Leita í fréttum mbl.is

Henrik og Björn sigruðu

Björn og vöfflurnarStórmeistararnir Henrik Danielsen (2406) og Björn Þorfinnsson (2368) sigruðu í sínum skákum í tíundu og næstsíðustu umferð Scandinavian Open, sem fram fór í dag.  Henrik vann Sverrir Þorgeirsson (2120) en Björn lagði  bosníska FIDE-meistarann Jasmin Bejtovic (2353).  Bragi tapaði fyrir litháíska FIDE-meistaranum Vytautas Vazonis (2399).

Efstur er danski stórmeistarinn Lars Scandorff (2526) með 7 vinninga.  Henrik er í 2.-4. sæti með 6,5 vinning ásamt sænska stórmeistaranum Stellan Brynell (2463) og danska FIDE-meistaranum Nikolaj Mikkelsen (2390) sem hefur krækt sér í lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli.  Björn er í 9.-11. sæti með 4,5 vinning, Bragi í 12. sæti með 3,5 vinning og Sverrir í 14. sæti með 1,5 vinning.

Í elleftu og síðustu umferð, sem hefst í fyrramálið kl. 9 mætast:

  • Henrik - SM Carsten Höi (2404)
  • Björn - AM Esben Lund (2403)
  • Schandorff - Bragi
  • Vazonis (2399) - Sverrir

Alls taka 14 skákmenn þátt í mótinu en alls eru tefldar 11 umferðir.  Meðal þátttakenda eru fjórir stórmeistarar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 8778287

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband