Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Vann sigur á erfiđum andstćđingi

20170201_205825

Guđmundur Kjartansson vann Björn Ţorfinnsson í áttundu og nćstsíđustu umferđ Skákţings Reykjavíkur og er međ 7 vinninga af átta mögulegum og ˝ vinnings forskot á Dag Ragnarsson og Lenku Ptacnikovu fyrir lokaumferđ mótsins sem fram fer á morgun. Sigur Guđmundar kom nokkuđ á óvart ţví Björn hefur reynst honum erfiđur undanfarin misseri.

Á Nóa-Síríus-mótinu sem fram fer samtímis skákţinginu er Guđmundur einnig efstur en spútnik ţess móts er Dađi Ómarsson sem unniđ hefur Jón L. Árnason, Vigni Vatnar Stefánsson og nú síđast Björn Ţorfinnsson. Dađi er í efsta sćti ásamt Guđmundi og Ţresti Ţórhallssyni en ţeir eru allir međ 3 ˝ vinning. Óvćntustu úrslit fjórđu umferđar voru ţau ađ Benedikt Jónasson vann Íslandsmeistarann Jóhann Hjartarson. Benedikt er í 4.-6. sćti ásamt Björgvini Jónssyni og Vigni Vatnari Stefánssyni međ 3 vinninga.

Í b-riđli er Hörđur Aron Hauksson efstur međ fullt hús vinninga.

Í stóra uppgjöri áttundu umferđar á Skákţingi Reykjavíkur beitti Björn leiđ sem kennd er viđ stórborgina London og rekja má til sögufrćgs einvígis McDonnel og Louis Bourdonnais áriđ 1834. Magnús Carlsen hefur mikiđ dálćti á ţessari leiđ en Guđmundur fór í smiđju til Nakamura og var öllum hnútum kunnugur. Eftir byrjunina lokađist stađan en galopnađist svo skyndilega og Guđmundur var í essinu sínu og tefldi glćsilega:

Skákţing Reykjavíkur 2017

Guđmundur Kjartansson –

Björn Ţorfinnsson

London-kerfiđ

1. d4 e6 2. Bf4 Rf6 3. e3 c5 4. c3 Rc6 5. Rd2 d5 6. Rgf3 Bd6 7. Bg3 O-O 8. Bd3 b6 9. e4 Be7 10. e5 Rh5 11. Rg1 g6 12. Re2 f5 13. f4 c4 14. Bc2 b5 15. b3?

Björn hefđi betur sleppt ţessu. Betra var 15. Bf2.

15. ... b4!

Grípur tćkifćriđ og opnar stöđuna á drottningarvćng.

16. bxc4 bxc3 17. Rb1 Ba6 18. c5 Rxg3 19. hxg3 Da5! 20. Rc1

Ekki 20. Rbxc3 Bxe2 og vinnur mann og eftir 20. Rexc3 leikur svartur hrók til b8 međ vinningsstöđu vegna hótunarinnar – Hxb1.

20. ... Hab8 21. g4 Hb4 22. gxf5 Hxd4 23. Dg4 Hxf5 24. Rb3 Db4 25. Dh3

GNB10R7QM25. ... Bh4+!

Snyrtilega leikiđ, 26. Dxh4 er svarađ međ 26. ... Hxe5+! 27. Kf2 Hxf4+ o.s.frv.

26. g3 Hdxf4! 27. Bxf5 exf5 28. gxh4 De4+ 29. Kd1 De2+

- og hvítur gafst upp vegna 30. Kc1 Db2+ og 31. ... c2+. 

Wesley So sigrađi og ógnar Magnúsi Carlsen á toppi heimslistans

Fyrir lokaumferđ stórmótsins í Wijk aan Zee var ekki taliđ ósennilegt ađ Magnúsi Carlsen tćkist ađ komast upp viđ hliđ Filippseyingsins Wesley So. Magnús hafđi hvítt gegn Sergei Karjakin en So var međ svart gegn Jan Nepomniachtchi. Ekki var langt liđiđ á umferđina ţegar ljóst var ađ Karjakin ćtlađi ekki ađ gefa sig en Nepo hafđi teflt byrjunina hörmulega og var međ tapađ tafl eftir ađeins níu leiki og gafst upp eftir 28 leiki. Magnús varđ ađ sćtta sig viđ jafntefli og 2. sćti: 

1. So 9 v. ( af 13 ) 2. Carlsen 8 v. 3.-5. Adhiban, Aronjan og Wei 7 ˝ v. 6.-7. Karjakin og Eljanov 7 v. 8. Giri 6 ˝ v. 9.-11. Harikrishna, Andreikin og Wojtaszek 6 v. 12. Nepomniachtchi 5 v. 13. Rapport 4 ˝ v. 14. Wely 3 ˝ v.

Niđurstađan bođar breytingar á heimslistanum. Ţar er Magnús áfram efstur en biliđ er ađ minnka. Hann er međ 2838 elo-stig, Caruana kemur nćstur međ 2827 elo-stig og So er í 3. sćti međ 2822 elo-stig. 

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 4. febrúar 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 8778324

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband