14.11.2008 | 13:24
Ólympíumótið í Dresden, 2. pistill
Þrátt fyrir tap í gær gegn USA erum við í karlaliðinu ágætlega sáttir við umferðina. Á tímabili hélt ég reyndar að við myndum fá eitthvað út úr umferðinni því við vorum komnir 1,5-0,5 yfir og stöðurnar hjá Héðni og Stebba litu alveg eins út fyrir að geta gefið af sér hálfan vinning. En þær snöggversnuðu báðar og fór svo að lokum að við töpuðum með minnsta mun þannig að USA hirti bæði stigin sem voru í boði. Þó að það sé auðvitað betra fyrir móralinn í liðinu þá breytir þannig lagað ekki máli hvort við fáum 1,5 vinning eða 0 vinninga því stigin eru það sem gilda og ef lið eru jöfn eru það Sonnenburn-Berger stigin. Heildarvinningafjöldinn er svo tekinn til greina sem þriðji kostur séu lið jöfn þannig að það er ólíklegt að heildarvinningafjöldinn hafi nokkuð að segja í lok mótsins.
Kvennaliðið aftur á móti vann góðan sigur gegn Japan og var gaman að sjá Elsu Maríu rúlla yfir andstæðing sinn í sinni fyrstu Ólympíuskák og vonandi er þetta það sem koma skal hjá henni. Á eftir mæta stelpurnar svo þéttu ítölsku liði og mun aðalliðið tefla þá viðureign (þeas, Elsa hvílir). Á sama tíma mætir karlaliðið Yemen og eru þeir svo elskulegir að þeir raða öfugt í liðið sitt. Sterkasti maðurinn (2464) er varamaður og veikasti maðurinn (2154) er á fyrsta borði. Sá hvíldi í gær og giskar Omar á að í dag hvíli varamaðurinn. Ég á reyndar bágt með að trúa því, en Omar segir að þeir leggi mikið upp úr því að stigahæsti maðurinn fái borðaverðlaun og til þess að svo megi vera þá gætu þeir hvílt hann þegar hann fær sterka andstæðinga. Kemur í ljós hvað verður, en greinilegt að lið mæta með misjafnar áherslur.
Annars virðist Dresden vera ægifögur borg, en kannski dálítið sofandi. Við höfum aðeins verið í miðbænum því við borðum í Ráðhúsinu og tökum sporvagninn til að komast til og frá hótelinu. Mjög mikið er af fallegum og vel skreyttum byggingum og greinilegt á öllu gullinu sem maður sér hérna að menn hafa átt til hnífs og skeiðar hérna í gegnum árin. Verður gaman að skoða borgina betur þegar við fáum frídag.
Að öðru leyti er lítið að frétta enn sem komið er, Þjóðverjarnir eru auðvitað með allt á hreinu bitte schön og ekki hægt að kvarta yfir neinu. Það eru frekar fá lið á hótelinu sem við erum á, þannig að við erum ekki að rekast mikið af elostigum hér, Búlgararnir eru reyndar hérna, en ég hef hvorki séð Topalov né Cheparinov þannig að þeir hljóta að vera á öðru hóteli. Georgiev er hérna og er síhlægjandi þannig að hann hefur lítið breyst frá því ég sá hann síðast.
Nú er borðapörunin komin og greinilegt að Omar þekki Yemenmennina betur en ég, því þeir hvíla sterkasta manninn. Hjá okkur hvílir Hannes og stefnum við naturlich á sigur.
Þar sem ég hef verið að skrifa þessar línur síðan í morgun, með nokkrum hléum þá hefur ýmislegt gerst síðan ég byrjaði. Það nýjasta er að búið er að fresta umferðinni þangað til kl 16 vegna mistaka við pörun. Ekki voru birtar réttar borðaparanir í morgun og þurftu þeir að breyta því síðast kl 12:57 og þar af leiðandi hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta umferðinni um heila klukkustund. Breytir engu fyrir karlaliðið, þar er allt einsog það var upphaflega birt, en mér skilst á Omari að allur undirbúningur kvennaliðsins sé fyrir bí sem er auðvitað mjög slæmt. Hver segir svo eiginlega að Deutsche skipulagning sé óaðfinnanlega ?
En læt þetta nægja í bili, Sigurbjörn
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 5
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 8778303
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.