Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, mars 2015

Skákţáttur Morgunblađsins: Metfjöldi á Reykjavíkurskákmóti

Friđrik - KasparovTćplega 300 skákmenn eru skráđir til leiks á Reykjavíkurskákmótinu sem verđur sett í Hörpu í dag. Ţađ er mesti fjöldi sem um getur í sögu mótsins sem fyrst var haldiđ í Lídó í vetrarbyrjun áriđ 1964. Á 50 ára afmćlismótinu í fyrra voru keppendur 254 talsins. Mótiđ í ár er ađ ţessu sinni tileinkađ Friđriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga, sem varđ 80 ára fyrr á ţessu ári. Hann var međal keppenda á fyrsta mótinu 1964.

Keppnisfyrirkomulagiđ er međ hefđbundnu sniđi, tefldar verđa tíu umferđir en keppendur geta óskađ eftir ˝ vinnings yfirsetu í einni af sjö fyrstu umferđunum. Tímamörk gera ráđ fyrir ţví ađ eftir hvern leik bćtist 30 sekúndur viđ tímann, ţ.e. 90 mínútur + 30 sekúndur á fyrstu 40 leikina og eftir ţađ 30 mínútur + 30 sekúndur til loka skákar. Međal nýmćla er ađ nú má ekki bjóđa jafntefli fyrr en báđir keppendur hafa lokiđ 30 leikjum. Ţetta ákvćđi er í takt viđ ţróun alţjóđlegra skákviđburđa og kemur í veg fyrir stutt jafntefli án baráttu.

Ţá geta ţátttakendur ekki komiđ međ síma á skákstađ eđa önnur slík tćki en vegna svindlmála og almennrar tortryggni á keppnisstađ hefur alţjóđaskáksambandiđ FIDE nýlega samţykkt strangar reglur sem leggja blátt bann viđ notkun slíkra tćkja. Taflmennskan hefst kl. 15 flesta keppnisdagana nema nćsta fimmtudag ţegar tefldar verđa tvćr umferđir. Sú fyrri hefst kl. 10 um morguninn og seinni skák ţess dags hefst kl. 17. 

Öflugir keppendur – pollrólegur Perúmađur

Stigahćsti keppandinn á Reykjavíkurskákmótinu er Aserinn Shakriyar Mamedyarov sem er međ 2.756 elo-stig og er sem stendur nr. 13 á heimslistanum. Nćststigahćsti keppandinn er Tékkinn David Navara sem er međ 2736 elo og er í 22. sćti á heimslistanunm. Ţriđji stigahćsti keppandinn er svo Úkraínumađurinn Pavel Eljanov sem er međ 2.727 elo-stig og er í 27. sćti á heimslistanum. Fjölmargir ađrir ţekktir skákmenn og -konur eru međal ţátttakenda. Má ţar nefna Artur Jusupov sem nú teflir fyrir Ţjóverja og tefldi síđast hér á landi áriđ 1990 en hann var ţá í liđi Sovétríkjanna sem tók ţátt í Stórveldaslag VISA ásamt úrvalsliđum Norđurlanda, Bandaríkjanna og Englands. 

Granda Zuniga, sterkasti skákmađur Perú um áratuga skeiđ, teflir í fyrsta sinn hér á landi en á ólympíumótinu í Bled í Slóveníu áriđ 2002 vakti hann mikla athygli sérlegs ađstođarmanns íslenska liđsins, Gunnars Eyjólfssonar leikara, fyrir einhverja mögnuđustu hugarró sem hann hafđi orđiđ vitni ađ hjá skákmanni.

Međal annarra keppenda má nefna Armenann Sergei Movsesian. Ţekktasta skákkonan í keppendahópnum er indverska skákdrottningin Tania Sadchev.

Hannes Hlífar Stefánsson og Hjörvar Steinn Grétarsson eru stigahćstir íslensku stórmeistaranna en einnig eru í hópi keppenda Héđinn Steingrímsson, Henrik Danielssen, Stefán Kristjánsson og Ţröstur Ţórhallsson. Ađrir öflugir skákmenn eru brćđurnir Björn og Bragi Ţorfinnssynir, Jón Viktor Gunnarsson, Guđmundur Kjartansson og Dagur Arngrímsson. Ţá mun athyglin einnig beinast ađ yngstu ţátttakendunum en einn ţeirra, nýbakađur Norđurlandameistari ungmenna, Dagur Ragnarsson, hćkkađi milli mánađa um tćplega 300 elo-stig á síđasta stigalista FIDE. 

Heimsmeistarinn vill komast í fótbolta

Magnús Carlsen, heimsmeistari í skák, er vćntanlegur til landsins á föstudaginn og Magnus í Amsterdamdvelur hér fram á mánudag. Hann kemur hingađ til ađ fylgjast međ föđur sínum Henrik Carlsen sem tekur ţátt í mótinu annađ áriđ í röđ og einnig vini sínum og hjálparhellu til margra ára, Jon Ludvig Hammer. Á bloggsíđu sinni minnist Magnús ţess ađ hann hafi teflt á Reykjavíkurmótunum 2004 og aftur 2006. Frćgđ hans náđi nýjum hćđum í Noregi ţegar hann tefldi nokkrar skákir međ styttri umhugsunartíma viđ Garrí Kasparov og Anatolí Karpov á Reykjavik rapid-mótinu sem fram fór í kjölfar Reykjavíkurmótsins í mars 2004. 

Ekkert liggur fyrir um dagskrá heimsmeistarans en hann verđur hér í einkaerindum. Hann hefur ţó óskađ eftir ţví ađ komast í fótbolta enda ágćtur í ţeirri grein og eftir ađ hann varđ heimsmeistari haustiđ 2013 var hann fenginn til ađ taka fyrsta sparkiđ í heimaleik Real Madrid, sem er uppáhaldsliđ hans í spćnska boltanum. 

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 7. mars 2015.

Skákţćttir Morgunblađsins


7. umferđ Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 15

Reykjavíkurskákmótiđ er í fullum gangi og 7. umferđ hefst kl. 15. Margt verđur á bođstólnum í dag, skákskýringar, magnađar viđureignir, barna-blitz og kannski kemur heimsmeistarinn aftur!

Barna-Blitz

Átta ungir skákmenn hafa unniđ sér inn sćti í úrslitunum og mćta á sviđiđ í Hörpu á sunnudaginn klukkan 12:00.

Teflt verđur međ útsláttarfyrirkomulagi og dregiđ í hverja umferđ.

Tefldar verđa tvćr skákir í hverri umferđ og svo armageddon skák.

Keppendur:

  • Vignir Vatnar Stefánsson TR
  • Alexander Mai TR
  • Mykhaylo Kravchuk TR
  • Róbert Luu TR
  • Nansý Davíđsdóttir Fjölnir
  • Óskar Víkingur Davíđsson Huginn
  • Stefán Orri Davíđsson Huginn
  • Halldór Atli Kristjánsson Huginn

Heimsmeistarinn

Heimsmeistarinn í skák, GM Magnús Carlsen, heimsćkir mögulega skákstađ og kemur kannski í útsendingu ef vel liggur á kappanum. Kemur í ljós!

Skákskýringar

Stórmeistarinn og fv. heimsmeistari ungmenna, GM Jón Loftur Árnason, mćtir kl. 17 eđa ţar um bil og greinir helstu álitamál í skákum dagsins fyrir áhorfendum á skákstađ.

Spennandi viđureignir

Af nógu er ađ taka ţegar kemur ađ spennandi viđureignum í 7. umferđ.

Á 1. borđi mćtast stórmeistararnir Erwin L´ami (2605) og Shakhriyar Mamedyarov (2756). Shak ćtlar sér vafalaust sigur og forystu í mótinu - lognmolla kemur ekki til greina!

Á 2. borđi mćtast GM Alexandr Fier frá Brasilíu og Pavel Eljanov (2727). Eljanov mćtir vafalaust fullur ákveđni til leiks, enda ţurft ađ sćtta sig viđ jafntefli gegn stigalćgri mönnum í síđustu tveim umferđum.

Á 3. borđi er svo okkar mađur - GM Hannes Hlífar Stefánsson, sem ţrisvar hefur unniđ ţetta sögufrćga mót. Hann hefur hvítt á stórmeistarann Zuniga Julio E Granada (2646) frá Perú, og getur mögulega blandađ sér í hóp efstu manna, takist honum ađ leggja ţann perúíska ađ velli.

Á 5. borđi er baráttujaxlinn IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) en hann hefur hvítt á GM Eric Hansen (2566) frá Kanada. Jón Viktor hefur stađiđ sig gríđar vel í mótinu og kemur til međ ađ taka ţann kanadíska föstum tökum.

Margar fleiri viđureignir eru í bođi og hćgt er ađ rannsaka ţćr nánar hér.

porun_7umf

 

Útsendingar

FM Ingvar Ţór Jóhannesson og WIM Fiona Steil-Antoni verđa sem fyrr í myndveri og skýra okkur frá gangi mála af mikilli snilld. Útsendingin verđur hér.

Mörgum skákum er varpađ beint á internetiđ og er hćgt ađ skođa ţćr hér.

Stuttmyndir Vijay Kumar

Meistarinn Vijay Kumar framleiđir stuttmyndir eftir hverja umferđ og eru ţćr ađgengilegar á Youtube-síđunni hans - Hún er hér.

Myndasafn

Fiona Steil-Antoni hefur tekiđ mikiđ magn ljósmynda sem ađgengilegar eru á Facebook-síđu mótsins hér.


Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus hefst í dag

Páskaeggjasyrpa

Nú styttist í eina af skemmtilegustu mótasyrpum ársins!  Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur sló rćkilega í gegn í fyrra ţegar vel á annađ hundrađ krakkar tóku ţátt í ţremur mótum syrpunnar.  Í ár endurtökum viđ leikinn og međ ţessu framtaki vill T.R. í samstarfi viđ Nóa Síríus ţakka ţeim gríđarlega fjölda sem sótt hefur barna- og unglingaćfingar félagsins í vetur.

Frábćrar ađstćđur eru hjá Taflfélagi Reykjavíkur, margir reyndir ţjálfarar og félagiđ býđur eitt félaga upp á ítarlegasta námsefni sem völ er á hér á landi. Allar ćfingar og allt námsefni er frítt, ţađ ţarf bara ađ mćta og taka ţátt í ţessum stórskemmtilegu ćfingum!

Mtin í ár verđa reiknuđ til alţjóđlegra hrađskákstiga og glćsileg verđlaun eru í öllum mótunum, sem og fyrir samanlagđan árangur úr ţeim öllum.  Í hverju móti verđur síđan dregin út glćsileg DGT Easy skákklukka handa einum heppnum ţátttakanda.


Páskaeggjasyrpan mun samanstanda af ţremur skákmótum sem haldin verđa ţrjá sunnudaga fyrir páska í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12:

1. NÓA KROPP PÁSKAEGGJAMÓTIĐ. Sunnudaginn 15. mars kl. 14

2. NIZZA LAKKRÍS PÁSKAEGGJAMÓTIĐ. Sunnudaginn 22. mars kl. 14

3. NIZZA HRÍSKÚLU PÁSKAEGGJAMÓTIĐ. Sunnudaginn 29. mars kl.14

  • Keppt verđur í tveimur flokkum, 1-3 bekk (og yngri) og 4-10 bekk.
  • Sex umferđir verđa tefldar í hverju móti međ 10 mínútna umhugsunartíma á mann.
  • Glćsileg verđlaun eru í bođi fyrir alla hressu skákkrakkana sem taka ţátt í syrpunni!
  • Verđlaunapeningar fyrir ţrjú efstu sćtin í hvorum flokki á hverju páskaeggjamóti.
  • Stór páskaegg fyrir ţrjú efstu sćtin samanlagt úr mótunum í hvorum flokki (misstór eftir sćtum)
  • Allir sem taka ţátt í minnst tveimur af ţremur mótum í syrpunni fá lítiđ páskaegg í verđlaun fyrir ţátttökuna og verđa ţau veitt í lok ţriđja mótsins í syrpunni.
  • Dregin verđur út ein stórglćsileg DGT Easy skákklukka handa heppnum skákkrakka á hverju páskaeggjamóti!

Skráning fer fram hér og lista yfir skráđa keppendur má sjá hér.

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til ađ sjá ykkur á PÁSKAEGGJASYRPUNNI 2015!


Reykjavíkurskákmótiđ: Ţrír efstir međ 5,5 - Hannes Hlífar og Jón Viktor efstir íslendinga

Ţađ er ekki ađ sökum ađ spyrja ţegar skák, Reykjavík, Íslensku veđurfari, Magnúsi Carlsen og Hörpunni er hrćrt saman – Afraksturinn er frábćr.

Fyrir umferđ dagsins var Shakhriyar Memedyarov (2756) einn efstur međ fullt hús og virtist líklegur til ađ stinga af međ sigurinn. Svo fór ekki, en hann fékk mun verra tafl gegn tékkanum David Navara (2736) og má teljast heppinn ađ hafa haldiđ jöfnu. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen skýrđi skákina í myndveri ásamt Fionu Steil-Antoni og var nokkuđ viss um svartan sigur í viđureigninni.

mamedyarov_navara

Hér taldi Magnús ađ einfaldast vćri ađ leika a4 og mynda frípeđ á a-línunni – eftirleikurinn yrđi tćknileg úrvinnsla, svo góđa taldi hann stöđu svarts. En David Navara hafđi ađrar hugmyndir. Hann lék hér 23.. Rg4? Og Re3? í framhaldinu.

 

mamedyarov_navara1

 

Riddarinn á e3 er friđhelgur vegna 25. fxR Dxe+ og Hc1 í framhaldi. Hugmynd Navara virtist ganga út á ađ hvítur svari Re3 (síđasta leik) međ Rf3, ţá á svartur drottningarfórn, Dxe4!. Taki hvítur drottninguna á e4, kemur Hc1 međ máti.

En lífiđ er ekki svona auđvelt – Shak lék einfaldlega Dd3 og stöđuyfirburđir svarts eru eđ engu orđnir – fljótlega var samiđ jafntefli.

 

Magnús mćtti í myndver

Líkt og kom fram ađ ofan ţá mćtti heimsmeistarinn í myndver og rćddi um Ísland, skák, pabba sinn sem teflir bara einu sinni á ári – Í Reykjavíkurskákmótinu! Og fór yfir skákirnar og allskonar.

 

Stađan

Eftir sex umferđir eru ţrír skákmenn efstir og jafnir međ 5,5 vinninga. Ţeir eru:

  • GM Alexandr Fier (2601) frá Brasilíu
  • GM Shakhriyar Memedyarov (2756) frá Aserbćjan
  • Og GM Erwin L´ami (2605) frá Hollandi

stadan_eftir_6

 

Íslendingar eiga tvo fulltrúa í 4.-12. sćti:

GM Hannes Hlífar Stefánsson (2560) en hann lagđi alţjóđameistarann Razvan Preotu (2447) í dag. Hannes hefur hvítt á stórmeistarann Zuniga Julio E Granda (2646) á morgun og getur blandađ sér í hóp efstu manna međ góđum úrslitum.

 Hinn er ađ sjálfsögđu alţjóđameistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2443) sem hefur átt gríđarlega gott mót og gerđi baráttujafntefli í dag viđ ofurstórmeistarann Hrant Melkumyan (2676). Jón Viktor verđur međ hvítt gegn stórmeistaranum Eric Hansen (2566) frá Kanada á morgun og getur fariđ langt međ ađ tryggja sér stórmeistaraáfanga međ hagstćđum úrslitum, skilji greinarhöfundur reglurnar rétt.

Stöđuna má skođa nánar hér.

 

Skáksýring

Ţađ er orđninn fastur liđur ađ renna yfir skákir Jóns í ţessum pistlum og á ţví er engin breyting:

Jón Viktor Gunnarsson (2443) heldur áfram góđu gengi á mótinu. Í umferđ dagsins var hann međ svart gegn stórmeistaranum Hrant Melkumyan (2676) frá Armeníu. Jón Viktor svarađi 1. d4 byrjun Hrants međ grjótgarđsafbrigđi hollensku varnarinnar. Í útsendingunni kom fram ađ Jón Viktor hefur líklega aldrei teflt ţetta afbrigđi áđur, enda virtist byrjunin koma hr. Hrant nokkuđ á óvart.

  1. d4 e6 2. g3 f5 3. Bg2 Rf6 4. c4 d5

hrant_jonviktor_stodumynd

Grjótgarđurinn

  1. Rh3 c6 6. 0-0 Bd6 7. Bf4 0-0 8. Bxd6 Dxd6 9. Rd2 Rbd7 10. e3 b6 11. Rf4 Re4 12. Rxe4 fxe4 13. Hc1 Bb7 14. Hc3 Rf6 15. h4 dxc4 16. Dc2 e5 17. dxe5 Dxe5 18. Hxc4 Ba6

hrant_jonviktor_stodumynd1

Förum hratt yfir sögu. Hvítur teflir fast og leysir upp miđborđ svarts međ tvöfaldri skiptamunsfórn! – Ţegar ţarna var komiđ viđ sögu var ţrefaldi heimsmeistarinn, hr. Magnús Carlsen í myndverinu međ Fionu Steil-Antoni og leyst hreint út sagt ekki vel á svörtu stöđuna.

  1. Hxe4 Rxe4 20. Bxe4 Bxf1 21. Bxh7+ Kf7

hrant_jonviktor_stodumynd2

Hvítur hefur fórnađ tvennum skiptamunum, en stađa svarts er viđ ţađ ađ falla saman. Hér taldi Magnús Carlsen ađ stađan vćri töpuđ fyrir svartan, óhugsandi vćri ađ hann nćđi ađ virkja hrókana sína og hvítur ćtti auđvelt međ ađ vinna eitthvađ af peđum svarts og skiptamun til baka.

  1. Kxf1 Df6 23. Bf5 Hfd8 24. Be6+ Ke7 25. Dxc6 Hd1+ 26. Kg2 Had8 27. h5 H1d6

hrant_jonviktor_stodumynd3

Hvítur hefur saumađ ađ svörtu stöđunni og fátt virđist koma í veg fyrir hvítan sigur. Magnús Carlsen sagđi hér ađ hvítur ćtti allt of marga góđa leiki í stöđunni – Hann nefndi t.d. 28. Db7+ Ke8 29. Dxa7 sem dćmi um einfalt plan og afskrifađi svartan endanlega.

En ţá gerđist eitthvađ. Hvítur hugsađi sig um í smá tíma og lék 28. Rg6+?? – Ţessu var umsvifalaust svarađ međ 28.. Kxe6! og svartur er allt í einu međ tvo hróka gegn riddara, einum riddara! Vitni sem stóđ yfir borđinu ţegar Hrant áttađi sig á hvađ hann hafđi gert lýsti atvikinu sem svo: „Hann varđ bara stjarfur, setti hendurnar um andlitiđ og var ţannig í svona 5 mín áđur en hann skrifađi leikinn hans Jóns“

Ţađ sem er merkilegast, ef svo má ađ orđi komast, er ađ Hrant (hvítur) átti 15 mínútur eftir á klukkunni en Jón Viktor rúma eina mínútu – Líklega hefur Hrant falliđ í ţá gildru ađ ćtla ađ pressa á svartan, leika hratt og flćkja tafliđ í ţeirri von ađ svartur myndi leika af sér. Hann kolféll á eigin bragđi.

Stađan var vitanlega gjörunnin á svart eftir ţetta, en Jón Viktor átti eftir ađ leika 11 leiki ţar til 40 leikjum var náđ, en ţá bćtast viđ 30 mínútur. Hann gaf annann hrókinn fyrir riddarann og hélt sér fast ţar til viđbótartíminn bćttist viđ.

  1. Rg6+?? Kxe6 29. Dc4 Kd7 30. Da4+ Hc6 31. Da7+ Hc7 32. Da3 Dc6+ 33. Kh2 Dc5 34. Da4+ Kc8 35. Da8+ Kd7 36. Df3 Dg5 37. Rf4 Hf8 38. De2 Hxf4 39. exf4 Dd5 40. Dg4+ Kd8

hrant_jonviktor_stodumynd4

Stađan virđist vera unnin, en ţađ er miklu meira en ađ segja ţađ ţegar mađur situr viđ borđiđ. Eitt feilspor og hvítur nćr annađ hvort ţráskák ţar sem svarti kóngurinn á lítiđ skjól, eđa peđ hvíts á kóngsvćngnum rúlla af stađ upp borđiđ – Hér ţarf ađ vanda sig.

  1. f5 Hf7 42. Dg5+ Kd7 43. G4 De5+ 44. Kg2 Dxb2 45. De3 Df6 46. Kh3 Dd6 47. Db3 He7 48. Da4+ Dc6 49. Db3 b5 50. Kg3 Dc4

hrant_jonviktor_stodumynd5

Svartur virđist vera ađ ná tökum á stöđunni – Nú ţarf bara ađ virkja hrókinn og tjaldiđ fellur. Ţađ er hins vegar ekki eins auđvelt og ţađ sýnist. Til viđbótar var tíminn af skornum skammti.

  1. Df3 De4 52. Da3 Ke8 54. Kh3 Dd5 55. Kh4 De5 56. Kh3 Dd5 57. Kh4 De5 ˝ ˝

hrant_jonviktor_stodumynd6

Tíminn var á ţrotum og ţví var ţráleikiđ – jafntefli stađreynd. Gríđarleg baráttuskák hjá okkar manni sem hefđi auđveldlega getađ tapast hefđi ekki veriđ fyrir afleik hvíts. Hvítur spennti bogann hátt og varđ bráđrćđi sínu ađ bráđ. Úrslitin eru Jóni afar hagstćđ og hann á góđa möguleika á ađ ná sínum 3. Stórmeistaraáfanga á mótinu.

Hrant Melkumyan (2676) ˝ ˝ Jón Viktor Gunnarsson (2443

 

Óvćnt úrslit

Af nógu er ađ taka í flokknum óvćnt úrslit líkt og venjulega.

Stórsigrar dagsins:

  • Kristján Eđvarđsson (2176) vann IM Victor C Shen (2401)
  • Símon Ţórhallsson (2009) vann FM Stig Tjomsland (2300)
  • Loftur Baldvinsson (1945) vann NM Hans M Niemann (2275)
  • Hörđur Jónasson (1562) vann David Kenney (1885)
  • Óskar Víkingur Davíđsson (1454) vann William Olsen (1716)

 

Árangur Kristjáns Eđvarđssonar vekur athygli en hann er nú búinn ađ vinna ţrjár skákir í röđ og er ađ vinna 40 skákstig! Kristján mćtir stórmeistara á morgun, GM Pouya Idani (2496) sem er sá ţriđji sem hann mćtir í mótinu.

Símon Ţórhallsson (2009) er ađ fara á kostum og hefur einnig unniđ ţrjár skákir í röđ. Í 6. umferđ lagđi hann FM Stig Tjomsland (2300) frá Noregi og er ađ moka inn heilum 77 skákstigum. Símon hefur svart á IM Alina L´ami (2393) á morgun og ćtlar sér vafalaust stóra hluti.

Loftur Baldvinsson (1945) hefur líka unniđ ţrjár í röđ og er ađ grćđa 35 stig. Hann lagđi NM Hans M Niemann (2275) í dag og hefur svart á FM Lars Oskar Hauge (2380) á morgun – nú er ađ vanda sig!

Hörđur Jónasson (1562) hefur fengiđ 2,5 úr síđustu 3 og er ađ grćđa tćp 15 stig. Hann mćtir Jens Erik Kofoed Hald (2069) á morgun og heldur vonandi áfram góđu gengi!

Óskar Víkingur hefur átt gott mót og er 45 stig í plús! Hann mćtir Ludwig Roser (1802) á morgun og heldur pottţétt áfram ađ tefla vel.

 

Óvćnt úrslit 6. umferđar

  1. GM Rui Gao (2533) ˝ ˝ GM Pavel Eljanov (2727)
  2. GM Hrant Melkumyan (2676) ˝ ˝ IM Jón Viktor Gunnarsson (2443)
  3. Zbigniew Pakleza (2498) ˝ ˝ GM Sergei Movsesian (2665)
  4. IM Dagur Arngrímsson (2366) ˝ ˝ GM Héđinn Steingrímsson (2530)
  5. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2554) ˝ ˝ IM Justin Sarkar (2376)
  6. GM Sabino Brunello (2540) ˝ ˝ IM Alina L´ami (2393)
  7. GM Sahaj Grover (2519) ˝ ˝ WGM Sarasadat Khademalsharieh (2357)
  8. IM Vladimir Hamitevici (2450) 0-1 FM Tibor Kende Antal (2317)
  9. WGM Nino Maisuradze (2302) 1-0 IM Bragi Ţorfinnsson (2429)
  10. Kristján Eđvarđsson (2176) 1-0 IM Victor C Shen (2401)
  11. WGM Lenka Ptacníkóvá (2242) ˝ ˝ GM Ralf Akesson (2456)
  12. Ansgar Barthel (2230) 1-0 FM Einar Hjalti Jensson (2390)
  13. Örn Leó Jóhannsson (2107) ˝ ˝ Dagur Ragnarsson (2347)
  14. Roland Loos (2337) 0-1 Tor Gulbrandsen (2095)
  15. Stefán Bergsson (2063) ˝ ˝ Philipp Hitzler (2315)
  16. Benjamin Haldorsen (2307) ˝ ˝ Alberto Prieto (2045)
  17. Símon Ţórhallsson (2009) 1-0 FM Stig Tjomsland (2300)
  18. Loftur Baldvinsson (1945) 1-0 NM Hans M Niemann (2275)
  19. Yuri Eijk (2062) ˝ ˝ IM Marin Daniel Pulvett (2434)
  20. IM Vladimir Poley (2269) 0-1 Tom Skovgaard (2042)
  21. Jón Kristinsson (2251) ˝ ˝ Matthew Lunn (2034)
  22. Haraldur Haraldsson (1948) ˝ ˝ FM Richard Bjerke (2180)
  23. Jón Trausti Harđarson (2170) ˝ ˝ Joerg Mehringer (1955)
  24. Agnar T Möller (1806) ˝ ˝ Erhard Rueger (2133)
  25. Jens Weichelt (2132) 0-1 Ben Simpson (1843)
  26. Dagur Kjartansson (1756) ˝ ˝ Ludo Tolhuizen (2123)
  27. Gregory Lux (2065) ˝ ˝ Bartosz Miszkielo (1694)
  28. Dag Andersen (1843) ˝ ˝ WFM Qiyu Zhou (2182)
  29. Stanislav Gschwendtner (2009) ˝ ˝ Tommy Hansen (1807)
  30. Per Kr Vigdal (1985) 0-1 Tobias Lang Nielsen (1761)
  31. Hrund Hauksdóttir (1692) ˝ ˝ Ole Jorn Gyldenas (1969)
  32. Hans K. Gaarder (1701) 1-0 Kris Klausen (1937)
  33. August Klofsrud (1571) ˝ ˝ Martin Sandberg (1889)
  34. Hörđur Jónasson (1562) 1-0 David Kenney (1885)
  35. Sigurđur Ingason (1880) 0-1 Wojciech Babijczuk (1549)
  36. Birgir Örn Steingrímsson (1669) ˝ ˝ Dawid Kolka (1875)
  37. Halldór Atli Kristjánsson (1335) ˝ ˝ Ludwig Roser (1802)
  38. Óskar Víkingur Davíđsson (1454) 1-0 William Olsen (1716)
  39. Susan E Chadwick (1370) 1-0 Elmar Fjallheim (1678)
  40. Karl-Johan Rist (1677) ˝ ˝ Jon Thor Lemery (1273)
  41. Alec Elías Sigurđarson (1348) ˝ ˝ Nikulás Valgeirsson (1000)

 

Pörun í 7. Umferđ

Pörun í 7. Umferđ liggur fyrir:

porun_7umf

Pörunina má skođa nánar hér.

 

 

 


6. umferđ Reykjavíkurmótsins hefst kl. 15. - Magnus Carlsen mćtir í myndver

6. umferđ Reykjavíkurmótsins hefst kl. 15.. Ţetta er ekki umferđin til ađ missa af ţví nóg verđur um ađ vera.

Magnús Carlsen í myndveri

Heimsmeistarinn Magnús Carlsen mćtir í myndver og rćđir um skákirnar og vafalaust allt og ekkert međ Fionu-Steil Antoni og Ingvari Ţór Jóhannessyni. Ţví verđur ađ sjálfsögđu útvarpađ á netiđ, en ţeir sem eiga heimangengt í Hörpu geta fylgst međ á stađnum.

Skákskýringar

Stórmeistarinn Jóhann Hjartarsson mćtir um kl. 17 og fer yfir stöđu mála í heyranda hljóđi. 

Reykjavík Open Blitz

Reykjavik Open Blitz fer fram í kvöld í Hörpu. Skráning og móttaka ţátttökugreiđslna er í Hörpu einungis frá 14:00 - 16:00. Ekki verđur skráđ rétt fyrir mót. Mótiđ hefst svo stundvíslega í Hörpu klukkan 22:00. 

Tefldar verđa níu umferđir međ 4 02 - 4 mínútum á klukkunni og 2 viđbótarsekúndum á hvern leik. 

Ţátttökugjald er kr. 1.500 (sem greiđist viđ skráningu) og fer meirihluti í verđlaun.

Fjölmargir hliđarviđburđir fara fram međfram skákmótinu og eru auglýstir sérstaklega á heimasíđu mótsins.

Pörun í 6. umferđ

Margar spennandi viđureignir verđa í 6. umferđ:

rodun_6_umferd

Pörun er hćgt ađ skođa nánar hér.

Útsendingar

Beinar útsendingar eru hér (skákirnar) og hér (sjónvarp).

Minnt er á myndasafn mótsins á Facebook síđunni en fjölmargar myndir eru komnar ţar inn, m.a. frá Pub Quizinu í gćrkveldi. 

Ţá eru skákir til og međ 4. umferđ ađgengilegar á heimasíđu mótsins.

Stuttmyndir Vijay Kumar

Stuttmynd Vijay Kumar úr 5. umferđ er komin! Hćgt er ađ skođa eldri myndbönd á Youtube-síđu hans hér.


Reykjavik Open Blitz fer fram í kvöld í Hörpu

Reykjavik Open Blitz fer fram í kvöld í Hörpu. Skráning og móttaka ţátttökugreiđslna er í Hörpu einungis frá 14:00 - 16:00. Ekki verđur skráđ rétt fyrir mót. Mótiđ hefst svo stundvíslega í Hörpu klukkan 22:00. 

Tefldar verđa níu umferđir međ 4 02 - 4 mínútum á klukkunni og 2 viđbótarsekúndum á hvern leik. 

Ţátttökugjald er kr. 1.500 (sem greiđist viđ skráningu) og fer meirihluti í verđlaun.


Barna Blitzi frestađ

Úrslitum Barna Blitzins sem átti ađ hefjast í dag kl. 12 hefur veriđ frestađ vegna veđurs. Ţađ fer fram á morgun á sama tíma, ţ.e. hefst kl. 12.


Reykjavíkurskákmótiđ: Shakhriyar Mamedyarov efstur međ fullt hús - Jón Viktor vann Grandelius

Nóg var um ađ vera á Reykjavíkurskákmótinu í dag. Sex skákmenn voru međ fullt hús fyrir umferđina en ađeins einn 100% mađur stóđ eftir ađ henni lokinni – Stórmeistarinn Shakhriyar Hamid oglu Mammadyarov (2756) sem jafnframt er stigahćsti mađur mótsins.

 

stadan_5umf

Stöđuna má skođa nánar hér.

Ţađ kom í hlut stórmeistarans íslenska, Hjörvars Steins Grétarssonar ađ etja kappi viđ Shak ađ ţessu sinni og reynist ţađ hlutskipti okkar manni erfitt. Svo virđist sem Hjörvar hafi lent í stöđulegum fingurbrjót og fékk fljótlega tapađ tafl. Shak mćtti í myndver og skýrđi skákina fyrir Fionu Steil-Antoni.

Norđmađurinn ungi – IM Aryan Tari (2509) átti góđa skák í dag gegn FM Kazim Gulimali. Hann mćtti einnig í myndver og fór yfir skákina međ Ingvari.

 

Líkt og fyrri daginn var talsvert af óvćntum úrslitum. Á 2. borđi mátti stórmeistarinn Pavel Eljanov (2727) sćtta sig viđ jafntefli viđ IM Jacek Stopa (2544) eftir ađ hafa veriđ međ betra. Ţá er norđmađur nr. 2, GM Jon Ludvig Hammer (2651) líklega ósáttur viđ jafntefli gegn IM Taniu Sachdev (2404). Okkar mađur, stórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2530) ţurfti einnig ađ sćtta sig viđ jafntefli, gegn kvennstórmeistaranum međ langa nafniđ, WGM Sarasadat Khademalsharieh (2357).

En ţađ var okkar mađur, IM Jón Viktor Gunnarsson sem stal senunni í dag eins og í gćr, en nú lagđi hann svíann GM Nils Grandelius (2603) eftir hárbeitta sókn.

jon_viktor_gawain_jones

GM Gawain Jones og IM Jón Viktor etja kappi í 4. umferđ

IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) hefur fariđ mikinn í Reykjavíkurmótinu og reyndar mótum almenn á ţessu ári og teflir eins og sá sem valdiđ hefur. Varla ţarf ađ minna á jafntefli viđ GM David Navara í 3. umferđ og sigur gegn GM Gawain Jones í ţeirri 4.. Í dag tefldi Jón viđ sćnska stórmeistarann Nils Grandelius (2603). Upp kom Sikileyjarvörn, n.t.t. scheveningen afbrigđi sem kennt er viđ hverfiđ Scheveningen í Belgíu og einkennist af leikjaröđinni 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6. Leikjaröđin var reyndar ađeins öđruvísi í skák dagsins, en niđurstađan verđur sú sama.

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. Be2 Dc7 8. Dd2 b5 9. a3 Bb7 10. f3 Rc6 11. g4 Be7 12. g5 Rd7 13. h4 Rce5 14. 0-0-0 Rb6

jon_viktor_stodumynd1

Skákstíll Jóns í Reykjavíkurskákmótinu einkennist af gríđarlegu sjálfstrausti og áhyggjuleysi – hann einfaldlega teflir stöđuna og er til í ađ sanna ađ hann sé betri en andstćđingurinn. Ákvörđunin sem hann tekur í stöđunni er afar lýsandi – 15. Rdxb5!. Leikurinn hefur aldrei sést áđur í stöđunni, en ţemađ er vel ţekkt. Sem dćmi má nefna ađ fórnin ţekkist vel í Sveshnikov afbrigđi Sikileyjarvarnar og vafalaust fleiri afbrigđum sem greinarhöfundur kann ekki skil á. Hugmyndin er ađ sjálfsögđu ađ gefa mann fyrir ţrjú samstćđ frípeđ og leika ţeim svo upp borđiđ ţar til eitt ţeirra kemst í mark.

15..axb5 16. Rxb5 Dc6 17. Bxb6 Dxb6 18. Rxd6+ Bxd6 19. Dxd6 Dxd6 20. Hxd6

jon_viktor_stodumynd2

Áćtlun hvíts gekk upp og ţrjú samstćđ frípeđ eru stađreynd.

20.. Ke7 21. Hhd1 Hhc8 22. c3 Bc6 23. h5 Rd7 24. H1d2 Ha5 25. g6

jon_viktor_stodumynd3

Svartur hefur gert ţađ sem hann getur til ađ stöđva framgöngu frípeđana á drottningarvćngnum og sćkir nú á veikleika hvítu stöđunnar á kóngsvćng. Hvítur verđur ađ gefa peđ en heldur sókn sinni áfram. Álitamál er hvort svartur hafi tíma til ađ sćkja veika peđiđ á h5 – ţađ á eftir ađ koma í ljós.

25.. Hxh5 26. gxf7! Rf8 27. b4 Hh1+ 28. Kb2 h5 29. Ba6 Hc7 30. b5!

jon_viktor_stodumynd4

Nú kemur í ljós ađ svarti hrókurinn á h1 er eins og álfur út úr hól – Svartur vann sannarlega peđ (kannski), en fórnarkostnađurinn reyndist hár. Drottningarvćngurinn er ađ falla saman. Eftir b5 á Biskupinn á c6 enga góđa reiti og Nils ákveđur ađ hann verđi ađ gefa hann fyrir peđ – eitt peđ!

30.. Bxb5 31. Bxb5 h4 32. a4 h3 33. Hd1 Hh2+ 34. H6d2 Hxd2+ 35. Hxd2

jon_viktor_stodumynd5

Hvítur er tveim peđum yfir og stađan hlýtur ađ vera vonlaust fyrir svartan – Hann reynir ţó ađ klóra í bakkann.

35.. Rg6 36. a5 Re5 37. a6 Rxf3??

jon_viktor_stodumynd6

Tempó eru dýrmćt. Svartur hafđi ekki tíma til ađ taka peđiđ á f7 ţví áćtlun hvíts er svo einföld – leika peđunum upp borđiđ. Svartur reyndi ađ virkja riddarann sinn sem var á f8 og hefur nú drepiđ peđ á f3 – hann ber ţá von í brjósti ađ honum takist ađ leika h2 og búa sér til mótspil. Ţađ er um seinan. Hvítur á einfalda vinningsleiđ sem Jón Viktor sá ađ sjálfsögđu, ţrátt fyrir talsvert tímahrak.

38. Hf2! Hc5 39. c4 gefiđ.

jon_viktor_stodumynd7

39.. Hh5 dugar ekki. Hvítur vekur einfaldlega upp peđ (40. F8=D) sem verđur ađ drepa og leikur t.d. a7 og peđiđ fer upp í borđ.

IM  Jón Viktor Gunnarsson (2443) 1-0 GM Nils Grandelius (2603)

 

Óvćnt úrslit

Engin skortur er á óvćntum úrslitum. Okkar fólk átti ađ sjálfsgöđu vćna sneiđ af ţeirri köku:

IM Jón Viktor átti ađ sjálfsögđu „stćrsta“ sigurinn í ţeirri kategoríu en viđ eigum fleiri.

Aron Thor Mai (1320), sem gerđi jafntefli viđ rúmlega 1700 stiga mann í gćr (4. umferđ) bćtti um betur og gerđi nú jafntefli viđ rúmlega 1800 stiga mann. Hann er ađ bćta viđ sig rúmlega 40 stigum og á greinilega nóg inni!

Hilmir Freyr Heimisson (1861) vann góđan sigur gegn rúmlega 2100 stiga manni, í annađ skiptiđ í mótinu sem hann gerir slíkt. Hann er ađ moka inn stigum og er í rúmlega 60 stiga gróđa eins og er.

Stelpurnar eru ađ standa sig afar vel. Ţannig náđu Veronika Steinun, Hrund Hauksdóttir, Ulker Gasanova og Nansý allar góđum úrslitum og eru ađ standa sig afar vel. Veronika Steinun er ađ bćta viđ sig 80 skákstigum!

Fjölmargir ađrir eru vitanlega ađ standa sig afar vel. Ţeirra árangur má skođa nánar hér.

 

Stórsigrar dagsins:

  • Kristján Eđvarđsson (2176) vann IM Marin Daniel Pulvett (2434)
  • Símon Ţórhallsson (2009) vann Magnus Wahlbom (2278)
  • Loftur Baldvinsson (1945) vann Max Arnold (2189)
  • Hilmir Freyr Heimisson (1861) vann Gonzales Alfonso Gonzalez (2122)
  • Agnar T Möller (1806) vann WGM Sabinu-Fransescu Foisor (2279)
  • Veronika Steinun Magnúsdóttir (1571) vann Ólaf Gísla Jónsson (1889)
  • Hrund Hauksdóttir (1692) vann Sven Erik Lurdalen (1824)

 

Óvćnt jafntefli dagsins:

  • Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2230) gerđi jafntefli viđ GM Ralf Akesson (2456)
  • Páll G Jónsson (1833) gerđi jafntefli viđ Gunnar Stray (2065)
  • Dagur Kjartansson (1756) gerđi jafntefli viđ Tom Skovgaard (2042)
  • Guđmundur Kristinn Lee (1676) gerđi jafntefli viđ Gauta Pál Jónsson (1968)
  • Birkir Karl Sigurđsson (1767) gerđi jafntefli viđ Kris Klausen (1937)
  • Ulker Gasanova (1645) gerđi jafntefli viđ Martin Sandberg (1889)
  • Nansý Davíđsdóttir (1641) gerđi jafntefli viđ David Kenney (1885)
  • Birgir Örn Steingrímsson (1669) gerđi jafntefli viđ Michael Marshall (1844)
  • Aron Thor Mai (1320) gerđi jafntefli viđ John Nicholson (1808)
  • Og Joshua Davíđsson (1261) gerđi jafntefli viđ Pal Nordquelle (1559)

 

Óvćnt úrslit 5. umferđar

  1. GM Pavel Eljanov (2727) ˝ ˝ IM Jacek Stopa (2544)
  2. IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) 1-0 GM Nils Granelius (2603)
  3. WGM Sarasadat Khamdemalsharieh (2357) ˝ ˝ GM Héđinn Steingrímsson (2530)
  4. IM Tania Sachdev (2404) ˝ ˝ GM Jon Ludvig Hammer (2651)
  5. IM Justin Sarkar (2376) 1-0 GM Allan Rassmussen (2532)
  6. Grant W Bucher (2087) ˝ ˝ GM Ţröstur Ţórhallsson (2428)
  7. GM Ralf Akesson (2456) ˝ ˝ Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2230)
  8. IM Marin Daniel Pulvett (2434) 0-1 Kristján Eđvarđsson (2176)
  9. IM Gerard Welling (2355) ˝ ˝ Jason Kenney (2104)
  10. Eivind X Djurhuus (2077) 1-0 GM Johannes Haug (2339)
  11. Magnus Wahlbom (2278) 0-1 Símon Ţórhallson (2009)
  12. Ragnar Edvardsen (2001) ˝ ˝ Jón Kristinsson (2251)
  13. Joerg Mehringer (1955) ˝ ˝ FM Ali Morshedi (2211)
  14. Pawel Babijczuck (1950) 1-0 Thomas Scho-Moldt (2211)
  15. Loftur Baldvinsson (1945) 1-0 Max Arnold (2189)
  16. WFM Qiyu Zhou (2182) 0-1 Michael T Masungwini (1972)
  17. Hrafn Loftsson (2171) ˝ ˝ Peter Korning (1944)
  18. Gerd Densing (1903) ˝ ˝ Adam Brzezinski (2150)
  19. Hilmir Freyr Heimisson (1861) 1-0 Gonzalez Gonzalez Alfonso (2122)
  20. Páll G Jónsson (1833) ˝ ˝ Gunnar Stray (2065)
  21. Eric De Winter (1776) ˝ ˝ Yuri Eijk (2062)
  22. Bartoz Miszkielo (1694) ˝ ˝ Lopez Jaime Martinez (2044)
  23. Tom Skovgaard (2042) ˝ ˝ Dagur Kjartansson (1756)
  24. Agnar T Möller (1806) 1-0 WGM Sabina-Francesca Foisor (2279)
  25. Ruddy T Sibiya (1784) 1-0 Gunnar Freyr Rúnarsson (2049)
  26. Guđmundur Kristinn Lee (1676) ˝ ˝ Gauti Páll Jónsson (1968)
  27. Kris Klausen (1937) ˝ ˝ Birkir Karl Sigurđsson (1767)
  28. Veronika Steinun Magnúsdóttir (1571) 1-0 Ólafur Gísli Jónsson (1899)
  29. Martin Sandberg (1889) ˝ ˝ Ulker Gasanova (1645)
  30. David Kenney (1885) ˝ ˝ Nansy Davíđsdóttir (1641)
  31. Otto Milvang (1872) ˝ ˝ Torge Ugland (1636)
  32. Michael Marshall (1844) ˝ ˝ Birgir Örn Steingrímsson (1669)
  33. Wojciech Babijczuk (1549) 1-0 Gerd Mier (1868)
  34. Sven Erik Lurdalen (1824) 0-1 Hrund Hauksdóttir (1692)
  35. Aron Thor Mai (1320) ˝ ˝ John Nicholson (1808)
  36. John Ontiveros (1774) 0-1 August Klofsrud (1571)
  37. Pal Nordquelle (1559) ˝ ˝ Joshua Davíđsson (1216)

 

Pörun í 6. umferđ

Pörun 6. umferđar liggur fyrir og er ţannig:

rodun_6_umferd

Hana má skođa nánar hér.

Skákir mótsins, til og međ 4. umferđ eru nú ađgengilegar á heimasíđu mótsins.


Laugardagsćfingar Taflfélags Reykjavíkur falla niđur á morgun vegna veđurs

Vegna mjög slćmrar veđurspár fyrir morgundaginn og viđvörunar frá veđurstofu falla allar ćfingar taflfélagsins niđur á morgun, laugardaginn 14. mars. 
 
 

Reykjavíkurskákmótiđ: 5. umferđ í fullum gangi - Skákskýringar og Pub Quiz

5. umferđ Reykjavíkurskákmóstins er í fullum gangi.

Margar spennandi viđureignir eru í gangi, í dćmaskyni mćtti nefna:

Shakhriyar Mamedyarov og Hjörvar Steinn Grétarsson

David Navara og Artur Jussupow

Jón Viktor Gunnarsson og Nils Grandelius

og margar fleiri!

rodun_5umf

Hér má skođa pörunina

Beinar útsendingar eru hér (skákirnar) og hér (sjónvarp)

Stuttmynd Vijay Kumar frá 4. umferđ er líka komin!

Skáksýringar

Bođiđ er upp á skáksýringar okkar helstu meistara á skákstađ og hefjast ţćr um kl. 17

Í dag verđur stórmeistarinn Helgi Ólafsson međ skýringar.

Á morgun, laugardag er ţađ stórmeistarinn Jóhann Hjartarsson og á sunnudag mćtir stórmeistarinn Jón L. Árnason.

Pub Quiz í kvöld kl. 22

Hiđ árlega og gríđarlega vinsćla Reykjavik Open Pup Quiz fer fram í kvöld. Keppnin byrjar 22:00 og ţarf ađ mćta tímanlega. Keppnin fer fram áHótel Plaza viđ Ingólfstorg, sal á fyrstu hćđinni.

Búast má viđ gríđarlegri góđri ţátttöku og mikilli stemmingu enda hápunktur sérviđburđa mótsins.

Tveir og tveir saman í liđi. Menn geta fundiđ sér á félaga á stađnum. 

 

Hliđarviđburđir eru tíundađir á heimasíđu mótsins hér

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 8778234

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband