Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, október 2007

Kveinys međ ţjálfun 15.-19. október

Kveynis_Miezis.jpgLitháíski stórmeistarinn Alozyas Kveinys verđur međ kennslu (einkatíma) dagana 15. - 19. október (báđir dagar međtaldir).  Menn geta sent inn beiđnir um tíma til SÍ í netfangiđ siks@simnet.is eđa í síma 568 9141 á milli 10-13. 


Tveir stórmeistarar til liđs viđ Fjölni

FjölnirÍ byrjun ţessa mánađar gengu tveir stórmeistarar til liđs viđ Skákdeild Fjölnis.  Ţađ eru Búlgarinn Dejan Bojkov (2520) og Slóvakinn Tomas Likavsky (2496).  A-sveit Fjölnis tekur í fyrsta sinn ţátt í 1. deild Íslandsmóts félagsliđa í skák sem fram fer nú um helgina. Fjölnismenn stefna ađ ţví ađ blanda sér í baráttu efstu liđa og enginn vafi er á ađ ţeir Bojkov og Likasky koma til međ ađ styrkja liđ Grafarvogsbúa í átt ađ settu marki. Á ţessu ári hafa margir góđir skákmenn gengiđ til liđs viđ skákdeild Fjölnis eins og áđur hefur veriđ greint frá.


Hallgerđur Helga og Jorge efst og jöfn á atkvöldi Hellis

HallgerđurHallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir og Jorge Fonseca voru jöfn og efst međ 4,5 í 6 skákum á atkvöldi Hellis sem haldiđ var 8. október sl. Hallgerđur Helga var svo úrskurđuđ sigurvegari eftir margfaldan stigaútreikning á ţessu jafna atkvöldi ţar sem úrslit réđust ekki fyrr en  ţegar síđust skákum lauk.

Í síđustu umferđ mćttust allir ţeir sem áttu sigurmöguleika og fékk Jorge Bjarna Jens og hafđi sigur og Hallgerđur Helga gerđi jafntefli viđ Vigfús eftir ađ hafa stađiđ heldur höllum fćti lengst af. Bjarni Jens og Vigfús urđu svo ađ gera sér 3. og 4. sćtiđ ađ góđu.

 

 

 

Lokastađan á atkvöldinu:

1.   Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir  4,5v/6 (15,5; 18,5, 21,5)

2.   Jorge Fonseca                           4,5v/6 (15,5; 18,5, 20,5)

3.   Bjarni Jens Kristinsson               4v

4.   Vigfús Ó. Vigfússon                   4v

5.   Guđmundur Kristinn Lee            3v

6.   Elsa María Ţorfinnsdóttir            3v

7.   Jóhanna Björg Jóhannsdóttir      3v

8.   Tinna Kristín Finnbogadóttir       3v

9.   Örn Leó Jóhannsson                 3v

10. Sigurđur ingason                      2v

11. Eiríkur Örn Brynjarsson            2v.


EM taflfélaga: TR og Hellir unnu 5-1 í lokaumferđinni!

BjornogBragi.jpgÍslensku liđin Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagiđ Hellir unnu bćđi góđan 5-1 sigur í sjöundu og síđustu umferđ Evrópumóts taflfélaga sem fram fór í dag í Kemer í Tyrklandi.  Taflfélag Reykjavíkur hlaut 8 stig og 25,5 vinning og hafnađi í 18. sćti en Hellir hlaut 6 stig og 19,5 vinning og hafnađi í 35. sćti.   Bćđi félögin stóđu sig ţví heldur betur en međalstig gerđu ráđ fyrir en TR var 19. stigahćsta sveit mótsins en sveit Hellis sú 39. stigahćsta.

Hjá TR stóđ Stefán Kristjánsson sig best en hann fékk 5 vinninga.  Björn Ţorfinnsson stóđ sig best Hellisbúa, fékk 4 vinninga og var býsna nálćgt ţví ađ ná sínum ţriđja og síđasta áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.  Einnig er vert ađ geta frammistöđu varamanns og liđsstjóra TR, Snorra G. Bergssonar, sem tefldi tvćr síđustu skákirnar og vann ţćr báđar.  Spurning hvort ađ liđsstjórinn hefđi átt ađ skipta varamanninum fyrr inná? Wink 

Evrópumeistari varđ spćnska félagiđ Linex Magic - Merida.  Ţađ er athyglisvert ađ ţeir voru varamannslausir.   

Mynd: Brćđurnir Björn og Bragi unnu báđir í lokaumferđinni. 

Úrslit í viđureign TR:

Bo.19Reykjavik Chess ClubRtg-32Hilsmark KingfisherRtg5 : 1
13.1GMStefansson Hannes 2574-GMArkell Keith C 24791 - 0
13.2GMNataf Igor-Alexandre 2546-IMGreet Andrew N 24411 - 0
13.3GMThorhallsson Throstur 2448-IMHouska Jovanka 2404˝ - ˝
13.4IMKristjansson Stefan 2458-IMCooper Lawrence 2305˝ - ˝
13.5IMGunnarsson Jon Viktor 2427- Tavoularis Nicholas 22461 - 0
13.6FMBergsson Snorri 2298- Briscoe Chris 22731 - 0

Úrslit í viđureign Hellis:

Bo.39Hellir Chess ClubRtg-48Chess Club NiederrohrdorfRtg5 : 1
23.1IMThorfinnsson Bragi 2404-FMSchaufelberger Heinz 23321 - 0
23.2FMThorfinnsson Bjorn 2323- Gantner Matthias 21821 - 0
23.3FMSigfusson Sigurdur 2320- Rodic Donjan 2163˝ - ˝
23.4FMLagerman Robert 2346-FMMueller Leonhard 2173˝ - ˝
23.5 Edvardsson Kristjan 2266- Brunner Werner 21711 - 0
23.6 Berg Runar 2125- Meier Kurt 20351 - 0

Árangur liđanna:

18. Reykjavik Chess Club (8 / 25,5) 
Bo. NameRtgFED1234567Pts. RtgAvgRp.
1GMStefansson Hannes 2574ISL˝0˝˝1013,5 25152515
2GMNataf Igor-Alexandre 2546FRA1˝˝01˝14,5 24642566
3GMThorhallsson Throstur 2448ISL˝˝101˝˝4,0 24382488
4IMKristjansson Stefan 2458ISL11101˝˝5,0 23412499
5IMGunnarsson Arnar 2439ISL101010 3,0 23412341
6IMGunnarsson Jon Viktor 2427ISL1010˝ 13,5 22902347
7FMBergsson Snorri 2298ISL     112,0 23620

 

35. Hellir Chess Club (6 / 19,5) 
Bo. NameRtgFED1234567Pts. RtgAvgRp.
1IMThorfinnsson Bragi 2404ISL0˝000112,5 24692367
2FMThorfinnsson Bjorn 2323ISL˝1001˝14,0 23862436
3FMSigfusson Sigurdur 2320ISL01010˝˝3,0 23082258
4FMLagerman Robert 2346ISL01˝˝˝˝˝3,5 22442244
5 Edvardsson Kristjan 2266ISL0100˝113,5 22722272
6 Berg Runar 2125ISL01000113,0 21192069

Liđ Evrópumeistaranna:

 

1. Linex Magic - Merida (13 / 28,5)
Bo. NameRtgFED1234567Pts. RtgAvg
1GMKamsky Gata 2724USA˝0˝˝0˝13,0 2675
2GMAdams Michael 2729ENG11˝˝10˝4,5 2619
3GMRublevsky Sergei 2676RUS˝˝1˝1115,5 2590
4GMSargissian Gabriel 2673ARM1˝1˝˝˝˝4,5 2543
5GMCheparinov Ivan 2670BUL1˝1˝1116,0 2537
6IMPerez Candelario Manuel 2525ESP1˝111˝05,0 2451


EM unglinga: Guđmundur vann Hauk í sjöundu umferđ

Guđmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guđmundur Kjartansson (2324) sigrađi Armenann Hauk G. Vardanian (2118) í 7. umferđ Evrópumóts unglinga, 20 ára yngri, sem fram fór í dag í Yerevan.  Dagur Arngrímsson (2323) tapađi hins vegar fyrir spćnska alţjóđlega meistarann Marcos Llaneza Vega (2426).  Báđir hafa ţeir ţrjá vinninga og eru í 49.-59. sćti.   

Efstur međ 6 vinninga er egypski stórmeistarinn Ahmed Adly (2494), sem var međal sigurvegara á síđasta Reykjavíkurskákmóti.   Annar, međ 5,5 vinning, er tékkneski stórmeistarinn Viktor Laznicka (2610).   

Frídagur er á morgun. Í áttundu umferđ, sem fram fer á fimmtudag, teflir Guđmundur viđ mexíkanska alţjóđlega meistarann Luis Fernando Ibarra Chami (2416) en Dagur viđ armenska FIDE-meistarann Samvel Ter-Sahakyan (2389).

Alls taka 76 skákmenn ţátt í mótinu.  Ţar af eru 15 stórmeistarar, 22 alţjóđlegir meistarar og 8 FIDE-meistarar.  Guđmundur og Dagur eru númer 58 og 59 í stigaröđinni fyrir mót.  Alls eru tefldar 13 umferđir. 

EM taflfélaga: Hellir vann - TR tapađi - Snorri vann stórmeistara

Snorri G. BergssonEftir skrykkjótt gengi kom ađ langţráđum sigri hjá Íslandsmeisturum Hellis er ţeir lögđu finnska félagiđ Matinkylan Shakkekerho Espoo 4˝-1˝ í sjöttu og nćstsíđustu umferđ Evrópumóts taflfélaga sem fram fór í dag í Kemer í Tyrklandi.   TR tapađi hins vegar međ minnsta mun 2˝-3˝ fyrir sćnsku sveitina Sollentuna.   Varamađurinn og liđsstjórinn Snorri G. Bergsson (2298) sigrađi sćnska stórmeistarann Thomast Ernst (2450) í glćsiskák.   

TR hefur 6 stig og 20˝ vinning og er í 26.-27. sćti en Hellir hefur 4 stig og 14˝ og er í 44.-46. sćti.     

Hjá Helli unnu Bragi Ţorfinnsson, Kristján Eđvarđsson og Rúnar Berg sínar skákir.  Sá síđastnefndi á sérstakan hátt en andstćđingar hans féll á tíma međ riddara og tvö peđ en Rúnar átti bara biskup eftir!  Hins vegar er hćgt ađ stilla upp máti og ţví var honum dćmdur sigurinn.   Björn Ţorfinnsson hefur ekki lengur möguleika á áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli en andstćđingur hans í lokaumferđinni er of stigalár til ţess ađ sé gerlegt.   

Hjá TR hefur Stefán stađiđ sig best hefur hlotiđ 4˝ vinning en hjá Helli hafa Björn og Róbert Harđarson stađiđ best hafa 3 vinninga.  

Í lokaumferđinni, sem fram fer á morgun teflir TR viđ enska félagiđ Hilsmark Kingfisher en Hellir mćtir finnska félaginu Matinkylan Shakkekerho Espoo.

Spćnska félagiđ Linex Magic - Merida er efst međ 11 stig og 24˝ vinning.  

Úrslit í viđureign TR:

Bo.16Sollentuna ChessclubRtg-19Reykjavik Chess ClubRtg3˝:2˝
14.1GMBerg Emanuel 2593-GMStefansson Hannes 25741 - 0
14.2GMAgrest Evgenij 2541-GMNataf Igor-Alexandre 2546˝ - ˝
14.3GMPopov Valerij 2580-GMThorhallsson Throstur 2448˝ - ˝
14.4GMIvanov Sergey 2532-IMKristjansson Stefan 2458˝ - ˝
14.5IMCarlsson Pontus 2481-IMGunnarsson Arnar 24391 - 0
14.6GMErnst Thomas 2450-FMBergsson Snorri 22980 - 1

Úrslit í viđureign Hellis:
 

Bo.39Hellir Chess ClubRtg-34Matinkylan Shakkekerho EspooRtg4˝:1˝
24.1IMThorfinnsson Bragi 2404-IMMaki-Uuro Miikka 23991 - 0
24.2FMThorfinnsson Bjorn 2323-FMLehtivaara Petri 2376˝ - ˝
24.3FMSigfusson Sigurdur 2320-FMHentunen Asko 2352˝ - ˝
24.4FMLagerman Robert 2346-FMKivisto Mikko 2311˝ - ˝
24.5 Edvardsson Kristjan 2266-FMEbeling Mika 23541 - 0
24.6 Berg Runar 2125- Salimaki Janne 21811 - 0

Andstćđingarnir í 7. umferđ:

 

32. Hilsmark Kingfisher
Bo. NameRtgFED
1GMArkell Keith C 2479ENG
2IMGreet Andrew N 2441ENG
3IMHouska Jovanka 2404ENG
4IMCooper Lawrence 2305ENG
5 Tavoularis Nicholas 2246GRE
6 Briscoe Chris 2273ENG
7WIMAndersson Christin 2209SWE
8 Hogarth Mark J 1918ENG

 

48. Chess Club Niederrohrdorf
Bo. NameRtgFED
1FMSchaufelberger Heinz 2332SUI
2 Gantner Matthias 2182SUI
3 Rodic Donjan 2163SUI
4FMMueller Leonhard 2173NAM
5 Brunner Werner 2171SUI
6 Meier Kurt 2035SEY
7 Meier Peter 1998SEY

Gunnar Freyr sigrađi á hrađskákmóti Hróksins og Vinjar

jóhanna björg, vilhjálmur, dađi ómarsson og sigurvegarinn sjálfurGunnar Freyr Rúnarsson, fyrirliđi hins nýstofnađa Víkinga- og Kínaskákklúbbs, vann glćsilegan sigur í hrađskákmóti Hróksins og skákfélags Vinjar í tilefni alţjóđlegs geđheilbrigđisdags í Perlunni, sunnudaginn 7. október. Ţátttökumetiđ var jafnađ, 38 skráđu sig til leiks og var mótiđ bćđi stórskemmtilegt og spennandi en keppendur voru á aldrinum 8-72 ára.

Ţegar ţátttakendur höfđu skráđ sig hjá skákstjóranum honum Kristian Guttesen, hélt Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, stutt ávarp og setti mótiđ formlega. Heiđar Ingi Svansson, markađsstjóri Forlagsins, sem gaf glćsilega bókavinninga á mótiđ, lék svo fyrsta leikinn í skák Páls Andrasonar og Sveinbjörns Jónssonar.ţátttakendur voru á öllum aldri

Tefldar voru sex umferđir eftir monradkerfi, ţar sem umhugsunartími var 7 mínútur. Mikil spenna var í lokaumferđinni, ţar sem nokkrir höfđu möguleika á sigri en svo fór ađ Gunnar Freyr var í ógnarstuđi og sigrađi alla sína andstćđinga.

Fjórir voru međ fimm vinninga en eftir stigaútreikning var ljóst ađ annađ sćtiđ hreppti Stefán Bergsson. Ţar á eftir komu svo Vilhjálmur Pálmason, Davíđ Kjartansson og Dađi Ómarsson.
Fjóra vinninga hlutu: Jónas Jónasson, Hrannar Jónsson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Sigurđur Ingason, Elsa María Ţorfinnsdóttir og Ágúst Gíslason.

lilja og gunnarÍ humátt ţar á eftir, međ ţrjá og hálfan komu ţau Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir, Bjarni Jens Kristinsson og Guđmundur Kristinn Lee.

Veitt voru verđlaun fyrir bestan árangur 12 ára og yngri og ţau hlaut Guđmundur Kristinn Lee. Vilhjálmur Pálmason sem hafnađi í ţriđja sćti mótsins hlaut verđlaun fyrir bestan árangur 13-18 ára, Finnur Kr. Finnsson fyrir bestan árangur 60 ára og eldri og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sem varđ efst kvenna.

Grćnn markađur gaf blóm til vinningshafa og svo var dregiđ í happadrćtti ţar sem ffjórir ţátttakendur hrepptu bćkur í bođi Forlagsins, sem einnig gaf yngri ţátttakendum og áhorfendum Andrésblöđ og - syrpur. stefán bergsson og guđfríđur lilja

Fjöldi manns lagđi leiđ sína í Perluna yfir daginn ţví fyrir mót var glćsileg dagskrá ţar sem verndari dagsins, frú Vigdís Finnbogadóttir hélt rćđu, taílenskur hljóđfćraleikari lék á framandi hljóđfćri og magadansmeyjar heilluđu viđstadda. Regnbogakórinn söng og Tríótó lék nokkur lög. Ţráinn Bertelsson hélt sérlega flotta rćđu um sína sýn á geđheilbrigđi og stuđboltinn Valgeir Guđjónsson hélt utan um dagskrána og kynnti af snilld.


HM unglinga: Dagur og Guđmundur gerđu jafntefli

GudmundurKja.jpgFIDE-meistararnir Dagur Arngrímsson (2323) og Guđmundur Kjartansson (2324) gerđu báđir jafntefli í 6. umferđ Heimsmeistaramóts unglinga, 20 ára og yngri, sem fram fór í dag í Yerevan í Armeníu.   Dagur gerđi jafntefli viđ georgíska alţjóđlega meistarann Giorgi Margvelashvili (2451) en Guđmundur viđ Indverjann Karthik Arun (2391). 

Dagur hefur 3 vinninga og er í 33.-50. sćti en Guđmundur hefur 2 vinninga og er í 62.-71. sćti.  Filippseyski alţjóđlegi meistarinn Wesley So (2531) og egypski stórmeistarinn Ahmed Adly (2494), sem var međal sigurvegara á síđasta Reykjavíkurskákmóti, eru efstir međ 5 vinninga.    

Í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Dagur viđ spćnska alţjóđlega meistarann Marcos Llaneza Vega (2426) en Guđmundur viđ Armenann Hauk G. Vardanian (2118). 

Alls taka 76 skákmenn ţátt í mótinu.  Ţar af eru 15 stórmeistarar, 22 alţjóđlegir meistarar og 8 FIDE-meistarar.  Guđmundur og Dagur eru númer 58 og 59 í stigaröđinni fyrir mót.

 


Atkvöld hjá Helli í kvöld

hellir-s.jpgTaflfélagiđ Hellir heldur atkvöld mánudaginn 8. ágúst og hefst mótiđ kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hrađskákir ţar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til ađ ljúka skákinni og síđan ţrjár atskákir, međ tuttugu mínútna umhugsun. Ljúffeng verđlaun.  Tilvalin upphitun fyrir fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fram fer 12.-14. október!

Sigurvegarinn fćr í verđlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Ţá hefur einnig veriđ tekinn upp sá siđur ađ draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fćr pizzu hjá Dominos Pizzum. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


EM taflfélaga: TR vann en Hellir tapađi

StefánMisjafnt var gengi íslensku félaganna sem ţátt taka í Evrópukeppni taflfélaga í 5. umferđ sem fram fór í dag.  Taflfélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á tyrkneska félaginu Besiktas, 5˝-˝ en Hellismenn töpuđu 2-4 fyrir litháíska félaginu Plunge Chess Club Bokstas.  TR hefur 6 stig og 18 vinninga og er í 20. sćti en Hellir hefur 2 stig og 10 vinninga og er í 50.-51. sćti. 

Hjá TR unnu allir sínar skákir nema Jón Viktor Gunnarsson en hjá Helli var Björn Ţorfinnsson sá eini sem sigrađi.  Björn hefur möguleika á ađ ná sínum ţriđja áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli en til ţess ţarf hann vćntanlega 1,5 vinning í lokaumferđunum tveimur. 

Hjá TR hefur Stefán stađiđ sig best hefur hlotiđ 4 vinninga en hjá Helli hafa Björn og Róbert Harđarson stađiđ best, hafa 2,5 vinning.    

Í sjöttu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun teflir TR viđ sćnska félagiđ Sollentuna en Hellir mćtir finnska félaginu Matinkylan Shakkekerho Espoo.


Úrslit í viđureign TR:

Bo.44BesiktasRtg-19Reykjavik Chess ClubRtg˝ :5˝
12.1IMAtakisi Umut 2399-GMStefansson Hannes 25740 - 1
12.2 Tanrikulu Erhan 2217-GMNataf Igor-Alexandre 25460 - 1
12.3 Apaydin Fethi 2210-GMThorhallsson Throstur 24480 - 1
12.4 Yaramis Hakan 2119-IMKristjansson Stefan 24580 - 1
12.5 Firat Burak 2147-IMGunnarsson Arnar 24390 - 1
12.6 Yilmazyerli Mert 2120-IMGunnarsson Jon Viktor 2427˝ - ˝

Úrslit í viđureign Hellis:

Bo.47Plunge Chess Club BokstasRtg-39Hellir Chess ClubRtg4 : 2
22.1FMAsauskas Henrikas 2320-IMThorfinnsson Bragi 24041 - 0
22.2 Godlauskas Kazys 2273-FMThorfinnsson Bjorn 23230 - 1
22.3 Kalvaitis Sigitas 2245-FMSigfusson Sigurdur 23201 - 0
22.4 Jadenkus Henrikas 1994-FMLagerman Robert 2346˝ - ˝
22.5WFMDomarkaite Laima 2155- Edvardsson Kristjan 2266˝ - ˝
22.6 Vasylius Kestutis 2048- Berg Runar 21251 - 0

Andstćđingarnir í 6. umferđ:

16. Sollentuna Chessclub
Bo. NameRtgFED
1GMBerg Emanuel 2593SWE
2GMAgrest Evgenij 2541SWE
3GMPopov Valerij 2580RUS
4GMIvanov Sergey 2532RUS
5IMCarlsson Pontus 2481SWE
6GMErnst Thomas 2450SWE

34. Matinkylan Shakkekerho Espoo
Bo. NameRtgFED
1IMMaki-Uuro Miikka 2399FIN
2FMLehtivaara Petri 2376FIN
3FMPulkkinen Kari 2330FIN
4FMHentunen Asko 2352FIN
5FMKivisto Mikko 2311SIN
6FMEbeling Mika 2354FIN
7 Salimaki Janne 2181FIN



« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 36
  • Sl. sólarhring: 38
  • Sl. viku: 151
  • Frá upphafi: 8778487

Annađ

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband