Leita í fréttum mbl.is

Sturlubúđir – Skákbúđir Fjölnis ađ Úlfljótsvatni

IMG_3117

Skákdeild Fjölnis efndi til skákbúđa í sjötta sinn fyrir áhugasömustu skákkrakka deildarinnar á aldrinum 9 – 16 ára. Ađ ţessu sinni var bođiđ upp á dvöl ađ Úlfljótsvatni dagana 1. og 2. apríl. Ađ venju var dagskráin fjölbreytt og skemmtileg. Á milli tveggja tíma skákkennslutíma nutu ţátttakendur útileikjasvćđis Úlfljótsvatns sem býđur upp á fjölbreytta afţreyingu. Ekki skemmdi ţađ fyrir ađ veđriđ lék viđ Fjölniskrakka á laugardegi.

IMG_0570

Rúmlega 20 krakkar nýttu sér bođ í skákbúđirnar sem nefnast Sturlubúđir í höfuđiđ á Sturlu Péturssyni skákfrömuđar á síđustu öld. Alnafni hans og barnabarn minnist afa síns međ góđum stuđningi viđ skákbúđirnar og skákdeildina. Ţau Stefán Bergsson frá Skákakademíu Reykjavíkur og Lenka Ptacnikova skákmeistari sáu um alla kennslu og var ađstađa til skákkennslu mjög góđ á skákbúđastađ. Auk skákkennslunnar var efnt til fótboltamóts ţar sem sigurliđiđ nćldi sér í 1 kg páskaegg, fariđ í leiki viđ vatnasafaríiđ og endalaust veriđ ađ borđa mikinn og hollan mat.

IMG_0552

 

Rúsínan í pylsuendanum var lokaatriđi dagskrárinnar, GÓA páskaeggjamótiđ međ 10 glćsilegum páskaeggjum í vinning. Mótiđ var jafnt og spennandi allan tímann og auđvitađ nokkuđ um óvćnt úrslit. Jóhann Arnar Finnsson sem ađstođađi viđ skákkennsluna sigrađi GÓA páskaeggjamótiđ örugglega en í nćstu sćtum voru ţeir Joshua, Kristján Dagur, Anton Breki, Ríkharđ Skorri og Adam.

IMG_0578

Skákbúđastjóri var Helgi Árnason formađur Skákdeildar Fjölnis og fékk hann sér til ađstođar vaska menn úr hópi stjórnar og foreldra. Skákdeild Fjölnis vill ţakka öllum ţeim ađilum sem studdu viđ framkvćmd skákbúđanna međ fjárstuđningi, matvörum og GÓA-páskaeggjum.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 8778243

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband