13.12.2009 | 21:59
Skákţáttur Morgunblađsins: Magnús Carlsen er óstöđvandi
Fyrirbyggjandi taflmennska átti ekki upp á pallorđiđ hjá skákunnendum fyrr á árum. Eins og ađ horfa á grasiđ gróa, sagđi einn. Algerlega áunniđ bragđ, sagđi annar. Helsti spámađur ţeirrar deildar var Anatolí Karpov.
Fyrirbyggjandi taflmennska átti ekki upp á pallorđiđ hjá skákunnendum fyrr á árum. Eins og ađ horfa á grasiđ gróa, sagđi einn. Algerlega áunniđ bragđ, sagđi annar. Helsti spámađur ţeirrar deildar var Anatolí Karpov. Leysti af hólmi Tigran Petrosjan sem var heimsmeistari óslitiđ í sex ár á sjöunda áratugnum. Petrosjan virtist skynja hćttur betur en ađrir. Kannski var óttaskyniđ of ţróađ; Tigran virtist stundum alveg lafhrćddur löngu áđur en tafliđ hófst og jafnteflistilbođunum rigndi yfir mótstöđumanninn. Ekki alltaf međ berum orđum heldur einnig međ ýmsu látbragđi; ţegar Bobby Fischer háđi einvígi sitt viđ Petrosjan í Buenos Aires haustiđ 1971 bađ hann um vistaskipti ţví ađ hann kvađst alltaf vera ađ rekast á Petrosjan í hótellyftunni međ yfirţyrmandi vesćldarsvip.
Karpov bćtti ţann ermska upp ađ flestu leyti ţótt ţeir vćru líkir um margt. Skákstíll hann einkenndist af alls kyns smáspili, rađtćkni", endurtekningum og beinum en ţó oftar óbeinum hótunum . Margir reyndu ađ líkja eftir Karpov en ţađ var erfitt ţví stíll hans var persónulegri og útsmognari en menn hugđu, ţađ var eins og einhver óljós ógn héngi yfir höfđi mótstöđumanna hans; hann gat fyrirvaralaust breytt um tempó í leik sínum og var ađ mati endataflssérfrćđingsins Averbakh endurskođunarsinni" - fyrir honum stađan á borđinu alltaf ný".
Karpov má í dag muna sinn fífil fegurri en áhrif hans eru engu ađ síđur gífurleg og auđsć. Meistari dagsins, Magnús Carlsen, virđist t.d. hafa lćrt heilmikiđ af honum. Hann hefur nú unniđ tvćr fyrstu skákir sínar á London chess classic, sterkasta móti sem haldiđ hefur veriđ í London í 25 ár.
Töfluröđin er ţessi: 1. Carlsen 2. McShane 3. Howell 4. Nakamura 5. Ni Hua 6. Short 7. Adams 8. Kramnik.
Ef viđureign Magnúsar Carlsen viđ Vladimir Kramnik úr 1. umferđ er skođuđ má greina ýmsa ţćtti sem áđur var getiđ um t.d. rađtćkni og óbeinar hótanir. Hann lét aldrei beinlínis til skarar skriđa og ţegar Kramnik lagđi niđur vopnin gátu hinir ávallt sögufróđu Englendingar altént vitnađ í nokkrar orrustur sem lauk án ţess ađ skoti hefđi veriđ hleypt af.
Kasparov mun hafa mćlt međ ađ Carlsen beitti enska leiknum, 1. c4 sem er athyglisvert ţví sjálfur brá hann aldrei á ţađ ráđ í einvígi sínu viđ Kramnik í London áriđ 2000. Fyrirbyggjandi leikir í ţessari skák teljast t.d. 37. Hb4 og 39 Bf4 og 43. Re2. Rađtćknileikir eru nokkrir ţ. á m. 40.Kf2.
London 2009; 1. umferđ:
Magnús Carlsen - Vladimir Kramnik
Enskur leikur
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4. g3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rb6 7. 0-0 Be7 8. a3 0-0 9. b4 Be6 10. Hb1 f6 11. d3 a5 12. b5 Rd4 13. Rd2 Dc8. 14. e3 Rf5 15. Dc2 Hd8 16. Bb2 a4 17. Hfc1 Rd6 18. Rde4 Re8 19. De2Bf8 20. f4 exf4 21. gxf4 Dd7 22. d4 c6 23. Rc5 Bxc5 24. dxc5 Rc4 25. Hd1 Dc7 26. Bc1Ra5 27. bxc6 bxc6 28. Rxa4 Hxd1+ 29. Dxd1 Hd8 30. Dc2 Df7 31. Rc3 Dh5 32. Re2 Bf5 33. e4 Bg4 34. Rg3 Df7 35. Bf1 Be6 36. Dc3 Ha8
37. Hb4 Dd7 38. f5 Bf7 39. Bf4 Dd1 40. Kf2 Rb3 41. Be2 Db1 42. Bc4 Hxa3 43. Re2
- og Kramnik gafst upp.
Frá heimsbikarmóti FIDE í Khanty Maniysk í Síberíu berast ţau tíđindi ađ úrslitaeinvígi muni heyja Ísraelsmađurinn Boris Gelfand og Ruslan Ponomariov frá Úkraínu. Yfir 130 skákmenn hófu keppni.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Erlendar skákfréttir, Íţróttir, Skákţćttir Morgunblađsins | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 20
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 125
- Frá upphafi: 8778429
Annađ
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 100
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.