Leita í fréttum mbl.is

Kona í hverju liđi á Íslandsmóti skákfélaga?

Í fyrri frétt um ađalfund SÍ misfórst ađ birta lagabreytingartillöngu frá Lenku Ptacnikovu, Guđfríđi Lilju Grétarsdóttur og Páli Sigurđssyni um ađ ein kona skuli hiđ minnsta tefla í hverju liđi.

Lagabreytingartillögur

lagđar fram af Lenku Ptacnikovu, Guđfríđi Lilju Grétarsdóttur og Páli Sigurđssyni fyrir ađalfund 3. maí 2008 

Skáklög SÍ

3. kafli Íslandsmót skákfélaga 

19. grein

Keppendur skulu vera fullgildir félagsmenn ţeirra taflfélaga sem ţeir tefla fyrir.  Rađa skal keppendum í sveitir og borđ eftir styrkleika.  Ekki er leyfilegt ađ breyta röđ keppenda eftir ađ keppni hefst.  Keppandi getur flust upp eđa niđur um sveit hvenćr sem er keppninnar en heildarröđ keppenda verđur ađ haldast.  Komi liđ ekki til keppni án orsaka tapar ţađ skákum á öllum borđum.  Komi slíkt fyrir tvisvar skal liđiđ dćmt úr keppninni.  Í hverri viđureign skal a.m.k. helmingur liđsmanna hverrar sveitar vera íslenskir ríkisborgarar eđa hafa veriđ međ lögheimili sitt á Íslandi undanfariđ ár. 

Breytingartillaga: 

Í lok 19. greinar bćtist viđ eftirfarandi klausa:

Frá og međ Íslandsmóti skákfélaga 2009-2010 skal ađ minnsta kosti ein stúlka/kona vera í sérhverri sveit mótsins.

Greinargerđ:

Í löndum eins og Frakklandi, Spáni, Bretlandi og víđar er ţađ ófrávíkjanleg regla ađ ein stúlka/kona sé í hverri sveit ţegar félög og liđ keppa um meistaratitilinn í skák. Ţessi tillaga er ţví lögđ fram međ fyrirmyndum erlendis frá. Hugsunin er einföld: Međ ţví ađ skylda félög til ađ hafa a.m.k. eina konu í sveitinni hjá sér á Íslandsmóti skákfélaga er tryggt ađ sérhvert félag í landinu hlúi á einhvern hátt ađ skákiđkun stúlkna/kvenna og leggi kapp á ađ ţjálfa ţćr og hafa međ í liđinu. Ţetta hvetur um leiđ félögin til ađ leggja sig fram viđ ađ kveikja áhuga stúlkna/kvenna á skák, leita uppi áhugasamar stúlkur/konur og tryggja ţátttöku nýrra kvenna sem annars vćru ekki međ á skákmóti. Ţá er einnig mun líklegra ađ ţćr sem tefla međ liđi á Íslansmóti skákfélaga verđi međ á öđrum og fleiri skákmótum. Ef ţessi breytingatillaga yrđi ađ veruleika mundi íslenskt skáklíf sjá margfalt fleiri íslenskar konur en áđur hafa sést saman á skákmóti. 

Framkvćmd ţessarar tillögu vex án efa ýmsum í augum en ţá er til ţess ađ líta ađ vel virđist hafa tekist til í ţeim löndum sem ţetta hefur veriđ tekiđ upp. Ţađ vćri í ţađ minnsta vel ţess virđi ađ láta á ţetta reyna og sjá hvernig til tekst. Hér er lagt til ađ ţetta taki gildi frá og međ árinu 2009-2010 ţannig ađ félögin hafi rúmt ár til ađ undirbúa breytinguna. Nćsta Íslandsmót skákfélaga 2008-2009 fćri ţví fram međ hefđbundnum hćtti en mótiđ ţar á eftir yrđi međ konu í hverri sveit. 

Í ţessu samhengi er vert ađ taka fram ađ í reglugerđ um Íslandsmót skákfélaga er lagt upp međ ađ einungis 6 séu í liđi í öđrum deildum en fyrstu deild. Full ástćđa er til ađ endurskođa ţessa reglu og spyrja hvort ekki eigi ađ hafa 8 liđsmenn í öllum sveitum allra deilda, ţar af eina konu. Ţetta ţarf hins vegar ekki lagabreytingu heldur ítarlega umrćđu á ađalfundi og umbođ til stjórnar um ađ breyta reglugerđinni. Ef samţykkt er ađ ein kona skuli vera í hverri sveit vćri í ţađ minnsta ástćđa til ađ hafa 7 liđsmenn í öllum öđrum deildum en fyrstu deild (ţar vćru áfram 8), en eđlilegast vćri etv. ađ í öllum deildum vćri sami fjöldi liđsmanna, alls átta. Ţetta ţarf sem fyrr segir ađ rćđa á komandi ađalfundi.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hommar, lesbíur og glćpamenn. Svo mađur tali ekki um rauđhćrđa.

Hvenćr fá ţessir hópar sinn filltrúa í skákinni og 1 sérborđ á Íslandsmóti Skáklfélaga? Ég vil svör.

Spurning hvort ţá ţurfi ekki lögregluţjón viđ hvert borđ. Ţá útaf skćrum milli homma og rauđhćrđra vegna Eurovision.

Mjög sniđug tillaga engu ađ síđur... 

Arnar Gunnarsson (IP-tala skráđ) 5.4.2008 kl. 11:48

2 identicon

Ţó eitt athugavert. Eins og breytingartillagan er núna er hún mjög óréttlát. Betra vćri ađ segja:

Í lok 19. greinar bćtist viđ eftirfarandi klausa:

Frá og međ Íslandsmóti skákfélaga 2009-2010 skal ađ minnsta kosti ein stúlka/kona og einn strákur/karl vera í sérhverri sveit mótsins.





Meina, erum viđ ekki ađ stefna á jafnrétti?

Bjarni Jens Kristinsson (IP-tala skráđ) 5.4.2008 kl. 17:29

3 identicon


Međ ţví yfirhöfuđ ađ hafa kvenna- og karlaflokk í skák er veriđ ađ gera ţví skóna ađ konur séu ekki vitsmunaverur á viđ karlmenn.

Og međ ţessari tillögu er í raun veriđ ađ leggja til ađ í ţađ minnsta ein slík "annars flokks vitsmunavera" skuli fá ađ vera međ, út af einhverju sem einhverjir kalla jafnrétti: ađ skákmađur međ kannski 1300 stig skuli tekinn fram yfir annan međ 2300 stig!

Vissulega mćtti kalla slíkt jöfnuđ, ţvingađan jöfnuđ, en ţetta, ađ sá sem unniđ hefur fyrir 2300 stigum verđi ađ víkja fyrir 1300 stiga skákmanni, gengur augljóslega gegn jafnrétti. 

Auk ţess mćtti fara í kringum ţetta međ kynskiptiađgerđum. Spurningin ađ vísu á hvađa stigi kynskiptiađgerđar 2300 stiga skákmađur mćtti njóta jafnréttis. Strax viđ fyrstu hormónagjöf, eđa ekki fyrr en tyllinn vćri horfinn?

Gott hjá ţér Arnar!

olof magnusson (IP-tala skráđ) 6.4.2008 kl. 23:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 8778274

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband