Leita í fréttum mbl.is

Fyrsta umferđ á EM ungmenna

Fyrsta umferđ Evrópumóts ungmenna í skák var tefld í gćr.  Fyrir umferđina mátti búast viđ ađ róđur íslensku keppendanna yrđi erfiđur ţar sem níu af tíu keppendum okkar fengu mikiđ stigahćrri andstćđinga, en Hjörvar Steinn Grétarsson var sá eini sem var stigahćrri en andstćđingur sinn.  Árangur krakkanna í ţessari umferđ var mjög góđur og litlu munađi ađ vinningar í hús yrđu enn fleiri.

Skákmótaskipuleggjendaskelfirinn brosir breytt eftir ađ hafa komist í VIP gistinguFerđin byrjađi samt ekki allt of vel ţví viđ vorum ekki komin á hóteliđ fyrr en um klukkan eitt ađ nóttu eftir langa ferđ frá Íslandi.  Hóteliđ reyndist vera ađ hruni komiđ og í einu herberginu fannst m.a. ţessi flotti kakkalakki á klósettinu.  Fararstjóri okkar og skákmótaskipuleggjendaskelfir, frú Edda Sveinsdóttir gekk fljótt og vel í máliđ snemma morguninn eftir og nú erum viđ komin í VIP gistingu í miđbćnum!  Frekari lýsingar á ţessu ferli má örugglega lesa á blogginu hennar Eddu.

Snúum okkur ţá ađ skákunum.

U-12 drengir:

Friđrik Ţjálfi Stefánsson (0) - Maksimillian Boskovic, SRB (1864)  ˝-˝

Friđrik Ţjálfi varđist vel gegn sterkum serbneskum andstćđingi og endađi skákin í jafntefli eftir mikla baráttu.  Virkilega góđ byrjun í ţessum flokki.

 

U-14 stúlkur:

Geirţrúđur Anna Guđmundsdóttir (0) - Tanya Revo, BLR (1954)  ˝-˝

Annađ gott jafntefli í hús í ţessum flokki.  Hér var einnig hart barist en Geirţrúđur hélt frumkvćđinu allan tíman og átti á tímabili góđa möguleika á sigri í ţessari skák.  Viđ fórum vel yfir ţađ eftir skákina hversu mikilvćgt ţađ er ađ opna línur fyrir biskupana sína og ef hćgt er ađ minnka hreyfanleika biskups andstćđingsins um leiđ er ţađ bara bónus!  Geirţrúđur hefur lofađ ađ missa aldrei af svona ţema aftur!  Hvítrússnesku stelpunni virtist mjög brugđiđ yfir góđri taflmennsku íslensku valkyrjunar og var mjög sátt viđ jafntefliđ í lokin.

 

U-14 drengir:

Mads Andersen, DEN (2092) - Dagur Andri Friđgeirsson (1812)  1-0

Dagur Andri lék örlítiđ ónákvćmt í miđtaflinu og fékk fljótlega erfiđa stöđu.  Daninn sterki nýtti sér ţađ vel og vann öruggan sigur í ţessari skák.  Dagur er stađráđinn í ţví ađ gera betur hér eftir.

 

U-16 stúlkur:

Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (1907) - Nazi Pakidze, GEO (2277)  ˝-˝

Hallgerđur tefldi mjög vel gegn stigahćstu stúlkunni í ţessum flokki og endađi skákin međ jafntefli.  Ég spurđi Hallgerđi eftir skákina ţegar hún kom hundfúl út hvort hún hefđi búist viđ ţví fyrirfram ađ vera hundfúl međ jafntefli á móti ţessari stelpu en Hallgerđur var ţađ fúl ađ hún leit ekki á ţessa spurningu sem svaraverđa á ţessum tímapunkti.  Hún hafđi líka allan rétt til ađ vera fúl eftir ađ hafa teflt skákina mjög vel og snúiđ laglega á andstćđing sinn í miđtaflinu leiddi ónákvćmur leikur í endataflinu til ţess ađ sú georgíska náđi ţráskák og var henni mjög létt eftir skákina enda hafđi hún setiđ síđustu tvo tímana ţar á undan mjög súr á svip.  Ţetta er engu ađ síđur mjög góđ byrjun hjá Hallgerđi sem sannađi enn og aftur ađ á góđum degi getur hún unniđ hvern sem er.

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1655) - Bila Bulakthanova, RUS (1976)  0-1

Jóhanna tapađi ţarna fyrir sterkri rússneskri stelpu.  Jóhanna átti ţó sín fćri í skákinni en missti ţví miđur af vćnlegum leiđum og tapađi ţví.  Hún sýndi ţó ađ hún á í fullu tré viđ ţessar stelpur sem eru rúmlega 300 stigum hćrri en hún.

 

U-16 drengir:

Hjörvar Steinn Grétarsson (2299) - Franc Ashiku, ALB (2057)  1-0

Einu skák okkar krakka ţar sem viđ vorum stigahćrri endađi međ öruggum sigri Hjörvars.  Hjörvari fannst ţó andstćđingur sinn hafa getađ gert betur í skákinni sem hann hefđi ađ sjálfsögđu getađ gert en ţarna kristallast munurinn á ţessum skákmönnum, Hjörvar sá einfaldlega miklu fleiri og betri leiđir í skákinni og uppskar eftir ţví.

Maciej Klewkowski, POL (2197) - Patrekur Maron Magnússon (1872)  1-0

Enn ein skákin ţar sem viđ vorum mikiđ lćgri á stigum.  Patreki varđ ţađ á ađ leika illa af sér og pólverjinn nćđi mátsókn í kjölfariđ.  Slćmt tap ţrátt fyrir stigamuninn en ég efast ekki um ađ Patrekur á eftir ađ koma til baka ţví harđari keppnismann en hann er erfitt ađ finna.

 

U-18 stúlkur:

Marianna Chierici, ITA (2037) - Tinna Kristín Finnbogadóttir (1655)  1-0

Ef einhver heldur ađ ţessi skák hafi veriđ einfaldur sigur skákkonu sem er u.ţ.b. 400 stigum hćrri en andstćđingurinn er sá hinn sami ađ misskilja eitthvađ!  Tinna tefldi ţessa skák mjög vel og hafđi tögl og haldir í ţessari skák lengi vel.  Tinnu lá hins vegar fullmikiđ á ţví ađ máta andstćđinginn og lék ónákvćmum drottningarleik sem kostađi skákina.  Ég held samt ađ hún hafi gert hinum keppendunum í flokknum ţađ ljóst ađ ţađ ţýđir ekkert ađ líta á ţessi lágu stig hennar til ađ meta skákstyrkleikann.

 

U-18 drengir:

Fabien Guilleux, FRA (2397) - Sverrir Ţorgeirsson (2102)  ˝-˝

Sverrir viđ upphaf skákarJafntefli međ svörtu á móti mjög sterkum frakka verđur ađ teljast mjög góđur árangur.  Sverrir tefldi mjög vel og hafđi í fullu tré viđ andstćđing sinn.  Reyndar hef ég haldiđ ţví fram í nokkurn tíma ađ ţessi stig hans Sverris segja ekki til um raunstyrk hans.  Ţessi drengur á eftir ađ fara í a.m.k. 2200 til 2250 stig á u.ţ.b. ári ef hann er duglegur ađ tefla.

Ovik Hayrapetian, ARM (2367) - Dađi Ómarsson (2029)  1-0

Dađi átti ekki góđan dag.  Hann lék örlítiđ ónákvćmum leik í miđtaflinu og nýtti armeninn sterk sér ţađ og vann örugglega.  Ţessi skák segir samt lítiđ um styrk Dađa ţví hann er líkt og Sverrir mun betri en ţessi stig hans segja til um.

 

 

Í heildina má segja ađ ţessi umferđ hafi gengiđ mjög vel 3 vinningar af 10 ţar sem viđ erum miklu stigalćgri í níu skákum af tíu er viđunandi árángur.  Viđ hefđum samt ţegiđ heldur fleiri vinninga ef tekiđ er miđ af ţví hvernig ţessar skákir voru ađ teflast en ţađ kemur vonandi til ađ skila sér í nćstu umferđ.  Ađstćđur á skákstađ eru til fyrirmyndar og eiga Svartfellingar hrós skiliđ fyrir gott skipulag á mótinu.

 

Davíđ Ólafsson


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778252

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband