Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, september 2014

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefst í dag

bikarsyrpa_banner.pngBikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur er nýjung í mótahaldi á Íslandi. Syrpan samanstendur af nokkrum kappskákmótum og er ćtluđ börnum á grunnskólaaldri (fćdd 1999 og síđar) sem ekki hafa náđ 1600 skákstigum. Ţar međ gefst ţeim tćkifćri til ađ nćla sér í alţjóđleg skákstig á skákmótum sem sérhönnuđ eru fyrir ţau.

Fyrsta mótiđ í syrpunni hefst föstudaginn 5. september og stendur til sunnudagsins 7.september. Tefldar eru 5 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo viđ leggjum ćtíđ áherslu á ađ krakkarnir vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.

Mótiđ er sérstaklega hugsađ fyrir krakka sem hafa sótt skákćfingar Taflfélagsins (og/eđa annarra taflfélaga) reglulega síđastliđinn vetur eđa lengur. Ţađ er gott ađ byrja sem fyrst ađ keppa á kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim krökkum sem vilja tefla á "alvöru mótum" einungis stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunurinn oft mikill, mótin taka langan tíma, auk ţess sem marga krakka óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví.

Einungis börn og unglingar á grunnskólaaldri sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar.  Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og krakkarnir njóta ţess betur ađ tefla kappskákir. Tímamörkin eru líka styttri, og henta krökkunum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á venjulegum kappskákmótum. Mótiđ uppfyllir öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga sem gott er ađ byrja ađ safna snemma. Eins og á ađra viđburđi félagsins ţá er frítt í mótin fyrir krakka í Taflfélagi Reykjavíkur. Fyrir krakka í öđrum taflfélögum er ţátttökugjaldiđ 1000 krónur fyrir hvert mót Bikarsyrpunnar.

Dagskrá:

1. umferđ 17.30 á föstudegi (5. september)

2. umferđ 10.30 á laugardegi (6. september)

3. umferđ 14.00 á laugardegi (6. september)

4. umferđ 10.30 á sunnudegi (7. september)

5. umferđ 14.00 á sunnudegi. (Lokaumferđ + verđlaunaafhending) (7. september).

Skráning fer fram á heimasíđu Taflfélags Reykjavíkur www.taflfelag.is. Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar viđ undirbúning mótsins!

Stefnt er ađ ţví ađ Bikarsyrpan samanstandi af fjórum mótum í vetur. Bikarar og medalíur eru í verđlaun fyrir efstu sćtin í hverju móti, en auk ţess verđa veitt sértök verđlaun fyrir samanlagđan árangur á mótunum. 

Hlökkum til ađ sjá ykkur!


Undanúrslit Hrađskákkeppni taflfélaga fara fram í kvöld

Í kvöld skýrist hvađa liđ mćtast í úrslitum Hrađskákkeppni taflfélaga en ţá fara fram undanúrslit keppninnar. Í viđureignum kvöldsins mćtast annars vegar Skákfélagiđ Huginn og Skákfélag Reykjanesbćjar og hins vegar Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélag Bolungarvíkur. Viđureignirnar fara fram í Huginsheimilinu, Álfabakka 14a, og hefjast kl. 20.

Áhorfendur eru velkomnir og heitt verđur á könnunni.

 


Caruana - sjöunda sigurskákin í röđ! - Mćtir Carlsen á morgun

Fabiano Caruana (2801) heldur áfram ađ fara á kostum á Sinquefield Cup. Í kvöld vann sína sjöundu skák í röđ ţegar hann hreinlega yfirspilađi franska stórmeistarann Maxime Vachier-Lagrave (2768) međ svörtu.  Ađ hafa sjö vinninga ađ ađ loknum sjö umferđum á svo sterku móti verđur ađ teljast stórkostlegt.  Carlsen (2877) vann Nakamura (2787) mjög örugglega og er annar međ 4 vinninga.

Gríđarleg spenna er fyrir umferđ morgundagsins en ţá mćtast tveir sterkustu skákmenn heims; Caruana og Carlsen.

Stađan:
  • 1. Caruana (2801) 7 v.
  • 2. Carlsen (2877) 4 v.
  • 3. Topalov (2772) 3 v.
  • 4.-5. Vachier-Lagrave (2768) og Aronian (2805) 2,5 v.
  • 6. Nakamura (2787) 2 v.
Séu lifandi skákstig (live chess ratings) skođuđ er Caruana nú kominn upp í 2835 skákstig og eru nú ađeins 31 stigi á eftir heimsmeistaranum.


Davíđ vann sjöttu skákina í röđ

P1020684FIDE-meistarinn Davíđ Kjartansson (2331) reynir ađ gera sitt besta til ađ halda í Fabiano Caruana. Í sjöttu umferđ, sem fram fór í kvöld, vann hann sínu sjöttu skák í röđ á Meistaramóti Hugins. Fórnarlamb dagsins var Ólafur Kjartansson (1997).

Sćvar Bjarnason (2095) er annar međ 5 vinninga eftir sigur á Vigfúsi Ó. Vigfússyni (1962).  Loftur Baldvinsson (1986) er svo ţriđji međ 4,5 vinning.

Nú er hlé á mótinu fram á nćsta mánudagskvöld. Ţá teflir Davíđ viđ Árna Guđbjörnsson (1696) og Sćvar mćtir Lofti. 

 



Afmćlismót Gylfa um nćstu helgi

gylfi thorhallsson2Eins og áđur hefur komiđ fram varđ Gylfi Ţórhallsson, sem manna lengst hefur setiđ í stjórn Skákfélags Akureyrar -  ţar af formađur ţess í nćr tvo áratugi - sextugur sl. vor. Í tilefni af ţví efnum viđ til skákmóts nú um helgina og vonumst eftir sem bestri ţátttöku ungra sem aldinna. Gylfi sjálfur verđur auđvitađ međal keppenda - og tekur ţátt í baráttunni um sigurlaunin ef viđ ţekkjum hann rétt. 

Mótiđ hefst laugardaginn 6. september kl. 13.00 í Skákheimilinu á Akureyri. Tefldar verđa 10 mínútna skákir og áformađ ađ tefla 7 umferđir á laugardeginum og 6 á sunnudeginum, en ţá hefst tafliđ einnig kl. 13.00. Fjöldi umferđa rćđst ţó endanlega ţegar ţátttaka liggur fyrir, en skráning verđur í netfangiđ askell@simnet.is, eđa á skákstađ, kl. 12.30-12.50 fyrir upphaf móts.

Peningaverđlaun verđa veitt sem hér segir:

1. verđlaun    kr. 15.000

2. verđlaun    kr. 10.000

3. verđlaun    kr.   5.000

Viđ hlökkum til skemmtilegs og spennandi móts og minnum líka á hiđ árlega STARTMÓT félagsins sem hefst fimmtudaginn 4. september kl. 18.00.  Tímasetningin er óvenjuleg en mótiđ verđur bara skemmtilegra fyrir vikiđ!


Haustmót Taflfélags Reykjavíkur

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2014 hefst sunnudaginn 14. september kl.14. Mótiđ á 80 ára afmćli í ár, er eitt af ađalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Mótiđ er flokkaskipt og öllum opiđ.

Haustmótiđ fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni ađ Faxafeni 12. Tefldar verđa tvćr umferđir á viku. Alls eru níu umferđir í hverjum flokki. Lokuđu flokkarnir eru skipađir tíu keppendum hver ţar sem allir tefla viđ alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi.

Tímamörk eru 1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik. Ađ loknum 40 leikjum bćtast 15 mínútur viđ.

Skráning fer fram hér. Skráningarform er vćntanlegt á Skák.is og einnig á heimasíđu T.R. síđar í vikunni.

Fylgjast má međ skráningu hér.

Skráningu í alla lokađa flokka lýkur laugardaginn 13. september kl. 18.
Lokaumferđ fer fram föstudaginn 17. október en mótinu lýkur međ verđlaunaafhendingu sunnudaginn 19. október ţegar Hrađskákmót T.R. fer fram.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Kjartan Maack.
 
Dagskrá:
1. umferđ: Sunnudag 14. september kl.14.00
2. umferđ: Miđvikudag 17. september kl.19.30
3. umferđ: Sunnudag 21. september kl.14.00
4. umferđ: Miđvikudag 24. september kl.19.30
5. umferđ: Sunnudag 28. september kl.14.00

---Hlé vegna Islandsmóts skákfélaga---

6. umferđ: Miđvikudag 8. október kl.19.30
7. umferđ: Sunnudag 12. október kl.14.00
8. umferđ: Miđvikudag 15. október kl. 19.30
9. umferđ: Föstudag 17. október. kl.19.30

Verđlaun í A-flokki:
1. sćti kr. 100.000
2. sćti kr. 50.000
3. sćti kr. 25.000
4. og 5. sćti ókeypis í Skákţing Reykjavíkur 2014

Verđlaun í B-flokki:
1. sćti kr. 20.000
2.-3. sćti ókeypis í Skákţing Reykjavíkur 2014

Verđlaun í C-flokki:
1. sćti kr. 15.000
2. og 3. sćti ókeypis í Skákţing Reykjavíkur 2014

Verđlaun í opnum flokki:
1. sćti kr. 10.000
2. og 3. sćti ókeypis í Skákţing Reykjavíkur 2014
 
Ef lokuđum flokkum fjölgar ţá verđa verđlaun í ţeim ţau sömu og í C-flokki. Ađ auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér ţátttökurétt í nćsta styrkleikaflokki ađ ári liđnu. Verđi keppendur jafnir í efstu sćtum verđur peningaverđlaunum skipt en stigaútreikningur látinn ráđa lokaröđ keppenda. Taflfélag Reykjavíkur áskilur sér jafnframt rétt til ţess ađ halda eftir 25% af verđlaunafé ţeirra sem ekki mćta á verđlaunaafhendinguna.

Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.

Ţátttökugjöld:

3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (5.000 kr. fyrir ađra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 15 ára og yngri (2.500 kr. fyrir ađra).


Ný íslensk skákstig

Ný íslensk skákstig komu út 1. september sl. Jóhann Hjartarson er sem fyrr stigahćstur íslenskra skákmanna. Aron Ţór Mai er stigahćstur nýliđa. Björn Hólmi Birkisson og Jón Ađalsteinn Hermannsson hćkka mest allra frá júní-listanum.

Topp 20

 

No.NameRtgCDiffCatTitClub
1Jóhann Hjartarson26030-GMTB
2Margeir Pétursson25890-GMTR
3Hannes H Stefánsson2581-8-GMTR
4Helgi Ólafsson25480-GMTV
5Héđinn Steingrímsson2543-2-GMFjölnir
6Hjörvar Grétarsson2532-3-GMHuginn
7Jón Loftur Árnason25140-GMTB
8Henrik Danielsen2500-3-GMTV
9Helgi Áss Grétarsson2488-10-GMHuginn
10Stefán Kristjánsson24800-GMHuginn
11Friđrik Ólafsson24590SENGMTR
12Karl Ţorsteins24570-IMTR
13Guđmundur Kjartansson244044-IMTR
14Ţröstur Ţórhallsson24324-GMHuginn
15Bragi Ţorfinnsson2426-8-IMTB
16Jón Viktor Gunnarsson24250-IMTR
17Arnar Gunnarsson24000-IMTR
18Dagur Arngrímsson24000-IMTB
19Björn Ţorfinnsson23900-IMVíkingaklúbburinn
20Magnús Örn Úlfarsson23660-FMHuginn


Nýliđar

Aron Ţór Mai (1268) er stigahćstur nýliđa er Sólon Siguringason (1123) er nćststigahćstur.

 

No.NameRtgCDiffCatTitClub
1Aron Ţór Mai12681268U14 TR
2Sólon Siguringason11231123U10 TG
3Alexander Már Bjarnţórsson10001000U10 TR
4Gabríel Sćr Bjarnţórsson10001000U08 TR


Mestu hćkkanir

Björn Hólm Birkisson og Jón Ađalsteinn Hermannsson (47) hćkka mest allra frá júní-listanum. Nćstir koma Íslandsmeistarinn Guđmundur Kjartansson og Róbert Luu (44).

 

No.NameRtgCDiffCatTitClub
1Björn Hólm Birkisson156847U14 TR
2Jón Ađalsteinn Hermannsson104747U16 Huginn
3Guđmundur Kjartansson244044-IMTR
4Róbert Luu106044U10 TR
5Hermann Ađalsteinsson135037- Huginn
6Ţorsteinn Magnússon123332U14 TR
7Sighvatur Karlsson129830- Huginn
8Guđmundur Agnar Bragason139229U14 TR
9Heimir Páll Ragnarsson138129U14 Huginn
10Óskar Víkingur Davíđsson134129U10 Huginn


Reiknuđ mót

  • Meistaramót Skákskóla Íslands
  • Íslandsmótiđ í skák - landsliđsflokkkur
  • Íslandsmótiđ í skák - áskorendaflokkur
  • Framsýnarmótiđ - 5.-7. umferđ

Enn sigrar Caruana - sjötta sigurskákin í röđ!

Caruana og TopalovEkkert virđist getađ stöđvađ ítalska stórmeistarann Fabiano Caruna (2801) sem í kvöld vann sína sjöttu (!!!) skák í röđ ţegar hann vann Topalov (2772) á Sinquefield Cup-mótinu. Hreint og beint ótrúlegur árangur. Ţađ stefnir í einn besta mótaárangur sögunnar í St. Louis. Öđrum skákum lauk međ jafntefli. Magnus Carlsen (2877) er annar međ 50% vinningshlutfall - heilum ţremur vinningum á eftir Caruana ţegar ađeins fjórum umferđum er ólokiđ.

Stađan:
  • 1. Caruana (2801) 6 v.
  • 2. Carlsen (2877) 3 v.
  • 3.-4. Vachier-Lagrave (2768) og Topalov (2772) 2,5 v.
  • 5.-6. Nakamura (2787) og Aronian (2805) 1,5 v.
Séu lifandi skákstig (live chess ratings) skođuđ er Caruana nú kominn upp í 2831 skákstig og eru nú ađeins 33 stigum á eftir heimsmeistaranum. Ítalinn hefur svo 37 skákstigaforskot á Aronian sem er ţriđji.


Davíđ efstur á Meistaramóti Hugins

P1020684FIDE-meistarinn Davíđ Kjartansson (2331) vann alţjóđlega meistarann Sćvar Bjarnason (2095) í fimmtu umferđ Meistaramóts Hugins sem fram fór í kvöld og er efstur međ fullt hús. Fjórir keppendur hafa 4 vinninga en ţađ eru auk Sćvars ţeir Loftur Baldvinsson (1986), Vigfús Ó. Vigfússon (1962) og Ólafur Kjartansson (1997).

Sjötta umferđ fer fram á morgun. Ţá mćtast međal annars: Davíđ-Ólafur og Vigfús-Sćvar.

 



Fyrsti skákdagur Ása í dag eftir sumarfrí

_sir1.jpgŢađ var vel mćtt á ţessum fyrsta skákdegi á ţessari vetrarvertíđ. Tuttugu og átta karlar gengu í salinn og ein kona. Hún var bođin velkomin en ţví miđur tefldi hún bara fyrstu umferđina og hvarf svo af vettvangi, sem var slćmt ţvi ađ viđ höfum veriđ ađ hvetja konur til ţess ađ mćta og ögra ţessum körlum viđ skákborđiđ. Ţađ er auđvitađ óţarfi ađ jarđa ţćr alveg í fyrstu umferđ jafntefli er t.d kurteisleg  byrjun.

Ţađ voru margir vígfimir skákvíkingar sem mćttu í dag og úrslitin urđu nokkuđ eftir bókinni. Björgvin Víglundsson varđ efstur međ 8˝ vinning af 10 mögulegum.

Í öđru sćti varđ Jóhann Örn Sigurjónsson međ jafnmarga vinninga en örlítiđ fćrri stig. Jóhann er ađ_sir2.jpg koma aftur til leiks eftir erfiđ veikindi og virđist engu hafa gleymt sem betur fer.

Í ţriđja sćti varđ svo Ingimar Halldórsson međ 7 vinninga.

SJÁ NANARI ÚRSLIT Í MEĐF. TÖFLU.

 

_sir_2014-09-02_1245139.jpg

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 99
  • Sl. sólarhring: 102
  • Sl. viku: 378
  • Frá upphafi: 8780101

Annađ

  • Innlit í dag: 75
  • Innlit sl. viku: 248
  • Gestir í dag: 72
  • IP-tölur í dag: 70

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband