Leita í fréttum mbl.is

HM unglinga: Guðmundur og Dagur með jafntefli

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistararnir Guðmundur Kjartansson (2324) og Dagur Arngrímsson (2323) gerðu báðir jafntefli í 12. og næstsíðustu umferð Heimsmeistaramóts unglinga, 20 ára og yngri, sem fram fór í dag í Yerevan í Armeníu.  Guðmundur hefur 5½ vinning og er í 47.-57. sæti en Dagur hefur 5 vinninga og er í 58.-66. sæti.  

Efstir með með 9 vinninga eru stórmeistarnir Ivan Popov (2539), Rússlandi, og Ahmed Adly (2494), Egyptalandi.   

Mótinu lýkur með 13. umferð, sem fram fer í fyrramálið.  Þá teflir Guðmundur við Armenann Yuri Hambardzumian (2387)en Dagur við Mexíkanann Ramirez Miguel Angel Alvarez (2204).   

Alls taka 76 skákmenn þátt í mótinu sem fram fer 3.-16. október. Þar af eru 15 stórmeistarar, 22 alþjóðlegir meistarar og 8 FIDE-meistarar.  Guðmundur og Dagur eru númer 58 og 59 í stigaröðinni fyrir mót.  Alls eru tefldar 13 umferðir. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 7
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 8779036

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 113
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband