Leita í fréttum mbl.is

Laugalćkjaskóli norđurlandameistari grunnskólasveita!

Skáksveit Laugalćkjaskóla vann öruggan sigur á Norđurlandamóti grunnskólasveita, sem lauk í morgun í Lavia í Finnlandi.   Í lokaumferđinni vannst öruggur 4-0 á danskri sveit.  Sveitin fékk 16,5 vinning eđa heilum 5 vinningum meira en nćsta sveit!   Glćsilegur árangur hjá piltunum og liđsstjóra ţeirra Torfa Leóssyni sem hefur náđ mjög góđum árangri međ sveitina.    Árangur Matthías var eftirtektarverđur en hann vann allar sínar skákir! 

Úrslit Laugalćkjaskóla í 4. umferđ:
  1. Jacob Brorsen 0-1 Dadi Omarsson
  2. Jon Capion 0-1 Vilhjalmur Palmason
  3. He He 0-1 Matthias Petursson
  4. Mads-Holger Jacobsen 0-1 Einar Sigurdsson

Stađan:

  1. Laugalćkjasóli 16,5 v. af 20
  2. Svíţjóđ 11,5 v.
  3. Noregur 10,5 v.
  4. Finnland I 8,5 v.
  5. Finnland II 8
  6. Danmörk 5 v.
Skáksveit Lauglćkjaskóla:
  1. Dađi Ómarsson (1951) 3 v. af 5
  2. Vilhjálmur Pálmason (1904) 3,5 v. af 5
  3. Matthías Pétursson (1919) 5 v. af 5
  4. Einar Sigurđsson (1784) 3 v. af 3
  5. Aron Ellert Ţorsteinsson (1847) 2 v. af 2
Liđsstjórar: Torfi Leósson og Sigríđur Ström 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Viđ ţetta er litlu ađ bćta.

En ţó:

Matthías fékk borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 3. borđi (5 af 5) og Einar fékk borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 4. borđi (3 af 3).  Ţar höfđum viđ reiknađ međ ađ Oscar Mickelin úr sćnska liđinu myndi hirđa verđlaunin međ 4 af 5, en Finnarnir fara eftir hlutfallaárangri, en ekki fjölda vinninga.

Ţetta er eitt af ţeim atriđum sem mótshaldarar hafa svigrúm til ađ ákveđa sjálfir.  Viđ komumst t.d. ađ ţví fullkeyptu áriđ 2005 í Danmörku ađ mótshaldari ţarf ekki ađ veita bikar til sigurvegaranna!  Sömuleiđis er ţađ á reiki hvort reikna eigi mótin til FIDE stiga eđa ekki.  Ţetta mót var ekki reiknađ, á međan mótiđ í fyrra á Íslandi var reiknađ, held ég. 

Vilhjálmur rétt missti af 2. borđsverđlaunum - hann varđ jafn Jon Kristian Haarr međ 3,5 af 5, en ţar sem Haar hafđi sigrađ í innbyrđisviđureign taldist hann skör hćrra.

Reyndar stóđu Norđmenn sig best á fyrstu tveimur borđunum, fengu báđir 3,5 og borđaverđlaun.  Breiddina vantađi hinsvegar, ţví hinir tveir fengu ekki nema 3,5 samtals (en ţar fengum viđ 10 vinninga). 

Ţó ađ sigurinn hafi veriđ öruggur má ţó ţess geta ađ lániđ gekk í liđ međ okkur á mikilvćgum augnablikum, svo sem í skák Arons viđ Mickelin hinn sćnska, en ţegar litiđ er til baka má segja ađ ţađ hafi veriđ einn almikilvćgasti sigurinn (og var ég búinn ađ afskrifa Aron mörgum sinnum í ţeirri skák).

Ţetta er síđasta ár piltanna á fjórum efstu borđunum, en ţeir eru allir komnir í framhaldsskóla.  Sömuleiđis ćtla ég ađ snúa mér ađ einhverju öđru, í bili alla veganna.

Ég vil nota ţetta tćkifćri til ađ ţakka Laugalćkjarskóla fyrir ađ hafa veitt mér ţetta tćkifćri og ţá sérstaklega Jóni Páli Haraldssyni fyrir veittan stuđning og áhuga .

Foreldrar piltanna eiga einnig miklar ţakkir skildar, en án ţeirra efa ég ađ viđ hefđum getađ fariđ á Evrópumótin í fyrra og í ár. Ţau hafa stutt dyggilega viđ bakiđ á sveitinni og sýnt ţessu mikinn skilning .

Sömuleiđis eiga ţakkir skildar ţau fjölmörgu fyrirtćki sem hafa stutt viđ bakiđ á okkur .

Ađ lokum vil ég ţakka piltunum fyrir allt, súrt og sćtt, síđastliđin tćp sex ár.  Ég held ég ţurfi ekki ađ fjölyrđa um ţađ - ţiđ vitiđ hvađ mér finnst.  "It's been real" .

Torfi Leósson
 

Torfi Leósson (IP-tala skráđ) 9.9.2007 kl. 16:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778337

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband