19.1.2018 | 12:30
Reykjavik Puffins með jafntefli við franska sveit með MVL í fararbroddi!
Í gærkvöldi hófst keppnistímabilið í hinni svokölluðu PRO Chess League sem er deild sem keyrð er af Chess.com. PRO stendur fyrir Professional Rapid Online og vísar til þess að skákirnar eru atskákir með 15+2 tímamörkum.
Deildin er þannig upp byggð að skipt er niður í fjóra átta liða riðla eftir heimshlutum (Atlantic, Central, Pacific og Eastern) og keppa þau innbyrðis. Hvert lið samanstendur af skákmönnum sem búa í þeirri borg sem liðið er frá eða tengjast því á einhvern hátt. Hverju liði er jafnframt heimilt að fá til liðs við sig "free agent" eða keppendur sem búa annarsstaðar í heiminum og því eru flestir af bestu skákmönnum heims skráðir í einhver lið.
Íslenka liðið, Reykjavík Puffins, er í eigu Ingvar Þórs Jóhannessonar og Björns Þorfinnssonar og sjá þeir um rekstur liðsins.
Fyrsta viðureignin í gær var gegn Marseille Migraines og var þar svo sannarlega höfuðverkur á ferðinni! Fyrirfram voru Frakkarnir taldir sigurstranglegir enda með einn besta skákmann heims, Maxime Vachier-Lagrave (MVL) innan sinna raða. Jafnframt var hans helsti meðreiðarsveinn Etienne Bacrot sem oft hefur verið yfir 2700 elóstigum og var sterkasti skákmaður Frakka þar til MVL kom á sjónarsviðið.
Reglur keppninnar eru þó skemmtilegar að því leyti að hvert lið má ekki hafa meðalstig yfir 2500 skákstigum. Nokkrar undantekningar eru á þeirri reglu og t.d. er veittur afsláttur á stigum allra stigahæstu skákmanna heims og bónus fyrir að vera með kvenmenn í liðinu svo eitthvað sé nefnt. Meðalstig Frakkanna voru því aðeins yfir 2500 stigum á meðan Puffins liðar voru í rúmum 2480 í meðalstigum liðsmanna. Veikasti hlekkur Frakkanna var efnilegur 11 ára drengur með um 1900 skákstig en ljóst var snemma að styrkleiki hans var mun hærri en það. Engu að síður var leikáætlun Puffins manna að hamra á litla guttanum og ná svo að lágmarki einum punkti í hinum þremur skákunum í hverri umferð.
Teflt er á fjórum borðum og tefla allir meðlimir sveitanna innbyrðis og því alls 16 vinningar í boði.
1. umferðin fór mjög skemmtilega af stað og setti Bragi Þorfinnsson tóninn með algjörri slátrun gegn Etienne Bacrot í einna af skákum dagsins!
Big win from IM Bragi Thorfinsson of the @RvkPuffins vs the @MarseilleMigs!
PROChessLeague (@PROChessLeague) January 18, 2018
Playing White he goes for the gusto with a huge pawn attack and finishes sacrificially!#prochess pic.twitter.com/qzdWTOZxGX
Bragi og Etienne mættust einmitt í Disney móti árið 1993 sællar minningar fyrir Braga og ákvað hann að vera ekkert að sleppa takinu þó að ferill Bacrot hefði verið eilítið farsælli eftir það ævintýri!
Hjörvar þurfti að hafa mikið fyrir að leggja stigalægsta Frakkann og aðrar skákir töpuðust. Björn lá í endatafli gegn MVL sem hafði betra tafl lengst af þó Björn hefði verið mjög nálægt því að ná jafnteflinu. Helgi náði sér ekki á strik gegn Moussard og staðan eftir 1. umferð því 2-2.
Í annarri umferð lagði Helgi þann stigalægsta með laglegu taktísku skoti:
19.Rxd5! og svartur tapar peði þar sem dráp á d5 er svarað með Bxd5+ og svo slær hvítur á e8 tvisvar og vinnur lið.
Björn var að verjast vel með svörtu gegn Bacrot og líklegast jafntefli í augsýn þegar Frakkinn lék skyndilega heilum hrók í dauðann! Hjörvar fylgdi svo eftir með góðum sigri en Bragi tapaði gegn MVL.
Góð umferð hjá Puffins, 3-1 og staðan því 5-3!
Þriðja umferðin hófst á besta veg þegar Bragi lagði Marc Andria Maurizzi og staðan orðin 6-3 Puffins í vil! Hér voru áhorfendur farnir að veita viðureigninni verðskuldaða athygli enda stefni hér í mjög óvænt úrslit!
Helgi Ólafsson varðist glæsilega gegn MVL í mjög athyglisverðri skák þar sem Helgi stóð á tímabili betur. Hér voru Puffins menn komnir í 6.5 vinning og tvær skákir eftir í þriðju umferðinni og virtist vera að Puffins stæðu til vinnings í þeim báðum! Hjörvar sótti hart að Bacrot og Björn var liði yfir.....en þá dundi ógæfan yfir!
Bacrot í algjörri nauðvörn síðustu leiki með hvítu fann hér 36.Hxf7! sem bjargar taflinu. Hjörvar hefði líklegast getað náð jafntefli þar með bestu vörn en lenti í mátneti. Á nánast sama tíma lenti Björn í óvæntu mátneti líka og væntingarnar kramdar á nanósekúndu! Eftir þennan viðsnúning stóðu leikar 6.5-5.5 fyrir Puffins eftir þriðju umferðina.
Ljóst var að síðustu fjórar skákirnar yrðu æsispennandi. Bragi lék fljótlega illa af sér og tapaði peði fyrir litlar bætur. Frakkinn sigldi því örugglega í höfn og staðan því 6.5-6.5. Nú þurftum við að ná góðum punktum gegn þeirra bestu mönnum. Slæmu fréttirnar hættu ekki þegar Björn Þorfinnsson lék illa af sér og var orðinn peði undir og með vel rangstæðan riddara sem átti á hættu að komast ekki í heimahöfn. Á einhvern ótrúlegan hátt náði Björn að snúa á andstæðing sinn og loks að fella hann á tíma....við mikinn fögnuð liðsstjóra Puffins sem sá um beina útsendingu á netinu:
Nú voru tvær skákir eftir og báðar tvísýnar. Hjörvar virtist aldrei í taphættu gegn MVL og raunin varð sú að hann náði jafntefli þar og tryggði okkur stöðuna 8-7 og því ljóst að allt var undir í síðustu skákinni milli Helga og Bacrot. Þar náði Bacrot að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun og sneri á Helga og tryggði Frökkum að okkar mati heppnis jafntefli!
Puffins sendu út beina útsendingu á netinu en því miður láðist að geyma af henni afrit. Því verður kippt í liðinn næst og útsendingin auglýst betur næst enda gekk hún vel upp og menn ánægðir með hana. Enn er hægt að nálgast útsendingu Chess.com en þar er farið yfir Central deildina (okkar) en skákir Puffins manna voru mikið í sviðsljósinu í þeirri útsendingu:
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:40 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 14
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 121
- Frá upphafi: 8778223
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.