Leita í fréttum mbl.is

Pistill Óskars Víkings frá Benidorm

Ég fór á skákmót á Benidorm í byrjun desember, sem var eiginlega skákhátíð. Það er hægt að sjá hana hér: http://www.ajedrezenelbali.com/ en það er mikið á spænsku svo að það tekur smá tíma að skilja síðuna. Það var fullt í gangi, skákmót á kvöldin og liðakeppni ungmenna fyrir spænsk skákfélög, en það var líka mót fyrir A flokk undir 2300 Elo stigum og annar B flokkur undir 2000 Elo stigum.

Ég tók þátt í tveimur mótum og tefldi átta skákir af tíu í B flokki og fimm skákir af sjö í ungmennamóti undir 12 ára. Þar fékk ég fjóra vinninga af fimm, en ég ætla að segja ykkur af B flokknum frekar. Það voru 414 keppendur í flokknum frá 30 löndum en það voru langflestir frá Spáni og margir gamlir karlar. Einn keppandinn var tvífari Lofts Baldvins, og var meira að segja í köflóttri skyrtu líka.

Fyrsta skákin var á móti  Carmelo Jose  Navarro Molina (1943) og ég tefldi Alapain varíant í sikileyjarvörn og gerði jafntefli við hann. Þessir Spánverjar tefla flestir drottningarpeðsopnun svo að þetta mót var fín æfing í að tefla á móti henni. Næsta skák var á móti Ramon Nogues Fernandez (1925) en ég stóð mig hörmulega í nimso indverskri vörn og tapaði verðskuldað. Eftir það þá fór ég á ágæts skrið og vann þrjár skákir í röð, fyrst á móti frekar slökum gaur, Carlos Gines Perez Dominguez (1447). Síðan var ég frekar heppinn á móti Arturo Lopez Heras (1846) þar sem ég var með eiginlega tapað og svo jafntefli og svo náði ég að vinna. Þriðja vinningsskákin í röð var á móti Luis Iglesias Fernandez (1849) þar sem ég vann í drottningarendatafli.

Óskar1

Skákin á móti Luis Iglesias, ekki Enrique Iglesias samt. Hann var bara hress þarna áður en skákin byrjaði, en ekki alveg eins hress þegar hún var búin.

Þá tapaði ég skák númer sex á móti Bruno Palomo Ruiperez (1942). Ég tefldi Ruy Lopez og var undir snemma í skákinni. Þá var ég bara búinn að tefla á móti Spánverjum en fór að tefla á móti Skota, Alastair Dawson (1853). Hann tefldi Reti og klúðraði skákinni niður og ég endaði með vinning. Svo tefldi ég aftur á móti 16 ára Spánverja í áttundu og síðustu umferðinni minni í B-flokknum, sem var Lluis Navarro Rico (1880). Hér er sú skák: 

(4) Davidsson,Oskar Vikingur (1707) - Navarro Rico,Lluis (1880) [C07]

Bali (8), 08.12.2016 

1.e4 e6 2.d4 d5 3.Nd2 c5 4.Ngf3 cxd4 5.Nxd4 a6 6.Bd3 Nc6 7.Nxc6 bxc6 8.0–0 Bc5 9.Nb3 Bb6 10.e5 Ne7 11.Be3 Bc7 12.f4 Bb6 13.Qf3 g6 14.Qf2 Rb8 15.Rad1 Bxe3 16.Qxe3 Qb6 17.Rf3 Qxe3+ 18.Rxe3 Rg8 19.Rf1 h6 20.Rh3 h5 21.Rf2 Kf8 22.c3 Kg7 23.Re3 Rb6 24.h3 h4 25.g4 hxg3 26.Rxg3 Rh8 27.Rh2 Rh4 28.Rg4 Rh6 29.h4 Rh5 30.Rg5 Rxg5+ 31.hxg5 Rb8 32.Nc5 a5 33.a4 d4 34.c4 Rb4 35.b3 Rb8 36.Bc2 Nf5 37.Bxf5 exf5 38.Rd2 Kf8 39.Rxd4 Ke7 40.Rd6 Rb6 41.Kf2 Be6 42.Ke3 Bc8 43.Kd3 Be6 44.Kd4 Bc8 45.Kc3 Ke8 46.Rf6 Ke7 47.Kc2 Ke8 48.e6 fxe6 49.Nxe6 Bxe6 50.Rxe6+ Kf7 51.Rd6 Rb8 52.Rxc6 Re8 53.Rf6+ Kg7 54.c5 Re4 55.c6 Re2+ 56.Kd3 Re1 57.Kd2 Re7 58.Kd3 Re1 59.Kc4 Rf1 60.Kb5 Rb1 61.Kb6 Rxb3+ 62.Kc7 Rb4 63.Kd7 Rxf4 64.c7 Rd4+ 65.Rd6 

1–0

óskar2

Útsýnið af svölunum, stutt á ströndina

Ég mæli alveg með þessu móti fyrir Íslendinga, því að það eru svo mörg mót í gangi að það er auðvelt að finna eitthvað sem passar fyrir mann, bæði krakka og fullorðna. Hótelið er mjög gott og íslenski fáninn var fyrir utan það á meðan við vorum á hótelinu. Við bjuggum á 26. hæð og veðrið var gott, svona um 18 stig á hverjum degi og hægt að fara niður á strönd líka í labbitúr eða í sjóinn. Það var líka hægt að kaupa sér gistingu með fullu fæði, og það voru rosa hlaðborð á hverjum degi og síðan er líka ódýrt að ferðast þangað.

óskar3

Keppnisaðstaða í A flokki, undir 2300 stigum

Keppnisaðstaðan er fín hjá B flokknum, en samt er eiginlega flottari aðstaða þar sem A flokkurinn teflir. Á báðum stöðum voru þeir með heilan her af dómurum sem voru allir rosalega næs, en eiginlega enginn talar ensku nema yfirdómarinn sem var smá feitur, með fína slaufu og svitnaði mörgum lítrum í hverri umferð.

Það var keppt klukkan hálf fimm um eftirmiðdaginn, sem var mjög þægilegt. Þá er maður ekki að tefla mikið lengur en til klukkan átta en ég tefldi nokkuð margar langar skákir. Svo er hægt að undirbúa sig um morguninn. Ég var mjög ánægður með ferðina, ég byrjaði í sæti númer 251 og endaði í sæti nr. 74 þrátt fyrir að sleppa síðustu tveimur umferðunum og hækkaði mig um 133 Elo stig eftir mótin tvö. Ég þakka Skáksambandi Íslands fyrir stuðninginn.

Óskar Víkingur Davíðsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 97
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband