Fyrir síðustu umferð 33. Reykjavíkurmótsins hafði indverski stórmeistarinn Adhiban Baskaran ½ vinnings forskot á Tyrkjann Mustafa Yilmaz og vinnings forskot á þá sem næstir komu þar á eftir. Hann tefldi við Yilmaz og þurfti aðeins jafntefli til að tryggja sigur sinn í mótinu og það hafðist eftir 30 leikja baráttu og hlaut hann 7 ½ vinning af níu mögulegum. Lengi vel var útlit fyrir að Hannes Hlífar Stefánsson næði 2. sæti því að hann stóð til vinnings um tíma gegn Richard Rapport en missti þráðinn og lauk skákinni með jafntefli eftir 108 leiki.
Efstu menn: 1. Adhiban Baskaran 7 ½ v. (af 9) 2.-3. Maxime Lagarde Frakkland ) og Mustafa Yilmaz (Tyrkland) 7 v.
17 skákmenn fengu 6 ½ vinning þ. á m. Hannes Hlífar Stefánsson. Hinn 13 ára gamli Indverji Nihal Sarin tapaði að vísu í lokaumferðinni en var þá búinn að tryggja sér annan áfanga sinn að stórmeistaratitli og er það mál manna að ekki þurfi að bíða lengi eftir lokaáfanganum. Indverjar hafa undanfarin ár sett mikinn svip á Reykjavíkurskákmótin.
Jóhann Hjartarson og Björn Þorfinnsson komu næstir íslenskra keppenda á eftir Hannesi, hlutu 6 vinninga af níu.
Indverjinn Adhiban Baskaran er sjöundi stigahæsti skákmaður Indverja um þessar mundir en í fyrra vakti hann mikla athygli er hann varð í 3.-7. sæti í Wijk aan Zee í fyrra á eftir Wesley So og Magnusi Carlsen og sigraði þar m.a. Sergei Karjakin. Lykilsigur sinn vann hann gegn stigahæsta keppandanum: 8. umferð:
Adhiban Baskaran – Richard Rapport
Slavnesk vörn
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. e4 b5 6. Be2!?
Peðsfórnin er þekkt en í eina tíð léku menn nær alltaf að hætti Kasparovs, 6. e5 Rd5 7. a4 o.s.frv.
6. ... e6 7. O-O Be7 8. a4 b4 9. e5 bxc3 10. exf6 Bxf6 11. bxc3 Ba6 12. Re5!
Snjall riddaraleikur sem svartur hefði átt að svara með 12. .... Rd7, t.d. 13. Rxc6 Dc7 með flóknu miðtafli. Uppskiptin sem nú fara í hönd veikja mjög svörtu reitina í stöðu Rapports.
12. ... Bxe5? 13. dxe5 Dxd1 14. Hxd1 Rd7 15. f4 Rb6 16. Hd6 O-O 17. Bf3 Rc8?
Bæði hér og áður varð svartur að verjast með því leika riddaranum til d5.
18. Hxc6 Bb7
Einföld leikflétta. Barátta hróka svarts gegn biskupaparinu í opinni stöðu er vonlaus.
19. ... Haxc8
20. Bxb7 Hb8 21. Ba6 Hb3 22. Ba3 Hd8 23. Bb4 Hd2 24. Bxc4 Hbb2 25. Bf1 h5 26. a5 a6 27. Bc5 g6
– og svartur gafst upp um leið.
Horft til elo-stiganna
Þó að vinningarnir tali sínu máli í þessu móti sem taldi 248 keppendur á gríðarlegu styrkleikabili þá miða margir af yngri kynslóðinni meira við elo-stigaávinning heldur en vinningatölu. Þessir hækkuðu um meira en 50 elo-stig fyrir frammistöðu sína: Arnar Smári Signýjarson 90, Batel Haile Goitom 88, Baltasar Máni Wedholm 84, Birkir Ísak Jóhannsson 74, Benedikt Briem 73, Ísak Orri Karlsson 72, Björn Hólm Birkisson 66, Benedikt Þórisson 65, Tómas Möller 64, Magnús Hjaltason 57, Óskar Víkingur Davíðsson 51, Arnar Heiðarsson 51.
Nýr samningur
Aðalstyrktaraðili 33. Reykjavíkurskákmótsins var fjárfestingafyrirtækið GAMMA. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, og Agnar Tómas Möller, einn stofnenda GAMMA, skrifuðu á þriðjudaginn undir samning um áframhaldandi kostun Reykjavíkurskákmótsins næstu þrjú árin.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 15. mars 2018
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Skákþættir Morgunblaðsins | Breytt 18.3.2018 kl. 13:55 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.7.): 0
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 124
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 97
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.