14.10.2008 | 08:25
Fyrsti Kínapistill Björns
Þá er alvaran hafin hér í Peking. Teflt er í hinni geysistóru höll Beijing International Conference Center sem er hús á mörgum hæðum og með geysimörgum sýningarsölum. Þar fer keppni fram í öllum hugaríþróttunum og hef ég nú þegar skellt mér að horfa aðeins á ungmennakeppnina í Bridge og svo úrslitin í dammi. Það er reyndar frekar fyndið að sjá dammkeppnina enda er borðið alveg eins og skákborð, 8x8, þeirra nota sömu FIDE-klukkur og við auk þess að nota blöð sem eru alveg eins og skákskriftarblöðin okkar. Ég las svo viðtal á mótsstað við fyrrverandi heimsmeistara sem sagði að damm væri flóknara en skák...tja....bíddu.....eru tölvurnar ekki örugglega búnar að leysa damm?
Við byrjuðum sumsé kl. 10.00 á kínverskum tíma sem er kl. 2.00 um nótt á íslenskum tíma. Ferðalagið var afar erfitt og satt best að segja vorum við talsvert vankaðir í morgunsárið. Ég hafði farið á mótsstað í gær og fengið upplýsingar um reglurnar í mótinu en í þeim eru þrír athyglisverðir punktar sem að reyna mun á:
i) Ef að skákmaður ýtir taflmanni á borðinu um koll og leikur án þess að lagfæra hann þá tapar hann umsvifalaust skákinni.
ii) Ef að skákmaður er ekki sestur við borðið þegar að aðaldómarinn tilkynnir að umferðin eigi að byrja þá tapar hann umsvifalaust skákinni, jafnvel þó að hann standi við stólinn.
iii) Ef að mönnum er ekki leikið akkúrat á reitinn þá getur andstæðingurinn kvartað (eða dómarinn tekið sjálfur ákvörðun um það). Við fyrstu kvörtun fær viðkomandi gult spjald og verði manninum aftur á í messunni þá fær hann rauða spjaldið og tapar skákinni.
Í hraðskákinni er rétt að taka fram að tímamörkin eru 3 min. og 2 sek. í viðbótartíma.
En við vorum sumsé afar vankaðir í morgun og vorum mjög seinir að leggja af stað á mótsstað. Gangan tók svo örlítið meiri tíma en við áætluðum og þegar að við vorum við dyrnar þá sáum við að klukkan var 10. Þá var auðvitað hert á göngunni og þegar við komum í keppnissalinn voru allir aðrir að setjast - við vorum því hólpnir. Þá hófst gleðin.
1. umferð: England - Ísland, 2,5 - 1,5 (Hannes, Héðinn, Henrik, Stefán)
Við vorum glaðir að fá Englendingana enda var ætlunin að ímynda sér að andstæðingarnir væru annaðhvort Darling eða Clown og svo refsa þeim grimmilega. Allt kom hinsvegar fyrir ekki og þrátt fyrir að við værum mun sterkari þá tapaðist viðureignin með minnsta mun. Hannes tapaði eftir mikla baráttu gegn IM Andrew Greet í skák sem að hann átti ekki skilið að tapa, Héðinn gleymdi sér og féll á tíma með aðeins betri stöðu og Henrik komst ekkert áfram gegn sínum andstæðingi og samdi jafntefli í mislitu biskupaendatafli. Stebbi slátraði hinsvegar sínum andstæðing i gjörsamlega. Hrikaleg úrslit.
2. umferð: Ísland - Kína 0 -4 (Hannes, Héðinn, Henrik, Stefán)
Áætlunin var að vinna einhverja létta sveit í næstu umferð og koma sterkir tilbaka og því voru heimamenn ekki óskaandstæðingar. Þeir gerðu aðeins jafntefli í fyrstu umferð og við vorum efstir þeirra sem töpuðu. Sveit þeirra var ógnarsterk eða á þessa leið: Bu, Wang Yue (sem heilsaði mér auðmjúklega), Wang Hao og Ni Hua. Við hefðum nú samt átt að taka einhverja punkta af þeim - Hannes var með betra þegar hann lék af sér manni, það sama gerðist fyrir Héðinn þegar hann var kominn með yfirburði jafnt sem á klukku sem og borði og Stebbi var með góðu stöðu nánast allan tímann þar til í blálokin. Stefán upplifði það að fá gula spjaldið þegar að hann lék hróki sínum 80% á b4 og 20% á b3. Það var frekar undrandi Punkur sem að fékk áminninguna frá dómaranum. Í hvaða íþrótt var hann staddur?
3. umferð: Japan - Ísland 0-4 (Héðinn, Henrik, Stefán, Björn)
Í þessari umferð var talið gott að leyfa liðstjóranum áhugasama að spreyta sig. Japanir eru ekki sterk skákþjóð og var þessum vinum okkar í efnahagsmálum samviskusamlega ýtt útaf borðinu á öllum borðum.
4. umferð: Ísland - Ítalía 2-2 (Hannes, Héðinn, Henrik, Björn)
Stefán ákvað að hvíla og því fékk ég að tefla aðra skák mína í mótinu. Það voru mistök. Hannes og Henrik unnu afar sannfærandi með hvítu mönnunum en ég og Héðinn vorum óheyrilega óheppnir með svörtu mönnunum. Héðinn var með gjörunnið tafl en lék sig í mát og ég var með mikla yfirburði þegar ég lék af mér skiptamuni. Það kom ekki að sök og skömmu síðar gat ég tryggt mér jafntefli (engar skákir búnar, hefði að sjálfsögðu tekið því ef tveir vinningar hefðu verið í húsi) með því að hóta óverjandi máti og þá hefði Ítalinn neyðst til að taka þráskák. Ákvarðanatakan var hinsvegar eitthvað brengluð og ég fór út í sullumbull í staðinn þegar að báðir voru með 10 sek. eftir á klukkunni. Svo lék ég samviskusamlega öllu niður í tímahrakinu og tapaði. Afar þreytt úrslit gegn sveit sem við áttum að vinna.
5. umferð: Litháen - Ísland 0-4 (Hannes, Héðinn, Henrik, Stefán)
Litháenar eru ekki með sitt sterkasta lið - eingöngu unga stráka sem eru um og yfir 2400 stig. Taldi þá samt seigari en þetta í hraðskák en niðurstaðan var einfaldlega sú að við unnum sannfærandi í öllum skákum. Íslenska vélin er komin í gang og hana fær ekkert stöðvað!
Að loknum fimm umferðum kom langt hádegisverðarhlé. Við fáum að borða á hótelinu okkar sem að er í talsverðri fjarlægð frá mótsstað og fyrst við vorum búnir að rölta alla þessa leið þá ákváðu menn að leggja sig aðeins á milli umferða. Það átti eftir að reynast dýrkeypt og er heiti síðari þáttar einfaldlega: Íslendingar læra skákreglurnar".
6. Umferð: Ísland - Ástralía 1,5 - 2,5 (Hannes, Héðinn, the man who wasnt there, Stefán)
Við gleymdum okkur hrikalega á klukkunni og þegar við komumst til átta þá var klukkan rúmlega 12 min. í umferð. Ákváðum við þá í skyndi að Henrik skyldi hvíla og hljóp ég af stað á hraða antilópunnar enda varð að skila borðaröðuninni inn 5 min. fyrir umferð. Þegar ég kom í mark" var hraðinn orðin svipaður hámarkshraða skjaldbökunnar en samt taldi ég mig nú alveg vera að ná þessu. Þegar ég kem síðan inn í salinn og tæplega 2-3 skref í bakann þar sem skila átti inn liðinu þá er tilkynnt að það sé búið að loka fyrir breytingar í hátalakerfinu. Ég tek auðvitað síðustu metrana í góðu stökki en það gerði dómarinn líka og harðbannaði mér að skila inn liðinu. Sveigjanleikinn enginn og þrátt fyrir smá taut mitt þá leyfði hann mér ekki að skila inn blaðinu. Þá voru 5 min. í umferð og ómögulegt að ná í Henrik á þeim tíma og því hófst umferðin með autt borð hjá Íslandi á 3.borði - eitt-núll fyrir Ástralíu. Hannes var lengi vel hársbreidd frá því að yfirspila andstæðinginn gjörsamlega en IM Smerdon barðist vel og uppskar ósanngjarnt jafntefli. Stebbi vann svo sína skák sannfærandi en á 2.borði máttum við þola beiskan ósigur þegar að Héðinn tapaði með því að rekast í kónginn sinn með erminni og ýta ósjálfrátt á klukkuna áður en kóngurinn var lagaður. Umsvifalaust brútal" tap og því tap með minnast mun í heildina. Dísús segi ég nú bara.
7. Umferð: USA - Ísland 1-3 (Hannes, Héðinn, Henrik, Stefán)
Enn var heppnin ekki með okkur. Baráttan var hörð í öllum skákum en smá saman fór þetta á versta veg. Stebbi tefldi sína verstu skák og féll á tíma þegar hann var í bullandi vandræðum. Hannes tefldi við Shabalov og var nú líklega með tapað tafl en var með sprikl sem gerði Kananum/Lettanum erfitt fyrir. Svo erfitt var það að Hannes plataði Shaba og var með gjörunnið tafl þegar að hann rekur sig í kónginn hjá andstæðingnum og ýtir á klukkuna. Dómarinn var reyndar ekki á staðnum en Shabalov krafðist vinnings. Það sama gerðist fyrir Henrik þegar Den Danske" var peði yfir gegn GM Fridel og við sáum fram á kreisting. Strax tap. Héðinn bjargaði svo umferðinni með sannfærandi sigri á Perelsteyn.
8. Umferð: Ísland - Ísrael 3-1 (Hannes, Héðinn, Henrik, Björn)
Ísraelar senda mjög veikt lið til leiks og því var sigurinn í raun of lítill. Hannes vann strax þegar að andstæðingurinn var ekki mættur í byrjun og undirritaður og Henrik unnu sannfærandi. Héðinn lenti hinsvegar í smá basli í byrjuninni og eftir mikla baráttu sem virtist vera að skila jafntefli þá féll okkar maður á tíma. En sigur er alltaf sigur og tvö matchpoint í húsi. Fyrir umferðina skildu leiðir en Stefán var orðinn frekar slappur og ákvað því að fara heim á hótel og hvíla sig. Skáksjúkur liðstjóri féllst á það.
9. Umferð: Ísland - Pakistan 3-1 (Hannes, Héðinn, Henrik, Björn)
Sannfærandi á öllum borðum fyrir utan slys hjá Henrik.
10. Umferð: Ísland - Austurríki 1,5 - 2,5 (Hannes, Héðinn, Henrik, Björn)
Þessi úrslit voru eiginlega þau mest svekkjandi enda vorum við farnir að eygja möguleika á góðu sæti með áframhaldandi velgengni. Austurríkismennirnir ættu venjulega að vera þægilegir andstæðingar en allt brást sem hægt var. Hannes gerði jafntefli á fyrsta borði og ég vann (það skal koma fram...auðveldlega) á fjórða borði en Héðinn og Henrik töpuðu því miður báðir. Andstæðingi Henriks ekki boðið til Íslands að tefla eftir sína framkomu - svo mikið er víst.
11. Umferð: Írak - Ísland 1-3 (Hannes, Héðinn, Henrik, Björn)
Írakarnir voru ansi hressir og spjölluðu mikið fyrir skákirnar. Sérstaklega var minn andstæðingur vinalegur og það er reyndar alveg ótrúlegt hvað það hefur oft slæm áhrif á taflmennskuna hjá mér. Einbeiting fer veg allrar veraldar. Það sem ég er að reyna að segja er....að ég tapaði samviskusamlega. Sem betur fer unnu samt allir aðrir og því var 3-1 sigur staðreynd. Henrik lenti í smá deilum þar sem að andstæðingurinn lék ólöglegum leik, kóngi ofan í, sem að Henrik drap, án þess að ýta á klukkuna og kallaði á skákstjóra (og féll á tíma meðan hann beið eftir honum). Þetta olli miklu fjaðrafoki hjá Írökum sem voru alveg brjálaðir og tóku ekki röksemdum okkar um að leikur væri ekki kláraður fyrr en að ýtt væri á klukkuna. Skákdómarinn var hinsvegar sammála okkur en ég efast um að Henrik drepi kóng í bráð - þetta var of mikið vesen fyrir það!
Skemmtilegu móti var því lokið og vorum við hundfúlir með árangurinn. Við finnum þó allir hversu mikið ferðalagið situr í okkur og því vona ég að á morgun verðum við landi og þjóð til sóma.
Við enduðum í 11.sæti en vinningafjöldi einstakra liðsmanna var þessi:
- 1. Hannes 6/10
- 2. Héðinn 5/11
- 3. Henrik 6,5/11*
- 4. Stefán 4/6
- 5. Björn 4/6
* Henrik tapaði skák sem var í raun mér að kenna. 6,5/10 er í raun hið eiginlega skor.
Í rauninni vorum við bara sáttir við 11.sætið miðað við hvað við vorum óheppnir og í raun hreinlega lélegir á köflum J
Á morgun hefst svo atskákin og ætlum við svo sannarlega að taka okkur saman í andlitinu fyrir hana.
Ég reyni svo að koma með pistil um aðstæður síðar.
Kveðja til kreppueyjunnar,
Björn
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslendingar erlendis, Íþróttir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 88
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtilegur pistill!
Sindri Guðjónsson, 14.10.2008 kl. 16:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.