26.8.2017 | 09:18
Bikarsyrpan TR hafin
Bikarsyrpa TR hófst í gær þegar 18 ungmenni settust niður tilbúin að stýra sínum 16 manna her um hina 64 köflóttu reiti. Keppendalistinn samanstendur af krökkum sem eru nú þegar komin með allnokkra reynslu af þátttöku í skákmótum en stigahæstur þeirra er Blikapilturinn öflugi, Gunnar Erik Guðmundsson (1350).
Úrslit fyrstu umferðar voru á þann veg að sá stigahærri sigraði þann stigalægri en því fer fjarri að allir sigrarnir hafi komið áreynslulaust. Má þar til að mynda nefna að hinn ungi Jósef Omarsson, fæddur 2011, tefldi prýðilega gegn hinum margreynda Árna Ólafssyni (1251), og þá var Einar Tryggvi Petersen með vænlega stöðu gegn Tómasi Möller (1137). Jafntefli gerðu svo Soffía Berndsen og Tristan Thoroddsen í viðureign sem hafði alla burði til að vera framhaldið.
Önnur umferð fer fram á dag og hefst kl. 10. Þá mætast m.a. á efsta borði Gunnar Erik og Tómas.
Sjá nánar á heimasíðu TR.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 1
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 8779007
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.