Leita í fréttum mbl.is

Fjórir sterkir skákmenn ganga til liđs viđ Bolvíkinga

TaflBol017

 

Stórfrétt:  Fjórir sterkir skákmenn hafa ákveđiđ ađ ganga til liđs viđ Taflfélag Bolungarvíkur og styrkja fyrstu deildarliđ ţess fyrir Íslandsmót skákfélaga nćstkomandi vetur. Ţetta eru Jón Loftur Árnason stórmeistari og alţjóđlegu meistararnir Jón Viktor Gunnarsson, Bragi Ţorfinnsson og Dagur Arngrímsson.

Jón L ţarf vart ađ kynna enda hefur hann veriđ í forystusveit íslenskra skákmanna um árarađir ţó hann hafi minnkađ taflmennskuna hin síđari ár. Eftirminnilegasta afrek Jóns L er án efa sigur hans á heimsmeistaramóti sveina 16 ára og yngri áriđ 1977 ţar sem hann varđ á undan ekki ómerkari manni en síđar heimsmeistara Garry Kasparov. Jón L var áđur í Taflfélaginu Helli.

Alţjóđlegu meistararnir Jón Viktor og Bragi Ţorfinnsson eru af ţeirri kynslóđ sem hefur hin síđari ár veriđ ađ taka viđ keflinu af fjórmenningaklíkunni svokallađri. Skákmenn af ţessari kynslóđ stimpluđu sig rćkilega inn áriđ 1995 ţegar ţeir urđu Ólympíumeistarar sveita yngri en 16 ára. Jón Viktor og Bragi tefldu ţar á 1. og 2. borđi.  Jón Viktor var áđur í Taflfélagi Reykjavíkur og Bragi í Taflfélaginu Helli. Dagur Arngrímsson er einn efnilegasti skákmađur landsins og hefur veriđ ađ auka styrkleika sinn jafnt og ţétt undanfarin ár. Hann klárađi síđasta skilyrđiđ fyrir alţjóđlegum meistaratitli í vetur og mun án efa banka á dyr íslenska landsliđsins innan skamms. Dagur var áđur í Taflfélagi Reykjavíkur.

Á sama tíma gerir Taflfélag Bolungarvíkur tímamótasamninga viđ ţrjá af ţessum öflugu skákmönnum.  Jón Viktor og Bragi Ţorfinnsson eru styrktir ţannig ađ ţeir geti einbeitt sér algjörlega ađ taflmennsku nćstu árin og stefnan er ađ ţeir verđi báđir orđnir stórmeistarar ađ ţeim tíma liđnum. Dagur Arngrímsson er styrktur til ađ auka styrkleika sinn sem skákmanns. Taflfélag Bolungarvíkur hefur mikla trú á ţessum skákmönnum og vill međ ţessum samningum leggja sitt lóđ á vogarskálarnar til ţess ađ efla íslenskt skáklíf.  

Á síđasta keppnistímabili vann Taflfélag Bolungarvíkur tvo titla af fjórum mögulegum, sigur vannst í 2. og 4. deild. Á nćsta tímabili verđur TB međ liđ í 1.deild og 3.deild og stefnan er sett á ađ senda tvö liđ í fjórđu deild. Öflugt barna- og unglingastarf er hafiđ í Bolungarvík og standa vonir til ađ bolvískir unglingar muni tefla í 4.deild ásamt gamalreyndum bolvískum skákmönnum

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

allir alţjóđlegu meistararnir sem eru ţarna eiga nokkuđ góđan möguleika á ađ vera stórmeistarar. kannski hefur jón viktor veriđ fastur i svipuđum stigafjölda i nokkur ár en gćti vel orđiđ i góđum heimsklassa ef hann spilar rétt á spöđunum. og DAGUR er mjög skemmtilegur skákmađur sem vert er ađ fylgjast međ og ţađ vita allir hvađ bragi getur :)

ólafur gauti ólafsson (IP-tala skráđ) 20.4.2008 kl. 04:40

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 86
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband