Leita í fréttum mbl.is

Ólympíumótiđ í Dresden, 5. pistill

Eftir ćsilega viđureign gegn Moldóvum í gćr ţá mćtum viđ Brasilíumönnum í dag í opna flokknum.  Viđureignin í gćr var mjög spennandi og var erfitt ađ fylgjast međ á hliđarlínunni ţví sveiflurnar voru miklar.  Moldóvarnir notuđu greinilega gömlu góđu strategíuna ađ gera jafntefli međ svörtu og treysta svo á amk 1,5 međ hvítu mönnunum og má segja ađ fljótlega hafi veriđ ljóst ađ ţeir nćđu fram markmiđum sínum međ svörtu mönnunum.

En aftur á móti litu hvítu stöđurnar hjá Moldóvum alls ekki vel út frá sjónarhóli Moldóva, ţeas Hannes og Stefán fengu báđir snemma mjög fínar stöđur međ svörtu mönnunum.  Á tímabili var ég farinn ađ eygja von um amk 1,5 vinning hjá ţeim félögum, en ţá valdi Stebbi rangt plan, valdi ađ ţvinga andstćđinginn til ađ gefa mann fyrir tvö peđ og kóngssókn sem ţví miđur reyndist alltof gott fyrir hvítan.  Ég veit eiginlega ekki hvort var meira niđurdrepandi ađ horfa á stöđuna hjá Stefáni eđa Stefán sjálfan ţví hann vissi greinilega ađ hann var međ vonlausa stöđu og uppgjafarsvipurinn leyndi sér ekki í fasi hans.

Á fyrsta borđi tefldi Bologan af miklum krafti gegn Hannesi og fórnađi peđi á athyglisverđan hátt.  Hannes aftur á móti tefldi vörnina vel og náđi svo ađ plata Bologan í tvígang, fyrst međ sterkum Dd2 leik og svo međ feykiöflugum g5 leik sem kom Bologan greinilega úr jafnvćgi ţví restina af skákinni tefldi hann illa ţannig ađ Hannes innbyrti mjög góđan sigur.  2-2 jafntefli ţví stađreynd og getum viđ ágćtlega unađ viđ ţađ. 

Á eftir er ţađ svo Brasilía og munum viđ kappkosta ađ vinna ţá viđureign og koma okkur ţannig í námunda viđ toppinn.

Frćndur okkar Norđmenn halda áfram ađ standa sig vel, gerđu jafntefli viđ Englendinga í gćr ţar sem Carlsen vann Adams og Agdestein hélt jöfnu gegn Short međ svörtu mönnunum sem telst góđur árangur.  Á eftir mćta ţeir Azerbaijan en ţví miđur teflir Radjabov ekki međ Azerbaijan í dag, heldur er Mamedyarov á fyrsta borđi. 

Af áhugaverđum skákum í gćr má ég til međ ađ benda á Caruana - Korchnoi ţar sem Ítalinn ungi algjörlega rúllađi Korchnoi gamla upp.  Örugglega langt síđan einhver hefur fariđ svona illa međ Korchnoi og vćri gaman ađ vita hvort Korchnoi hafi haft orku í ađ hundskamma Caruana eftir skákina einsog hann gerir jafnan ţegar einhverjir ungir skákmenn leyfa sér ađ vinna hann.  Hćgt er ađ skođa skákina hér http://schachlive.dresden2008.de/old.games.m.ger.html og velja 4. umferđ.

Af kvennaliđinu er ţađ ađ segja ađ ţćr unnu Wales í gćr 4-0 og mćta Bangladesh í dag.  Ćttu ađ eiga ágćtis möguleika á stigi eđa stigum ţar.  Ţćr hafa margar hverjar teflt ágćtlega hingađ til og var gaman ađ sjá Hallgerđi vinna sína fyrstu skák í gćr.  Vonandi fer hún ţá ađ tefla af sama sjálfstrausti og undanfarin misseri og ef hún gerir ţađ verđur ţetta gott mót hjá henni, keine spurning.

Á morgun verđur svo frídagur og munum viđ nota hann til ađ sjúga í okkur ţýska menningu, enda er af nógu ađ taka hér í Dresden.  Borgin er međ ţeim fallegri sem ég hef komiđ í og hér eru líka margir ekta-Ţjóđverjar međ falleg yfirvaraskegg og Herr Doktorslegt yfirbragđ.  Mannlífiđ mćtti reyndar vera ađeins meira hérna, en vísast er meira um ađ vera í öđrum hverfum borgarinnar.

En jćja, nóg í bili. 

Sigurbjörn


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 8778257

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband