Leita í fréttum mbl.is

Ólympíumótiđ í Dresden, 4. pistill

Gćrdagurinn gekk vel hjá karlaliđinu, 4-0 sigur gegn Angóla sem var aldrei í neinnu hćttu og tvö örugg stig í hús.  Á eftir fáum viđ ţétta sveit Moldavíu og vćri sigur gegn ţeim mjög góđ úrstlit.  Moldóvar eru nr 26 í stigaröđinni ţannig ađ ţeir eru 19 sćtum ofar en viđ.  Hannes er međ svart gegn Bologan sem er ţeirra langsterkasti mađur og ţess vegna vćri mjög gott ef Hannes nćđi úrslitum gegn honum.  Sénsinn hjá okkur liggur fyrst og fremst á 2. og 4. borđi ţar sem stigamunurinn er lítill og viđ međ hvítt á báđum borđum.  Henrik hvílir hjá okkur í dag ţannig ađ liđiđ verđur Hannes, Héđinn, Stefán og Ţröstur.

Stelpunum gekk ekki jafn vel í gćr ţví ţćr töpuđu 4-0 gegn sterkri sveit Slóvena.  Í dag mćta ţćr svo Wales og verđur öll áhersla lögđ á ađ vinna viđureignina og ná ţannig tveimur dýrmćtum stigum.  Ađalliđiđ teflir hjá stelpunum á eftir sem ţýđir ađ Elsa María hvílir.

Í gćrkvöldi fórum viđ nokkrir í karlaliđinu ađ borđa á pizzastađ sem er ţarna í nágrenni viđ skákstađinn.  Ţegar viđ mćtum á stađinn tökum viđ strax eftir afar ástfangnu pari sem situr ţarna á nćsta borđi á ţessum litla og huggulega pizzastađ og helst í hendur.  Viđ svosem pćlum ekki meira í ţví og förum bara í ađ panta matinn okkar, en á međan viđ bíđum eftir matnum gerist ţađ ađ stelpan bregđur sér smástund frá borđinu.  Ţegar hún hefur veriđ í burtu í ca 1 mínútu birtist sjálfur Vassily Ivanchuk á veitingastađnum og gengur hann rakleitt ađ sćtinu sem stelpan hafđi setiđ í og fćr sér sćti án ţess ađ svo mikiđ sem heilsa grey manninum sem nú sat međ eitt stórt spurningarmerki í andlitinu.  Eftir örlitla stund segir hann ţó Ivanchuk ađ ţetta sćti sé upptekiđ og stendur Ivanchuk ţá upp og er bođiđ sćti á nálćgu borđi ţar sem einhver skákáhugamađur sat.  Ţar sat Ivanchuk svo í mjög ţungum ţönkum nćsta klukkutímann og var greinilega mikiđ niđri fyrir ţví hann faldi andlitiđ reglulega í höndum sér og hristi jafnvel höfuđiđ.  Ég lét ţví vera eitt mitt fyrsta verk ţegar ég kom á hótelherbergiđ ađ skođa skákina hans og ţá sá ég ađ hann hafđi tapađ frekar illa fyrir Badur Jobaava í áhugaverđri skák sem ég hvet menn til ađ skođa hér: http://schachlive.dresden2008.de/old.games.m.eng.html

En nú er fariđ ađ styttast í umferđ og menn ađ gera sig klára í slaginn ţannig ađ ég biđ ađ heilsa í bili.

Sigurbjörn


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband