Leita í fréttum mbl.is

Björn sigraði í 2. umferð á Ítalíu

Björn ÞorfinnssonBjörn Þorfinnsson (2399) sigraði  ítalska FIDE-meistarann Massimiliano Lucaroni (2320) í 2. umferð b-flokks Reggio Emila-skákhátíðirnar á Ítalíu, sem fram fór í dag.  Jón Viktor Gunnarsson (2430) gerði jafntefli við ungverska alþjóðlega meistarann Miklos Galyas (2454).  Björn hefur 1,5 vinning en Jón Viktor hefur 1 vinning.

Björn er í 2.-5. sæti en Jón í 6. sæti.  Almasi (2663) og Hi Nua (2710) eru efstir í a-flokki með fullt hús.  

Í 3. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Björn við ítalska FIDE-meistarann Alberto Pomaro (2254) og Jón Viktor við ítalska FIDE-meistarann Andrea Cocchi (2305).   

B-flokkurinn er áfangamót þar sem Björn er að gera atlögu að lokaáfanganum að alþjóðlegum meistaratitli.  Jón Viktor er hins vegar í hlutverki skotskífunnar, það er einn þriggja alþjóðlegra meistara.

Heimasíða mótsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 8779007

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband