5.1.2017 | 12:00
Skákćfingar Taflfélags Reykjavíkur hefjast á laugardaginn
Skákćfingar Taflfélags Reykjavíkur hefjast á ný laugardaginn 7.janúar og standa til laugardagsins 13.maí ţegar önninni lýkur međ hinni árlegu Vorhátíđ. Ćfingarnar eru fjölbreyttar sem fyrr og hannađar til ţess ađ mćta ţörfum sem flestra áhugasamra skákbarna. Á ćfingum félagsins munu börnin fá markvissa kennslu og persónulega leiđsögn sem mun nýtast ţeim sem grunnur ađ framförum í skáklistinni.
Ćfingagjöld fyrir vormisseri 2017 haldast óbreytt frá ţví sem var á haustönn. Ćfingagjaldiđ er 8.000kr fyrir ćfingar einu sinni í viku og 14.000kr fyrir ćfingar tvisvar í viku. Veittur verđur systkinaafsláttur í formi 50% afsláttar.
Mikilvćgt er ađ skrá ţátttakendur á ćfingarnar međ ţví ađ fylla út skráningarform sem finna má á vef félagsins. Öllum er ţó frjálst ađ prófa eina ćfingu án skuldbindingar. Foreldrar geta nýtt sér Frístundakort Reykjavíkurborgar ef börnin/unglingarnar eru međ lögheimili í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar sem og leiđbeiningar um hvađa ćfingar henta hverjum og einum veita skákţjálfarar félagsins.
Á vorönn 2017 er bođiđ upp á sjö mismunandi skákćfingar:
Byrjendaćfing I: Lau kl.10:40-11:00 (frítt)
Á ţessari ćfingu verđur eingöngu manngangurinn kenndur. Ţessi ćfing er hugsuđ fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báđum kynjum, sem vilja lćra mannganginn frá grunni eđa vilja lćra tiltekna ţćtti manngangsins betur. Börnin munu lćra ađ hreyfa alla mennina auk ţess sem ţau lćra reglur sem gilda um hrókeringu og framhjáhlaup. Ţegar barn hefur náđ góđum tökum á mannganginum ađ mati skákţjálfara ţá er ţađ tilbúiđ ađ taka nćsta skref sem er Byrjendaćfing II. Umsjón međ ćfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 6973974).
Byrjendaćfing II: Lau kl.11:15-12:15 (8.000kr)
Ţessi ćfing er hugsuđ fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báđum kynjum, sem kunna allan mannganginn og ţyrstir í ađ lćra meira og ná betri tökum á skáklistinni. Á ćfingunni tefla börnin hvert viđ annađ í bland viđ létta kennslu. Börnin lćra almennar reglur sem gilda á skákmótum og ţau venjast ţví ađ tefla međ klukku. Auk ţess munu börnin lćra grunnatriđi á borđ viđ liđsskipan og einföld mát. Umsjón međ ćfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 6973974).
Stúlknaćfing: Lau kl.12:30-13:45 (8.000kr)
Ţessi ćfing hefur fest sig í sessi sem ein fjölmennasta skákćfing TR. Fyrirkomulag ćfingarinnar er óbreytt frá ţví sem veriđ hefur síđustu misseri og eru allar stúlkur á grunnskólaaldri velkomnar ađ slást í hópinn. Á skákćfingunum er lögđ áhersla á ýmis taktísk atriđi og mátstöđur í miđtafli og endatafli. Lögđ er áhersla á ađ stelpurnar ţrói međ sér skilning á stöđuuppbyggingu, svo sem liđskipan í byrjun, úrvinnslu í miđtafli og lćri ađ ljúka skákinni međ máti. Tímarnir innihalda sitthvađ af öllu ţessu: innlögn og umrćđur, skákţrautir og taflmennsku, sköpun og gleđi. Umsjón međ ćfingunum hefur Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir (sími: 8626290).
Laugardagsćfing: Lau kl.14:00-15:55 (frítt)
Laugardagsćfingar TR hafa veriđ flaggskip félagsins undanfarna áratugi. Á ţessum ćfingum er sett upp ćfingamót og tefla börnin allan tímann. Ćfingin er fyrir bćđi stráka og stelpur á grunnskólaaldri og eru börn frá öđrum taflfélögum velkomin á ţessa ćfingu. Ćfingin er án endurgjalds. Umsjón međ ćfingunum hefur Veronika Steinunn Magnúsdóttir (sími: 6981561).
Framhaldsćfing I: Miđ kl.17:00-18:00 (8.000kr)
Framhaldsćfing I er ný ćfing sem ćtlađ er ađ koma til móts viđ ţau skákbörn TR, af báđum kynjum, sem hafa mikinn áhuga á ađ taka framförum í skáklistinni. Ţessar ćfingar eru hugsađar fyrir börn sem hafa reynslu af ađ tefla međ klukku og kunna einföld mát líkt og ađ máta međ kóngi og hrók gegn stökum kóngi. Á ţessum ćfingum er mikil áhersla lögđ á grunnatriđi endatafla. Umsjón međ ćfingunum hefur Veronika Steinunn Magnúsdóttir (sími: 6981561).
Framhaldsćfing II: Sun kl.10:45-12:15 (8.000kr)
Framhaldsćfing II (áđur Afreksćfing B) er ćtlađ ađ koma til móts viđ ţau skákbörn, af báđum kynjum, sem hafa mikinn áhuga á ađ taka framförum í skáklistinni. Ţessar ćfingar eru hugsađar fyrir ţau börn sem ţekkja grunnatriđi endatafla og eru ţegar byrjuđ ađ tefla á kappskákmótum. Umsjón međ ćfingunum hefur Kjartan Maack (sími: 8620099).
Afreksćfing: Lau kl.16:05-17:35 & Fim kl.16:00-17:30 (8.000 14.000kr)
Afreksćfing verđur međ hefđbundnu sniđi frá ţví sem veriđ hefur og er ćfingin hugsuđ fyrir stigahćstu skákbörn og unglinga TR af báđum kynjum. Á ţessum ćfingum er mikil áhersla lögđ á byrjanafrćđi og krefjast ćfingarnar ţess ađ nemendur geti unniđ sjálfstćtt. Ćft er tvisvar í viku, á fimmtudögum og laugardögum. Umsjón međ ćfingunum hefur Dađi Ómarsson (sími: 6154273).
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:22 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 9
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 116
- Frá upphafi: 8778240
Annađ
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 83
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.