Leita í fréttum mbl.is

EM ungmenna - pistill 4. umferđar

Ágćt umferđ í dag.  Viđ vorum einungis stigalćgri í sjö skákum af tíu, stigahćrri í tveimur og u.ţ.b. jöfn stig í einni.  Uppskeran í dag reyndist vera fimm vinningar eđa 50%.  Rennum yfir skákirnar í dag.

Friđrik ŢjálfiU-12 drengir:

Jan Machan, CZE (1608) - Friđrik Ţjálfi Stefánsson (0)  ˝-˝

Stutt skák hjá yngsta keppandanum í dag.  Frönsk vörn, steindrepiđ á d5 og jafntefli fljótlega.  Ţađ má svo sem búast viđ svona skákum í frönsku vörninni.  Ţađ er samt mjög athyglivert ađ Friđrik er greinilega ekki metinn sem skyldusigur ţó ađ hann sé stigalaus.  Menn sjá greinilega styrkleika hans í skákunum sem hann er búinn ađ tefla.

U-14 stúlkur:

Anna Strzelczyk, POL (1823) - Geirţrúđur Anna Guđmundsdóttir (0)  ˝-˝

Annađ stutt jafntefli í franskri vörn.  Hér var ţó talsvert eftir af skákinni en jafntefli međ svörtu gegn ţokkalega stigaháum keppanda er vel ásćttanlegt.

U-14 drengir:

Radmilo Dimitrijevic, SRB (2186) - Dagur Andri Friđgeirsson (1812)  1-0

Hversu óheppinn getur mađur orđiđ?  Međ hálfan vinning af ţremur og fćr tćplega 2200 stiga mann.  Ţá er ekkert annađ ađ gera en ađ tefla vel.  Dagur tefldi mjög vel framan af í dag og var gjörsamlega ađ ganga frá sterkum andstćđingi sínum.  Ţví miđur valdi hann ekki rétta framhaldiđ (sem hann var ţó búinn ađ sjá) og tapađi.  Dagur getur greinilega unniđ hvern sem er í ţessum flokki og ţađ er ađeins tímaspursmál ađ vinningarnir fari ađ skila sér.

U-16 stúlkur:

Gabriella Hitter, HUN (2075) - Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (1907)  ˝-˝

Hallgerđur er búin ađ vera ađ tefla vel á mótinu.  Ţessi skák var engin undantekning á ţví.  Segja má ađ andstćđingur hennar hafi rétt hangiđ á jafntefli í ţessari skák.

Lateefah Messam, ENG (1890) - Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1655)  0-1

Tími til kominn ađ viđ fengjum ađ njóta smá heppni.  Jóhanna fékk mjög slćma stöđu fljótlega eftir byrjunina, tapađi peđi og fékk raunverulega koltapađ tafl.  Mađur vinnur hins vegar ekki međ ţví ađ gefast upp og ađ lokum hafđi Jóhanna sigur í skrautlegri skák.

U-16 drengir:

Haik G. Vardanian, ARM (2177) - Hjörvar Steinn Grétarsson (2299)  ˝-˝

Patrekur MaronÍ ţessari skák gerđist aldrei neitt merkilegt.  Stađan lokađist og niđurstađan ţví jafntefli.

Patrekur Maron Magnússon (1872) - Nikola Potpara, MNE (1883)  1-0

Fljótlega eftir byrjunina fékk Patrekur heldur verri stöđu.  Hann tefldi vörnina vel í framhaldinu og eftir mikla baráttu hafđi hann loks sigur.  Tími til kominn ađ barátta hans og dugnađur skili sigri.

U-18 stúlkur:

Tinna KristínTinna Kristín Finnbogadóttir (1655) - Melodi Dincel, TUR (1845)  0-1

Ekki góđ skák hjá Tinnu.  Hún tefldi ţó byrjunina ágćtlega en brenndi sig á ţví ađ sćkja of skart fram međ peđum í stađ ţess ađ koma öllum mönnunum út.  Fyrirvaralaust vafđi mát í borđi yfir og skákin tapađist í framhaldinu.  Tinna hefur samt veriđ ađ tefla vel á mótinu og á eftir ađ uppskera samkvćmt ţví.

U-18 drengir:

Sverrir Ţorgeirsson (2102) - Aydin Acarbay, TUR (1825)  0-1

Sverrir hefur veriđ frekar lánlaus á ţessu móti og var ţađ enn í dag.  Hann tefldi mjög athyglisverđa skák (slavi međ skiptum litum) og fékk fína stöđu.  Hann teygđi sig ţó of langt í ađ vinna peđ áđur en kóngurinn var kominn í skjól og kóngstađan gaf eftir.  Slćmt tap í skák sem ekki hefđi ţurft ađ fara svona illa.  Sverrir kemst vonandi á skriđ í nćstu umferđum.

Dađi Ómarsson (2029) - Daniel Izso, HUN (2233)  1-0

Flott skák hjá Dađa.  Raunverulega voru u.ţ.b. 20 fyrstu leikirnir tefldir heima!  Viđ vorum međ nákvćmlega sömu stöđuna á eldhúsborđinu í morgun og kom upp í skákinni.  Dađi sýndi góđan skilning á stöđunni og vann ţarna góđan sigur.

Davíđ Ólafsson


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 8778243

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband