Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2013
22.4.2013 | 13:00
KR-kapp: Vignir Vatnar vann aftur glćstan sigur
Óheft ímyndunarafl og djúpur sköpunarkraftur einkennir jafnan taflmennskuna á mánudagsmótum KR í Frostaskjólinu ţar sem fjölskrúđugur hópur öflugra skákkappa af höfuđborgarsvćđinu mćtist til keppni allan ársins hring. Eins konar "Skálkaskjól" ţar sem mćtast stálin stinn og er jakki er ekki frakki - nema síđur sé. Ţar láta menn ekki gott mát sér úr greipum ganga, né betri stöđu forgörđum fara, né vesćlt peđ úr hendi sleppa - nema baneitrađ sé. Og ţar er enginn engin er annars bróđir í leik - nema samvaxnir Síams tvíburar séu - sem ekki er til ađ dreifa.
Í raun má segja ađ mótin jafngildi tveimur hrađmótum í TR eđa Helli ţví umferđirnar eru ţrettán en ekki sjö eins og ţar tíđkast. Ţví er ekki úr vegi ađ birta hér til gamans og tilbreytingar stöđuna í hálfleik ađ loknum sjö umferđum til samanburđar. Eins og sjá má voru sumir í blússandi stuđi í byrjun móts međan ađrir máttu muna sinn fífil fegri. En í seinni hálfleik náđu ýmsir valinkunnir kappar vopnum sínum á ný, en ţó ekki allir, sem sýnir hvađ dagsformiđ hefur mikiđ ađ segja og vćntanlega úthaldiđ líka.
Nýr kafli var skrifađur í sögu kappmótanna í KR-heimilinu í ţessum mánuđi ţegar hinn ungi sveinn Vignir Vatnar Stefánsson, ađeins 10 ára ađ aldri, birtist ţar til tafls ásamt föđur sínum og fylgdarmanni Stefáni Péturssyni skipstjóra fyrir hálfum mánuđi. Sá stutti gerđi sér lítiđ fyrir og vann mótiđ međ 10.5 vinningi af ţrettán mögulegum.
En ţá er ekki öll sagan sögđ ţví sl. mánudag birtust ţeir feđgar aftur og ekki ţurfti sökum ađ spyrja eđa leikslokum - nú sigrađi "ungstirniđ undraverđa" mótiđ međ fáheyrđum yfirburđum - hlaut 12 vinninga af ţrettán. Ađeins hinum aldna meistara Gunnari Gunnarssyni tókst ađ halda velli gegn hinum unga og upprennandi snillingi. Voru ţó flestir sigursćlustu skákmenn klúbbsins međal ţátttakenda hoknir af reynslu. Svo sem Gunnar Birgisson, Ingimar Jónsson, Birgir Berndsen, Guđfinnur Kjartansson og Stefán Ţormar Guđmundsson svo nokkrir séu nefndir auk formannsins og stórmeistarabanans Kristjáns Stefánssonar, sem er hverjum öđrum skeinuhćttari sem hann lćtur minna yfir sér.
Nú er sveinninn ungi floginn yfir pollinn tvíefldur af sjálfstrausti til ţátttöku í heimsmóti skákmanna undir 2000 stigum sem hefst í dag í borginni IASI í Rúmeníu nćr Svartahafi. Fylgja honum góđar óskir um gott gengi og ómćlda keppnisreynslu,
Nánari úrslit má sjá á međf. mótstöflu og á www.kr.is /skák.
Ţađ styttist óđum í nćsta Kappmót í KR sem haldiđ verđur í kvöld og hefst kl. 19.30 réttstundis ađ stađartíma.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2013 | 08:40
Vormót Vinjar í dag: Allir velkomnir

Skákfélag Vinjar býđur skákáhugamönnum á öllum aldri á Vormót Vinjar, mánudaginn 22. apríl klukkan 13. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma, og í leikhléi verđur bođiđ upp á kaffi og međlćti.
Skákfélag Vinjar stendur fyrir vikulegum ćfingum á mánudögum klukkan 13 og reglulega eru haldin stórmót. Ţá náđi A-sveit félagsins glćsilegum árangri í 3. deild Íslandsmóts skákfélaga, og mun keppa í 2. deild nćsta vetur.

Í júní verđur ţví fagnađ ađ 10 ár eru liđin síđan reglulegt skákstarf hófst í Vin. Skákfélagiđ Hrókurinn stóđ um árabil fyrir skáklífi í Vin, og studdi viđ bakiđ á Skákfélagi Vinjar sem nú er eitt af blómlegustu taflfélögum landsins. Skákakademían hefur í vetur lagt Skákfélagi Vinjar liđ, og er Róbert Lagerman ađalţjálfari hinna harđsnúnu Vinjarpilta.
Allir eru velkomnir á Vormót Vinjar á mánudaginn. Veitt verđa ýmis verđlaun. Ţátttaka er ókeypis, eins og jafnan á viđburđum Skákfélags Vinjar.
Úrslit dagsins
A-flokkur
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir - Hrund Hauksdóttir ˝-˝
B-flokkur
Sóley Lind Pálsdóttir - Alina Legkiy, Svíţjóđ ˝-˝
Veronika Steinunn Magnúsdóttir - Mette Ellegaard Christensen, Danmörku 1-0
C-flokkur
Nansý Davíđsdóttir - Sara Naess, Noregi ˝-˝
Kajsa Nilsson, Svíţjóđ - Svandís Rós Ríkharđsdóttir 1-0
Viđ fengum 3,5 vinninga af 5 mögulegum í ţessari umferđ.

Svo óheppilega vildi til ađ ţćr stöllur í A-flokki lentu saman í dag. Ljóst var ađ Jóhanna yrđi helst ađ vinna og treysta á ađ Jessica ynni ekki. Jóhanna fékk ágćtis stöđu gegn Hrund en missteig sig á krítísku augnabliki og Hrund snéri á hana og fékk ţá unna stöđu. Hrund yfirsást öflugur varnarleikur hjá Jóhönnu ţar sem hún fórnađi hrók fyrir ţráskák. Nú var eina vonin ađ Jessica tapađi ţví ljóst var ađ Jóhanna myndi tapa í stigaútreikningi gegn henni en vinna allar hinar. Jessica gerđi síđan jafntefli og voru ţá Jóhanna, Jessica (Svíţjóđ) og Erle (Noregur) efstar og jafnar međ 3,5 vinninga af 5 mögulegum. Jessica varđ Norđurlandameistari á stigum, Jóhanna endađi í öđru sćti og Erle varđ ţriđja. Hrund endađi í 5.-6. sćti međ 2 vinninga.

Í B-flokki gerđi Sóley jafntefli viđ Alinu Legkiy frá Svíţjóđ. Sóley stjórnađi ferđinni í skákinni allan tíman en náđi ekki ađ nýta ţađ til sigurs og jafntefli varđ niđurstađan. Veronika vann hina dönsku Mette í góđri skák, ţar sem sú danska varđ ađ játa sig sigrađa ţrátt fyrir hetjulega vörn. Veronika hlaut 2,5 vinninga í ţessum flokki og Sóley 2 vinninga. Veronika endađi í 6.-7. sćti og Sóley í 8.-9. sćti.

Í C-flokki gerđi Nansý jafntefli viđ Söru Naess sem dugđi henni til ađ verđa Norđurlandameistari eins og áđur hefur komiđ fram. Skákin var skemmtileg en Nansý hefđi mátt tefla skákina lengur en ţađ er mjög skiljanlegt ađ taka jafntefli međ ţandar taugar í lokaumferđ ţegar góđar líkur eru á ţví ađ jafntefliđ dugi manni til sigurs í mótinu. Svandís var lánlaus í dag og tapađi sinni skák gegn Kajsu frá Svíţjóđ ţrátt fyrir ađ tefla skákina ágćtlega allan tímann.

Í heildina var árangurinn í mótinu ágćtur. Ég er bara orđinn svo góđu vanur á mótum međ stelpunum ađ ég vill alltaf meira. Ţegar ţađ er haft í huga ađ Ísland vann fyrsta Norđurlandameistaratitil stúlkna fyrir ţremur árum (Hallgerđur Helga) ţá er greinilegt ađ kvennaskák á Íslandi er á uppleiđ. Á síđustu ţremur árum hefur Ísland unniđ fjóra Norđurlandameistaratitla af níu mögulegum. Árangur Nansýar stendur upp úr á mótinu og er međ ólíkindum ađ svona ung stelpa sé međ svona mikinn stöđuskilning. Jóhanna tefldi einnig afar vel og var sérstaklega farsćl í byrjanavali sem kom svo sem ekki á óvart ţví hún hefur lagt mikiđ á sig upp á síđkastiđ í stúderingum. Svona vinna skilar sér alltaf ađ lokum. Ađrar áttu góđa spretti á mótinu en náđu ekki ađ halda dampi allan tímann. Ţađ verđur ţó ađ hafa ţađ í huga ađ svona mót er afar erfitt. Fimm kappskákir á ţremur dögum ţannig ađ lítill tími gefst til ađ anda á milli sem gerir ţađ ađ verkum ađ mjög erfitt er ađ vinna sig í gegnum mótlćti ef mađur lendir í ţví. Svona mót eru samt afar góđur skóli fyrir stelpurnar og sýnir ţeim ađ ţađ er nauđsynlegt ađ vera međ nokkuđ breiđa byrjanaţekkingu sem nýtist sérstaklega vel ţegar takmarkađur tími er til undirbúnings fyrir hverja umferđ.
Nćsta Norđurlandamót stúlkna verđur haldiđ á Íslandi en ég hlakka mikiđ til ţess ţví ţá eigum viđ rétt á fleiri keppendum en fjöldi skákstelpna hefur aukist mikiđ á síđustu árum. Ađ lokum vil ég ţakka stelpunum kćrlega fyrir afar skemmtilega ferđ ţví leitun er ađ öđrum eins snillingum til ađ ferđast međ enda eru ţćr alltaf jákvćđar og til í slaginn.
Davíđ Ólafsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2013 | 20:23
Stefán Bergsson fór hamförum á Hrađskákmóti Norđlendinga
Stefán Bergsson fór mikinn í dag. Eins og áđur hefur komiđ fram vann hann Hannes Hlífar Stefánsson í lokaumferđ Skákţings Norđlendinga í dag. Í dag fór svo Hrađskákmót Norđlendinga fram. Stefán fór hreinilega hamförum og lagđi alla andstćđinga sína 12 ađ tölu! Rúnar Sigurpálsson varđa annar og Gunnar Björnsson varđ ţriđji.
Lokastöđu mótsins má finna á Chess-Results.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2013 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Besti skákmađur allra tíma
Afrek Magnúsar Carlsens í áskorendamótinu, nýslegiđ stigamet og aldeilis stórkostleg framganga á skáksviđinu undanfarin misseri kallar á samanburđ viđ annan risa skáksögunnar, Garrí Kasparov, sem í dag, 13. apríl, fagnar 50 ára afmćli sínu. Kasparov komst hćst í 2.851 elo-stig en met Magnúsar stendur í 2.872 elo. Lengra nćr samanburđurinn ekki í huga margra.
Ţegar Kasparov hćtti opinberlega ađ tefla eftir sigur á Linares-mótinu áriđ 2005 hafđi hann veriđ stigahćsti mađur heims í 20 ár, teflt átta heimsmeistaraeinvígi, átti ađ baki óslitna sigurgöngu á alţjóđlegum mótum og skildi eftir sig frábćrt verk á sviđi skákbókmennta.
Afskipti af framkvćmdahliđ skákarinnar eru hins vegar umdeild; á pólitíska sviđinu rússneska hefur fullvissa hans um eigiđ ágćti ekki náđ yfir til háttvirtra kjósenda og tveir hjónaskilnađir gćtu bent til ţess ađ hann sé ekki mjög auđveldur í sambúđ; fyrsta eiginkonan var sett út á stétt" í miđju heimsmeistaraeinvígi í London haustiđ 1993. Hvađ varđar snilldarverk hans viđ skákborđiđ ţá blikna bestu skákir Magnúsar Carlsens í samburđi viđ snilldarverk Kasparovs. Núverandi heimsmeistari, Anand, var Kasparov aldrei mikil hindrun, stađan í viđureignum ţeirra er 29:16.
Norđmađurinn á ţó vinninginn á einu sviđi; líkt og Fischer teflir hann allar skákir í botn og hann er líka heiđarlegri viđ skákborđiđ. Á vettvangi einvígja er hann auđvitađ óskrifađ blađ og hann verđur ekki gerđur upp" međ sama hćtti og hinn fimmtugi Kasparov, sem greinarhöfundur telur ţrátt fyrir allt mesta skákmann allra tíma. Ef bera á fram mögnuđustu skák Kasparovs stendur valiđ á milli skáka nr. 16 í HM-einvígjum nr. 2 og 3. árin 1985 og '86 og skákar sem hann tefldi undir lok aldarinnar. Kannski kvaddi klassíska skákin" 20. öldina međ ţessari viđureign:
Wijk aan Zee 1999:
Garrí Kasparov - Veselin Topalov
Pirc-vörn
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3 Bg7 5. Dd2 c6 6. f3 b5 7. Rge2 Rbd7 8. Bh6 Bxh6 9. Dxh6 Bb7 10. a3 e5 11. 0-0-0 De7 12. Kb1 a6 13. Rc1 0-0-0 14. Rb3 exd4 15. Hxd4 c5 16. Hd1 Rb6 17. g3 Kb8 18. Ra5 Ba8 19. Bh3 d5 20. Df4+ Ka7 21. Hhe1
Ólíkt ţví sem menn áttu ađ venjast hafđi Kasparov í raun ekki margt fram ađ fćra í byrjun ţessarar skákar. Stađan má heita í jafnvćgi.
21.... d4 22. Rd5 Rbxd5 23. exd5 Dd6 24. Hxd4!
Fyrsta sprengjan fellur. Topalov sá atburđarásina fyrir, gat valiđ 24.... Kb6! sem heldur öllu í horfinu og sennilega gott betur en vildi láta reyna á réttmćti fórnarinnar.
24....cxd4
Byggir á hugmyndinni 25.... Dxe7 26. Db6+ Bb7 27. Rc6+ Ka8 28. Da7 mát.
25.... Kb6 26. Dxd4 Kxa5 27. b4+ Ka4 28. Dc3! Dxd5 29. Ha7! Bb7
Ţvingađ ţar sem 29.... Hd6 er svarađ međ 30. Kb1 sem hótar 31. Db3+ og mátar.
30. Hxb7 Dc4 31. Dxf6 Kxa3 32. Dxa6 Kxb4 33. c3+! Kxc3 34. Da1+ Kd2 35. Db2+ Kd1 36. Bf1! Hd2
37. Hd7!!
Hann er skrímsli međ ţúsund augu og ţau sjá öll." - Tony Miles. Kasparov mun ađ eigin sögn hafa séđ ţessa stöđu og ţennan leik fyrir er hann lék 24. Hxd4.
37.... Hxd7 38. Bxc4 bxc4 39. Dxh8 Hd3 40. Da8 c3 41. Da4 Ke1 42. f4 f5 43. Kc1 Hd2 44. Da7
- og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 7. apríl 2013.
Spil og leikir | Breytt 17.4.2013 kl. 15:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2013 | 17:13
Stefán Norđurlandsmeistari eftir sigur á Hannesi Hlífari
Stefán Bergsson (2139) tryggđi sér Norđurlandsmeistaratitilinn eftir mjög góđan sigur á stórmeistaranum Hannesi Hlífari Stefánsson (2513) í sjöundu og síđustu umferđ Skákţings Norđlendinga sem fram fór á Sauđárkróki um helgina. Hannes sigrađi engu ađ síđur á mótinu. Ţorvarđur F. Ólafsson (2237) varđ annar međ 5,5 vinning en Stefán og Sverrir Örn Björnsson (2135) urđu í 3.-4. sćti međ 5 vinninga.
Vigfús Ó. Vigfússon fékk verđlaun skákmanna međ minna en 2000 skákstig en Jón Arnljótsson, Sigurđur Ćgisson og Jakob Sćvar Sigurđsson urđu eftir skákmanna međ minna en 1800 skákstig.
Ţađ var Skákfélag Sauđárkróks sem hélt mótiđ og bar Unnar Rafn Ingvarsson, formađur félagsins, hitann og ţungann af mótshaldinu. Helstu styrktarađilar ţess voru Kaupfélag Skagafjarđar, FISK Seafood, Sparisjóđur Sauđárkróks, Skáksamband Íslands og Sveitarfélagiđ Skagafjörđur.
Hertz bílaleiga og Eyja-flug studdu viđ heimsókn Hannesar Hlífars, Stefáns og Gunnar Björnssonar, skákstjóra sem komu á vegum Skáksambandsins, Skákskólans og Skákakademíunnar og heimsóttu međal annars fjóra skóla á Norđvesturlandi.
Úrslit sjöundu umferđar má finna hér.Lokastöđu mótsins má nálgast hér.
21.4.2013 | 17:01
NM stúlkur 2013 - Nansý Norđurlandameistari

Nansý Davíđsdóttir var rétt í ţessu ađ tryggja sér Norđurlandameistaratitilinn í C-flokki. Nansý gerđi jafntefli viđ Söru Naess frá Noregi í síđustu umferđ og endađi jöfn Lisu Fredholm ađ vinningum. Nansý vinnur hins vegar á stigum og er ţví Norđurlandameistari Stúlkna 2013 í yngsta flokki. Til hamingju Nansý.
Spennan í A-flokki er gríđarleg. Jóhanna og Hrund gerđu jafntefli og mun ţađ ţví ráđast á stigaútreikningi sem rćđst af lokum síđustu tveggja skákanna í flokknum. Jóhanna nagar nú neglur og bíđur.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2013 | 13:49
NM Stúlkur 2013 - Pistill fjórđu umferđar
Úrslit morgunsins:
A-flokkur
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir - Caroline Lindberg Hansen, Svíţjóđ 1-0
Hrund Hauksdóttir - Kaberi Mitra, Svíţjóđ 1-0
B-flokkur
Monika Machlik, Noregi - Veronika Steinunn Magnúsdóttir 1-0
Mette Ellegaard Christensen, Danmörku - Sóley Lind Pálsdóttir 0-1
C-flokkur
Nansý Davíđsdóttir - Regine Forsa, Noregi 1-0
Svandís Rós Ríkharđsdóttir - Saida Mamadova, Svíţjóđ ˝-˝
Mun betri úrslit í dag, 4,5 vinningar af 6 mögulegum.

Í A-flokki vann Jóhanna Karólínu frá Svíţjóđ mjög örugglega. Sú sćnska tapađi tíma í byrjuninni og ţađ dugđi Jóhönnu sem gjörsamlega yfirspilađi andstćđinginn og vann mjög fljótt. Hrund tefldi langa og stranga skák gegn Kaberi frá Svíţjóđ. Hrund fékk betri stöđu eftir byrjunina en ţurfti ađ gefa mann fyrir tvö peđ en var áfram međ betri stöđu og ađ tefla til vinnings. Andstćđingurinn féll ađ lokum á tíma ţegar viđ henn blasti erfitt endatafl međ tveimur riddurum og peđi gegn riddara og fjórum peđum Hrundar. Verulega góđ úrslit í A-flokki í dag. Stađan í A-flokki er sú ađ Jóhanna og Jessica frá Svíţjóđ eru efstar og jafnar međ 3 vinninga. Hrund hefur 1,5 vinning eftir sigur í morgun. Svo óheppilega vill til ađ Jóhanna og Hrund mćtast í síđustu umferđ.

Í B-flokki tapađi Veronika fyrir Moniku öđrum norska tvíburanum í flokknum. Veronika fékk fína stöđu úr byrjuninni en tefldi ónákvćmt og tapađi manni. Ţá fór hún ađ tefla fyrir alvöru, vann peđ og var örugglega nánast búin ađ jafna tafliđ ţegar hún lék af sér í tímahraki og tapađi. Engu ađ síđur ágćtis skák hjá henni í dag. Viđ Sóley rćddum ţađ í gćr ađ vonda skákin í mótinu vćri búin og nú vćri bara ađ ná inn góđu skákunum. Sóley tefldi afar vel í dag og afgreiddi andstćđinginn snaggaralega í 20 leikjum. Verulega góđ skák hjá henni. Stađan í flokknum er nú ţannig ađ Freja frá Danmörku og Rina frá Svíţjóđ eru efstar og jafnar međ 3,5 vinninga. Á eftir ţeim koma norsku tvíburarnir međ 3 vinninga. Ţćr efstu mćta norsku tvíburunum í síđustu umferđ ţannig ađ ef tvíburarnir vinna báđir ţá eru ţćr efstar og jafnar. Veronika og Sóley geta rétt sinn hlut í flokknum međ sigri í dag.

Í C-flokki hélt Nansý uppteknum hćtti og vann Reginu frá Noregi örugglega. Sigur eđa jafntefli hjá henni í síđustu umferđ tryggir henni Norđurlandameistaratitilinn. Svandís tefldi langa og stranga skák gegn Saidu frá Svíţjóđ. Svandís var allan tíman ađ reyna ađ vinna en sú sćnska varđist vel og náđi ađ lokum ţráskák međ drottningu og peđ á móti tveimur hrókum og peđi. Ágćtis skák hjá Svandísi sem var afar nćrri ţví ađ innbyrđa sigur í morgun. Stađan í flokknum er nú ţannig ađ Nansý er ein efst međ 3,5 vinninga. Nćstar koma Sara frá Noregi og Lisa frá Svíţjóđ međ 3 vinninga. Nansý mćtir Söru í síđustu umferđ og dugir jafntefli til ađ sigra flokkinn.
Skákir Íslensku keppendanna (hófust klukkan 13:30):
A-flokkur
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir - Hrund Hauksdóttir
B-flokkur
Sóley Lind Pálsdóttir - Alina Legkiy, Svíţjóđ
Veronika Steinunn Magnúsdóttir - Mette Ellegaard Christensen, Danmörku
C-flokkur
Nansý Davíđsdóttir - Sara Naess, Noregi
Kajsa Nilsson, Svíţjóđ - Svandís Rós Ríkharđsdóttir
Skák Jóhönnu og Hrundar og skák Nansýar eru í beinni útsendingu.
Beinar útsendingar:
http://www.limhamnssk.se/live/ (flash)
http://www.limhamnssk.se/live/jslive.php
Myndir:
http://www.flickr.com/photos/limhamnssk/sets/72157633191277159/
Úrslit og röđun:
Skákir (pgn):
Davíđ Ólafsson
21.4.2013 | 11:02
Skákćvintýriđ í Stykkishólmi heppnađist mjög vel
Ţađ voru um 60 krakkar á grunnskólaaldri sem skráđu sig til leiks á Skákmót Árnamessu sem haldiđ var í 4. sinn í grunnskólanum í Stykkishólmi. Tefldar voru sjö umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Ţađ kom ekki á óvart ađ langstigahćsti ţátttakandinn, Oliver Aron Jóhannesson frá Fjölni, ynni mótiđ en sigurinn reyndist honum auđveldur. Greinilegt ađ drengurinn er í fantaformi og hefur notađ veturinn vel viđ stúderingar og taflmennsku.
Í öđru sćti varđ Dawid Kolka frá Helli og tapađi hann ađeins fyrir Oliver Aroni í nćstsíđustu umferđ. Jafnir í 3.-4. sćti komu Fjölnisstrákarnir frá Rimaskóla Kristófer Jóel, bróđir Olivers og Jóhann Arnar Finnsson međ 5,5 vinninga. Allir ţessir fjórir efstu tefldu í efri flokki mótsins. Sigurvegari yngri flokks varđ Haukastrákurinn úr Hraunvallaskóla Brynjar Bjarkason međ 5 vinninga. Hann reyndist hćrri á stigum en ţeir Guđmundur Agnar Bragason TR, Felix Steinţórsson Helli, Kristófer Halldór Kjartansson Fjölni og Helgi Svanberg Jónsson Haukum sem allir fengu líka 5 vinninga.
Aldrei hefur veriđ meiri ţátttaka í flokki Snćfellinga á Skákmóti Árnamessu en núna og ţar varđi Kristinn Hrafnsson Snćfellsbć titil sinn frá síđasta Árnamessumóti. Kristinn hlaut 5 vinninga eftir sigur á félaga sínum Helga Sigtryggssyni í lokaumferđinni. Í 3. sćti í flokki Snćfellinga varđ Hólmarinn Ellert Ţór Hermundarson međ 3 vinninga.
Skákdrottningar mótsins urđu ţćr bekkjarsystur úr Rimaskóla Ásdís Birna Ţórarinsdóttir og Tinna Sif Ađalsteinsdóttir báđar í Fjölni en ţćr stóđu sig mjög vel og fengu 4,5 vinninga. Ţćr stöllur ásamt Kristni í Snćfellsbć reyndust líka efst stigalausra á mótinu. Stefán Orri Davíđsson hlaut viđurkenningu fyrir ađ vera yngsti skákmađur mótsins en Stefán Orri sem er í 1. bekk Ölduselsskóla gerđi sér lítiđ fyrir og hlaut 4 vinninga og varđ í 18. sćti mótsins, einu sćti ofar en bróđir sinn Óskar Víkingur. Mótiđ heppnađist einstaklega vel og ţátttakendur voru til mikillar fyrirmyndar allir sem einn. Vinningar og happadrćttisvinningar glöddu alla sem ţá hrepptu en rúmlega 2/3 ţátttakenda fóru út međ verđlaun sem öll voru mjög áhugaverđ. Bođiđ var upp á rútuferđ frá Reykjavík ţar sem súpermömmurnar Dóra og Ţóra sáu um fararstjórn. Veitingar voru í bođi fyrir mót og í skákhléi. Páll Sigurđsson var skákstjóri og mótstjóri var Helgi Árnason formađur skákdeildar Fjölnis en deildin sá um alla framkvćmd mótsins líkt og áđur.
Heiđursgestur mótsins var Lárus Ástmar Hannesson forseti bćjarstjórnar Stykkishólmsbćjar sem bauđ skákmeistarana velkomna í Hólminn, minntist Árna Helgasonar heiđursborgara Stykkishólms og bindindisfrömuđar og lék fyrsta leikinn fyrir Heiđrúnu Önnu Hauksdóttur Fjölni.
Lokastöđu mótsins má nálgast á Chess-Results.
Myndaalbúm (HÁ)
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2513) vann Sveinbjörn Sigurđsson (1802) í sjöttu umferđ Skákţings Norđlendinga sem fram fór í gćr í Safnahúsinu á Króknum. Hannes hefur fullt hús og hefur tryggt sér sigur á mótinu. Hafnfirđingarnir Ţorvarđur F. Ólafsson (2237) og Sverrir Örn Björnsson (2135) eru í 2.-3. sćti međ 4,5 vinning eftir jafntefli í innbyrđisviđureign.
Úrslit fimmtu umferđar má finna hér.
Mikil barátta er Norđurlandsmeistaratitilinn en sex skákmenn geta hampađ titlinum. Stefán Bergsson (2139) er efstur Norđanmanna en hann hefur 4 vinninga. Áskell Örn Kárason (2224) og Jón Kristinn Ţorgeirsson (1812) hafa 3,5 vinning en Rúnar Sigurpálsson (2240), Hjörleifur Halldórsson (1936) og Sveinbjörn Ó. Sigurđsson (1802) hafa 3 vinninga.
Stöđu mótsins má nálgast hér.
Í sjöundu og síđustu umferđ, sem fram fer í dag og hefst kl. 10:30 mćtast međal annars: Hannes-Stefán, Ţorvarđur-Áskell, Jón Kristinn-Sverrir Örn og Vigfús-Sveinbjörn. Pörun lokaumferđirnar má finna hér.
Hrađskákmót Norđlendinga hefst fljótlega ađ lokinni síđustu umferđ eđa um eđa uppúr kl. 14.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 7
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 114
- Frá upphafi: 8778216
Annađ
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar