Leita í fréttum mbl.is

Nú lágu Íslendingar í því

Sverrir ÞorgeirssonAllir íslensku skákmennirnir töpuðu í níundu umferð Scandinavian Open, sem fram fór í Kaupmannahöfn í dag.  Henrik Danielsen (2506) tapaði fyrir danska alþjóðlega meistaranum Esben Lund (2403), Bragi Þorfinnsson fyrir danska FIDE-meistaranum Nikolaj Mikkelsen (2390), Björn Þorfinnsson (2368) fyrir sænska FIDE-meistaranum Daniel Semcesen (2349) og Sverrir Þorgeirsson (2120) fyrir Svíanum Axel Smith (2458). 

Efstur er danski stórmeistarinn Lars Scandorff (2526) og Mikkelsen með 6,5 vinning.  Henrik er í 4.-5. sæti með 5,5 vinning, Bragi og Björn eru í 11.-12. sæti með 3,5 vinning og Sverrir er í 14. sæti með 1,5 vinning.   Í tíundu og næstsíðustu umferð, sem hefst í fyrramálið kl. 9 mætast:
  • Henrik - Sverrir
  • FM Vytautas Vazonis (2399) - Bragi
  • FM Jasmin Bejtovic (2353) - Björn

Alls taka 14 skákmenn þátt í mótinu en alls eru tefldar 11 umferðir.  Meðal þátttakenda eru fjórir stórmeistarar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 87
  • Frá upphafi: 8778273

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband