Leita í fréttum mbl.is

Guðmundur með fimmta jafnteflið í röð

Guðmundur Kjartansson

FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) gerði jafntefli við portúgalska stórmeistarann Luis Galego (2454) í áttundu og næstsíðustu umferð Big Slicks-mótsins, sem fram fór í Lundúnum í dag.  Guðmundur hefur 2,5 vinning og er níundi.  

Rússneski stórmeistarinn Alexander Cherniav (2423) er efstur með 6 vinninga.  Annar er enski stórmeistarinn Keith Arkell (2517) með 5,5 vinning.  Í 3.-4. sæti með 5 vinninga, eru Galego og Rússinn Alexei Slavin (2308).

Í lokaumferðinni, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við enska skákmanninn og stigalægsta keppanda mótsins, Peter S Poobalasingam (2240).

Alls taka 10 skákmenn þátt í efsta flokki og tefla þeir allir við alla.  Til að ná áfanga að stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga en til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 5,5 vinning.

Heimasíða mótsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 32
  • Sl. sólarhring: 35
  • Sl. viku: 147
  • Frá upphafi: 8778483

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 108
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband