Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, mars 2014

Skákmót öđlinga hefst í kvöld

Skákmót öđlinga 40 ára og eldri hefst miđvikudaginn 19. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. ađ Faxafeni 12. Tefldar verđa 7 umferđir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viđbótartími á hvern leik.

Skákmót öđlinga verđur nú haldiđ í 23. sinn. Núverandi Skákmeistari öđlinga er Ţorvarđur Fannar Ólafsson.

Dagskrá:

  • 1. umferđ miđvikudag 19. mars kl. 19.30
  • 2. umferđ miđvikudag 26. mars kl. 19.30
  • 3. umferđ miđvikudag 2. apríl kl. 19.30
  • 4. umferđ miđvikudag 9. apríl kl. 19.30
  • 5. umferđ miđvikudag 23. apríl kl. 19.30
  • 6. umferđ miđvikudag 30. apríl kl. 19.30
  • 7. umferđ miđvikudag 7. maí kl. 19.30

Mótinu lýkur miđvikudaginn 14. maí kl. 19:30 međ hrađskákmóti og verđlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar,en auk hans eru verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í ađalmótinu og hrađskákmótinu.

Ţátttökugjald er kr. 4.000 fyrir ađalmótiđ og kr 500 fyrir hrađskákmótiđ. Innifaliđ er frítt kaffi allt mótiđ ásamt rjómavöfflum og öđru góđgćti á lokakvöldi.

Skráning fer fram á skráningarformi á heimasíđu T.R.

Hér er hćgt ađ fylgjast međ skráningu.


Anand efstur á áskorendamótinu - Svidler vann Topalov

anand02Indverjinn Viswanathan Anand (2770) gerđi í dag jafntefli viđ Andreikin (2709) í fimmtu umferđ áskorendamótsins í skák sem fram fer í Khanty-Mansiysk. Svidler (2758) vann Topalov (2785) en öđrum skákum lauk međ jafntefli ţar međ taliđ hörkuskák Kramniks (2787) og Aronian (2830).

Stađan:

 

RankSNo. NameRtgFEDPtsRes.victSB
16GMAnand Viswanathan2770IND028,25
27GMAronian Levon2830ARM327,50
34GMKramnik Vladimir2787RUS3117,50
43GMSvidler Peter2758RUS3˝26,00
55GMMamedyarov Shakhriyar2757AZE2113,50
68GMTopalov Veselin2785BUL2105,25
72GMKarjakin Sergey2766RUS2104,25
81GMAndreikin Dmitry2709RUS004,2

 


Íslandsmót skákfélaga: Skákir fyrstu deildar

Tómas Veigar Sigurđarson hefur slegiđ inn allar skákir fyrstu deildar Íslandsmóts skákfélaga. Ţćr fylgja međ sem viđhengi.

Skákmót öđlinga hefst á morgun

Skákmót öđlinga 40 ára og eldri hefst miđvikudaginn 19. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. ađ Faxafeni 12. Tefldar verđa 7 umferđir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viđbótartími á hvern leik.

Skákmót öđlinga verđur nú haldiđ í 23. sinn. Núverandi Skákmeistari öđlinga er Ţorvarđur Fannar Ólafsson.

Dagskrá:

  • 1. umferđ miđvikudag 19. mars kl. 19.30
  • 2. umferđ miđvikudag 26. mars kl. 19.30
  • 3. umferđ miđvikudag 2. apríl kl. 19.30
  • 4. umferđ miđvikudag 9. apríl kl. 19.30
  • 5. umferđ miđvikudag 23. apríl kl. 19.30
  • 6. umferđ miđvikudag 30. apríl kl. 19.30
  • 7. umferđ miđvikudag 7. maí kl. 19.30

Mótinu lýkur miđvikudaginn 14. maí kl. 19:30 međ hrađskákmóti og verđlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar,en auk hans eru verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í ađalmótinu og hrađskákmótinu.

Ţátttökugjald er kr. 4.000 fyrir ađalmótiđ og kr 500 fyrir hrađskákmótiđ. Innifaliđ er frítt kaffi allt mótiđ ásamt rjómavöfflum og öđru góđgćti á lokakvöldi.

Skráning fer fram á skráningarformi á heimasíđu T.R.

Hér er hćgt ađ fylgjast međ skráningu.


Anand efstur á áskorendafmótinu - Aronian vann Svidler

anand02Indverjinn Viswanathan Anand (2770) er sem fyrr efstur á áskorendafmótinu í skák sem fram fer í Khanty-Mansiysk í Rússlandi. Í fjórđu umferđ, sem fram fór í dag, gerđi hann jafntefli viđ Kramnik (2787) og hefur 3 vinninga. Aronian (2830), sem vann Andreikin (2709) er í 2.-3. sćti ásamt Kramnik međ 2˝ vinning.

Í fimmtu umferđ sem fram fer á morgun mćtast međal annars Kramnik og Aronian. Anand mćtir Andreikin. 

Stađan:

 

RankSNo. NameRtgFEDPtsRes.victSB
16GMAnand Viswanathan2770IND3026,25
27GMAronian Levon2830ARM024,50
34GMKramnik Vladimir2787RUS014,50
43GMSvidler Peter2758RUS2013,00
58GMTopalov Veselin2785BUL2004,25
65GMMamedyarov Shakhriyar2757AZE012,00
72GMKarjakin Sergey2766RUS002,50
81GMAndreikin Dmitry2709RUS1002,00

 

 


Íslandsmót barnaskólasveita hefst á laugardaginn í Rimaskóla

Mótiđ er fyrir nemendur á barnaskólaaldri, 1.-7. bekk. Fjórir skákmenn eru í hverri sveit, hćgt er ađ vera međ allt ađ ţrjá varamenn í hverri sveit.

Teflt verđur í Rimaskóla, Grafarvogi.

Tefldar verđa níu umferđir, fimm á laugardegi og fjórar á sunnudegi.

Umhugsunartími verđur 15 mínútur á mann.

Taflmennska hefst 13:00 á laugardag og 11:00 á sunnudag.

Veitt verđa verđlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verđlaunum fyrir efstu sveitina sem er einungis skipuđ nemendum í 1.-4. bekk.

Skráning fer fram hér. Hćgt er ađ fylgjast međ ţegar skráđum sveitum hér.

Liđsstjórar skulu bođa keppendur 12:40 svo mótiđ geti hafist á réttum tíma.

Veitt verđa borđaverđlaun fyrir bestan árangur á borđi 1-4.

Sá skóli sem verđur Íslandsmeistari tryggir sér ţátttökurétt á Norđurlandamóti barnaskólasveita sem fer fram í haust.

Ţátttökugjald er 5.000 kr. á sveit - mest 10.000 kr. á skóla.


Brögđóttir unglingar á Akureyri

SímonÍ gćr fór fram skylduleikjamót í salarkynnum Skákfélagsins. Tefldir voru gammbítar eđa brögđ ţar sem annar ađilinn fórnar liđi fyrir skjótari liđskipan. Ţađ var Jón Kristinn Ţorgeirsson sem valdi byrjanirnar. Skákfélagsmenn voru misjafnlega brögđóttir en ungu mennirnir stóđu sig best. Flesta vinninga hlaut Símon Ţórhallsson eđa 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Í öđru til ţriđja sćti urđu Andri Freyr og Jón Kristinn  međ 5 vinninga. Í fjórđa sćti varđ fjórđi unglingurinn, Sigurđur Arnarson, međ 4,5 vinninga en ađrir fengu minna.

Hrađkvöld hjá GM Helli í kvöld

Skákfélagiđ GM Hellir heldur hrađkvöld mánudaginn 17. mars nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr máltíđ fyrir einn á Saffran. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


Skákţáttur Morgunblađsins: Funheitur Walter Browne mćtir aftur á Reykjavíkurskákmót

Walther BrowneWalter Shawn Browne sem er 65 ára gamall er sá eini međal 155 erlendra ţátttakenda á 50 ára afmćli Reykjavíkurskákmótanna sem sigrađ hefur á ţessu móti. Ţađ gerđist á Hótel Loftleiđum á hinu geysisterka 8. Reykjavíkurmóti áriđ 1978 og keppinautar hans, sem tefldu allir viđ alla, voru ekki af verri endanum: Bent Larsen, Tony Miles, Lev Polugajevskí, Vlastimil Hort auk íslensku meistaranna međ Friđrik Ólafsson fremstan í flokki. Bćgslagangurinn í tímahraki í skák viđ Polugajevskí og almenn baráttugleđi hans eru mönnum enn í fersku minni. Walter Browne vann bandaríska meistaratitilinn sex sinnum og fyllti ađ sumu leyti ţađ pláss í bandarísku skáklífi sem Bobby Fischer skildi eftir. Eldmóđurinn er ţarna ennţá og hann hefur unniđ ţrjár fyrstu skákir sínar á sannfćrandi hátt.

Fađir hins nýbakađa heimsmeistara, Henrik Carlsen, er hingađ kominn til ađ slaka ađeins á eftir fjölmiđlafáriđ í kringum einvígi sonarins á dögunum. Hann á góđar minningar frá ţví á Reykjavíkurmótinu 2004; samsetning keppenda ţá međ Magnús Carlsen, Lev Aronjan og Hikaru Nakamura á keppendalistanum sannar ađ framkvćmdarađilar ţessara móta hafi veriđ lagnir ađ fá til keppni menn framtíđarinnar. Hinn 10 ára gamli Awonder Liang er heimsmeistari barna í sínum aldursflokki en Hjörvar Steinn Grétarsson vann piltinn ţó örugglega í 2. umferđ.

Reykjavíkurmótin eru nú öllum opin međ skemmtilegum hliđarviđburđum á borđ viđ barna-blitz og Tinnapub quiz. En fyrst og síđast er mótiđ frábćr vettvangur fyrir íslenska skákmenn, ekki síst ţá yngstu. Keppendur eru alls 254 en erlendu gestirnir eru 155. Mótiđ er vel skipulagt og salurinn í Hörpu er stórglćsilegur. Hlutur kvenna er alltaf ađ aukast og margar öflugar skákkonur mćta til leiks, áhorfendur sópuđust ađ skjánum ţegar indverska skákprinsessan Tania Sachdev sá um skákskýringar á heimasíđu heimsmeistaraeinvígis Anands og Magnúsar Carlsens í Indlandi. Af mörgum óvćntum úrslitum er ađ taka en hér birtist sigur Tinnu Kristínar Finnbogadóttur í 1. umferđ en stigamunur var upp á nćstum 500 elo-stig. Góđ taflmennska Tinnu í endataflinu réđ svo úrslitum:

Mate Bagi (Ungverjaland) - Tinna Kristín Finnbogadóttir

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. Bc4 Rc6 4. c3 Bg7 5. d4 d6 6. O-O e6 7. Bf4 cxd4 8. cxd4 Rge7 9. Rc3 d5 10. Bb3 dxe4 11. Rxe4 O-O 12. Bg5 Da5

Eftir byrjun ţar sem hvítur missti af ýmsum vćnlegum leiđum, t.d. 7. d5, hefur svartur náđ prýđilegri stöđu međ ţrýsting á staka peđiđ á d4.

13. Dc1 Rf5 14. Hd1 Rfxd4 15. Rxd4 Rxd4 16. De3 e5 17. Bf6 Db6 18. Bxg7 Kxg7 19. Hac1 Rxb3 20. Dxb3 Dxb3 21. axb3 Be6 22. Rc5 Hfe8!

23. Rxe6+ Hxe6 24. Hc7 Hc6 25. Hxb7 Hd8!

Notfćrir sér valdleysiđ í borđinu, 26. Hxd8 strandar auđvitađ á 26. ... Hc1+ og mátar.

26. Hf1 Hd2 27. Hxa7 Hxb2 28. Ha5 e4 29. Hb5 Hcc2

Hótar 29. ... e3. Lakara var 29. ... e3 vegna 30. fxe3 Hcc2 31. Hg5! og hvítur nćr jafntefli.

30. He5 He2 31. h4 f6 32. He7+ Kh6 33. g3 Hxb3

Hvítur gat ekki variđ b-peđiđ og átt viđ hótun svarts ađ leika e4-e3.

34. Kg2 Hbb2 35. Kg1 Ha2 36. He6 f5 37. He7 Hab2 38. He6

Hvítur er í leikţröng og nú brýst svarti kóngurinn fram.

38. ... Kh5! 39. He7 h6 40. He5 Kg4 41. He6 e3 42. Hxg6+ Kh3

- og hvítur gafst upp.

 

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 9. mars 2014

Skákţćttir Morgunblađsins


Skákţáttur Morgunblađsins: Víkingarnir í skákinni

Ögmundur Kristinsson Ég hef´ann," hrópađi markvörđur Víkings í 2. flokki, Ögmundur Kristinsson, ţegar hann kom askvađandi út úr markteignum í leik Víkings og ÍBV á Hásteinsvellinum í Eyjum sumariđ 1971, og uppskar mikinn hlátur áhorfenda ţegar hann hugđist kýla bolta í burtu en hafđi ekki meiri stjórn á atburđarásinni en svo ađ boltinn skrúfađist einhvern veginn aftur fyrir hann og sleikti síđan markstöngina. En sá hlćr best sem síđast hlćr, segir einhversstađar. Árin 1981 og 1982 var Ögmundur ađalmarkvörđur í liđi Íslandsmeistara Víkings og var valinn í A-landsliđ Íslands áriđ 1983.

Ögmundur var á ţessu tíma einn öflugasti ungi skákmađurinn í Taflfélagi Reykjavíkur, ţekktur fyrir sóknartilţrif og varasama gambíta eins „Marshall-árásina" og „Búdapestar-bragđ". Taflfélag Reykjavíkur hafđi eignast húsnćđi viđ Grensásveg - í miđju hverfi Víkinga og ţar steig hann sín fyrstu skref í skákinni. Síđan eru liđin mörg ár en undanfariđ hefur Ögmundur veriđ ađ auka ţátttöku sína á mótum međ styttri umhugsunartíma, og hann er líka ađ tefla kappskákirnar; var t.d. međ á Reykjavíkurskákmótinu í fyrr a og sýndi klćrnar á nýafstöđnu móti GM Hellis, Nóa Síríus-mótinu. Ţar hlaut hann 4 vinninga af sjö mögulegum, náđi árangri upp á 2300 elo-stig og hćkkađi um meira en 30 stig.

Í skák sinni viđ Andra Áss Grétarsson úr ţví móti var ţađ ekki byrjanakunnáttan sem réđ úrslitum, heldur miklu fremur snemmbćr og tvísýn atlaga á drottningarvćng, síđar beindust spjótin ađ f7-reitnum og loks brast á međ innrás eftir c-línunni. Laglegur sigur:

Nóa Síríus-mótiđ; 1. umferđ:

Ögmundur Kristinsson - Andri Áss Grétarsson

Kóngsindversk vörn

1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 O-O 5. d4 d6 6. Rf3 Rbd7 7. O-O e5 8. b3

He8 9. e3 c6 10. dxe5 dxe5 11. Bb2 Dc7 12. b4?!

Svartur á viđ enga erfiđleika ađ etja eftir bitlausa byrjun hvíts.

12. ... a5 13. a3 Bf8 14. c5 b6 15. cxb6

Dxb6 16. b5!?

Gefur peđ fyrir spil og nćr ađ rugla Andra í ríminu.

16. ... cxb5 17. Rg5 Hb8?

Hér lá beinast viđ ađ leika 17. ... Bb7 en ţá ţarf ađ taka međ í reikninginn leikinn 18. Rd5 sem hćgt er ađ svara međ 18. .. Da7!

18. Db3 He7 19. Rd5 Rxd5 20. Bxd5

Skyndilega er hvítur kominn međ óţćgilegan ţrýsting á f7-peđiđ.

gpis30p9.jpg18. ... Rc5?

Eftir ţetta fer ađ halla undir fćti. Hér varđ svartur ađ leika 20. ... Bb7 og eftir 21. Bxf7+ Kh8 er stađan í jafnvćgi.

21. Bxf7+ Kh8 22. Dd5!

Öflugur leikur sem hótar 23. Bxe5+ o.s.frv.

22. ... Bg7 23. Hac1 Rd7 24. Hc6 Da7 25. Dd6 Bf6 26. Hfc1

Hvítur bćtir stöđu sína í hverjum leik.

26. ...Bxg5 27. Hxc8+ Kg7 28. H8c7 Hb7 29. Bd5!

Og nú fćr svartur ekki varist liđstapi.

29. ... Db6 30. H1c6 Da7 31. Hxb7 Dxb7 32. Hc7 Db6 33. Hxd7 Dxd6 34. Hxd6

- og svartur gafst upp.

Stefán Kristjánsson sigrađi á Nóa Síríus-mótinu, hlaut 6 vinninga af sjö mögulegum, Björgvin Jónsson og Davíđ Kjartansson komu nćstir međ 5 ˝ vinning og í 4.-7. sćti urđu Bragi Ţorfinnsson, Karl Ţorsteins, Jón Viktor Gunnarsson og Magnús Örn Úlfarsson, allir međ 5 vinninga.

Jón Ţorvaldsson á allan heiđur af framkvćmdinni en honum tókst ađ lađa til keppni marga af bestu skákmönnum landsins sem tefldu eina umferđ á viku í Stúkunni á Kópavogsvelli en keppendur voru 70 talsins.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 2. mars 2014

Skákţćttir Morgunblađsins


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8778231

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband