Leita í fréttum mbl.is

TR og Huginn vilja sameinast!

20180331_135802

Ţau tíđindi hafa orđiđ í íslenskum skákheimi ađ stjórnir Taflfélags Reykjavíkur og Skákfélagsins Hugins hafa afráđiđ ađ leggja til viđ félagsfundi hvors félags um sig ađ ţessi tvö fjölmennustu skákfélög landsins renni saman í eitt. Ţetta var endanleg niđurstađa stjórna beggja félaganna eftir fundarhöld undanfarna daga. Verđi samruninn samţykktur, er lagt til ađ hiđ sameinađa félag hljóti nafniđ TR Huginn og mun ţađ ţá senda sveitir undir ţví nafni á Íslandsmót skákfélaga leiktíđina 2018-2019. Miđađ viđ fjölda sveita félaganna á nýafstöđnu Íslandsmóti má ćtla ađ hiđ nýja félag sendi ađ minnsta kosti 12-13 sveitir á Íslandsmótiđ sem vćri nýtt ţátttökumet.

Fyrstu hugmyndir um sameiningu félaganna tveggja komu fram í kringum Íslandsmót skákfélaga um síđustu mánađamót. Gagnkvćmur áhugi kom upp úr dúrnum og eftir óformlegar ţreifingar skipuđu stjórnir félaganna átta manna undirbúningsnefnd undir forystu formannanna Kjartans Maack og Pálma R. Péturssonar til ađ láta reyna á sameininguna af alvöru.

Kjartan Maack, formađur TR: „Ég geri mér fulla grein fyrir ţví ađ ţessi samţykkt stjórnar TR mun koma ýmsum félagsmönnum á óvart og ţađ eru alls ekki allir sáttir, sérstaklega sumir eldri félaganna. En stađreyndin er bara sú ađ ţađ verđur ć erfiđara međ hverju árinu ađ halda úti öflugu félagsstarfi sem kostar bćđi tíma og peninga. Ţróunin bćđi hjá okkur og Hugin, rétt eins og hjá félagasamtökum almennt, hefur veriđ sú ađ ć fćrri hendur bera uppi starfiđ. Menn lýjast og ţađ bitnar á starfinu.

Ţađ er heldur ekkert launungarmál ađ Víkingaklúbburinn býr ađ óţrjótandi fjárstreymi sem ekki sér fyrir endann á. Ţannig hafa ţeir hrifsađ til sín nokkra af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar, ţar á međal úr okkar röđum, auk öflugra erlendra málaliđa. Ţađ er von stjórnarmanna beggja félaga ađ međ sameiningunni getum viđ veitt Víkingaklúbbnum verđuga keppni.“

Pálmi R. Pétursson, formađur Hugins: „Ţađ var sameiginleg ákvörđun okkar Kjartans ađ fara okkur ađ engu óđslega í ţessu vandmeđfarna máli sem ég veit ađ kemur mörgum í opna skjöldu. Viđ hjá Hugin höfum vissulega gengiđ í gegnum sambćrilegt ferli áđur međ sameiningu Gođans-Máta og Hellis, svo ađ úr varđ Huginn. Ţó ađ sú sameining heppnađist vel, í heildina tekiđ, reyndist hún bćđi flókin og vandasöm. Í ljósi ţess hve vel viđ höfum undirbúiđ  alla vinnu nú, leyfi ég mér ađ vera  bjartsýnn á framtíđ ţessa langstćrsta skákfélags landsins, ef samţykki félagsmanna fćst. Ég sé fyrir mér heilmikil samlegđaráhrif, bćđi varđandi nýtingu mannafla, fjármuna og húsnćđis, og ekki síst möguleika á ađ sameina mótahald međ glćsibrag. Ţar nćgir ađ nefna sameiningu Skákhátíđar MótX og Skákţings Reykjavíkur í eina allsherjar Skákhátíđ sem stćđi yfir allan janúarmánuđ.

Vert er ađ geta ţess ađ félagar okkar í Hugin norđur setja nokkurn fyrirvara viđ sameininguna, telja ađ valdahlutföllin milli SV og NA kunni ađ raskast meira en góđu hófi gegnir. Viđ ţá vil ég segja ađ jafnrćđis verđur gćtt og sérstakar mótvćgisađgerđir verđa settar í stofnsamning hins nýja félags. Ekki er óhugsandi ađ hiđ nýja félag muni leita hófanna vestur yfir Vađlaheiđi eđa öllu heldur í gegnum hana ţegar göngin verđa loks tekin í notkun“ sagđi Pálmi ađ lokum kankvís.

Bođađ verđur til félagsfunda hjá TR og Hugin strax eftir helgi, ţannig ađ síđar í ţessum mánuđi fćst úr ţví skoriđ hvort af sameiningu félaganna verđur. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 120
  • Frá upphafi: 8778222

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband