15.10.2008 | 00:20
Ísland byrjar vel í atskákinni - pistill Björns númer 2
Eftir hörmungardag í hrađskákinni í gćr (sem ţó skilađi okkur 11. sćtinu) vorum viđ upplitsdjarfir fyrir átök dagsins. Viđ sváfum allir eins og englar í nótt og ţreytan eftir ferđalagiđ var horfin úr líkamanum. Ţó var einn danskur kroppur sem var yfirbugađur og ţar á ég viđ Henrik okkar Danielsen sem var mjög slappur og óskađi ţví eftir fríi í atskákunum tveimur dag. Liđstjórinn lét persónulega skáksýki hafa áhrif á sig og samţykkti beiđnina - ţessi djókur verđur aldrei ţreyttur.
Fyrsta umferđin hófst kl.15.00 á kínverskum tíma og var ég mćttur niđur á skákstađ kl.14.00 til ađ senda pistil heim og gulltryggja ađ allt vćri í lagi međ liđsuppstillinguna okkar. Ţađ verđa ekki gefnir fleiri punktar í ţessu móti!
1.umferđ: Ísland - Mongólía 3,5 - 0,5 (Hannes, Héđinn, Stefán, Björn)
Mongólar eru ekki međ sitt sterkasta liđ heldur senda unga stráka til leiks sem allir eru međ um 2300 stig. Mađur er nú alltaf smeykur viđ slíkar sveitir ţví styrkleiki ţeirra getur veriđ mjög á reiki. Viđ unnum hinsvegar afar sannfćrandi sigur sem ég var mjög ánćgđur međ. Ég og Héđinn völtuđum yfir andstćđinga okkar međ svörtu mönnunum og Stefán tefldi módelskák í Caro-Kann ađ sínu mati! Andstćđingurinn hefđi hugsanlega átt ađ geta varist betur en hann leyfđi okkar manni ađ svíđa sig ađeins of auđveldlega. Hannes var viđ ţađ ađ yfirspila andstćđinginn gjörsamlega en gerđi ţau mistök ađ nota of mikinn tíma og vanda sig kannski ađeins of mikiđ. Í tímahraki gerđi hann mistök en ţó ekki ţađ alvarleg ađ jafntefliđ vćri í hćttu. Ágćtis úrslit og töluvert betri byrjun en gegn Englendingunum í hrađskákinni.
2.umferđ: Eistland - Ísland 0-4 (Hannes, Héđinn, Stefán, Björn)
Getur mađur annađ en elskađ ađ tefla ţegar allt gengur upp? Viđ vorum sáttir viđ ađ mćta Eistlendingum sem ađ eru áţekkir okkur ađ styrkleika - ţ.e. á pappírunum. Mađur á kannski ekki ađ vera međ of mikla strategíu í gangi í svona stuttum skákum en ég var mjög međvitađur um ađ ađalatriđiđ vćri ađ tryggja sigur í viđureigninni og ţar međ 2 stig, sjálfur vinningafjöldinn vćri aukaatriđi. Ég var eiginlega ögn brenndur eftir skákina gegn Ítalanum ţar sem ađ léleg ákvörđun kostađi okkur sigur í viđureigninni.
Allar skákirnar voru í járnum lengi vel en ţegar á leiđ fór allt ađ detta međ okkur. Ég var fyrstur til ađ leggja minn andstćđing ađ velli í skák sem mér fannst ég hafa stjórn á allan tímann. Vissulega hafđi Eistinn sín fćri en ég fékk aldrei ţá tilfinningu ađ ég vćri ađ missa tökin á stöđunni. Ţegar ég gat fariđ ađ fylgjast međ öđrum skákum sá ég ađ Stebbi var ađ vinna sinn andstćđing í endatafli en ţađ var víst eftir einhverja ţrautargöngu í byrjun skákarinnar. Í sömu andrá vélađi Héđinn andstćđing sinn samviskusamlega niđur og stađan ţví 3-0 og Hannes enn ađ tafli. Ég var nú ekki alveg ađ skilja stöđuna hjá Hannesi til ađ byrja međ ţví GM Kualots virtist vera međ vćnlegt tafl. Viđ skođuđum skákina svo í Fritz eftir skákina og var tölvan sammála mér til ađ byrja međ en fór svo ađ átta sig eftir smá stund og lćra ađ meta fćrin sem svartur hafđi. Hannes gerđi sér alveg grein fyrir ţessu og tefldi lokin óađfinnanlega til sigurs. Virkilega góđ skák hjá The Robot" enda var hann afar kátur eftir hana.
Uppskeran ţví 7,5 vinningar af 8 mögulegum og 2-3.sćti stađreynd. Á morgun teflum viđ gegn Ungverjum á 2.borđi og hefur Hannes hvítt á fyrsta borđi. Ég reikna fastlega međ ađ ađalliđinu verđi stillt upp ţví Henrik var orđinn allt annar mađur í kvöld og tilbúinn í baráttuna. Ég verđ ţó ófeiminn ađ skipta skrattakollunum út ef ađ ţeir standa sig ekki enda tefldi ég eins og engill í dag!!
Sjálfar ađstćđurnar hérna eru svo til fyrirmyndar. Viđ gistum í stórri íbúđ í ÓL-ţorpinu sem er ţó bara međ ţremur svefnherbergjum en ţremur klósettum! Ég og Hannes deilum svítunni - risastórt herbergi međ stóru samliggjandi bađherbergi, Héđinn fékk eins manns herbergiđ sem er lítiđ en notalegt. Henrik og Stefán eru svo í gúanóinu en ţeirra herbergi er álíka stórt og herbergi Héđins. Ţar hafa líka tekiđ sér bólfestu blóđţyrstar moskítóflugur sem ađ hafa veriđ duglegar ađ gćđa sér á blóđi Stefáns en látiđ Henrik ađ mestu í friđi. Stebbi er nokkuđ illa farinn á sál og líkama eftir ţessar árásir en hann náđi ađ hefna sín í kvöld međ ţví ađ drepa fjögur kvikindi međ lófanum. Eftir höggin voru fjórir myndarlegir blóđblettir á veggnum enda voru flugurnar vel mettar eftir síđustu nćtur.
Viđ erum svo međ nafnspjöld hangandi um hálsinn sem tryggja okkur ađgang ađ mótsstađ sem og ađgang í matsalinn rétt hjá hótelinu. Ţar er okkur bođiđ upp á afar góđan morgunmat, viđbjóđslegan hádegismat en frábćran kvöldmat. Frekar skrítiđ ađ Kínverjarnir leggja einfaldlega enginn metnađ í hádegismatinn! Eftir tvo daga hérna hafđi ég nú varla áttađ mig á ţessu ţótt ađ lunchinn" vćri vondur en eftir langt spjall viđ íslensku briddsarana ţá var okkur tjáđ ţetta.
Talandi um kynni okkar af briddsurunum en strax viđ lendingu rakst ég á Gunnar Björn Helgason sem er skákmönnum af minni kynslóđ góđu kunnur. Hann keppir fyrir Íslands hönd í ungmennakeppninni í Bridge og urđu međ okkur fagnađarfundir. Svo hittum viđ Svein (man ekki eftirnafniđ) sem ađ allir sem ađ sóttu Helli heim í Ţönglabakkann kannast viđ. Hann var gaurinn sem gargađi alltaf: SKIPTA". Ađrir briddsarar hafa ekki orđiđ á vegi okkar en sem komiđ er. Gunnar verđur hérna til 21.október eins og viđ skákmennirnir og ţví er alveg ljóst ađ viđ eigum eftir ađ taka góđa kvöldstund međ ungmennaliđinu í bridge áđur en yfir lýkur.
Sjálft mótiđ er svo frábćrlega skipulagt. Skáksalurinn er rúmgóđur og flottur en eini gallinn er kannski sá ađ mótiđ gengur ansi hćgt. Ţegar pörunin er komin í ljós hefst mikiđ ferli. Mönnum er leyft ađ athuga pörunina og stuttu síđar tilkynnir yfirdómarinn í hátalarakerfinu ađ eftir séu 5 min. af tímanum sem menn hafa til ađ skila inn borđaröđun fyrir nćstu umferđ. Ţá fer í gang skeiđklukka (300 sek) á stórum flatskjá og niđurtalning hefst. Um leiđ og niđurtalningunni lýkur er lokađ fyrir breytingar og svo hefst 300 sek. niđurtalning í sjálfa skákina. Ţá er eins gott ađ menn taki sér sćti ţví umferđin hefst nákvćmlega eftir ţessar 300 sek. og menn tapa ef ađ rassinn er ekki í stólnum. Ţess má geta ađ spennufíklar fara yfirleitt á klósettiđ ţegar 180 sek. eru eftir!
Ţetta kerfi er reyndar til fyrirmyndar ţótt ađ agalausir Íslendingar séu reyndar vanir meiri sveigjanleika.
Heilt yfir ţá er ţetta stórkostleg upplifun fyrir skákmenn ađ taka ţátt í ţessu sjónarspili.
Á morgun verđa tefldar 4.umferđir, á fimmtudaginn verđa svo síđustu 3 umferđirnar klárađar. Fjögur efstu liđin komast áfram í undanúrslit á föstudaginn en ađrar ţjóđir fara í pásu. Viđ eigum svo flug heim 21.október og fáum ţví 3-4 daga til ađ skođa okkur um í Kínaveldi. Dagskráin er á ţessa leiđ:
i) Kínamúrinn
ii) Forbođna höllin
iii) Torg hins himneska friđar
iv) Sumarhöllin
v) Kínverskt karókí ásamt kínversku hrísgrjónavíni
vi) Sjálft manndómsprófiđ: Hvuttasnćđingur
Ađ ţví sögđu vil ég óska EM-förunum íslensku góđrar ferđar (vildi óska ađ ég vćri ađ fara međ ykkur), og sendi baráttukveđjur til allra Íslendinga og Anands.
Björn Ţorfinnsson
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslendingar erlendis, Íţróttir | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 88
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.