn | 4 | 22 | |
31 | Kolka Dawid | 1735 | Malbikunarstöđin Höfđi | 4 | 21˝ | |
32 | Johannsdottir Johanna Bjorg | 1966 | Góa/Linda sćlgćtisgerđ | 4 | 21˝ | |
33 | Haraldsson Sigurjon | 1754 | Hótel Borg | 3˝ | 31 | |
34 | Berndsen Birgir | 1892 | Tapas barinn | 3˝ | 25˝ | |
35 | Magnusson Thorlakur | 1760 | ÍTR | 3˝ | 24˝ | |
36 | Ulfljotsson Jon | 1625 | Kaupfélag Skagfirđinga | 3˝ | 24 | |
37 | Sigurdsson Birkir Karl | 1802 | Samhentir kassagerđ | 3˝ | 24 | |
38 | Palsson Halldor | 1930 | Olís hf | 3˝ | 22˝ | |
39 | Helgi Petur Gunnarsson | 0 | 3˝ | 22 | ||
40 | Davidsson Oskar Vikingur | 1466 | Íslandsstofa | 3˝ | 21˝ | |
41 | Thorsson Pall | 1790 | AKA Ísaga | 3 | 31 | |
42 | Sigurdsson Snorri Thor | 1955 | Verkís hf | 3 | 25 | |
43 | Hauksson Hordur Aron | 1805 | Grafía | 3 | 24 | |
44 | Haraldsson Oskar | 1775 | Slökkviliđ höfuđborgarsvćđisins | 3 | 23˝ | |
45 | Magnusdottir Veronika Steinun | 1525 | 3 | 22 | ||
46 | Mai Alexander Oliver | 1480 | 3 | 22 | ||
47 | Mai Aron Thor | 1714 | Valitor | 3 | 21˝ | |
48 | Angantysson Asgrimur | 0 | 3 | 21 | ||
49 | Sigurvaldason Hjalmar | 1511 | 3 | 19˝ | ||
50 | Viglundsson Jon | 0 | 3 | 18 | ||
51 | Davidsson Stefan Orri | 1211 | 3 | 17 | ||
52 | Finnsson Finnur | 1498 | 3 | 17 | ||
53 | Ragnarsson Heimir Pall | 1433 | 3 | 16 | ||
54 | Fivelstad Jon Olav | 1758 | 2˝ | 25 | ||
55 | Haraldsson Gunnar Orn | 1740 | Gámaţjónustan hf | 2˝ | 24 | |
56 | Plantada Siurans Estanislau | 1463 | 2˝ | 22 | ||
57 | Jonsson Robert Leo | 1633 | 2˝ | 22 | ||
58 | Asgrimsson Olafur Sigurbj | 0 | Landsvirkjun hf | 2˝ | 18˝ | |
59 | Jonasson Hordur | 1421 | 2˝ | 18 | ||
60 | Agnarsson Ingi | 0 | 2 | 25 | ||
61 | Thoroddsen Arni | 1584 | 2 | 24˝ | ||
62 | Jonatansson Sigurdur Freyr | 1583 | 2 | 24 | ||
63 | Einarsson Oskar Long | 1675 | Guđmundur Arason Smíđajárn | 2 | 22 | |
64 | Jonsson Sveinbjorn | 1635 | 2 | 19 | ||
65 | Ingveldarson Thorvaldur Kari | 0 | 2 | 18 | ||
66 | Johannesson Petur | 1278 | 2 | 17 | ||
67 | Petursson Magnus V. | 0 | 2 | 16˝ | ||
68 | Haile Batel Goitom | 0 | 1 | 19˝ | ||
69 | Kristbergsson Bjorgvin | 1212 | 1 | 17˝ | ||
70 | Jonsson Tryggvi | 0 | 1 | 17˝ | ||
71 | Jonsson Arni Bjartur | 0 | 1 | 17˝ |
Nánar á Chess-Results.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 1
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 8778232
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar