Leita í fréttum mbl.is

HM unglinga: Dagur og Guðmundur gerðu jafntefli

GudmundurKja.jpgFIDE-meistararnir Dagur Arngrímsson (2323) og Guðmundur Kjartansson (2324) gerðu báðir jafntefli í 6. umferð Heimsmeistaramóts unglinga, 20 ára og yngri, sem fram fór í dag í Yerevan í Armeníu.   Dagur gerði jafntefli við georgíska alþjóðlega meistarann Giorgi Margvelashvili (2451) en Guðmundur við Indverjann Karthik Arun (2391). 

Dagur hefur 3 vinninga og er í 33.-50. sæti en Guðmundur hefur 2 vinninga og er í 62.-71. sæti.  Filippseyski alþjóðlegi meistarinn Wesley So (2531) og egypski stórmeistarinn Ahmed Adly (2494), sem var meðal sigurvegara á síðasta Reykjavíkurskákmóti, eru efstir með 5 vinninga.    

Í sjöundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Dagur við spænska alþjóðlega meistarann Marcos Llaneza Vega (2426) en Guðmundur við Armenann Hauk G. Vardanian (2118). 

Alls taka 76 skákmenn þátt í mótinu.  Þar af eru 15 stórmeistarar, 22 alþjóðlegir meistarar og 8 FIDE-meistarar.  Guðmundur og Dagur eru númer 58 og 59 í stigaröðinni fyrir mót.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 8778323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband