7.9.2007 | 13:41
Afmælisskákmót í Vin
Hinn góði drengur, Þórður Sveinsson, lögfræðingur, formaður ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, gjaldkeri skákfélagsins Kátu biskupanna og foringi í herdeild þeirra í skáklandnámi Hróksins á Grænlandi, varð þrítugur á dögunum og af því tilefni halda Hrókurinn og skákfélag Vinjar mót honum til heiðurs í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 10. september kl. 13:00.
Þórður var hlaðinn verkefnum á afmælisdaginn og hafði ekki tækifæri til að setja upp veislu, sigldi með bátnum Þyt frá Tasiilaq til Kulusuk á Grænlandi, ferjaði töskur og kassa á flugvöllinn í roki og rigningu og flaug heim, í stórum hópi leiðangursmanna, þreyttur og slæptur.
Tefldar verða fimm umferðir og umhugsunartími er sjö mínútur.
Allir þátttakendur fá glaðning.
Að lokum verður kaffiveisla að venju, spjallað og farið yfir glæstar byrjanir og afleiki.
Allir velkomnir og ekkert þátttökugjald, að venju.
Vin er athvarf Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir og hefur Hrókurinn haldið úti skákæfingum þar á mánudögum í um fjögur ár.
Saman hafa Hrókurinn og skákfélag Vinjar staðið að ýmsum mótum og uppákomum undanfarin ár.
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslenskar skákfréttir, Íþróttir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 4
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 130
- Frá upphafi: 8779010
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 103
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.