Leita í fréttum mbl.is

HM unglinga; Dagur og Guđmundur gerđu jafntefli

DagurFIDE-meistararnir Dagur Arngrímsson (2323) og Guđmundur Kjartansson (2324) gerđu báđir jafntefli í 5. umferđ Heimsmeistaramóts unglinga, 20 ára og yngri, sem fram fór í dag í Yerevan í Armeníu.   Dagur gerđi jafntefli viđ hollenska alţjóđlega meistarann Daan Brandeburg (2483) en Guđmundur viđ Armenann Ovik Hayrapetian (2374).  Dagur hefur 2,5 vinning og er í 37.-45. sćti en Guđmundur hefur 1,5 vinning og er í 65.-73. sćti.  Filippseyski alţjóđlegi meistarinn Wesley So (2531) er efstur međ 4,5 vinning.  

Í sjöttu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Dagur viđ georgíska alţjóđlega meistarann Giorgi Margvelashvili (2451) en Guđmundur viđ Indverjann Karthik Arun (2391). 

Alls taka 76 skákmenn ţátt í mótinu.  Ţar af eru 15 stórmeistarar, 22 alţjóđlegir meistarar og 8 FIDE-meistarar.  Guđmundur og Dagur eru númer 58 og 59 í stigaröđinni fyrir mót.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og menn hafa veriđ ađ benda á á Skákhorninu ţá er HM-mótiđ ungmenna 2007 geysisterkt. Má sem dćmi nefna ađ Norđurlandameistarinn í skólaskák Svíinn Nithander er enn ađeins međ hálfan vinning og međal allra neđstu manna. Guđmundur Kjartansson var í sömu stöđu eftir 3 umferđir en hefur nú bćtt stöđu sína nokkuđ. 

Mikil umrćđa hefur veriđ á Skákhorninu í gćrkvöldi og í dag um ástćđuna fyrir lokun á mig á Skákhorninu. Fullyrđa menn sem reyna ađ réttlćta ţá ákvörđun ađ ástćđan hafi veriđ sú ađ ég hafi veriđ ađ "níđa skóinn af unglingunum okkar", gera ítrekađ lítiđ úr árangri ţeirra og draga upp dökka mynd af getu ţeirra.

Nú er ţađ svo ađ ţegar menn ţurfa ađ verja slćman málstađ grípa ţeir til lýginnar og er svo einnig í ţessu tilfelli.

Ég hef í skrifum mínum alls ekki gert lítiđ úr unglingunum persónulega heldur einungis bent almennt á  ađ stađa ţessara mála sé ekki nćgilega góđ. Íslensk ungmenni hafi mörg undanfarin ár veriđ ađ dragast aftur úr á skáksviđinu og ţví ţurfi ađ grípa til einhverra ráđstafana til ađ snúa blađinu viđ.

Ţessi málefnalega umrćđa hefur einhverra hluta vegna fariđ fyrir brjóstiđ á ýmsum áhrifamönnum í skákhreyfingunni og leitt til ritskođunar á vettvangi skákáhugamanna, Skákhorninu.

Ađ baki virđist liggja tilraun manna sem koma ađ skákţjálfun og ákvarđanatöku á ţessu sviđi til ađ  draga úr gagnrýninni umrćđu um stöđu mála og um frammistöđu ţeirra sjálfra.

Slík tilraun dćmir sig auđvitađ sjálf eđa hvađ ćtli knattspyrnu- eđa handknattleysáhugamönnum fyndist um ţađ ef íţróttafréttamenn og áhugafólk mćtti ekki rćđa um árangur landsliđa okkar í yngri flokkunum?

Ţađ er kominn tími til ađ skákheyfingin hćtti ađ stunda ritskođun ţegar fjallađ er um óţćgileg atriđi og taki heldur á vandamálunum af myndarskap.

Upp kemst um Potemkin tjöldin fyrr eđa seinna.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráđ) 7.10.2007 kl. 18:32

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 8778323

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband